Morgunblaðið - 11.01.2000, Qupperneq 26
26 ÞRIÐ JUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rannsóknarnefnd birtir skýrslu um lestaslysið í Noregi
Lestarstjóri sagður
hafa valdið slysinu
Ósló. AP, AFP.
AP
Bente Larsen, frá Tjome í Noregi, á sjúkrahúsi í Ósló á 33 ára afmæli
sínu á sunnudag. Larsen var síðasti farþeginn, sem bjargað var úr
brennandi lestunum eftir árekstur þeirra í vikunni sem leið. Hún var
föst í lestarvagni þegar eldurinn blossaði upp og bjargaði b'fi sínu með
því að nota brunaslöngu, sem björgunarmönnum tókst að koma til henn-
ar. Þeir náðu henni úr vagninum fjórum klukkustundum síðar.
LESTASLYSIÐ í Noregi fyrir viku
orsakaðist að öllum líkindum af því að
annar lestarstjórinn ók framhjá
rauðu ljósi við lestarstöðina í Rustad
þar sem lest hans átti að bíða eftir
hraðlest frá Þrándheimi, að því er
fram kemur í rannsóknarskýrslu sem
birt var á sunnudag. Þar kemur einn-
ig fram að umferðarstjórar í Hamar,
sem fylgdust með ferðum lesta á
þessum slóðum, áttuðu sig ekki á
hættunni á árekstri fyrr en 35 sek-
úndum áður en slysið varð. Talið er
að ómögulegt hafi verið fyrir þá að
vara lestarstjórana við árekstrar-
hættunni á svo skömmum tíma.
Lestimar rákust saman við Ásta-
lestarstöðina, nálægt bænum Rena, á
þriðjudaginn var og mikill eldur
blossaði upp í nokkrum vagnanna. 19
manns fórust í slysinu og 16 þeirra
voru Norðmenn, þar af tvær 12 og 13
ára gamlar stúlkur. Þi-jár konur frá
Svíþjóð, Danmörku og Rússlandi létu
einnig lífið.
Lögreglan lauk rannsókninni á
slysstað á sunnudag og björgunar-
sveitir luku í gær við að fjarlægja
lestirnar af brautarsporinu.
„35 sekúndur eru
of skammur tími“
Samkvæmt bráðabirgðaskýrslu
norsku jámbrautastofnunarinnar,
JBV, sem birt var á sunnudag, bendir
ekkert til þess að bilun hafi orðið á
umferðarljósunum við lestarstöðina í
Rustad. Minni lestin, sú sem var á
norðurleið, hafi því að öllum líkindum
ekið framhjá rauðu ljósi sem sýndi að
hún átti að nema staðar.
Ove Skovdal, formaður nefndar-
innar, sagði að umferðarstjóramir í
Hamar hefðu uppgötvað árekstar-
hættuna of seint til að geta varað lest-
arstjórana við. „35 sekúndur eru of
Umferðarstjórar
áttuðu sig of seint
á hættunni
skammur tími til að hringja í farsíma
og stöðva lestir á svo miklum hraða.“
Rannsóknin leiddi í ljós að hraði
minni lestarinnar var 90 km á klst.
þegar slysið varð og talið er að hin
lestin hafi verið á 70 km hraða á klst.
Hringdu í ranga lest
Skovdal sagði að umferðarstjór-
amir hefðu reynt að hringja í lestar-
stjóra minni lestararinnar en ekki
náð sambandi. „Við teljum ástæðuna
þá að lestimar hafi rekist saman áður
en hringt var og farsíminn hafi því
verið ónýtur," sagði Skovdal.
Hann staðfesti einnig að umferðar-
stjóramir hefðu ekki getað náð sam-
bandi við hraðlestina frá Þrándheimi
vegna þess að þeir hefðu ekki haft
réttar upplýsingar um farsímanúmer
hennar. Þeir hefðu hringt í númerið,
sem gefið var upp, og fengið samband
við lest á allt öðram stað á landinu.
Skovdal taldi mjög ólíklegt að
hægt hefði verið að afstýra árekstrin-
um þótt umferðarstjóramir hefðu
náð farsímasambandi við þá.
Engin viðvörunarhljóð
Tölvur stjómstöðvarinnar í Hamar
sýndu að árekstur var yfirvofandi um
fjóram mínútum áður en slysið varð.
Umferðarstjóramir áttuðu sig hins
vegar ekki á hættunni fyrr en 35 sek-
úndum fyrir slysið þar sem þeir vora
að stjórna lestaumferðinni á öðram
stöðum á jámbrautarleiðinni. Um-
ferðarstjóranum ber ekki skylda til
að fylgjast með hverri lest.
Norska dagblaðið Verdens Gang
sagði að þunn, rauð lína á tölvu-
skermi umferðarstjóranna hefði ver-
ið það eina sem hefði varað þá við
hættunni á árekstri. Hvorki hefðu
verið notuð blikkandi Ijós né viðvör-
unarhljóð til að vekja athygli þeiira á
hættunni. „Það hefði að sjálfsögðu
verið kostur ef viðvöranarhljóð hefðu
verið notuð,“ sagði Kilh.
Oryggiskerfið kemur nokkrum
mánuðum of seint
Rpros-brautin milh Þrándheims og
Hamars er ein af þremur aðaljám-
brautarleiðum Noregs þar sem ekki
hefur verið komið upp öryggiskerfi
sem gerir umferðarstjórum kleift að
stöðva sjálfir jámbrautarlestir þegar
hætta er á árekstri. Ráðgert hafði
verið að koma upp slíku kerfi síðar á
árinu.
„Við höfum notað Roros-brautina í
rám 120 ár - eða frá 1877 - og það er
hræðilega kaldhæðnislegt að fyrsta
slysið skuli verða á sama tíma og við
eram að koma upp sjálfvirkum stöðv-
unarbúnaði sem hefði getað afstýrt
því,“ sagði Hákon Grimstad, talsmað-
ur j ámbrautarstofnunarinnar.
Rannsóknin leiddi í ljós að hvorag
lestin hemlaði áður en þær rákust
saman og þær vora því á fullum
hraða.
Stofnunin hafði verið vöruð við
Jámbrautastofnunin JBV hefur
sakað norska lestafyrirtækið NSB,
sem er ríkisrekið, um að hafa sett
fjárhagslega hagsmuni ofar öryggi
farþega með því að draga það að
koma upp nýju öryggiskerfi á Roros-
brautinni.
Jámbrautastofnunin, sem hefur
yfiramsjón með skipulagningu og
uppbyggingu norska lestakerfisins,
hefur einnig verið gagnrýnd fyrir að
hafa ekki gert nægar ráðstafanir til
að tiyggja öryggi farþeganna.
JBV ákvað árið 1997 að breyta um-
ferðarreglum lestanna þannig að
lestarstjóramfr einir gætu ákveðið
hvort óhætt væri að aka lestunum frá
brautarstöðvunum þótt norska jám-
brautaeftirlitið hefði ráðið stofnun-
inni frá breytingunni. Áður höfðu
lestarstjóramh-nir og verðir á braut-
arstöðvunum tekið ákvörðunina í
sameiningu.
Rannsóknarnefndin gagnrýnd
í skýrslunni kemur ekki fram
hvers vegna lestarstjórinn ákvað að
aka lestinni framhjá rauða ljósinu.
Osmund Ueland, forstjóri NSB,
var hneykslaður á niðurstöðu rann-
sóknamefndar FBV. „Ég ræð mönn-
um eindregið frá vangaveltum um
hver eigi sökina þegar um er að ræða
mann sem getur ekki varið sig og hef-
ur ekki enn verið borinn til grafar.“
Rannsóknarmenn FBV vora einn-
ig gagnrýndir í norskum fjölmiðlum
fyrir að skella skuldinni á lestar-
stjórarann einan og firra stofnunina í
raun ábyrgð á slysinu.
Tvær aðrar nefndir hafa verið
skipaðar til að rannsaka slysið. Talið
er að lokaskýrsla aðalnefndarinnar,
sem norska stjómin skipaði, verði
birt eftir nokkra mánuði.
Trúin ógn við
völd flokksins
Barátta kínverskra stjórnvalda við trúar-
hópa verður sífellt umfangsmeiri og kann
að verða það sem einkenna mun þarlent
______stjórnmálalíf næstu árin._
Peking. The Washington Post.
KÍNVERSK stjómvöld hafa undan-
farið hvað eftir annað lent í útistöðum
við tráarhópa á borð við Falun Gong
og bendir þetta til þess að trá, fremur
en hefðbundin stjómmálaandspyma,
sé að verða það sem kommúnista-
flokkurinn lítur helst á sem ógn við
völd sín.
Þegar barátta stjórnvalda við Fal-
un Gong stóð sem hæst sagði Jiang
Zemin forseti að baráttan væri ein af
„þremur helstu stjómmálaátökum“
síðasta árs. Er þetta í fyrsta sinn síð-
an í byltingunni 1949 sem það er op-
inberlega forgangsatriði stjórnvalda
að berja niður ópólitísk tráarsamtök.
Vestrænir diplómatar og mann-
réttindasamtök greina frá því að að-
gerðir stjómvalda séu að breiðast út
til kirkna kaþólskra og mótmælenda í
Kína, sem talið er að þjóni 30-40
milljónum manna ólöglega á heimil-
um.
Síðan í desember hafa stjórnvöld
notað lög, sem bönnuðu starfsemi
Falun Gongs, til þess að lýsa 10
kristna tráarhópa ólöglega söfnuði
og hafa yfir 100 leiðtogar kristinna
manna verið handteknir, að sögn
Franks Lus, framkvæmdastjóra
upplýsingamiðstöðvar um mannrétt-
indamál og lýðræðishreyfingu, sem
hefur bækistöðvar í Hong Kong.
Andlegt tóm
Lu sagði að Kínveijar héldu upp-
teknum hætti og fangelsuðu alla lýð-
ræðissinnaða baráttumenn, en væra
nú auk þess famir að hafa áhyggjur
af trámálum. „Þeir vita að það er
andlegt tóm í Kína. Þeir vita að flestu
fólki er í nöp við stjómmál og vill þess
vegna ekki fylgja lýðræðissinnum.
En það myndi slást í för með nýjum
Messíasi."
í Kína er nú að renna upp það sem
jafnvel ríkisfjölmiðlar kalla „gullöld"
tráarbragðanna. Stjómvöld viður-
kenna opinberlega fimm tráarbrögð:
Búddisma, sem um 100 milljónir
manna játa; múhameðstrá, sem 18
milljónir játa; mótmælendatrá, sem
15 milljónir játa; kaþólska trá, sem
hefur um 4 milljónir fylgjenda; og
taóisma, sem færri játa.
En tráarhópar og neðanjarðar-
samtök sem ekki era opinberlega við-
urkennd blómstra. í norðvesturhluta
landsins era musterisguðir tilbeðnir
og í suðurhlutanum tráa menn á for-
feður sína. I landbúnaðarhéruðunum
era heimiliskirkjur fyrirferðarmikl-
ar. í mörgum tilvikum láta stjórnvöld
þetta viðgangast og hafa sumir emb-
ættismenn og félagar í kommúnist-
aflokknum virt að vettugi fyrirskip-
anir miðstjórnarinnar og iðkað trá
sjálfir.
í bakið á stjórnvöldum
Ritstjóri eins stærsta dagblaðs
Kína sagði að honum og ýmsum öðr-
um flokksfélögum sýndist sem í Kína
væri „ættarveldi að líða undir lok og
eins og þá gerist spretta upp allskon-
ar tráarhópar og söfnuðir og ráðast
gegn forráðum keisarans".
Sagði ritstjórinn að baráttan við
Falun Gong, kaþólska fylgjendur
páfans, sértráarhópa, búddista í Tí-
bet og aðra tráarhópa, sem færa eig-
in leiðir, gæti vel orðið það sem ein-
kenna myndi stjómmál í Kína næstu
árin. Hann og aðrir fréttaskýrendur
telja að baráttan við Falun Gong sé
að koma í bakið á stjómvöldum.
„Sjáiði bara Falun Gong,“ sagði
Sima Nan, óháður kvikmyndagerðar-
maður sem er andvígur bæði Falun
Gong og baráttu stjórnvalda gegn
samtökunum. „Eftir því sem stjóm-
völd þrengja að félögunum því meiri
píslarvottar verða þeir.“
Eftir því sem fleira fólk hefur tekið
trá hefur flokkurinn gert íleiri og
fleiri máttlitlar tilraunir til að verða
aftur miðpunkturinn í hugarheimi al-
mennings. Um leið og barist hefur
verið gegn Falun Gong hefur fólk
verið neytt til að læra marxíska
kenningu og afneita trá. Kínverskir
fréttaskýrendur segja að hver ein-
asta tráarhreyfing sé bein ógn við
forráð flokksins.
„Auðvitað er flokkurinn
hræddur“
Wang Shan, óháður stjómmála-
skýrandi í Kína, segh- að Falun Gong
sé fyrstu samtökin, síðan 1949, sem
mikill fjöldi vinnandi fólks í Kína hef-
ur gengið í; samtök sem ekki starfi í
tengslum við Kommúnistaflokkinn.
Margar milljónir manna hafi gengið í
samtökin vegna þess að þau veiti
fólki andlega næríngu á tímum svim-
andi samfélagsumbrota.
Samtökin segja einnig að ef fólk
geri fyrfrsldpaðar andlegar og líka-
mlegar æfingar þurfi það ekki á
læknum að halda og það er aðlaðandi
hugmynd nú, því að hið opinbera heil-
brigðiskerfi er svo að segja hranið.
„Þetta er fyrsta öreigahreyfingin
síðan í byltingunni, sem ílokkurinn
stjórnar ekki,“ sagði Wang. „Auðvit-
að er flokkurinn hræddur."
IRA býst
til að eyða
vopnum
London. Reutcrs.
TALSMENN breskra stjórnvalda
og Sinn Fein, stjórnmálaarms
IRA, írska lýðveldishersins, vilja
ekki gera mikið úr fréttum um að
skæruliðasamtökin ætli að bjóða
eftirlitsmönnum með fyrirhugaðri
afvopnum að vera viðstaddir er
vopnum verður eytt síðar í mánuð-
inum. Þeir neituðu þeim þó ekki.
Fram kom í Sunday Telegraph,
að IRA ætlaði að bjóða formanni
aívopnunarnefndarinnar, John de
Chastelain, að verða vitni að þeirri
„táknrænu athöfn“ er samtökin
eyðilegðu nokkuð af vopnum sínum
í fyrsta sinn.
Voru afvopnunarmálin hvað erf-
iðust viðureignar í viðræðunum um
frið á Norður-írlandi en sam-
kvæmt samkomulaginu, sem kennt
er við föstudaginn langa, á henni
að vera lokið í apríl nk. Hafa mót-
mælendur lagt mikla áherslu á, að
IRA gangi á undan í afvopnuninni
en margir IRA-Iiðar hafa talið
hana jafngilda uppgjöf.
Chastelain hyggst ræða við
leiðtoga IRA
Martin McGuinness, einn af
æðstu mönnum Sinn Fein, sagði á
laugardaginn var, að ekki kæmi til
mála, að hin nýja stjórn á N-ír-
OOlandi myndi láta deilurnar um
afvopnunina binda enda á friðinn í
landinu.
Irska blaðið Examiner skýrði
einnig frá því í vikunni sem leið, að
Chastelain myndi hitta leiðtoga
IRA þar sem rætt yrði um eyðingu
vopna og sprengiefnis.