Morgunblaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 53
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 53
! "
#
$
%&&'
()* ++
UPPBOÐ
Uppboð
Laugardaginn 19 mai nk. fer fram uppboð á
reiðhjólum og öðrum óskilamunum sem eru
í vörslu lögreglunnar í Hafnarfirði.
Uppboðið verður haldið í Suðurhrauni 2b í
Garðabæ og hefst kl. 13:00.
Lögreglan í Hafnarfirði.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Eyrarvegur 31, efri hæð, 010201, eignarhl., Akureyri, þingl. eig. Hjörtur
Hvannberg Jóhannsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf.,
föstudaginn 18. maí 2001 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
14. maí 2001.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp á Hnjúkabyggð 33,
Blönduósi, þriðjudaginn 22. maí 2001 kl. 15.00:
JH 524, Renault 5, árg. 1988 RV 896, Tailor, árg. 1987
OT 686, BMW 520 JC 562, Toyota Carina
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi, 10. maí 2001.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu — Suðurlandsbraut
Fallegt og bjart 45 fm skrifstofuhúsnæði á
1. hæð. Inngangur úr stóru marmaraklæddu
anddyri. Sérsnyrting. Laust. Fáir en stórir og
vandaðir aðilar í húsinu. Frábær staðsetning.
Góð aðkoma. Upplýsingar í síma 893 0200.
Til leigu 600 fm lager- og skrifstofu-
húsnæði í Skeifunni.
Hentar t.d. fyrir heildsölu og lager.
Innkeyrsludyr, lofthæð um 4,4 m.
Uppl. í símum 588 2220 og 894 7997.
Laugavegur 213 m²
skrifstofuhúsnæði í snyrtilegu lyftuhúsi með
góðri aðkomu frá Grettisgötu. Rýmið skiptist
í 6 lokaðar skrifstofur, tvö salerni og
„server“herbergi. Húsnæðið er allt nýtekið í
gegn að innan. Sér bílastæði fylgja.
Mánaðarleiga kr. 213.000.
Sími 511 2900.
SUMARHÚS/LÓÐIR
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FRÉTTIR
mbl.is
Reykjavíkurmeistaramóti Fáks
hefur vaxið fiskur um hrygg eftir að
farið var að hafa það opnið og voru
skráningar nú ríflega 270 talsins
sem þýðir að hér var um að ræða
eitt stærsta mót ársins. Íslandsmót-
in hafa verið stærst til þessa en
óvíst er hvort svo verði nú þar sem
búið er að skipta því móti í tvennt.
En hestakostur mótsins nú var með
miklum ágætum þótt þar vantaði
marga góða hesta og knapa í hópinn
eins og Íslandsmeistarana í tölti
Hring frá Húsey og Svein Ragn-
arsson og sömuleiðis Íslandsmeist-
arana í fimmgangi þá Klakk frá Bú-
landi og Vignir Jónasson. Keppt var
í meistaraflokki, fyrsta og öðrum
flokki auk yngri flokkanna þriggja.
Sigurbjörn Bárðarson fór mikinn
eins og oft áður og sigraði nú í báð-
um töltgreinunum, fimmgangi, öll-
um skeiðgreinum og að sjálfsögðu
varð hann stigahæstur keppenda í
meistaraflokki. Sannarlega stinnur
og sterkur þótt vafalítið hafi hann
verið elstur kpenda á mótinu.
Á mótinu gat að líta margar góð-
ar sýningar og er ekki neinum blöð-
um um það að fletta að gróskan í
þróun reiðmennskunnar er mikil
um þessar mundir. Framfarirnar
má greina í mörgu og má til dæmis
nefna úrslitin í tölti meistara. Þar
vakti athygli hversu góðan höfuð-
burð menn eru farnir að ríða hross-
unum í. Þar má benda á Hallgrím
Birkisson sem keppti á Guðna frá
Heiðarbrún. Var á köflum stórkost-
legt að sjá stillingu og fas hestsins
og greinilegt að þar hefur verið
vandað til þjálfunar í vetur. Einnig
var Ólafur Ásgeirsson með Glúm
frá Reykjavík vel stilltan á köflum.
Því hefur löngum verið haldið fram
að nær útilokað sé að ríða hrossum
á tölti í lóð með höfuðið en dæmin
sanna að hægt er að ná býsna langt
í þeim efnum með þolinmæði og
góðum vinnubrögðum.
Þá vakti það einnig athygli hvað
börnin og ýmsir aðrir knapar í hin-
um yngri flokkunum voru vel ríð-
andi. Þessum miklu framförum má
ótvírætt þakka ört fjölgandi reið-
höllum og inniaðstöðu til þjálfunar
víða um land.
Fróðlegt getur verið grúska í nið-
urstöðum mótsins þar sem hún er
fyrsta vísbending um möguleika
manna á komast í íslenska lands-
liðið sem keppa mun í Austurríki í
sumar. Í fimmgangi voru til dæmis
tveir kandídatar, Sigurbjörn með
Byl og Sveinn Ragnarsson með
Brynjar frá Árgerði, og fleiri mætti
nefna til sögunnar.
Starfsmenn mótsins áttu fullt í
fangi með allt það verðlaunaflóð
sem veitt var á mótinu. Höfðu menn
á orði að farandbikarar í öllum þeim
greinum og flokkum sem keppt var
í yllu orðið miklum vandræðum og
töldu sumir þeirra að hætta beri að
veita slíka gripi. Þá var nokkuð
rætt um að tímabært væri að fækka
verðlaunum og má þar nefna
skeiðtvíkeppni og íslenska tví-
keppni. Oft er það svo í til dæmis
barnaflokkum á þessum íþrótta-
mótum að einn og sami keppandinn
fær tvenn verðlaun fyrir sama af-
rekið þ.e. stigahæsti keppandi og
íslensk tvíkeppni svo dæmi sé tekið.
Reykjavíkurmótið fór vel fram.
Talsvert af fólki fylgdist með alla
dagana sem mótið stóð yfir en það
hófst á fimmtudegi og lauk á sunnu-
degi. Gera má ráð fyrir æsispenn-
andi keppni í sumar þar sem há-
punktarnir verða úrtakan fyrir
HM, fjórðungsmótið á Vesturlandi
og sjálft heimsmeistaramótið. Þá er
eins víst að stórmót Norðlendinga,
sem haldið verður á Vindheimamel-
um, getur orðið athyglisvert.
Á Andvaravöllum var haldið lok-
að mót Andvara samtímis mótinu í
Fáki. Tókst það prýðilega en mikill
kurr var þó í mönnum vegna dóm-
aranna og þá sérstaklega deilt á
einn þeirra sem þótti gefa skrýtnar
einkunnir til dæmis í úrslitum
fimmgangs. Gaf hann til dæmis ein-
um keppandanum 2,0 fyrir skeið
meðan meðdómendurnir gáfu 7,7 og
6,80. Þá gefur hann öðrum kepp-
anda 8,0 þegar hinir gefa 6,5 og 6,2
og svo má nefna 4,0 á móti 7,8 og
7,2 og svo gefur hann 3,8 meðan
standa stífir á 0,0. Í öðru tilviki gef-
ur hann 6,0 fyrir stökk þegar hinir
gefa 3,5 og 4,8. Þarna töldu menn
að skrítnir hlutir væru að gerast
sem þörfnuðust rannsóknar við.
Hjá Fáki voru fimm dómarar og
var ekki annað að heyra en full sátt
ríkti um þeirra störf og var sam-
ræmi þar í góðu lagi.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Sigurbjörn Bárðarson sem hér situr Odd frá Blönduósi sópaði til sín
gullinu og þurfti aðstoð dóttur sinnar Sylvíu, Snorra, formanns Fáks, og
Guðrúnar Berndsen til halda á gripunum við myndatöku.
Þeir voru vel ríðandi, krakkarnir á Reykjavíkurmótinu. Camilla Petra,
lengst til vinstri, sigraði á Fróða frá Miðsitju.
Reykjavíkur-
mótið gefur fyr-
irheit um spenn-
andi keppni
Góðir skeiðsprettir Gáska frá Reykjavík tryggðu Þórunni Hannesdótt-
ur yfirburðasigur í fimmgangi unglinga hjá Andvara. Keppnistímabil hestamanna er nú hafið
fyrir alvöru en nokkur mót voru haldin um
helgina og ber þar hæst opna Reykja-
víkurmeistaramótið sem haldið var á
Víðivöllum. Andvari hélt einnig sitt lokaða
íþróttamót og kíkti Valdimar Kristinsson á
þessi tvö mót en auk þess var athyglisvert
þriggja kvölda mót haldið um miðja
vikuna í Hafnarfirði.
Guðni frá Heiðarbrún var fasmikill í framgöngu hjá Hallgrími
Birkissyni og vakti góður höfuðburður sérstaka athygli.