Morgunblaðið - 11.01.2000, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
_______________________________ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000 59
FRÉTTIR
Síminn GSM gerir
reikisamning við
Globalstar
SÍMINN GSM gekk nýverið frá reik-
isamningi við Globalstar gervihnatta-
samsteypuna.
Samningurinn opnar handhöfum
GSM-korta símans aðgang að fjai--
skiptaneti sem veitir þjónustu í yfir
120 löndum. Notendur munu þó þurfa
að flytja símakort sín yfir í sérstaka
síma sem gerðir eru sérstaklega fyrir
þessa þjónustu. Samningurinn verð-
ur virkur eftir nokkrar vikur.
Globalstar GSM-símarnir virka
þannig að þegar notandinn er innan
þjónustusvæðis símans GSM tengist
síminn yfir landstöðvar en utan
þjónustusvæðis, t.d úti á sjó eða uppi
á jöklum, tekur gervihnattakerfið
sjálfvirkt við, segir í fréttatilkynn-
ingu. Það sama á við ef notandi er
staddur í landi þar sem engin GSM-
þjónusta er, þá er skipt yfir á gervi-
hnettina.
Tengingar um gervihnettina og
þjónusta mun fara fram um jarðstöð í
Frakklandi sem er í eigu fjarskipta-
risans TE.SA.M. (Télécommunicat-
ions par Satellites Mobiles). Það er
samsteypa France Telecom, fjórða
stærsta fjarskiptafyrirtækis heims,
og Alcatel, stærsta framleiðanda
fjai-skiptabúnaðai'. TE.SA.M rekm’
Globalstar þjónustu í 31 landi í Suð-
ur-Ameríku, Evrópu, Mið-Austur-
löndum og Asíu.
Eigandi og rekstraraðili Globalstar
á íslandi er Martel ehf. (Globalstar
Atlantic) með aðsetur á Húsavík.
Globalstai’ Atlantic er einnig rekstra-
raðili fyrir þjónustuna á Grænlandi, í
Færeyjum og á Norður-Atlantshaf-
inu öllu.
Globalstai- byggist á nýjustu tækni
í fjarskiptum, svokölluðum CDMA-
staðli. Þessi tækni hefur verið nefnd
tækni nýrrar aldar þar sem næsta
kynslóð farsímakerfa mun byggjast á
sama grunni. í Globalstar fai-a sam-
skiptin fram um 48 lágfleyga gervi-
hnetti og net jarðstöðva víða um
heim.
Húsavíkurkaup-
staður 50 ára
HÚSAVÍKURKAUPSTAÐUR
fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli á
þessu ári. Bæjarstjórn Húsavíkur
hefur ráðið Ásbjörn Björgvinsson
sem framkvæmdastjóra afmælisárs-
ins og Maríu Axfjörð sem starfs-
mann afmælisársins.
Hver mánuður hefur sitt eigið
þema sem ætlunin er að tengja við
dagskráratriði mánaðarins; menn-
ingarbærinn, skólabærinn, orku-
bærinn, hvalabærinn, tónlistarbær-
inn og afmælisbærinn Húsavík eru
nokkur dæmi um þema mánaðarins.
Aðalhátíðarhöld afmælisársins
munu verða 22. júlí en þá mun forseti
Islands heimsækja Húsavík. Dag-
skrá hátíðarhaldanna mun verða
kynnt ítarlega þegar nær dregur
sem og einstakir atburðir afmælis-
ársins.
Eyjamenn
kirkju-
ræknir um
hátíðirnar
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
KIRKJUSOKN í Eyjum um jól og
áraniót var með ágætum, að sögn
séra Kristjáns Björnssonar sóknar-
prests. Yfirfullt var við aftansöng á
aðfangadag og nær full kirkja í
messu á jólanótt, jóladag og annan í
jólum. Aftansöngur á gamlársdag
var þokkalega sóttur og eins messa
á nýársdag. Þá mætti mikil íjöldi til
bænastundar í kirlgugarðinum eft-
ir hádegi á aðfangadag.
Auk áðurnefndra athafna sagði
séra Kristján að hcilmikið hefði
verið af gleðilegum embættis-
verkum sem prestarnir hafi þurft
að sinna um hátíðirnar, svo seni
skírnarathafnir og giftingar.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Kennsla í
byrjenda- og
framhalds-
flokkum hefst
dagana 17. til
22. janúar nk.
10 vikna nám-
skeið.
Skákskóli
í s L A n d s
Alþjóðlegir
titilhafar
annast alla
kennslu.
Kennt verður frá kl. 17.00-19.00 alla virka daga og
frá kl. 11.00-12.30, 12.30-14.00 og 14.00-16.00 um
helgar.
Kennslubækur innifaldar í öllum flokkum.
Nánari upplýsingar og skráning alla virka daga frá
kl 10.00-13.00 ísíma 568 9141.
VtSA
Athugið systkinaafsláttur.
Sala hlutabréfa í Stoke Holding S.A.
Utgefandi: Umsjón með kauptilboði:
Stoke Holding S.A. Kaupþing hf.
Hafin er sala á hlutabréfum í Stoke Holding S.A.
í almennu útboði. Fyrirhugað er að selja hlutafé
að nafnvirði 450.000 pund og er fyrsti söludagur
föstudagurinn 7. janúar
KAUPÞING HF
Morgunblaðið/Signrgeir Jónasson
Handhafar Fréttapýramídanna, f.v.: Guðmundur Ingi Guðmundsson, Iris Sæmundsdóttir og Árni Johnsen.
Fréttapýramídarnir
afhentir í Eyjum
VIKUBLAÐIÐ Fréttir í Vest-
mannaeyjum afhenti nýlega svo-
kallaða Fréttapýramída en þetta
er í níunda skipti sem Fréttapýra-
mídarnir eru afhentir. Fjöldi gesta
var samankominn í kaffisamsæti
sem efnt var til í tilefni afhending-
arinnar.
Arnar Sigurmundsson, stjórnar-
formaður Frétta, bauð gesti vel-
komna, en síðan lék Brasskvintett
Vestmannaeyja nokkur jólalög. Að
því loknu gerði Ómar Garðarsson
ritstjóri grein fyrir útnefningun-
um. íris Sæmundsdóttir, íþrótta-
kona, hlaut Pýramídann fyrir sitt
framlag til íþróttamála í Vest-
mannaeyjum. íris hefur verið ein
besta knattspyrnu- og handknatt-
leikskona í Eyjum undanfarin ár
auk þess sem hún hefur náð frá-
bærum árangri sem þjálfari yngri
flokka.
Arni Johnsen alþingismaður
hlaut Pýramídann fyrir framlag
sitt til menningarmála í Eyjum.
Árni hefur í mörg ár verið frum-
kvöðull að kaupum ýmissa lista-
verka til Eyja sem setja mikinn
svip á bæinn. Á liðnu sumri var
hann forystumaður þess að verk-
efninu Hraun og menn var komið á
fót í Eyjum og hann hefur verið í
framvarðasveit fyrir því að
stafkirkjan, þjóðargjöf Norð-
manna, vegna 1000 ára kristni-
tökuafmælisins, verði reist í Eyj-
um.
Guðmundur Ingi Guðmundsson,
útgerðarmaður á Hugin VE 55,
hlaut Pýramídann fyrir framlag
sitt til útgerðar og eflingar at-
vinnulífs í Eyjum. Guðmundur Ingi
hefur verið eigandi útgerðar Hug-
ins í rúm 40 ár og hefur á þeim
tíma látið byggja fyrir sig tvö ný
skip. Nú er verið að smíða þriðja
skipið fyrir Guðmund Inga í Chile,
öflugt fjölveiðiskip sem búið verð-
ur vinnslu- og frystibúnaði, og
verður það afhent um mitt ár.
Þá heiðruðu Fréttir sérstaklega'
Guðna Davíð Stefánsson sem á ár-
inu hlaut gullverðlaun í 100 metra
bringusundi á Ólympíuleikum
þroskaheftra síðasta sumar.
Eftir að Ómar hafði gert grein
fyrir tilnefningunum afhenti Gísli
Valtýsson, framkvæmdastjóri
Frétta, þeim sem útnefndir voru,
viðurkenningar sínar. Handhafar
Fréttapýramídanna hlutu skúlptúr
sem gerður er af Grími Marinó
Steindórssyni,en Grímur Marinó
hefur útbúið viðurkenningarnar öll
árin sem Fréttir hafa staðið að
þessari útnefningu og er nafn við-
urkenninganna, Fréttapýi’amíd-
arnir, dregið af gripunum sem
Grímur Marinó gerði fyrir fyrstu.
útnefninguna fyrir níu árum en
það voru pýramídar gerðir úr stáli.