Morgunblaðið - 11.01.2000, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Þessum unga manni frá Grindavík fannst ekki leiðinlegt þegar byrjaði
að snjóa á gamlárskvöld í Grindavík.
Stærsta 2000-skiltið
í Grindavík
Grindavík. Grindvíkingar héldu
upp á ára- og aldamótin með
miklum stæl. Mikill fjöldi flugelda
var eins og svo víða á lofti en
aldrei hafa sólir verið jafn áber-
andi á lofti yfír Grindavík. Það
var greinilegt að vel hafði verið
hreinsað til í neyðarblysum báta
og skipa í Grindavík þvf himinn-
inn var rauður á litinn. Veður-
guðirnir voru líka mjög hliðhollir
því mjög gott veður var rétt um
áramótin en ekki voru veðurhorf-
ur bjartar lengi vel.
Orlítið byrjaði að snjóa eftir
miðnætti en það gerði þessi
merku áramót bara skemmtilegri
og þá sérstaklega fyrir unga fólk-
ið. Kveikt var á stærsta ljósaskilti
landsins með ártalinu 2000 á
Þorbjarnarfelli á miðnætti en
hver tölustafur er 2,5 metrar á
breidd og 5 metrar á hæð. Þetta
ljósaskilti er því örugglega með
því stærsta sem gerist og örugg-
lega það skilti sem er hæst á lofti.
Dansleikir voru í Festi bæði
ágamlárskvöld og nýárskvöld og
skemmtu Grindvíkingar sér mjög
vel.
Mánaðargiald á stúdentagörðum vegna sínetteng,ing,ar
Ihugað hvort óánægðir
verði undanþegnir gjaldi
FRÁ og með áramótum bættist við
1.460 króna gjald á mánuði á hverja
íbúð stúdentagarða Háskóla íslands
fyrir netaðgang. .Nokkrar kvaitanir
hafa borist vegna þessa gjalds, sem
ekki var tekið fram að væri væntan-
legt þegar íbúar stúdentagai’ða
skrifuðu undir leigusamninga í haust
og hyggst stjórn Félagsstofnunar
stúdenta fjalla um það í næstu viku
með hvaða hætti megi koma til móts
við þá, sem eru óánægðir.
Guðjón Ólafur Jónsson, stjórnar-
formaður Félagsstofnunar stúdenta,
sagði að það yrði þannig í framtíðinni
að gjaldið yrði innifalið í íbúðaleig-
unni, sem væri langt undir markað-
svirði. Gert væri ráð fyrir því að hver
íbúð greiddi þetta gjald og hug-
myndin hefði verið sú að það stæði
undir bæði stofnkostnaði, sem væri
um 15 milljónir, og rekstrarkostnaði:
„Við gerðum ráð fyrir að stúdentar
myndu taka þessu fagnandi, enda
verið að auka þjónustu við íbúa og
gefa þeim möguleika á sínetteng-
ingu, sem þeir hafa ekki haft áður.“
Nokkrar kvai'tanir hafa þó borist.
Guðjón Ólafir sagði að stjórnarfund-
ur yrði haldinn í næstu viku og yrði
þar fjallað um hvernig koma mætti
til móts við þá, sem hafa kvartað
vegna þessa gjalds. Verður meðal
annars athugað hvort þeir, sem ekki
vilji nýta sér sínettenginguna, verði
undanþegnir gjaldinu á yfirstand-
andi leigutímabili.
Að sögn Baldvins Ólasonar,
rekstrarstjóra Stúdentagarða, hefur
verið lagt ljósleiðarakerfi um stú-
dentagarðana og þeir tengdir við há-
skólastöðina með sítengingu, sem
hefur 10 megabæta flutningsgetu.
Baldvin sagði að kerfið yrði endur-
nýjað eftir fjögur ár og áætlað væri
að með gjaldinu yrði þaðgreitt upp á
þeim tíma. Alls tengjast 454 manns
kerfinu á Stúdentagörðum.
Baldvin segir að stúdentum eigi
ekki að koma gjaldið á óvart því að
umræða hafi verið um nýja kerfið í
Stúdentablaðinu og svo hafi upp-
setning staðið yfir frá því í haust.
Að sögn Baldvins er hugsanlegt að
netþjónustugjaldið verði fellt inn í
húsaleiguna með næsta samningi og
innheimt líkt og rekstur á bílastæð-
um við garðana. Hann segir ekki
vera hægt að sundurgreina þá sem
nota kerfið og þá sem ekki nota það
fremur notendur bílastæða.
Hann bætti við að Háskóli íslands
væri síðasti háskólinn á Norðurlönd-
unum sem setti upp sínettengingu á
stúdentagörðum. Ennfremur sagði
Baldvin að uppsetning kerfisins ætti
að nýtast öllum háskólanemum að
því leyti að íbúar Stúdentagarða
þyrftu ekki lengur að nota tölvur í
tölvuverum háskólans og því ætti að-
gangur að þeim að rýmka.
I þeim leigusamningum sem íbúar
Stúdentagarða undirrituðu í haust
er ekki greint frá netþjónustugjald-
inu sem innheimt er með húsaléig-
unni að sögn Baldvins. Hann segir að
íbúum hafi verið tilkynnt um gjaldið
bréfleiðis áður en innheimta þess
hófst um áramótin. Baldvin segir að
skrifstofu Stúdentagarða hafi borist
átta kvartanir.
Islensk erfðagreining
styrkti þrjá flokka
SAMFYLKING, Framsóknar-
flokkur og Vinstrihreyfíngin -
grænt framboð fengu öll fjárfram-
lög frá íslenskri erfðagreiningu
fyrir síðustu þingkosningar. Sjálf-
stæðisflokkur j'ékk hins vegar ekki
fjárstyrk frá íslenskri erfðagrein-
ingu enda barst fyrirtækinu engin
beiðni frá flokknum þar að lútandi.
Frá þessu var greint í fjölmiðl-
um um helgina og þegar Morgun-
blaðið leitaði til Islenskrar erfða-
greiningar vegna þessara frétta
sendi fyrirtækið frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu:
„íslensk erfðagreining staðfestir
að vorið 1999 hafi þrír stjórnmála-
flokkar tekið við framlagi frá fyrir-
tækinu í kosningasjóði sína; Sam-
fylking, Vinstrigrænir og
Framsóknarflokkur. Sjálfstæðis-
flokkur leitaði ekki eftir fjárstuðn-
ingi og fékk því ekki neinn. Þeim
upphæðum sem fyrirtækið lét af
hendi rakna var stillt í hóf. Stefna
fyrirtækisins fyrir síðustu kosn-
ingar var að styrkja þá flokka sem
sóttu formlega um það - og áttu þá
fulltrúa á Alþingi.“
Andlát
GUÐRUN
ÓLAFSDÓTTIR
GUÐRÚN Ólafsdóttir
lézt á Landspítalanum
6. janúar síðastliðinn.
Hún var fædd í
Reykjavík 18. maí
1949. Foreldrar henn-
ar voru Lilly Albertine
Pjetursson, f. 20. maí
1926 í Bodö í Noregi,
og Ólafur Pjetursson
endurskoðandi f. 24.
maí 1919 í Reykjavík,
d. 12. janúar 1972.
Guðrún var elzt barna
þeirra hjóna, næstur
er Ósvald fram-
kvæmdastjóri í Nor-
egi, þá Pétur rafvéla-
virki í Reykjavík.
Guðrún lauk verzlunarprófi frá
Réttarholtsskóla árið 1966, vann
síðan við endurskoðunarskrifstofu
föður síns og tók við rekstri hennar
að föður sínum látnum árið 1972.
Hún stofnaði ásamt eiginmanni
sínum fyrirtækið E.G. heildverslun
árið 1979 og unnu þau saman við
þann rekstur ásamt rekstri endur-
skoðunarskrifstofunnar.
Guðrún var virk í
íþróttahreyfingunni.
Hún tók um langt ára-
bil virkan þátt í starfi
körfknattleiksdeildar
ÍR sem leikmaður,
fyrirliði og síðar þjálf-
ari. Fagnaði hún bæði
Reykjavíkur- og Isl-
andsmeistaratitlum á
leikmannsferli sínum
og var um árabil í ís-
lenzka kvennalandsl-
iðshópnum í körfukn-
attleik. Hún var lengi
í stjórn ÍR og var
gjaldkeri félagsins í
13 ár. Hún var einnig
í stjórn Körfuknattleikssambands
Islands og lét sig hag kvennakörfu-
boltans miklu varða.
Guðrún gekk í Hringinn í
Reykjavík árið 1975 og sinnti þar
mörgum trúnaðarstörfum.
Eftirlifandi eiginmaður Guðrún-
ar er Elías Gíslason viðskiptafræð-
ingur. Sonur þeirra er Ólafur El-
íasson píanóleikari.
ÞÓRHALLUR Ölver Gunnlaugs-
son, sem ríkissaksóknari hefur
ákært fyrir manndráp á Leifsgötu
28 aðfaranótt 14. júlí sl., hefur
breytt frásögn sinni í veigamiklum
atriðum af atburðum frá því er lög-
regluskýrslur voru teknar af honum
í júlímánuði til þess er skýrsla var
tekin af honum fyrir dómi í gær
þegar aðalmeðferð hófst í máli hans.
Nokkur vitni í málinu voru leidd
fyrir dóminn í gær og halda vitna-
leiðslur áfram í dag. Ekki er ólík-
legt að munnlegum málílutningi
ljúki í dag.
Bogi Nilsson, ríkissaksóknari, lét
ákærða lýsa kvöldi hins 13. júlí og
aðaranótt hins 14. og sagði ákærði
þá að hann hefði farið á milli tveggja
veitingahúsa í miðbæ Reykjavíkur
þar sem hann spilaði í spilakössum.
Um klukkan 1.10 sagðist hann hafa
iárið akandi heim til Agnars W.
Agnarssonar á Leifsgötu 28 með
viðkomu á Hverfisgötunni hjá kunn-
ingja sínum sem ekki var heima.
Þegar á Leifsgötuna kom loguðu
ljós í íbúð Agnars heitins. Ákærði
sagði að útidyr hefðu verið ólæstar
og að Agnar hefði, ólíkt venju sinni,
ekki tekið á móti sér í stigagangin-
um. Þegar ákærði sagðist hafa
gengið inn í íbúð Agnars á annarri
hæð hússins sá hann síðan hvar
Agnar lá á gólfinu með hníf í brjóst-
inu.
Rann í blóði hins látna
í frásögn ákærða kom fram að
hann hefði nálgast hinn látna en
Ákærði í morðmáli
breytir framburði
sínum fyrir dómi
runnið oftar en einu sinni í blóði
hins látna. Ákærði sagðist hafa ver-
ið undir áhrifum amfetamíns og
annarra lyfja umrætt kvöld og ekki
vitað hvað gera skyldi. Hann sagðist
hafa gengið um íbúðina til að kanna
hvort einhver væri þar og síðan
hefði hann gengið inn í herbergi
móður hins látna þar sem hann hafi
fundið skartgripi sem hann tók.
Skartgripirnir eru metnir á tæp-
ar 300 þúsund krónur og hefur rík-
issaksóknari ákært Þórhall Ölver
fyi-ir þann þjófnað og liggur játning
fyrir á þeim ákærulið.
Ákærði sagðist hafa ætlað að
hringja í neyðarlínuna til að til-
kynna líkfundinn en hætti við vegna
hræðslu. Sagðist hann hafa hringt í
tvo kunningja sína, náði ekki sam-
bandi við annan og hinn skellti á.
Þegar ákærði yfirgaf íbúð Agnars
og gekk út í bifreiðina sem hann
kom á sat hann þar í 7-8 mínútur að
eigin sögn. Síðar um nóttina stöðv-
uðu tveir lögreglumenn á eftirlits-
ferð bifreið ákærða á Skúlagötunni
og fundu hann blóðugan frá hvirfli
til ilja. Hann var færður á lögreglu-
stöð þar sem útskýringar hans á
blóðinu þóttu ótrúverðugar. Hann
var vistaður í fangageymslu til
næsta morguns. Sagði ákærði að
sér til mikillar undrunar hefði hann
fengið afhenta bíllykla sína og verið
sleppt þá um daginn, þótt hann væri
réttindalaus. Ennfremur fékk hann
afhenta skartgripina sem hann
hafði tekið úr íbúð Agnars.
Neyttu saman fikniefna og
lentu í rifrildi
Ríkissaksóknari vitnaði í lög-
regluskýrslur sem teknar voru í
júlímánuði af ákærða þar sem
gjörólík frásögn var skráð eftir
ákærða. Ákærði sagði að í þeim
hefði allt verið haft rétt eftir sér en
hann hefði hins vegar greint rangt
frá.
Samkvæmt umræddum lögreglu-
skýrslum fór ákærði heim til Agn-
ars þar sem þeir neyttu saman fíkn-
iefna og lentu um síðir í rifrildi
vegna peningamála sem leiddi til
þess að stympingar hófust með
þeim. Agnar hafi gripið til hnífs með
löngu blaði en ákærði náð að af-
vopna hann og stympingarnar end-
að með dauða Agnars.
Skýringar ákærða á þvi hvers
vegna hann hefði greint rangt frá
við skýrslutökur lögreglu voru á
þann veg að hann hefði fengið áfall
er hann kom inn í íbúð Agnars heit-
ins, fann hann þar látinn og vísaði
ennfremur til ástands síns og
minnti á að hann hefði nýverið lokið
32 mánaða fangelsisvist vegna fjár-
svikamáls. Hann hafi því ákveðið að
hverfa af vettvangi og blanda sér
ekki frekar í málið en lygin hefði
hins vegar hafíst þegar lögreglan
stöðvaði hann á Skúlagötunni síðar
um nóttina og frá henni greini um-
ræddar lögregluskýrslur.
Ríkissaksóknari krafðist þess að
lögregluskýrslurnar yrðu teknar til
mats við meðferð málsins en verj-
andi ákærða lýsti því hins vegar
sem skoðun sinni að rétt væri að fá
álit sérfræðings á þeim skýrslum
sem teknar hafa verið af ákærða og
á dómurinn eftir að taka afstöðu til
þess máls.
Ákærði var sendur í blóð- og
þvagrannsókn um nóttina og kom
m.a. í ljós að amfetamínmagn í lík-
ama hans var fimmfalt á við það sem
eðlilegt gæti talist við lækningar,
samkvæmt niðurstöðum rannsa-
kenda.
Fjórir íbúar á Leifsgötu 28 báru
ennfremur vitni fyrir dóminum í
gær og báru allir að þeir hefðu
heyrt skarkala og hávaða um nótt-
ina sem Agnari var ráðinn bani.
Hávaði hefði heyrst í nokkrar mín-
útur en síðan hefði allt orðið hljótt.
Enginn þeirra bar að sést hefði til
ákærða fara frá húsinu þótt eitt
vitnið hafi séð til manns sem yfirgaf
húsið skömmu eftir atganginn.
Tveir lögreglumenn, annar rann-
sóknarlögreglumaður og hinn sá
sem stöðvaði bifreið ákærða aðfar-
anótt 14. júlí, báru ennfremur vitni í
gær auk tveggja vina hins látna og
tveggja manna honum kunnugum
auk einnar konu og sérfræðings
sem stýrði rannsóknum á eiturefn-
um í líkama ákærða.