Morgunblaðið - 11.01.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Nýtt orkuver gangsett á 25 ára
afmæli Hitaveitu Suðurnesja
Grindavík - Hitaveita Suðurnesja
varð 25 ára 31. desember 1999 og 8.
janúar 2000 var haldin afmælisveisla
í Eldborg af þessu tilefni og þá var
formleg gangsetning á orkuveri 5 við
sama tækifæri.
I ræðu sem stjórnarformaður
Hitaveitu Suðurnesja, Ómar Jóns-
son, flutti þakkaði hann m.a. fóm-
fúsu og frábæru starfsfólki fyrir
þeirra störf og bað um að skálað yrði
fyrir afmælisbarninu. Þá fengu ýms-
ir aðilar afhenda minjapeninga, blóm
o.fl. fyrir vel unnin störf. Meðal
þeirra var Ingólfur Aðalsteinsson og
kona hans, Ingibjörg Ólafsdóttir, en
Ingólfur var fyrsti starfsmaður
Hitaveitu Suðurnesja ráðinn 1. sept-
ember 1975. Ingólfur gegndi starfi
framkvæmdastjóra og síðar for-
stjóra til 1. júlí 1992. Ómar sagði
að nú væri veröldin eins og ein
borg, „heimsbær“ og hitaveitan ætl-
aði sér að vera með í framþróuninni.
Hann greindi frá því að Hitaveita
Suðurnesja og Jarðboranir ættu í
sameiningu fyrirtækið Jarðhita hf.
og væri ætlunin að selja þar bæði
hugvit og þekkingu í „heimsbæn-
um“.
Líta til samstarfs við sveitar-
félög á höfuðborgarsvæðinu
o.fl. Fyrsta skrefið í þessa veru er
umsókn um rannsóknarleyfi í Trölla-
dyngju.
Viktoría og Garðar
gangsettu orkuver 5
Valið á þessum börnum var þannig
að forsvarsmenn hitaveitunnar leit-
uðu á Suðurnesjum að börnum fædd-
um 31. desember en einungis Garð-
ar, sem er Gíslason, er fæddur á
þeim degi fyrh’ 6 árurn, þannig að
nafn stúlku, Viktoríu Halldórsdótt-
ur, 7 ára, var dregið úr hatti skóla-
stjóra Grunnskóla Grindavíkur.
Stórtæk-
ir Lions-
menn
Grindavík - Nýlega færði Lions-
klúbbur Grindavíkur heilsugæsl-
unni í Grindavík stafræna ung-
barnavog, 2 augn- og eyrnar-
skoðunartæki og sjúkrabekk, allt
að verðmæti 350.000 kr. Þá voru
þeir með matargjafir til fjöl-
skyldna í Grindavík um jólin, alls
að verðmæti 140.000 kr.
Mættu á staðinn með
orðabókafjall
Þeir voru svo aftur á ferðinni í
Grunnskóla Grindavíkur þegar
þeir mættu á staðinn með orða-
bókafjall. Verðmæti þessara orða-
bóka er um 300.000 kr. en auk
þess fær skólinn 50.000 kr. til
kaupa á tölvuorðabókum. Fram
kom í ræðu formanns klúbbsins,
Jóns Gröndals, að hann þekki vel
skort á orðabókum þar sem hann
hafi nú kennt ensku í fjölda ára
við skólann.
Gunnlaugur Dan skólastjóri tók
á móti þessari gjöf og sagði:
„Þessar bækur koma sér afskap-
lega vel, sérstaklega núna þegar
enskunám hefst í 5.bekk.“ Þá
þakkaði Gunnlaugur Lionsmönn-
um þennan hlýhug í garð skólans.
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu
Suðurnesja, rakti sögu framkvæmda
og sagði frá því að hér væri í raun
bæði afmælisveisla og gangsetning
orkuvers 5 en undirbúningur að
þeirri framkvæmd hófst á árunum
1995-1996. Fram kom í máli Júlíusar
aðum væri að ræða nýtt stöðvarhús
með 3000 fermetra gólffleti og að öll-
um framkvæmdum, m.a. lóðarfrá-
gangi, yrði lokið í haust. Fram-
kvæmdin er kostnaðarsöm eða um 3
milljarðar króna.
Þá líta hitaveitumenn til samstarfs
við sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu, m.a. Hafnarfjörð, Kópavog
Hvolsvelli - Ekki er vitað hvort
það var 2000-vandinn eða bara
venjulegur 2000-kall sem mætti á
álfabrennu Fljótshlíðinga sem
haldin var á Goðalandi sl. laugar-
dagskvöid. A.m.k. olli hann ekki
miklum vanda því blíðskaparveður
Séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
blessaði mannvirkin og karlakór
Keflavíkur söng nokkur lög undir
stjórn Vilbergs Viggóssonar. Gang-
setningin fór síðan fram undir leið-
sögn Alberts Albertssonar aðstoðar-
forstjóra en í þessari samkomu var
um táknræna gangsetningu að ræða
þar sem ungt fólk úr Njarðvík og
Grindavík smellti með tölvumús á
skjá þannig að viðstaddii- gátu séð
gangsetninguna myndrænt á tölvu-
mynd sem varpað vai- á vegg. Hvort
bamið um sig bætti við einu MW,
Viktoría úr 28 í 29 MW og Garðar úr
29 í 30.
var og mikið fjölmenni. Púkarnir
létu hins vegar ófriðlega mjög og
skutu græskulausum skelk f
bringu meðan álfar og aðrar
kynjaverur sungu jóla- og ára-
mótalög af miklum móð undir ís-
lenska fánanum.
Morgunblaðið/Steinunn Kolbeinsdóttir
2000-vandinn mættur
'V 'gf rí'iV*.?]
9%
► 1
í . j 1
fSSSr' ?' 1
V
#•#—íííij..'? Æ
Morgunblaðið/Garðar Vignisson
Myndir af fjallinu: Frá vinstri Gunnlaugur Dan skólastjóri, Jón Gröndal, formaður Lionsklúbbs Grindavíkur og
Jón Gíslason gjaldkeri.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Jólasveinar gengu með logandi kyndla með fólkinu í göngunni.
Fjölmenni
við blysför
og álfa-
brennu
á Selfossi
Selfossi- Bæjarbúar Selfoss
og nágrennis fjölmenntu í
göngu- og blysför jóla-
sveina og fylgifiska þeiri'a
á föstudagskvöld er jólin
voru kvödd á hefðbundinn
hátt á þrettándahátíð en
henni var frestað á þrett-
ándanum vegna veðurs.
Hin ágætasta stemmning
ríkti í blysförinni og við
álfabrennuna, þrátt fyrir að
fresta hefði orðið þrett-
ándahátíðinni vegna veð-
urs. Göngunni lauk á
íþróttavellinum þar sem
kveikt var í álfabrennu og
kórafólk á Selfossi_ söng
hefðbundin álfalög. í lokin
fór svo fram myndarleg
flugeldasýning sem ung-
mennafélagsmenn stjórn-
uðu af öryggi og röggsemi.