Morgunblaðið - 11.01.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 67
FÓLK í FRÉTTUM
Ný íslensk náttúrulífsmynd
Sofa urtubörn á útskerjum
SOFA urtubörn á útskerjum er heiti
nýirar íslenskrar náttúrulífsmynd-
ar sem frumsýnd var sl. laugardag í
Háskólabíói. Höfundur og stjórn-
andi kvikmyndarinnar er Páll
Steingrímsson kvikmyndagerðar-
maður.
Yrkisefnið er íslenskir selir,
landselur og útselur. Fylgst er með
lífsferli sela allt frá því að urta kæp-
ir á þarabeði og þar til þeir enda al-
dur sinn. Fjallað eru um hlutverk og
samspil sela við aðra þætti lífríkis-
ins, bæði fugla, fiska og menn.
Myndin var þrjú ár í vinnslu og
tekin ofansjávar og neðan- við
strendur íslands, m.a. í Breiðafjarð-
areyjum, á Vatnsnesi, Ströndum og
í Surtsey. Náðust einstök mynd-
skeið af þessum þjóðsagnaskepnum
sem eru jafn fimar í sjó og þær eru
klunnalegar á landi.
Páll er að góðu kunnur fyrir kvik-
myndir sínar um íslenska náttúru
en áður hefur hann m.a. gert myndir
um hvali, æðarfugla, lunda og gæsir.
Náttúrulífsmyndir Páls eru sérstak-
ar að því leyti að þær fjalla ekki síst
um samspil mannsins og villtrar
náttúru. Hér er slegið á sömu
strengi og fá áhorfendur að kynnast
fólki sem tekur selkópa í fóstur og
einnig hefðbundnum selanytjum.
Myndin er 52 mínútur að lengd og
ætluð til sýningar í sjónvai'pi og
verður hún sýnd í Ríkissjónvarpinu
á næstunni. Einnig hafa borist fyrir-
spurnir um myndina frá útlendum
sjónvarpsstöðvum.
Morgunblaðið/Porkell
Páll Steingrírnsson, kvikmyndagerðarmaður (t.h.), heilsar Þorvarði
Björgúlfssyni (t.v.), sem var einn fimm kvikmyndatökumanna mynd-
arinnar. Á milli þeirra er Hjörtur Howser, en hann útsetti tðnlist og
annaðist hljóðvinnslu og samsetningu.
: ■ ■ ‘..............................................................................................................................................................................■
VIKAN
4.-10. jan.
llilÉíl
Nr. var vikur Mynd Útgefandi ;Tegund
1. 2. 3 Entrapment Skífan ! Spenna
2. 1. 3 Notting Hill Háskólabíó : Gaman
3. 5. 2 The Out-of-Towners CIC myndbönd ; Gaman
4. 3. 4 10 Things 1 Hote About You Sam myndbönd ; Gaman
5. 4. 6 EDTV CIC myndbönd ; Gaman
6. 13. 2 Virus Skífan i Spenna
7. 11. 2 The Astronouts Wife Myndform ; Spenna
8. 6. 6 Motrix Wurner myndir ; Spenna
9. NÝ 1 Go Skífan : Gaman
10. 7. 7 Cruel Intentions Skífan :Spenna
11. 9. 8 True Crime Warner myndir : Spenna
12. 8. 9 Forces of Noture CIC myndbönd ; Gaman
13. 16. 3 Mod Squod Warner myndir ■ Spenna
14. 12. 4 In Dreoms CIC myndbönd Spenna
15. 19. 8 Resurrection Myndform I Spenna
16. 10. 12 Arlington Rond Háskólabíó i Spenna
17. 14. 3 My Fovorite Mortion Sam myndbönd t Gaman
18. 18. 4 Svartur köttur, hvítur köttur Háskólabíó : Gaman
19. 15. 4 Simply Irresistible Skífan : Gaman
20. NÝ 1 October Sky CIC myndbönd ; Dramo
i
Svika-
myllan á
toppnum
GILDRAN eða „The Entrapmcnl"
með þeim Catherine Zeta-Jones
og Sean Connery í aðalhlutverk-
um er vinsælasta mynd liðinnar
viku á myndbandaleigunum og
þurfa skötuhjúin Hugh Grant og
Julia Roberts því að víkja úr
toppsætinu niður í annað sætið
uieð rómantísku gamanmyndina
„Notting Hill“. í þriðja sæti er
gamanmyndin „Utanbæjarslektið"
eða „Out-of-Towners“ með Goldie
Hawn og Steve Martin í aðal-
hlutverkum. Tvær nýjar myndir
eru á lista vikunnar. Farðu eða
»Go“ er unglingamynd sem naut
talsverðra vinsælda í kvikmynda-
húsum en mörg þekkt Iög eru í
myndinni og fer hún í 9. sæti list-
ans. í 10. sæti er síðan nýja
myndin Októberhiminn eða
„October Sky“ með Jake Gyllen-
ham og Laura Dern í aðal-
hlutverki, en hún hefur notið
mikillar hylli gagnrýnenda vest-
anhafs.
íþróttir á Netinu
vg> mbl.is
-*LLTaf= «7T«l«0 tJÝTT
Sean Connery og Catherine
Zeta-Jones í Svikamyllu.
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
4539-8600-0012-1409
4543-3700-0029-4648
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA (slandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vlsa á vágest
VISA l'SLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavik.
Sími 525 2000.
CONNECTfON
Kringlunni
sími 568 6845