Morgunblaðið - 11.01.2000, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐ JUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
:í
Dýraglens
Ferdinand
f
Ilvar er Hann er eitthvað lasinn. Hann sagði
Rolli ? að ef hann væri hundur þá mundi
hann skríða undir tröppurnar.
Þetta er það sem afl sagði alltaf.
Ef þér líður ekki vel, skríddu
þá undir tröppurnar.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni I 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til
forsætisráðherra
Frá Ástþóri Magnússyni:
ÁGÆTI forsætisráðherra.
Um leið og Friður 2000 óskar
yður gleðilegs árs, viljum við
minna á að árið
2000 hefur verið
útnefnt ár frið-
armenningar af
Sameinuðu þjóð-
unum. Yður mun
vafalaust hlýna
um hjartaræt-
umar við þá
vitneskju að til-
drög friðarársins
áttu upptök sín á
íslandi, en Frið-
ur 2000 sendi að-
alritara SÞ áskorun um þetta
snemma á árinu 1995.
Væri því ekki viðeigandi og
kjörið tækifæri fyrir íslensk
stjórnvöld að byrja nýja árið með
því að sýna verðugt fordæmi í frið-
armálum:
1. Ganga endanlega frá jarð-
sprengjumálinu, en ríkisstjórn yð-
ar á eftir að staðfesta 7. greinina
(Article 7) eins og kemur fram í
bréfi sem samstarfsaðilar okkar í
ICBL-átakinu gegn jarðsprengjum
hafa sent utanríkisráðherra.
2. Hætta stuðningi íslands við
hinar grimmilegu ofsóknir og
fjöldamorð á almenningi í Irak. Oll
líknarfélög heims og flestir yfir-
menn Sameinuðu þjóðanna virðast
sammála um að viðskiptabannið
sem Öryggisráðið hefur sett á
þetta fólk sé brot á alþjóðlegum
lögum og þjóni engum tilgangi
öðrum en að skapa gífurlega ör-
birgð og grafa undan möguleikum
á varanlegum friði.
Bandaríkjamenn hafa einnig
verið iðnir við að varpa sprengjum
á þetta fólk undanfarna mánuði.
Það hlýtur að vera komið nóg af
vitleysunni.
3. Lýsa ísland kjarnorkuvopna-
laust svæði, og binda þannig enda
á þær umræður sem verið hafa um
að vitgrannir menn gætu þvælst
hér um slóðir með slíka ógn við
framtíð okkar. Þessari yfirlýsingu
stjórnvalda ætti að fylgja krafa um
endurskoðun á kjarnorkuvopna-
stefnu NATO.
PS Að lokum væri ekki úr vegi
að planta utanríkisráðherra í ein-
hvern aflóga bankastjórastól eins
og nú er fordæmi fyrir. Eg minni á
að það eru tveir slíkir stólar til í
Landsbankanum. Þetta er frábær
hugmyndafræði til að losna við
spillta stjórnmálamenn. Þá væri
kannski einnig von til að fá í utan-
ríkisráðuneytið hjartahlýrri mann-
eskju sem vinveitt væri óflokks-
bundnum jólasveinum. En eins og
forsætisráðherra kannski man eft-
ir framdi Halldór Ásgrímsson það
verk um síðustu jól að stöðva jóla-
pakkasendingu til bágstaddra
barna með öllum tiltækum ráðum í
kjölfar yfirlýsinga í fjölmiðlum til
styrktar grimmdarverkunum í ír-
ak.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
stofnandi Friðar 2000.
Ástþór
Magnússon
Bréf til Garðbæinga
v/ tónlistarskóla
Frá Sólbjörtu Gestsdóttur:
HVAÐ er að gerast í Garðabæ, rétt
eina ferðina enn? Mér er gersam-
lega ofboðið!
Er verið að leika sama leikinn og
í síðustu prestskosningum? Nýlega
fór fram ráðning skólastjóra tón-
listarskólans í Garðabæ.
Smári Ólason, yfirkennari skól-
ans í fjölda ára, sótti um stöðuna
ásamt fjölda annarra, en fékk ekki.
Agnes Löve var ráðin!
Skólanefnd tónlistarskólans er
fagaðili um ráðningu í stöðuna og
studdi hún Smára Ólason einróma.
Einnig studdi mikill meirihluti
kennara skólans hann einnig. En
hvað gerist?
Ég á ekki orð til að lýsa undrun
minni og vanþóknun á bæjarstórn
(bæjarráði). Þeir ákveða að taka
ekkert mark á ofanrituðum fagaðil-
um um ráðninguna! Þeir hunsa ger-
samlega skólanefndina, hvað þá að
þeir hlusti á blessaða kennarana.
Ég hefði haldið að starfslið skól-
ans og kennarar hefðu mesta og
besta innsýn í hvað er að gerast í
skólasamfélaginu, og hver sé hæf-
asti umsækjandinn. Ég trúi því
ekki, að þeir sem hafa verið kosnir
af okkur, fólkinu í Garðabæ, bregð-
ist svo gersamlega trúnaði sínum
við okkur.
Er það virkilega svo að einhverj-
ar moldvörpur og/eða annarlegir
flokkshagsmunir ráði hér gerðum
manna? Það er stutt síðan prests-
kosningar voru hér í bæ. Ég ætla
ekki að fara að rifja upp þá sorgar-
sögu, en hitt er víst, að þar varð
ekki besti og/eða reynslumesti
kosturinn fyrir valinu. Ég hef grun
um að hér séu sömu moldvörpurnar
að verki.
Ég fer hér með fram á að bæjar-
ráð Garðabæjar svari því hér á síð-
um Morgunblaðsins hvað Agnes
Löve hafi fram yfir Smára Ólason.
Ég fer fram á faglegan rökstuðning
í væntanlegu svari, en ekki það yf-
irklór sem birtist í yfirlýsingu frá
bæjarráði í Morgunblaðinu 31.12.
sl.
Bæjarráðsmenn væru menn að
meiru, þyrðu þeir að endurskoða
fyrri ákvörðun.
SÓLBJÖRT GESTSDÓTTIR,
Grenilundi 12,
Garðabæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.