Morgunblaðið - 16.09.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1987
fclk í
fréttum
Fer eftir eigin
tilfinningnm, ekki
vinsældaformúluni
- segir Rúnar Þór Pétursson, hljómlistarmaður
Rúnar Þór Pétursson er í þann
veginn að gefa út aðra sóló-
plötu sína, og í því tilefni fannst
Fólki í fréttum tilvalið að rabba
við Rúnar um tónlist hans, og lífið
og tilveruna. Rúnar hefur komið
víða við á undanfömum tveimur
árum; fyrir utan sólóplötu sína
„Auga í vegg“, hefur hann gefíð
út plötu með hljómsveitinni X-
Splendid, og spilað með henni eða
komið fram sjálfur á tónleikum
um allt land.
Rúnar var fyrst spurður um
nýju plötuna sína, sem heitir
„Gísli", eins og eitt lagið á plöt-
unni, sem fjallar um Gísla á
Uppsölum. Rúnar sagði að Gísli
væri sér hugleikinn vegna þess
að hann hefði lifað í sátt við sjálf-
an sig og aðra, en fjölmiðlar og
nútíminn hefðu síðan troðið sér
óumbeðið upp á hann. „Þeir sem
hafa kosið að lifa í friði, eiga að
fá að lifa í friði“ sagði Rúnar.
Hann sagði að það væri mun
meira lagt í nýju plötuna en í þá
fyrri; hljóðfæraleikur væri vand-
aðri, og honum fyndist hann hafa
meira að segja, bæði í lagasmíðum
sínum og textum. Öll lögin á plöt-
unni eru eftir Rúnar, utan eitt,
og allir textarnir, nema þrír. Þá
syngur Megas eitt lagið á plöt-
unni með Rúnari. „Það má segja
að það megi fínna allt á plöt-
unni,“ sagði Rúnar, þegar hann
var spurður hvemig hann vildi
flokka tónlist sína; og nefndi blús,
reggí, rokk, og ballöður. Þá sagði
Rúnar að textar sínir væru mun
áþreifanlegri og raunverulegri,
jafnvel pólitískari, en áður, og
ekki eins draumkenndir og fyrr.
En hvemig stóð á því að Rúnar
fór út í tónlistina til að byrja
með? Rúnar sagðist hafa fengið
bakteríuna við að hlusta á bítla-
tónlist í útvarpinu, og hann hefði
síðan farið 14 ára að láta að sér
kveða með skólahljómsveitum, og
á böllum á ísafírði og Vestfjörð-
um. Síðan fluttist hann til
Reykjavíkur, en tók sér svo fímm
ára hlé frá tónlistinni, áður en
hann gaf út „Auga á vegg“ fyrir
tveimur árum. Um tildrög þeirrar
plötu sagði Rúnar: „Ég vildi heyra
sjálfur hvemig ég hljómaði á
plasti. Mér fannst ég hafa mjög
mikið að segja, miðað við það sem
var að gerast í tónlistarlífinu
héma. Það má segja að ég hafí
viljað fá staðfestingu á sjálfum
mér.“ Rúnar gekk síðan í hljóm-
sveitina X-Splendid, og spilaði
með þeim á plötu þeirra „Lokið
hurðinni", sem út kom fyrr á
þessu ári. Þá hefur Rúnar komið
fram sjálfur með ýmsum tónlistar-
mönnum víða um land, þ.á.m. á
veitingahúsinu Hrafninum.
Rúnar sagðist aðspurður ekki
stefna beint á vinsældalistana
með tónlist sinni, hann færi eftir
eigin tilfínningum, en ekki ein-
hverjum popp-formúlum. Rúnar
sagði að honum fyndist að það
væri of mikið um það að menn
kepptu að sama markinu í
íslensku tónlistarlífí í dag, að
komast á vinsældalista; „það er
eins og fáir þori að gera það sem
þeim sýnist sjálfum." Það væri
mikið um það að sama tónlistin
væri leikin á útvarpsstöðvunum,
og það vantaði breidd í lagavali.
Rúnar vildi koma því að að hann
teldi að hljómplötuútgáfan Tóný
væri skref í rétta átt í íslensku
tónlistarlífí, því að hún hefði lagt
sig fram við að koma fólki sem
ekki félli beint inn í „vinsælda-
formúluna" á framfæri, sem ella
hefðu kannski ekki átt upp á pall-
borðið hjá útgefendum.
„Gísli“ kemur út nú 25. septem-
ber nk., og Rúnar Þór ætlar síðan
að fylgja plötunni eftir með tón-
leikum í næsta mánuði. Rúnar er
síðan þegar farinn að huga að
gerð næstu plötu, en hún á að
vera „trúbadúr“-plata, þar sem
Rúnar spilar á kassagítar.
Hundskrímslið
hémaámynd*-
inniheitir
Fonzi, og er
kynhreinn
Afghan-hundur
í Singapore.
Hann er á leið-
inniheimí
hundaleigubíl
eftir hárþvott
og klippingu.
Reuter
Singapore:
Þar eru hundar
ýmist snyrtir
eða snæddir
Efnahagsundrið í Singapore hef-
ur komið fleirum en tvífætling-
um til góða, og nýríkir íbúar
landsins hafa m.a. látið hunda sína
njóta góðs af. Það er ekki langt
síðan að fólk í Singapore umgekkst
hunda helst með hníf og gaffli við
matborðið, en nýlega hafa ýmiskon-
ar þjónustufyrirtæki við hundaeig-
endur sprottið upp eins og gorkúlur,
og virðast ganga býsna vel.
Sérstakir leigubílar keyra hunda
og eigendur þeirra til og frá snyrt-
ingu, þar sem þvottur og klipping
kostar upp undir 1,500 íslenskar
krónur. Þá eru til sérverslanir með
hundavörur, þar sem hægt er að
fá allt milli himins og jarðar; frá
gimsteinaskreyttum hálsólum, til
skírlífísnærbuxna fyrir lóða tíkur.
Hvenær fáum við svona verslun í
Kringluna?
Hundaást Singapore-búa sést á
því að í fyrra voru veitt 39,000 leyfí
fyrir hunda, en á fyrstu 8 mánuðum
þessa árs voru veitt 43,500 leyfi.
Ekki eru allir jafn hrifnir af þess-
arri þróun, og kvartanir vegna
hunda fara vaxandi; menn kvarta
yfír hundgá á kvöldin, óþrifum á
gangstéttum, og auknum fjölda
flækingshunda - vonandi þó betur
snyrtum en áður. Einn hundahatar-
inn stakk upp á því snjallræði að
skorið yrði á raddböndin á geltnum
hundum, en hann hefur þurft að
fara huldu höfði síðan, vegna hót-
ana hundavina, sem segja hug-
myndina villimannslega.
Þessi tillaga er þó minnsta
áhyggjuefni hundaeigenda í Sin-
gapore þessa dagana, því þó að
hundaát sé bannað með lögum, eru
þeir þó margir sem ekki geta hugs-
að sér betri krás en vel soðna
hundakássu. Sérstaklega verða
menn að gæta þessarra ferfættu
vina sinna á gangi í gamla Kína-
hverfínu, því þar blóta menn enn á
laun, og bíða færis á að snæða
kynhreina, klósnyrta og nýklippta
kjölturakka ríka fólksins, og stanga
síðan úr tönnunum með smarögðun-
um í ólinni.
COSPER
— Þú verður að fara að sleppa héðan út, ég er búin að
eyða öllum peningunum, sem þú stalst.