Morgunblaðið - 17.04.1998, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998
MORGUNB LAÐIÐ
GSM-samband
við Bandaríkin
innan skamms
YFIR 45 þúsund manns eru nú
áskrifendur að GSM-kerfínu á Is-
landi og sífellt fleiri bætast í hóp-
inn. Þeim löndum fjölgar einnig
þar sem viðskiptavinir Landssíma
Islands geta notað GSM-kortin
sín. Innan skamms geta þeir kom-
ist í samband í Bandaríkjunum.
Landssíminn er að semja við
fyrirtækið Omnipoint í Bandaríkj-
unum sem er með þjónustu á
austurströnd Bandaríkjanna s.s. í
New York, Boston, Fíladelfíu,
Washington og á Miami. Þaðan
verður hægt að hringja með ís-
lensku korti með því að nota sér-
staka tegund GSM-sima sem
Landssíminn mun hafa til leigu. I
Bandaríkjunum er notuð önnur
tíðni en í Evrópu fyrir GSM-síma
og þess vegna er ekki hægt að
nota sömu símana á svæðunum,
að því er fram kemur í frétt frá
Landssímanum. Nýlega komst á
samband við Búlgaríu og fljótlega
munu Kýpur, Moskva, Malasía og
Astralía bætast í hóp þeirra
svæða þar sem hægt er að nota
GSM-kort frá Landssímanum.
GSM-kerfið nær nú til um 90%
landsmanna. Sífellt stækkar það
svæði landsins sem kerfíð nær yf-
ir og nýlega bættust Þórshöfn og
Raufarhöfn í hóp þeirra þéttbýlis-
staða þar sem hægt er að nota
GSM-síma. Þá verða á næstu
mánuðum settar upp stöðvar í
Búðardal, á Hólmavík og Þing-
eyri. Einnig verður hægt að
hringja úr GSM í Hvalfjarðar-
göngunum og samband á hring-
veginum verður bætt. Undanfarið
hafa skilyrði á höfuðborgarsvæð-
inu einnig verið bætt, s.s. í Kvos-
inni, Austurbænum og í Garðabæ.
Vinir og vandamenn
Viðbót við GSM-kerfið, svokall-
að GSM-1800, verður fljótlega tek-
ið í notkun á höfuðborgarsvæðinu
en sent er á 1800 megariðum í stað
900. Kerfið er fyrst og fremst ætl-
að til notkunar í þéttbýli sem við-
bót við núverandi kerfi þar sem
álagið er mest. Til að nýta nýju
sendana þarf síma sem notar bæði
1800 og 900 megarið en viðskipta-
vinurinn verður ekki var við hvort
kerfið er notað.
Með nýju reikningagerðarkerfi
Landssímans sem tekið verður í
notkun í sumar, verður hægt að
bjóða upp á fjölbreyttara úrval af
áskrift í GSM-kerfinu en hingað
til. Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Landssímanum að á döf-
inni er m.a. að gefa kost á því sem
nefnt hefur verið vinir og vanda-
menn („friends and family“). Við-
skiptavinir velja þá nokkur númer
sem þeir geta hringt í gegn lægra
gjaldi en annars gildir.
VIÐSKIPTI
Meyado International Ltd. vekur athygli
Býður fjármálaráðgjöf
án endurgjalds
Morgunblaðið/Ásdís
Gísli Örn Lárusson aðstoðarforstjóri og Martin Edward Young for-
stjóri Meyado fjármálaráðgjafarfyrirtækisins sem hyggur á aukna
landvinninga í framtíðinni.
BRESKA fjármálaráðgjafarfyrir-
tækið Meyado International Ltd.
hefur vakið athygli fyrir nýstárlega
hugmyndafræði í starfsemi sinni,
þar sem fólki gefst kostur á að nýta
sér þjónustuna endurgjaldslaust.
Bresk-ættaður stofnandi þess og
forstjóri, Martin Edward Young,
var staddur hér á landi í vikunni og
ræddi við Morgunblaðið, ásamt
Gfsla Emi Lámssyni, nýráðnum að-
stoðarforstjóra, um starfsemina,
áherslur og framtíðaráform fyrir-
tækisins og hvernig íslendingar
geta notfært sér þjónustuna í fram-
tíðinni fyrirhafnarlítið.
Hugmynd Youngs að stofnun
Meyado kviknaði er hann starfaði
sem yfirmaður verðbréfadeildar
fyrir alþjóðlega fjármálarisann,
Meril Lynch í Bandaríkjunum á átt-
unda áratugnum. Hann taldi raun-
hæft að stunda fjármálaráðgjöf- og
þjónustu á öðrum forsendum en al-
mennt tíðkast, þar sem ráðgjafar-
fyrirtækin leggja oft meiri áherslu
á að selja þjónustu sína til neytand-
ans, heldur en að sinna sínu raun-
verulega hlutverki sem snýr að því
að ráðleggja fólki hvemig það best
geti ávaxtað sparifé sitt. Þess í stað
væri báðum aðilum í hag ef þeir
sætu sömu megin borðsins og besta
sparnaðarráöstöfunin hveiju sinni
væri hámarkandi fyrir báða aðila.
Ókeypis ráðgjöf
Útkoman varð stofnun Meyado
sem hóf starfsemi fyrir fimm ámm
og byggist á því að þeir aðilar sem
leita eftir fjármálaráðgjöf fá slíka
þjónustu sér að kostnaðarlausu en
Meyado þiggur síðan greiðslu frá
því fyrirtæki sem viðskiptavinurinn
kýs að notfæra sér. Young telur
það í þágu allra málsaðila að færa
greiðsluna fyrir ráðgjafarþjónust-
una frá þeim aðilum sem leita eftir
þjónustu ráðgjafarfyrirtækjanna,
yfir á fjármálastofnanirnar sem
verslað er við. Þannig skapist bæði
meira traust á milli ráðgjafans og
viðskiptavinarins en ella auk þess
sem þetta fyrirkomulag verki hvetj-
andi á fjármálastofnanir að því
leyti að þeir sem best standa sig
njóti mestra viðskipta.
Útibú hérlendis ekki á dagskrá
Umsvif Meyados nú em aðallega
í Evrópu en fyrirtækið hefur ný-
lega opnað útibú í Brasilíu og
Argentínu og stefnt er að því að
eiga umboðsmenn í öllum heims-
liornum innan fárra ára. ísland er
þó undanskilið þeirri hnattvæðingu
þar sem sum þeirra fyrirtækja, sem
forsvarsmenn Meyado telja álitleg-
an kost fyrir viðskiptavini sína, eru
utan Evrópska efnahagssvæðisins
og yrðu því öll að starfrækja útibú
hér á landi sem þykir of kostnaðar-
samt og í reynd óþarfi í því við-
skipta- og samskiptaumhverfi sem
við búum við. Þeir einstaklingar
hérlendis sem óska eftir þjónustu
Meyados geta nálgast hana á ein-
faldan hátt í flestum nágrannalönd-
um okkar. Fyrirtækið rekur útibú í
London sem Gísli stýrir og hyggst
opna skrifstofur í Svíþjóð og víðar
á Norðurlöndum á næstunni.