Morgunblaðið - 11.01.2000, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
••
Ollum þremur tilboðunum í leigu á Eyjafjarðará hafnað
Sala veiðileyfa áfram á
hendi veiðifélagsins
VEIÐIFÉLAG Eyjafjarðarár auglýsti eftir til-
boðum í leigu á ánni og rann umsóknarfrestur út
nú um áramótin. Þrjú tilboð bárust en stjórn veiði-
félagsins samþykkti á fundi sínum sl. sunnudag,
að hafna þeim öllum og verður sala veiðileyfa
óbreytt og áfram á hendi félagsins.
Kristján Jónsson, formaður Veiðifélags Eyja-
fjarðarár, sagði að tilboðin þrjú hafi ekki verið
langt frá þeirri upphæð sem félagið hafi verið að
fá fyrir sölu veiðileyfa án þess þó að hann vildi fara
nánar út í peningamálin. Tilboðin sem bárust voru
frá Stangaveiðifélaginu Flugunni, Erling Ingva-
syni tannlækni og Pálma Gunnarssyni, Stefáni
Jóni Hafstein og fleirum. Einnig bárust tvö tilboð
eftir að tilboðsfresturinn rann út og sagði Kristján
að þau tilboð hafi ekki einu sinni verið skoðuð.
A síðasta aðalfundi veiðifélagsins var samþykkt
að bjóða ána út að sögn Kristjáns og þá til þess að
sjá hvort kæmu góð tilboð og eins til að menn sæju
hvað þeir væru með í höndunum. „Þessi tilboð sem
bárust freistuðu okkar ekki það mikið að við hefð-
um áhuga á því að leigja ána. Auk þess fengum við
margar áskoranir frá veiðimönnum hér á svæðinu
um að leigja ána ekki. Akureyringar hafa fengið
að njóta þess að veiða í ánni og margir voru
hræddir um það myndi breytast yrði áin leigð.“
Eyjafjarðará er ein allra vinsælasta og gjöful-
asta silungsveiðiá landsins. Þar er veitt á 10 stang-
ir á dag á fimm svæðum. Að sögn Kristjáns komu
um 3.000 fiskar á land sl. sumar, sem er 300 fisk-
um færra en árið áður. Árið 1997 var metveiði í
Eyjafjarðará en þá komu 3.700 fiskar á land. Sala
veiðileyfa hefur jafnan gengið vel og fæiri fengið
leyfi en vildu. „Eg man aldrei eftir annarri eins
ásókn í veiðileyfi og síðastliðið sumar,“ sagði
Kristján.
Verk eft-
ir starfs-
fólk FSA
SÝNING á verkum starfs-
fólks Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri stendur yfir í bið-
stofu röntgendeildar sjúkra-
hússins.
A sýningunni sem opnuð
var skömmu fyrir jól kennir
margra grasa, en þar eru
málverk, teppi, ljóð, ljós-
myndir, stækkaðar smásjár-
myndir og ýmislegt fleira, eða
alls um 35 verk. Sýningunni
lýkur um næstu helgi, eða 15.
janúar næstkomandi.
Líf og fjör á íshokkíæfingu.
Lií og íjor a
íshokkíæfingu
Morgunblaðið/Kristj án
Daniel Snorrason lögreglufull-
trúi í rannsóknardeild lög-
reglunnar á Akureyri skoðaði
verksummerki á brunastað í
gærmorgun.
Eldur í
mynd-
bandaleigu
TVEIR menn voru fluttir með reyk-
eitrun á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri eftir að þeir höfðu reynt að
slökkva eld sem kom upp í mynd-
banaleigunni Sunnuvídeói í Verslun-
armiðstöðinni Sunnuhlíð um mið-
nætti aðfaranótt mánudags.
Slökkvilið Akureyrar var kallað á
staðinn um kl. 00.20 og var þá tölu-
verður eldur í kompu inn af mynd-
bandaleigunni og mjög mildll reykur
og hiti í húsnæðinu. Starfsmaður
leigunnar og annar til höfðu þá reynt
að ráða niðurlögum eldsins með
handslökkvitæki en ekki orðið nægi-
lega ágengt. Þeir voru báðir fluttir á
slysadeild FSA með reykeitrun.
Töluverðar skemmdir urðu á hús-
næði og búnaði af völdum hita og
reyks. Reykur náði einnig að breið-
ast út yfir í húsnæði leikfangaversl-
unar sem er í verslunarmiðstöðinni
og þar urðu smávægilegar skemmd-
ir.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
kannar hver upptök eldsins eru.
Féll úr stiga
þrjá metra
MAÐUR sem var við vinnu sína í
verslunarmiðstöðinni Krónunni við
Hafnarstræti í miðbæ Akureyrar í
gærmorgun féll niður úr stiga um
þriggja metra fall niður á steingólf.
Hann var fluttur á slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Hann kvartaði um eymsl í hálsi og
baki samkvæmt upplýsingum varð-
stjóra Slökkviliðsins á Akureyri, en
hann þykir hafa sloppið furðu vel.
FÉLAGSMENN í Skautafélagi Ak-
ureyrar eru farnir að æfa af fullum
krafti í nýju skautahöllinni á Krók-
eyri. Fyrsta æfingin var á að-
fangafangadag, þann 24. desember,
og var sameiginleg fyrir alla
skautaiðkendur og sl. sunnudag var
skautahöllin opin fyrir félaga í SA.
Þrátt fyrir að æfingar séu hafnar
í höllinni er enn margt ógert og
nokkuð í land að hægt verði að
bjóða félagsmönnum SA og öðru
skautaáhugafólki upp á fullkomna
aðstöðu þar. Þrátt fyrir það er líf
og fjör á æfingunum og þeir tóku
vel á strákarnir sem voru á íshokkí-
æfingu í skautahöllinni sl. sunnu-
dag.
Morgunblaðið/Kristján
Háskólinn á
Akureyri
Sjávarút-
vegsdeild
10 ára
TÍU ár eru um þessar mundir
liðin frá því sjávarútvegsdeild
Háskólans á Akureyri tók til
starf, en nám hófst þar 4. janúar
árið 1990. Tímamótanna var
minnst með opnu húsi og afmæl-
ishófi um helgina.
Fyrstu sjávarútvegsfræðing-
amir útskrifuðust frá sjávarút-
vegsdeildinni árið 1994 en alls
hafa 56 manns lokið námi við
deildina til þessa. Núverandi
nemendur eru 43 talsins, þar af
eiu 11 á 4. ári, 9 á 3. ári, 15. á 2.
áriog8á 1. ári.
Markmið sjávarútvegsdeildar
Háskólans á Akureyri er að
mennta einstaklinga í öllum
undirstöðuatriðum sjávarútvegs
og þjálfa þá í að beita faglegum
vinnubrögðum við stefnumörk-
un, ákvarðanatöku og stjómun í
greininni. Deildin hefur frá upp-
hafi haft náin tengsl við atvinnu-
lífið í landinu, sem endurspegl-
ast m.a. í mikilli verkefnavinnu
nemenda fyrir hin ýmsu íyrir-
tæki í sjávarútvegi og annarri
matvælavinnslu.
Forstöðumaður sjávarút-
vegsdeildar Háskólans á Akur-
cyri er Jón Þórðarson og hefur
hann veitt deildinni forstöðu frá
upphafi.
Lykilhdtel sækja um lóð í miðbæ Akureyrar
Stefnt að stækkun
Hótels Norðurlands
LYKILHÓTEL hf., sem reka Hótel Norðurland
við Geislagötu á Akureyri, hafa sótt um lóðina á
Gránufélagsgötu 6. Lóðin er á horni Gránufélags-
götu og Geislagötu og er næsta lóð norðan Hótels
Norðurlands. Að sögn Jóns Ragnarssonar,fram-
kvæmdastjóra Lykilhótela, er hugmyndin að
byggja við hótelið og gæti þar orðið um tvöföldun
að ræða. í dag em 34 herbergi á Hótel Norður-
landi.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu fyrir helgina
hafa þeir Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ,
og Jón M. Jónsson, sem eiga húseignina á Gránu-
félagsgötu 4, einnig sótt um lóðina á Gránufélags-
götu 6. Þeir stefna að því að byggja samtals um
1.000 fermetra verslunarhús á þremur hæðum á
lóðinni og tengja það við Gránufélagsgötu 4. Jafn-
framt er ráðgert að þar verði 6 sérverslanir á
tveimur fyrstu hæðunum.
Fyrir nokkrum árum var sótt um leyfi til að
byggja fjórðu hæðina ofan á Hótel Norðurland. Til
að slfkt leyfi fengist þurfti að setja lyftu í húsið og
sagði Jón Ragnarsson að þar með hafi fjárhags-
legur grundvöllur fyrir stækkuninni verið brost-
inn. „Ef ég hins vegar fengi þessa lóð, með mögu-
leika á stækkun til norðurs, er staðan gjörbreytt
og fjárhagslegar forsendur allt aðrar. Þetta væri
mjög gott til framtíðar fyiir þetta hótel og eini
stækkunarmöguleikinn er til norðurs.
Jón sagði að fengi hann lóðina yrði stefnt að því
að hefja byggingarframkvæmdir næsta haust og
ljúki þeirri vinnu á einu ári. „Ég held að þetta yrði
mjög jákvætt fyrir ferðaiðnaðinn enda löngu Ijóst
að það er mikil þörf fyrir aukið hótelrými á Akur-
eyri. Nú, það eru fleiri í svipuðum hugleiðinum og
það er hið besta mál, þannig að þetta sýnir að það
er grundvöllur fyrir ferðaiðnað fyrir norðan."