Morgunblaðið - 16.09.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1987
25
Þessar flíkur eru frá árinu 1972, þá þegar er boðið upp á flíkur í
litum.
Slíkt kerfí hefur bæði kosti og
galla í för með sér. Vegna fjar-
lægðar frá mörkuðunum er viss
hagur í því að aðrir sjái um sölu
og dreifíngu í hinum ýmsu lönd-
um. Einkaumboðsmannakerfíð
útilokar aðra í að fá að kaupa
vöruna beint frá íslandi og selja
hana í viðkomandi landi. Það er
eingöngu hægt með því að kaupa
af einkaumboðsmanninum. Kjósi
fyrirtækin að markaðssetja vör-
una á einkaumboðsmannagrund-
velli segir sig sjálft að val á
umboðsmanni hefur gífurlega
mikla þýðingu. Standi viðkomandi
sig ekki í stykkinu þýðir það hrun
í sölu á heilum markaði sem oft-
ast er erfítt að vinna upp aftur.
Það tekur umboðsmenn oft
Erlendis seljast íslensku ullarflíkumar aðallega í sportvöru- og ferðamannaverslunum.
langan tíma að fínna réttar dreifí-
leiðir fyrir íslensku ullarvöruna
en um leið og það hefur tekist
gengur salan vel. Þær verslanir
sem selja íslensku ullarvöruna eru
oftast sportvöru- eða ferðamanna-
verslanir.
Leggja ber áherslu á mismun-
andi markaðssetningu fyrir hinar
ýmsu hönnunargerðir. íslensku
fyrirtækin hafa oftar en einu sinni
brennt sig á því að nota fyrirliggj-
andi dreifíleiðir á íslenskum
ullarvörum til markaðssetningar á
hliðarlínum sínum, sem oftast eru
hátískuflíkur. Rangar dreifíleiðir
færa ekki björg í bú. Gera þarf
stórátak í markaðsmálum og fínna
nýjar leiðir til árangurs. Mörkuð-
unum hefur verið þjónað en lítið
verið unnið á þeim beint frá ís-
landi. Gera þarf nákvæmar
markaðsathuganir þannig að
meiri vitneskja fáist um það hvar
bera eigi niður með ullarvörumar
m.t.t. markhóps og kaupgetu.
Við getum boðið upp á fyrsta
flokks vöru í grófunnum flíkum
en það verður að muna að nú til
dags selst ekkert af sjálfu sér.
Með þessum skrifum er lögð
áhersla á að ullarfyrirtækin hafa
alls ekki setið auðum höndum.
Ég hvet alla til þess að þræða
íslensku ullarverslanimar svo þeir
sjái með eigin augum það sem í
raun og veru er boðið upp á og
auk þess hafa augun opin í tísku-
verslunum því þar gætu leynst
íslenskar hátískuflíkur með nöfn-
um eins og „ICE ROCK“,
„FANTASY", „MOSS“ o.fl.
Mig grunar m.a.s. að margir
viti ekki að inni í skáp hjá þeim
hangir íslensk ullarpeysa sem
keypt var í tískuverslun niðri á
Laugavegi. Standi t.d. „MOSS“ á
merkimiðanum í hálsmálinu er
peysan ekki framleidd á ómerkari
stað en Hvammstanga við Mið-
fjörð.
Höfundur lauk BA-prófi og
kennslufræði frá HÍ1977, stund-
aði framhaldsnám við háskólann
íBonn 1978—1980 ogernúmark-
aðsstjóri hjá Alafossi.
Mikið úrval af góðum vörum á mjög góðu verði:
Kuldaúlpur frá kr. 1.750,-
Barnaúlpur frá kr. 1.250,-
Barnapeysur frá kr. 235,-
Dömupeysur frá kr.
Dömubuxur frá kr.
Skyrtur frá kr.
395,-
350,-
350,-
Mikið úrval af skóm m.a.
Kvenskór frá kr. 795,-
Kuldaskór frá kr. 995,-
Eigum til allar
skólavörur.
- Hagstætt verð -
Skólafatnaður,
ritföng, o.m.fl.
Á sérstöku tilboði
þessaviku
Nesquik 750 gr. kr. 129,-
Rúgmjöl 2 kg. kr. 55,-
Haframjöl 950 gr. kr. 66,-
Rúsínur 250 gr. kr. 45,-
Tekex kr. 25,-
Súkkulaðikex kr. 41,-
Blandaðir ávextir 1/i dós kr. 99,-
Perur 1/i dós kr. 79,-
Iva þvottaduft 2,3 kg. kr.224,-
SIÓRMARKAÐUR
Skemmuvegi 4 a