Morgunblaðið - 15.05.2001, Blaðsíða 57
VÍMULAUS ÆSKA, foreldrahópurinn, Vonarstræti 4b.
Foreldras. 581 1799, opinn allan sólarhringinn. For-
eldrahúsið opið alla virka daga kl. 9–17, s. 511 6160 og
511 6161. Fax: 511 6162.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464 og grænt nr. 800–
6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að
tala við. Svarað kl. 20–23.
ÞJÓNUSTUSETUR LÍKNAFÉLAGA: Hátúni 10B. Opið
alla virka daga kl. 13-17. Allar upplýsingar og minning-
arkort félaga S: 551-7744.
SJÚKRAHÚS heimsóknartímar
SKJÓL HJÚKRUNARHEIMILI. Frjáls alla daga.
LANDSPÍTALINN – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
FOSSVOGUR: Alla daga kl. 15–16 og 19–20 og e. samkl. Á
öldrunarlækningadeild er frjáls heimsóknartími e.
samkl. Heimsóknartími barnadeildar er frá 15–16 og
frjáls viðvera foreldra allan sólarhringinn. Heimsókn-
artími á geðdeild er frjáls.
GRENSÁSDEILD: Mánud.–föstud. kl. 16–19.30, laugard.
og sunnud. kl. 14–19.30 og e. samkl.
LANDAKOT: Á öldrunarsviði er frjáls heimsóknartími.
Móttökudeild öldrunarsviðs, ráðgjöf og tímapantanir í s.
525 1914.
ARNARHOLT, Kjalarnesi: Frjáls heimsóknartími.
HRINGBRAUT: Kl. 18.30–20.
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD, Dalbraut 12: Eftir
samkomulagi við deildarstjóra.
BARNASPÍTALI HRINGSINS: Kl. 15–16 eða e. samkl.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS KLEPPI: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vífilsstöðum: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
KVENNADEILD, KVENLÆKNINGAD. Kl. 18.30–20.
SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14–21 (feður, systkini,
ömmur og afar).
VÍFILSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30–20.
SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknar-
tími kl. 14–20 og eftir samkomulagi.
ST. JÓSEFSSPÍTALI HAFN.: Alla d. kl. 15–16 og 19–19.30.
SJÚKRAHÚS SUÐURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsóknar-
tími a.d. kl. 15–16 og kl. 18.30–19.30. Á stórhátíðum kl.
14–21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar
Suðurnesja er 422 0500.
SJÚKRAHÚS AKRANESS: Heimsóknartímar eru frá kl.
15.30–16 og 19–19.30.
AKUREYRI – SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla daga
kl. 15.30–16 og 19–20. Á barnadeild og hjúkrunardeild
aldraðra Sel 1: kl. 14–19. Slysavarðstofusími frá kl. 22–8,
s. 462 2209.
BILANAVAKT
VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfum Orkuveitu
Reykjavíkur (vatns-, hita- og rafmagnsveitu) sími
585 6230 allan sólarhringinn. Kópavogur: Vegna bilana á
vatnsveitu s. 892 8215. Rafveita Hafnarfjarðar bilana-
vakt 565 2936
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA: Sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir
og liðsinnir utan skrifstofutíma.
SÖFN
ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Árbæjar eru lokuð frá 1. sept-
ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á mánu-
dögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 13. Einnig er
tekið á móti skólanemum og hópum sem panta leiðsögn.
Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8–16 alla virka daga.
Nánari upplýsingar í s. 577 1111.
BORGARBÓKASAFN, aðalsafn, Tryggvagötu 15: Sími:
563 1717, fax: 563 1705. Opið mánud–fimmtud. kl. 10–20.
Föstud. kl. 11–19. Laug. og sun kl. 13–17.
BORGARBÓKASAFNIÐ í Gerðubergi, Gerðubergi 3–5:
Sími: 557 9122, fax: 575 7701. Mánud.–fimmtud. kl. 10–
20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er einnig opið laugard. og
sunnud. kl. 13–16.
BÚSTAÐASAFN v/Bústaðaveg: Sími: 553 6270, fax: 553
9863. Mánud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19.
Sept.–maí er einnig opið laugard. kl. 13–16.
BÓKABÍLAR:Bækistöð í Bústaðasafni, sími: 553
6270.Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Bókabílar
ganga ekki í tvo mánuði að sumrinu og er það auglýst
sérstaklega.
FOLDASAFN v/Fjörgyn:Sími: 567 5320, fax: 567 5356. Má-
nud.–fimmtud. kl. 10–20, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er
einnig opið laugard. og sunnud. kl. 13–16.
SELJASAFN, Hólmaseli 4–6: Sími: 587 3320. Mánud. kl.
11–19, þriðjud.–föstud. kl. 11–17. Sumarafgreiðslutími
auglýstur sérstaklega.
SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27: Sími: 553 6814. Má-
nud.–fimmtud. kl. 10–19, föstud. kl. 11–19. Sept.–maí er
einnig opið laugard. kl. 13–16.
BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: Skipholti 50D. Safnið verð-
ur lokað fyrst um sinn vegna breytinga.
BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.–fös. 10–20. Opið
lau. 10–16 yfir vetrarmánuði.
BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3–5: Mán.–fim. kl.
10–21, fös. kl. 10–17, lau. (1. okt.–30. apríl) kl. 13–17. Les-
stofan opin frá (1. sept.–15. maí) mán.–fim. kl. 13–19, fös.
kl. 13–17, lau. (1. okt.–15. maí) kl. 13–17.
BÓKASAFN SAMTAKANNA ’78, Laugavegi 3: Opið
mán.–fim. kl. 20–23.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mán. til fös kl. 9–12 og kl. 13–16. S. 563 1770.
Kliðmjúk ljóssins kröfuganga. Sýning um verkalýðsbar-
áttu á fyrri hluta 20. aldar á 6. hæð Grófarhúss Tryggva-
götu 15. Sýningin er ókeypis og er opin 1.-21. maí, mán-
fim kl. 10-12 og föst-sun kl. 13-17.
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka: Op-
ið alla daga frá kl. 10–18 til ágústloka. S: 483 1504.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús,
Vesturgötu 6, 1. júní–30. ág. er opið alla daga frá kl. 13–
17, s: 555 4700. Smiðjan, Strandgötu 60, 16. júní–30.
sept. er opið alla daga frá kl. 13–17, s: 565 5420, bréfs.
565 5438. Siggubær, Kirkjuvegi 10, 1. júní–30. ág. er opið
lau.–sun.. kl. 13–17. Skrifstofur safnsins verða opnar alla
virka daga kl. 9–17.
BYGGÐASAFNIÐ Í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl.
13.30–16.30 virka daga. S. 431 11255.
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl.
13–17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
s. 423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og
eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opið
þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKA-
SAFN: Opið mán.–fim. kl. 8.15–22. Fös. kl. 8.15–19 og
lau. 9–17. Sun. kl. 11–17. Þjóðdeild lokuð á sun. og hand-
ritadeild er lokuð á lau. og sun. S: 525 5600, bréfs:
525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið lau.
og sun. frá kl. 14–17. Lokað í desember og janúar.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið
alla virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–
16. Aðgangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á int-
ernetinu: http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið
fimmtudaga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Net-
fang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstu-
daga–miðvikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjav. S: 553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–sept-
ember kl. 10–16 alla daga okt.–apríl kl. 13–16 alla daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið
er lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að
skoða safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á
sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa.
Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til
1. september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við
gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borg-
ara. Safnbúð með minjagripum og handverksmunum.
Kaffi, kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaus-
t@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17.
Skrifstofan opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bré-
fas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða:
hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafn-
arfirði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun.
til ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími
530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–
18. Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin virka daga 6.30–22, helg.
8–20. Laugardalslaug er opin virka d. 6.50–21.30, helg.
8–20. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–
20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl.
8–22. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–
22. Kjalarneslaug opin v.d. kl. 15-21, helg. 11-17. Upp-
lýsingarsími sundstaða í Reykjavík er 570-7711.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21,
lau. 8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös.
6.30–21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og
kl. 11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21,
lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30–
21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–
20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–
21, lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op-
inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl.
8.15–16.15. Móttökustöð er opin
mánudaga–fimmtudaga 7.30–16.15 og föstudaga 6.30–
16.15. Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel,
Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–
19.30. Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævar-
höfða og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun
laugardaga og sunnudaga kl. 10–18.30. Endurvinnslu-
stöðin á Kjalarnesi er opin sunnudaga, miðvikudaga. og
föstudaga kl. 14.30–19.30.
Upplýsingar sími 520 2205.
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 57
VORFAGNAÐUR átthagafélags
Sandarafélagsins verður haldinn
föstudaginn 18. maí nk. í sal Akog-
esfélagsins í Sóltúni 3 í Reykjavík.
Heiðursgestur verður Ómar Lúð-
víksson og kona hans Kay Wiggs.
Ræðumaður kvöldsins verður séra
Eðvarð Ingólfsson, prestur á Akra-
nesi. Hefst fagnaðurinn kl. 20.00.
Miðaverð er kr. 1.500. Hljómsveit
hússins leikur fyrir dansi. Innifalið í
verðinu er miðnætursnarl.
Átthagafélag Sandara er eitt elsta
átthagafélags landsins og hefur nær
árlega haldið kúttmagakvöld,
árshátíðir eða skemmtanir. Félagið
var stofnað rétt um miðjan sjötta
áratuginn og var fyrsta skemmtun
þess haldin í Hlégarði í Mosfellsbæ.
Eini núlifandi heiðursfélagi félags-
ins er Jón I. Júlíusson í Nóatúni, sem
í áraraðir var formaður félagsins.
Vorfagnaður
Sandarafélagsins
RANNSÓKNARKVÖLD Félags
íslenskra fræða verður haldið
næstkomandi miðvikudag 16. maí,
í Sögufélagshúsinu í Fischer-
sundi. Gauti Kristmannsson þýð-
ingarfræðingur flytur erindi sem
nefnist „Klassík norðursins: Nýt-
ing norrænna bókmennta til
byggingar þjóðararfs“. Hefst er-
indið kl. 20:30.
Nokkuð hefur verið rætt um
nýtingu norrænna bókmennta í
Þýskalandi að undanförnu. Árni
Björnsson hefur nýlega gefið út
bók um notkun Wagners á ís-
lenskum bókmenntun og Óskar
Bjarnason ritaði grein í Skírni
sem hann nefndi „Þegar Íslend-
ingar urðu forfeður Þjóðverja“ og
fjallaði þar um þjóðmenntastefnu
Diederichforlagsins á árunum
1911–1930. Raunar voru íslenskar
bókmenntir löngu orðnar „þýsk-
ar“ á þessum tíma og einnig ensk-
ar (svo ekki sé minnst á danskar),
því þegar á átjándu öld voru þess-
ar bókmenntir teknar inn í bók-
menntakerfi þessara „norrænu
þjóða“. Í erindinu verður litið
stuttlega á það hvernig Thomas
Percy biskup og ballöðusafnari
enskur gerði þetta með skipuleg-
um hætti.
Gauti Kristmannsson hefur ný-
lega lokið doktorsritgerð um þátt
þýðinga í tilurð þjóðarbókmennta
í Bretlandi og Þýskalandi á árun-
um 1750-1830.
Allir eru velkomnir. Í hléi verða
léttar veitingar seldar á vægu
verði en síðan verða umræður um
erindið.
Nýting norrænna
bókmennta
ÞÓRHALLUR Guðmundsson
miðill verður með skyggnilýs-
ingafund í nýja Haukahúsinu á
Ásvöllum í Hafnarfirði mið-
vikudaginn 16. maí kl. 20:30.
Miðasala er við innganginn.
Skyggni-
lýsing í
Hafnarfirði
FORELDRAFÉLAG mis-
þroska barna stendur fyrir
fræðslufyrirlestri miðvikudag-
inn 16. maí kl. 20:00.
Sólveig Sigurðardóttir barna-
læknir fjallar um greiningu á at-
hyglisbresti með ofvirkni/mis-
þroska og fyrstu skrefin eftir
hana.
Fyrirlesturinn verður haldinn
í safnaðarheimili Háteigskirkju,
gengið inn frá bílastæðinu.
Að fyrirlestri loknum svarar
Sólveig spurningum og almenn-
ar umræður verða.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Greining á
athyglisbresti
hjá börnun
FYRIRLESTUR verður á veg-
um Fræðslu- og menntaráðs
Félags íslenskra leikskólakenn-
ara þriðjudaginn 15. maí á
Grettisgötu 89, 4. hæð, kl. 20:15.
Fanný Jónsdóttir segir frá
rannsóknarverkefni sínu um
vináttutengsl leikskólabarna.
Fanný stundar doktorsnám við
Háskólann í Malmö. Kveikjan
að verkefninu er reynsla hennar
af einelti í leikskólum.
Fyrirlesturinn er opinn öllu
starfsfólki leikskóla.
Aðgangseyrir er kr. 500, sem
rennur í Rannsóknarsjóð leik-
skóla.
Ræðir vin-
áttutengsl
leikskóla-
barna
MORGUNBLAÐINU barst í gær-
eftirfarandi yfirlýsing frá Friðriki
Þór Guðmundssyni og fjölskyldu:
„Undirrituðum hefur í dag borist
bréf frá Skúla Jóni Sigurðssyni per-
sónulega, en hann er formaður
Rannsóknanefndar flugslysa. Bréf
Skúla Jóns er svarbréf við bréfi mínu
til Rannsóknanefndar flugslysa, þar
sem ég krafðist þess að formaðurinn
og nefndin útskýrðu skilmerkilega
fullyrðingar í „minnisblaði“ Skúla
Jóns fyrir hönd nefndarinnar til for-
manns samgöngunefndar Alþingis,
þess efnis að „augljós pólitísk
tengsl“ væru milli tiltekins aðstand-
anda (Friðriks Þórs Guðmundsson-
ar) og eins nefndarmanna sam-
göngunefndar (Lúðvíks Bergvins-
sonar). Ella yrði þessi fullyrðing
dregin til baka og ég beðinn afsök-
unar á þeim. Tel ég rétt að upplýsa
um innihald bréfs Skúla Jóns vegna
umfjöllunar um málið í nokkrum fjöl-
miðlum.
Í bréfi Skúla Jóns Sigurðarsonar
segir í heild: „Vegna ummæla sem ég
hafði í minnisblaði sem sent var í
tölvupósti til Árna Johnsen for-
manns samgöngunefndar Alþingis
hinn 1. maí sl., um augljós pólitísk
tengsl aðstandanda og fulltrúa í
samgöngunefnd Alþingis, vil ég taka
eftirfarandi fram.
Þessi orð féllu í hita leiksins og
hefðu betur verið ósögð, enda var
innihald þeirra ekki ástæða þess að
fulltrúi RNF sá sér ekki fært á þess-
um tíma að mæta á fund samgöngu-
nefndar Alþingis, undir þeim for-
merkjum sem fundurinn var
boðaður.
Ég bið þig og þína fjölskyldu af-
sökunar á þessum orðum.
Skúli Jón Sigurðarson (sign).“
Ég og mín fjölskylda tökum feg-
insamlega við afsökunarbeiðni Skúla
Jóns og verðum við henni. Okkur
þykir hins vegar miður að afsökun-
arbréfið komi aðeins persónulega frá
einum nefndarmanni, í ljósi þess að
„minnisblaðið“ var frá nefndinni
allri. Við kjósum hins vegar að elta
ekki ólar við þennan annmarka og
þökkum Skúla Jóni fyrir stórmann-
leg viðbrögð.
Yfirlýsing
HAFNAR eru tilraunaútsendingar á
nýrri útvarpsstöð, 101 Reykjavík.
Stöðin tekur formlega til starfa nk.
föstudag, 18. maí, og sendir út á fm
101.5. Eingöngu er leikin blönduð
tónlist sem er ætlað að ná til breiðs
hóps fólks frá 25-45, og er engin dag-
skrárgerð eða þáttastjórnendur við
stjórnvölinn. Stöðin sendir út tónlist
allan sólarhringinn og nær útsending-
arsvæðið um Faxaflóa fyrst um sinn,
en unnið er að uppsetningu senda á
Suðurlandi, Akureyri og Ísafirði.
Meginþema tónlistarstefnu stöðv-
arinnar er blandað rokk. 101 Reykja-
vík er í eigu Hólmgeirs og Birgis
Ragnars Baldurssona, og er rekin í
samstarfi við væntanlega sjónvarps-
stöð, Stöð 1, sem mun hefja tilrauna-
útsendingar á næstunni.
Ný útvarpsstöð í loftið