Morgunblaðið - 11.01.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR11. JANÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Leigjendur
í Félags-
bústöðum
bornir út
SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík
bar út íbúa í félagslegri íbúð á vegum
Reykjavíkurborgar eftir hádegi í
gær, en frestaði öðrum útburði sem
fyrirhugaður var í gærmorgun um
eina viku vegna veikinda eins
íbúanna. Vað það í annað sinn sem
útburði úr þeirri íbúð var frestað, en
íbúum hennar var gefinn frestur í
eina viku eða til klukkan tíu á mánu-
daginn 17. janúar nk.
I báðum tilvikum er um ræða ein-
stæðar mæður með tvö böm hvor
auk nítján ára gamallar stúlku.
Sigurður Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða, segir
að útburður sé algjört neyðarúrræði.
Að baki sé langt ferli og leigusamn-
ingum beggja íbúða hafl verið sagt
upp snemma á síðasta ári og því hafi
íbúar þeirra haft nægan tíma til að
leita annarra úrræða.
Að sögn Sigurðar er um að ræða
sambýlisvandamál við nágranna auk
þess sem konurnar skuldi rúmlega
árs húsaleigu. íbúðimar tvær henti
illa sem félagslegar íbúðir vegna
þess að önnur sé í tvíbýli en hin í þrí-
býli og því sé ráðgert að selja íbúð-
irnar. Orsök þess að konunum er
gert að flytja úr íbúðunum sé fyrst
og fremst sú að nágrannar hafa ít-
rekað kvartað til Félagsbústaða
vegna kvennanna tveggja og bama
þeirra. Annarri konunni var sagt upp
íbúðinni í lok mars og átti að hafa
flutt úr henni 1. október.
Sigurður segir að í báðum tilvik-
um hafi sannleiksgildi kvartananna
verið metið.
Fulltrúar félagsþjónustunnar
vora viðstaddir fyrirtekt málanna í
gær, en að sögn Sigurðar mim fyrir-
tækið í samráði við foreldrana gæta-
þess að velferð barnanna verði
tryggð.
♦ ♦ ♦
Verkamenn
vantar í vinnu
ÍSLENSKIR aðalverktakar (ÍAV)
auglýstu í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins eftir verkamönnum og
smiðum til starfa í Sóltúni, á Stór-
höfða og í Austurstræti. Að sögn
Bjama Jónssonar, verkefnisstjóra
hjá ÍAV, vora góð viðbrögð við
auglýsingunni en alls vantaði um 20
verkamenn.
„Skýringin er fyrst og fremst sú
að það er mikið að gera hjá okkur og
verkefnin sum komin á það stig að
það þarf aukinn mannskap til að
ljúka verkefninu," segir Bjarni.
Hann hafði þegar í gær ráðið í
nokkrar stöður og bjóst við að ljúka
ráðningum í vikunni.
Fimm sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna nýjasta e-töflumálsins
Grunur um umfangsmik-
inn innflutning á e-töflum
RANNSÓKN á e-töflumálinu, sem
kom upp skömmu fyrir áramót, hef-
ur leitt í ljós að málið er mun um-
fangsmeira en í fyrstu var talið. Nú
sitja fimm menn í gæsluvarðhaldi
vegna málsins, en tveir menn vora
hnepptir f varðhald um helgina.
Rannsókn hófst á þessu máli á
milli jóla og nýárs og leiddi hún til
þess að þrír menn vora hnepptir í
gæsluvarðhald. Jafnframt var lagt
hald á umtalsvert magn af e-töflum.
Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp
um hve mikið magn er að ræða.
Höfuðpaurinn í málinu tengdist
máli Kio Briggs, sem á sínum tíma
var ákærður og síðar sýknaður fyrir
innflutning á rúmlega 2000 e-töflum.
Sá sem lét lögregluna vita af því að
Briggs væri á leið til landsins með e-
töflur í fóram sínum, er nú granaður
um stórfelldan innflutning á slíkum
töflum.
Að sögn Ómars Smára Ármann-
ssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
hefiir rannsókn málsins undið upp á
sig eins og oft vill verða við mál af
þessu tagi. Til rannsóknar sé hvort
þeir sem nú sitji í gæsluvarðhaldi
hafi átt þátt í víðtækari fíkniefnainn-
flutningi. Hann sagði að rannsóknin
hefði ekki leitt til þess að lagt hefði
verið hald á meira af fíkniefnum.
Handtekinn 30 sjómflur
suðvestur af Hornafírði
Rannsókn málsins leiddi tO þess
að tveir menn voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald um helgina. Annar
mannanna var sóttur á haf út sl.
föstudag. Ómar Smári sagði að lög-
reglumenn á Höfn í Hornafirði hefðu
reynst mjög hjálplegir við handtöku
mannsins, en þeir fóru á lóðsbát frá
Höfn og handtóku manninn sem var
skipverji á nótabát sem var að veið-
um um 30 sjómílur suðvestur af
Hornafirði. Maðurinn var síðan flutt-
ur til yfirheyrslu til Reykjavíkur og
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19.
janúar.
Annar maður var um helgina úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 19.
janúar. Hann var í meðferð á sjúkra-
stöð SÁÁ á Vogi. Að sögn Omars
Smára óskaði lögreglan upphaflega
eftir að fá að ræða við manninn, en
starfsmenn SÁÁ höfnuðu því með
þeim rökum að ekki mætti ónáða
hann í meðferðinni. í framhaldi af
því hefði verið lögð fram krafa um
handtöku mannsins. Meðan beðið
var úrskurðar héraðsdóms vöktuðu
lögreglumenn sjúkrastöðina.
Lögreglan hefur ekkert viljað láta
uppi um hvað rannsóknin beinist að
innflutningi á miklu magni af fíkni-
E-töflur sem
íslensk yfirvöld
hafa lagt hald á
árin 1992-1999
8 1 22
töflur tafla töflur
1992 ”93 94 95 96 97 98 1999
efnum. „Þama er verið að rannsaka
innflutning á umtalsverðu magni af
e-töflum. Miðað við umfang má segja
að þarna sé um alvarlegt mál að
ræða,“ sagði Ómar Smári.
Aðspurður útilokaði Ómar ekki að
fleiri yrðu handteknir í tengslum við
þetta mál. Rannsóknin væri enn í
fullum gangi.
Alvarlegar afleiðingar neyslu
E-pillan er til í ýmsum efnasam-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti tók fyrstu skóflustunguna að
kvikmyndaverinu í ágúst síðastliðnum. Arkitekt er Gylfi Guðjónsson.
Kvikmyndaver að rísa í Grafarvogi
Tökur gætu
hafist í febrúar
Til sölu MMC Carisma
1800 árg. 1998, nýskráður
13.08.1998. 4 dyra sjálf-
skiptur, bensín, ekinn 15.000
km. Ásett verð 1.590.000,
skipti á ódýrari.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu, s. 569 5500.
Opnunartlmi: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞING HEKLU
Nvwc-r &ÍH' í bdvm!
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
www bilathinfj h, • www hilalhmfj in • www hihtthírifj i'
TÖKUR gætu hafist um miðjan
næsta mánuð í nýju kvikmynda-
veri sem verið er að reisa á vegum
íslenska kvikmyndaversins hf. í
Grafarvogi í Reykjavík. Bygging
hússins hefur að miklu leyti geng-
ið samkvæmt áætlun en bygging-
arkostnaður er áætlaður um 120
milljónir króna.
Jón Þór Hannesson hjá Saga-
Film, sem er formaður Islenska
kvikmyndaversins, segir að hægt
verði að hcfja tökur í verinu um
miðjan febrúar en þá verður aðal-
verið tilbúið að mestu. Hann segir
hliðarbyggingu ekki verða tilbúna
þá þar sem verkið hafi dregist lít-
ils háttar. Félagið ráðgerir að
þarna geti framleiðendur kvik-
mynda og auglýsinga fengið inni
og segir Jón Þór beðið eftir þess-
ari aðstöðu.
Verður 5.500 fermetrar
Þetta er fyrsti áfangi hússins en
1.200 fermetra bygging með um 10
metra lofthæð en lóðin leyfir mikla
stækkun og er gert ráð fyrir að
alls verði byggingarnar um 5.500
metrar að flatarmáli. Kvikmynda-
verin verða nefnd Óskar og Loftur
til heiðurs tveimur frumkvöðlum í
íslenskri kvikmyndagerð, Óskari
Gíslasyni og Lofti Guðmundssyni.
Mikil úr-
koma á
Kanarí-
eyjum
ÞAÐ rigndi eins og hellt væri
úr fötu á Kanaríeyjum frá sl.
fimmtudegi fram á laugardag.
Þetta eru mestu rigningar á
eyjunum undanfarin tíu ár.
Að sögn Báru Konnýjar
Hannesdóttur, fararstjóra
Heimsferða, hófst rigningin
seinni hluta fimmtudags og
flæddi fljótlega yfir allar götur
enda gerir lagnakerfi ekki ráð
fyrir svo miklum rigningum.
„Það flæddi inn í hús og hót-
el og þurftu nokkrir íslending-
ar að skipta um íbúðir. Annars
tóku íslendingarnir þessu með
mestu ró enda vanir misjöfn-
um veðrum heiman að.“
Bára segir að fólk hafi verið
beðið um að halda sig innan-
dyra meðan úrhellið stóð yfir
og eitthvað hafi verið um að
samgöngur hafi raskast.
íslendingunum
reiddi vel af
„Slökkvilið stóð í ströngu
við að dæla vatninu burtu og
það var víst talsvert um slys á
hraðbrautunum enda erfitt að
keyra við þessar aðstæður. ís-
lendingunum reiddi hins vegar
vel af. Þeir voru ótrúlega já-
kvæðir þó að þetta hefði þær
afleiðingar að þeir gátu lítið
gert þessa daga.“
Að sögn Báru voru um 250-
300 íslendingar á Kanaríeyj-
um, allir á ensku ströndinni
svokölluðu á Las Palmas eyj-
unni.
Ferðamenn á vegum Sam-
vinnuferða-Landsýnar voru
einnig allir á ensku ströndinni
en eyjan Santa Cruz de Tene-
rife varð verst úti í óveðrinu.
böndum, en yfirleitt er um að
ræða amfetamínafbrigði með
LSD-líka verkun, nokkuð mismun-
andi eftir því um hvaða efni er að
ræða hverju sinni, og getur skaðsemi
af neyslunni orðið veraleg. Yfirleitt
byrjar neyslan með skemmtan og til
að öðlast vellíðunartilfinningu, en af-
leiðingarnar gera fljótléga vart við
sig.
Notkun pillunnar geta fylgt of-
skynjanir og kæraleysi. í slíku
ástandi getur fólk auðveldlega orðið
fórnarlamb misindismanna, auk
þeirra alvarlegu afleiðinga, sem
neyslan sjálf getur haft í för með sér.
Grunnþarfaeinkenni geta horfið, auk
þess sem áhrifin á taugakerfið fela í
sér stífleika í vöðvum er getur endað
með krampa, sem jafnvel lyf vinna
iila eða ekki á. Áhrifin á líkamshit-
ann valda því að hann rýkur upp og
þrátt fyrir alla nútímatækni getur
verið iilmögulegt að ná honum niður
aftur með þeim aivarlegu afleiðing-
um, sem því fyigja. Áhrif á hjarta- og
æðakerfi geta leitt til lækkunar blóð-
þrýstings og/eða traflana á hjart-
slætti. Þá geta eituráhrif komið fram
í nýrum og blóðstorkutruflanir vald-
ið heilablæðingu, auk þeirra geð-
rænu áhrifa, s.s. þunglyndi og of-
sóknarkennd, sem neysla pillunnar
getur haft í för með sér.