Morgunblaðið - 17.04.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998 27
Við söknum
raddar Islands
í Evrópu
íslandsvinurinn og ritstjórinn Bent A.
-----------------------/ --------
Koch frá Danmörku telur að Islendingar
hafi mikið fram að færa í Evrópu á mikl-
um breytingatímum. Urður Gunnarsdóttir
____ræddi um norrænt og evrópskt_
samstarf við Koch.
Morgunblaðið/Ásdís
BENT A. Koch lítur á Island sem sitt annað föðurland.
VIÐ söknum raddar íslands
í Evrópu. Ég er ekki endi-
lega að hvetja til þess að
ísland gangi í Evrópusam-
bandið en nú eru að verða svo miklar
breytingar í Evrópu að ég teldi mik-
ilvægt fyrir Island að iáta rödd sína
heyrast," segir Bent A. Koch, fyrr-
um ritstjóri Fyens Stiftstidende.
Koch telst án nokkurs vafa til ís-
landsvina, hann hefur komið til ís-
lands tæplega þrjátíu sinnum, situr í
fjölda nefnda og ráða sem varða
samvinnu landanna og síðast en ekki
síst beitti hann sér ötullega fyrir því
að dönsk stjórnvöld skiluðu íslend-
ingum handritunum.
Koch er staddur hér á landi í boði
sjóðs Kay og Selmu Langvads við
Háskóla Islands, en sjóðnum er ætl-
að að efla menningartengsl Islands
og Danmerkur. Flutti Koch fyrir-
lestur í Norræna húsinu sem hann
nefnir „Norðurlönd undir aldamót".
Hann segir menninguna það sem
sameini löndin fyi’st og fremst og að
hana megi ekki vanmeta. „Hin nor-
ræna menning lifir, hún er öflug og
menn líta á hana sem sjálfsagðan
hlut, sem segir meira en mörg orð
um stöðu hennar. En það er vissu-
lega rétt að samstarfið á pólitíska
vettvanginum á erfiðar uppdráttar
nú en áður. Það eru ekki Norður-
lönd, heldur Evrópa, sem ráða um-
ræðunni, t.d. í Danmörku."
Höfum meiri áhrif en
stærðin segir til um
Koch segu- hinn norræna vettvang
ekki nægja lengur. „Það hafa orðið
geysilegar breytingar í Evrópu á
undanförnum árum og tækifærið
sem okkur gefst til að tryggja frið,
öryggi og jöfnuð í Evrópu er ein-
stakt.
I Evrópuumræðunni söknum við
raddar Islands. Þið hafið mikið að
gefa, búið yfir mun meira en stærð
ykkar segir til um. Danir eru einnig
lítil þjóð á evrópskan mælikvarða en
við höfum mun meiri áhrif innan
Evrópu en stærðin gefur til kynna.
Ég er ekki endilega að hvetja til þess
að Island gangi í Evrópusambandið
en nú eru að verða svo miklar breyt-
ingar í Evrópu að ég teldi mikilvægt
fyrir Island að láta rödd sína heyr-
ast,“ segir Koch.
En víkjum aftur talinu að Norður-
löndum. Á íslandi, Grænlandi og í
Færeyjum heyrast raddir um að
áherslan í norrænni samvinnu hafi
færst um of til austurs, til Eystra-
saltsríkjanna og Rússlands, á kostn-
að fyrrnefndu landanna?
„Já, það er langt frá Reykjavík til
Riga. Þessi lönd eru ekki beinlínis
hluti Norðurlandanna en þau eru ná-
grannar okkai- og okkur ber skylda
til að aðstoða þau. Það má vel vera
að vestnorrænu löndin falli að ein-
hverju leyti í skuggann en því fer
fjarri að þau gleymist. Það er enda
skylda okkai- Dana að sinna Islandi,
Færeyjum og Grænlandi og aukin
fjárframlög danskra stjórnvalda til
dönskukennslu hér á landi eru gott
dæmi um það.“
Ótti við að tapa
einkeniiunum
Koch hefur í ræðu og riti fjallað
um þjóðarvitund og þjóðerniskennd,
mikilvægi þess að hún þroskist með
þjóð, og jafnframt að hún verði ekki
öfgakennd. „Þjóðarvitundin hefur
náð jafnvægi, þroska, með norrænu
þjóðunum, einni af annarri. Islend-
ingar urðu fullburða þjóð er þeir
fengu handritin afhent. En skömmu
eftir að norrænu þjóðirnar voru loks
fyllilega tilbúnar að standa styrkum
stoðum í samstarfi við aðrar þjóðir,
lauk kalda stríðinu og evrópsku
vandamálin fóru að skyggja á þau
norrænu.
Breyttum tímum fylgir breytt
heimsmynd. Nú er svo komið að
hugtökin hægri og vinstri eru ekki
lengur til eins og við þekktum þau,
önnur gildi skipta almenning máli en
áður. Umhverfís- og innflytjendamál
hafa tekið við af efnahagsmálum og
hinn stóri vandi framtiðarinnar er
þau siðferðilegu vandamál sem
skjóta upp kollinum með örum fram-
fórum í vísindum og tækni, styttri
vegalengdum og upplýsingaflóði sem
er okkur áminning um að sá á kvöl-
ina sem á völina.
í þessu flóði öllu eykst hræðsla
einstaklinga og þjóða við að tapa ein-
kennum sínum, því það kemur á dag-
inn að við eigum ekki svo margt
sameiginlegt lengur, sameiginlegum
gildum fækkar, lífssýnin breytist.
Við lifum á tímum einstaklings-
hyggju. En það skiptir óskaplega
miklu að við missum ekki sjónar á
lýðræðinu í þessum öru breytingum,
að okkur takist að nýta framfarirnar
til að styrkja það.“
Því fer fjarri að Bent A. Koch sé
sestur í helgan stein þótt hann starfi
ekki lengur sem ritstjóri. Hann
skrifar enn leiðara og greinar í
Fyens Stifttidende og situr, eins og
áður segir, í mörgum stofnunum,
sjóðum og félögum, sem mörg tengj-
ast samskiptum íslendinga og Dana.
Þar má nefna Dansk-íslenska sjóð-
inn, sem stuðlar að samskiptum á
sviði menningar og skólamála og
styrkir m.a. gagnkvæmar heimsókn-
ir danskra og íslenskra skólabarna,
sem Koch telur afar mikilvægar. Þá
segir hann það gleðiefni að áhugi
danskra ungmenna á Islandi hafi
aukist á undanförnum árum.
Heillaðist algerlega
Sjálfur hefur Koch sýnt íslending-
um mikla tryggð í fjóra áratugi. Það
vai- þó ekki sjálfgefið að hann fengi
áhuga á landi og þjóð, því á æsku-
heimili hans féllu mörg styggðaryrði
í garð Islendinga fyrir að hafa sagt
sig úr ríkjasambandinu við Dan-
mörku. En er Koch gerðist blaða-
maður, réð hann til starfa ritstjóri
sem hafði hrifist mjög af séra Frið-
riki Friðrikssyni og sendi Koch til
Islands. „Ég heillaðist algerlega,
skrifaði fimm langar greinar undir
heitinu „Sagaeyjan á atómöld“, og
hellti mér út í baráttuna fyrir því að
Danir skiluðu handritunum. Islands-
heimsóknunum fjölgaði, þær eru
orðnar á þriðja tuginn, hér á ég fjöl-
marga vini og lít nú á landið sem
mitt annað fóðurland."
BMW 3 línan
FRAMÚR-
SKARANPI
BMW 3 línan með spólvöm / læstu drifi ~
# ©
B&L Suðurlandsbraut 14, sími 575 1210
Nýtt verð á
GIRA Standard.
Gæöi á
góöu verði.
S. GUÐJÓNSSON ehf.
Lýsinga- og rafbúnaður
Auðbrekka 9-11 • Sími: 554 2433
•hyundm
Þú ert ekki bara að
kaupa merkið...
þó það sé óneitanlega
stór plús
ti
HBPi
...heldur líka öryggi
. og þjónustu!
Hyundai 200 mmx
Intel Pentium 200 MMX • 32 mb SRAM vinnsluminni • 5I2 kb
pipeline Burst Cach skyndiminni • 2.I GB Ultra DMA hardur diskui
I6 bita hljódkort • 24 hrada geisladrif • 50W hátalarar • 2mb ATI Mach64
skjákort • 3,5" diskiingadrif • Hnappaborð og Logitec mús • Windows 95
• 33,6 „fax/voice” mótald • Internetáskrift í 4 mánuði
Fermingar
tilboð
aðeins kr.
Tæknival
Skeifan 17 • 108 Reykjavík • Sími: 550 4000
Reykjavíkurvegur 64 • 220 Hafnarfj. • Sími: 550 4020
Opnunartími: 9 - I9 virka daga og I0 - I6 laugardaga