Morgunblaðið - 11.01.2000, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Lækkun Flugleiða á umboðslaunum gagnrýnd
Liður í lækkun
milliliðakostnaðar
UM næstu mánaðamót tekur gildi
um 22% lækkun Flugleiða á um-
boðslaunum til ferðaþjónustuaðila,
eða úr 9% í 7%, og segir Helgi Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar, að lækkun-
in komi einnig til með að ná til
þeirra umboðslauna sem erlend
flugfélög séu tilbúin til að veita ís-
lenskum ferðaþjónustuaðilum. Mis-
munurinn lendi hjá Flugleiðum en
ekki þeim, og gildi þá einu hvort
flogið sé með Flugleiðum eða ekki.
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri stefnumótunar- og stjórnun-
arsviðs Flugleiða, segir lækkun
umboðslauna þátt í því að draga úr
milliliðakostnaði flugfélaga um all-
an heim og umboðslaunin komi
einnig til með að lækka í uppgjöri
milli flugfélaga.
Helgi segir að lækkun umboðs-
launanna þýði 25-30 milljóna króna
tekjuskerðingu fyrir Samvinnu-
ferðir-Landsýn. „Það er ekkert
sem segir að þeir haldi þessu ekki
áfram og þeir geta þess vegna
lækkað þetta aftur eftir fjóra mán-
uði. Þeir þurfa engin rök að færa
fram í þessu og þetta er einungis
geðþóttaákvörðun þeirra. Þeir geta
þar með á 12-18 mánuðum afgreitt
alla samkeppni í sölu farseðla út úr
landinu,“ segir Helgi.
Flugfélög víða um heim
að lækka umboðslaun
Einar Sigurðsson segir að flug-
félög víða um heim séu að lækka
umboðslaun hvert á sínum mark-
aði, en alþjóðlegur samningur flug-
félaga sem fjallar um þjónustulaun
þeirra hvert til annars kveður enn
á um 9%, samkvæmt gildandi
reglum IATA, alþjóðasambands
flugfélaga.
„Það er búist við að það breytist
og það er einfaldlega þáttur í þess-
ari þróun. Það eru til dæmis flugfé-
lög að selja farseðla með okkur og
borga 5% umboðslaun á sínum
markaði, en við erum að greiða
þeim 9%. í okkar bókum jafnast
þetta því alveg út, en við gerum
ráð fyrir að þetta lækki í þessu
uppgjöri milli flugfélaganna þar
sem lækkunin er að verða það al-
menn,“ segir Einar. Hann segir að
meðal þeirra flugfélaga sem lækk-
að hafi umboðslaun bæði á heima-
markaði og alþjóðlegum markaði
séu Lufthansa, Austrian Airlines,
Lauda Air, United Airlines, Air
Canada og British Aii-ways.
Lækkun umboðslauna hluti
af miklu stærri mynd
Einar segir að lækkun umboðs-
launanna hafi verið eitt heitasta
deilumál flugfélaga og ferðaskrif-
stofa í heiminum undanfarin tvö ár,
og Flugleiðir séu einfaldlega seint
á ferðinni að grípa til lækkunar
miðað við mörg önnur flugfélög.
„Tekjur flugfélaganna af hverj-
um flognum kílómetra eru að
lækka, og hjá okkur hafa rauntekj-
urnar af flognum kílómetra lækkað
um 30% á tíu árum. Þetta er það
umhverfi sem við búum við og
lækkun umboðslaunanna er ein af-
leiðingin. Stærsti hlutinn af okkar
kostnaði er dreifikostnaður, þ.e.
kostnaðurinn við að koma vörunni
til neytandans, og það er sérstakt
verkefni hjá okkur núna að lækka
alla þætti í þeim kostnaði. Það á við
um umboðslaunin, kreditkortagjöld
og ýmsa hagræðingu í kringum
viðskipti okkar við tölvudreifikerfi,
en við erum að taka upp samninga
við alla okkar birgja í þeim. Lækk-
un umboðslauna er því hluti af
miklu stærri mynd og hún ein-
skorðast ekki við Flugleiðir. Allt
fyrirkomulag í dreifingu og sölu er
að breytast og einn þáttur í því er
mikil sókn flugfélaganna inn á Net-
ið, en það sem drífur þá sókn er að
verulegu leyti þörf á að lækka
þann milliliðakostnað sem ferða-
skrifstofurnar eru milli flugreka-
ndans og viðskiptavinarins.
Það er enginn sem getur kallað á
fast hlutfall af tekjum í einhverri
atvinnugrein vegna þess hve
rekstrarumhverfið er að breytast
og þá viðskiptavininum í hag, en
það er opnun markaða sem hefur
drifið áfram þessa lækkun. Þannig
að á endanum er það viðskiptavin-
urinn sem hagnast, en framleiðslu-
fyrirtækin eru að reyna að draga
úr milliliðakostnaðinum og auðvit-
að er við því að búast að milliliðun-
um þyki það sárt,“ sagði Einar.
Skrifstofutækni
250 stundir!
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum
og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög
hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum.
Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefj-
andi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
■ Handfært bókhald
■ Tölvugrunnur
■ Ritvinnsla
■ Töflureiknir
■ Verslunarreikningur
■ Glærugerð
■ Mannleg samskipti
■ Tölvubókhald
■ Internet
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær !
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Islands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Excel-töflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum
f mannlegum samskiptum og Interneti.
Námið er vel skipulagt og kennsla frábær. Steinunn hiónustu-
Nú finnst mér éa vera fær í flestan sjó!. :, , ' c,. .
° 1 Islenska Utvarpstelaginu
Öll námsgögn innifalin
Opið til kl. 22.00
Tölvuskóli Islands
Bíldshöfða 18, sími 567 1466
^mbl.is
AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is ALLTAf= GITTHXSAÐ AIÝT7
Sparnaður af örbylgju-
tækni til gagnaflutninga
GAGNAFLUTNINGAR með ör-
bylgjutækni er nýjung sem tiltölu-
lega lítil reynsla er komin á. Gagna-
veitan rekur þráðlaust net af þessu
tagi og Skýrr býður aðgang að svok-
ölluðu LoftNeti. Helstu kostir við ör-
bylgjutækni umfram hefðbundnar
símalínutengingar hafa verið nefnd-
ir, m.a. að auðvelt er að tengja marga
staði inn á gagnaflutningsnetið þar
sem það er þráðlaust. Sambandið
flyst með fyrirtækinu og seljendur
segja spamað hljótast af.
Afköst aukast og rekstrar-
kostnaður minnkar
Leitað var álits hjá tveimur fyrir-
tækjum sem tekið hafa örbylgju-
tæknina í sina þjónustu og tengst
annars vegar gagnaflutningsneti
Gagnaveitunnar og hins vegar
LoftNeti Skýrr.
Viðvarandi
æska?
heilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu, Akureyri
íslenska fyrirtækið Optima tengd-
ist LoftNeti Skýir í nóvember sl.
Stefán Ingólfsson markaðsstjóri
segir mikinn vinnusparnað felast í
tengingunni. „Afköstin geta farið
upp i fjórfalt það sem er í ISDN
tengingu. Við greiðum fastan kostn-
að og hann er undir 30 þúsundum á
mánuði,“ segir Stefán. Hjá Optima
eru níu notendur og segir Stefán
kostnað við ISDN aukast hlutfalls-
lega meira við hvern notanda en við
örbylgjutæknina. „Helstu kostirnir
við LoftNetið felast í miklum tíma-
sparnaði, kostnaðaróvissu er eytt og
sambandið er ávallt opið.“
Skeljungur gerði nýlega samning
við Gagnaveituna um gagnaflutninga
á milli höfuðstöðva félagsins og
starfsstöðva á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar E. Kvaran, upplýsingafull-
trúi Skeljungs, segir sambandið tvöf-
alt hraðvirkara en ISDN samband
og að tengingin hafi í för með sér um-
talsverðan sparnað fyrir Skeljung.
Örbylgjutæknin gefur
möguleika á framtíðarþróun
Gagnaflutningsnet af þessu tagi
eru þráðlaus og aðgangur að þeim
hefur fyrst um sinn verið boðinn á
höfuðborgarsvæðinu. Net Skýrr og
Gagnaveitunnar ná yfir stærsta
hluta höfuðborgarsvæðisins og upp-
setning á byggðakjörnum á lands-
byggðinni er fyrirhuguð á næstunni.
Sveinbjörn Högnason hjá Skýrr
segir örbylgjutæknina sameina
marga . kosti. „Viðskiptavinir
LoftNets sjá að heildarkostnaður
verður lægri þegar keypt er af einum
aðila, burðarlagið, netþjónusta og
önnur virðisaukandi þjónusta. Ör-
bylgjutæknin gefur einnig mikla
möguleika á framtíðarþróun," segir
Sveinbjöm. Að hans mati er ör-
bylgjutæknin góð viðbót við þær
gagnaflutningsleiðir sem fyrir eru á
markaðnum. „Netið er á leiðinni í
loftið, menn verða ekki bundnir af
því hvar tölvan þeirra er staðsett,"
segir Sveinbjörn.
Sparnaóur meiri eftir
því sem fjarlægðir aukast
Bjarni Birgisson, verkefnisstjóri
hjá Gagnaveitunni, telur að þróun
örbylgjutækninnar verði hröð á
næstunni og verð á tengingum fari
fremur lækkandi en hitt. „Við getum
m.a. boðið fyrirtækjum símtöl um ör-
bylgjunetið á milli tengdra staða á
þess vegum. Við munum einnig bjóða
verslunum upp á þann möguleika að
kortafærslur og önnur gögn sem
send eru frá svokölluðum posum, fari
um örbylgjunetið. Slíkt sparar rekst-
ur sérstakra símalína eða tenginga
sem notaðar eru í þeim tilgangi í dag.
Að auki má nefna möguleika á sam-
skiptum t.d. við toll og bankastofnan-
ir sem í dag krefjast yfirleitt sér-
staks tengibúnaðar," segir Bjarni.
,Auk þeirra möguleika sem ör-
bylgjutengingar skapa á nýtingu
slíkrar þjónustu fá fyrirtæki sam-
band við Netið og tölvupóst fyrir eitt
fast verð, óháð tengitíma. Tenging
fyrirtækisins er því alltaf virk og allir
starfsmenn stöðugt í netsambandi.
Möguleiki er á að setja upp tenging-
ar heima hjá starfsmönnum sem þá
geta tengst fyrirtækinu heiman frá
sér og sinnt daglegri vinnu sinni það-
an. Sparnaður í rekstrarkostnaði
miðað við að nota hefðbundnar leigu-
línur eða ISDN-tengingar verður
meiri eftir því sem þörf er á meiri
tengitíma og fjarlægðir á milli staða
aukast,“ segir Bjarni.
Sameining Þormóðs ramma-
Sæbergs og Arness samþykkt
Á hluthafafundi í Árnesi hf., sem
haldinn var 7. janúar síðastliðinn,
var samþykkt að sameina Ámes hf.
Þormóði ramma - Sæbergi hf. undir
nafni Þormóðs ramma - Sæbergs hf.
Sameiningin miðast við 1. júlí
1999. í tilkynningu til Verðbréfa-
þings kemur fram að á hluthafafund-
inn voru mættir fulltrúar eigenda að
97,35% hlutafjár í félaginu. Sam-
þykkir sameiningu voru eigendur að
94,18% hlutafjár en fulltrúar Far-
kosts ehf., Reykjaprents ehf., Karls
Þráinssonar og Harðar Einarssonar,
þeir Óttar Yngvason og Hörður Ein-
arsson, sem fóru fyrir 3,17%, hluta-
fjár létu bóka mótmæli við samein-
ingunni.