Morgunblaðið - 16.09.1987, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1987
TENNIS / OPNA BANDARÍSKA MEISTARAMÓTIÐ
Lendl sigraði
þriðja árið í röð
Martina Navratilova vann þrefalt
IVAN Lendl frá Tókkóslóvakíu
sigaði Mats Wilander frá
Svíþjóð 6:7,6:0,7:6 og 6:4 í
úrslitaleik á opna bandaríska
meistaramótinu í tennis í fyrra
kvöld. Þar með sigraði Lendl í
mótinu þriðja árið f röð.
Leikurinn stóð yfír í 4 klukku-
stundir og 47 mínútur. Lendl
hafði upp úr krafsinu 250 þúsund
dollara eða um 9 milljónir fslenskra
króna. Wilander fékk 125 þúsund
dollara fyrir 2. sætið.
„Að vinna þijú ár í röð er eitthvað
sem mig heftir aldrei dreymt um.
Ef einhver hefði sagt það við mig
fyrir þremur árum, er ég hafði tap-
að þremur úrslitaleikjum í röð, að
ég ætti eftir að vinna næstu þtjú
árin hefði ég aldrei trúað því,“ sagði
Lendl eftir sigurinn. Wilander vann
fýrstu lotuna 7:6 og var það eina
lotan sem Lendl tapaði í allri keppn-
inni. Hann hefur unnið 71 af síðustu
75 leikjum sínum, geri aðrir betur.
ÞrefaK hjá Navratilovu
Martina Navratilova og Emilio
Snanchez sigruðu Betsy Nagelsen
og Paul Annacone 6:4, 6:7 og 7:6
í úrslitum í tvendarleik. Navratilova
bætti um betur því hún sigraði einn-
ig í tvíliðaleik kvenna ásamt Pam
Shriver. Navratilova vann því þref-
alt að þessu sinni og varð fyrst
kvenna tii að leika það eftir sfðan
ástralska stúlkan Margaret Court
gerði það 1970.
Símamynd/Reuter
Sigraði þriðja árið I röð
Ivan Lendl hampar hér bikamum fagra eftir sigurinn í einliðaleik karla á opna
bandarfska meistaramótinu í tennis í fyrra kvöld. Hann sigraði Mats Wilander
í úrslitaleik 6:7, 6:0, 7:6 og 6:4.
HANDBOLTI / ÞÝSKALAND
Skoruðu samtals 15 mörk!
Landsliðsmennimir Kristján Arason og Páll Ólafsson stóðu sig vel með liðum
sínum í fyrstu umferð bundesligunnar í handknattleik um helgina. Kristján
skoraði 8 mörk fyrir Gummersbach og Páll 7 mörk fyrir Diisseldorf.
Kristján átti
stórieik
Alfreð og Páll léku einnig vel
KRISTJÁN Arason átti stórleik
meö Gummersbach er liðið
sigraði Swabing á útivelli,
22:18, í fyrstu umferð vestur-
þýsku bundesligunnar í hand-
knattleik um síðustu helgi.
Krístján skoraði 8 mörk og var
markahæstur.
Alfreð Gíslason skoraði 6 mörk
fyrir Essen f jafnteflisleik,
20:20, gegn Niimberg í Essen.
Staðan í leikhléi var 9:9 en síðan
hafði Essen ávallt
forystu allt fram á
síðustu mínútu et
leikmönnum Niim-
berg tókst að jafna.
Frá
Jóhanni Inga
Gunnarssyni
ÍÞýskaiandi
Páll Ólafsson stóð sig einnig vel í
leik Diisseldorf og Milbertshoven
sem endaði með jafntefli 20:20.
Páll var markahæstur í liði Dusseld-
orf skoraði 7 mörk.
Sigurður Sveinsson gerði 3 mörk
fyrir Lemgo er liðið tapaði á úti-
velli fyrir Grosswaldstadt 23:16.
Leikurinn var þó jafn f fyrri hálf-
leik og staðan í leikhléi 9:9. En
heimamenn tóku öll völd í seinni
hálfleik og hreinlega kafsigldu leik-
menn Lemgo skomðu 14 mörk á
móti 7.
Önnur úrslit vom þau að Hofweier
sigraði Dormagen 30:23, Kiel sigr-
aði Dortmund 22:20 og Massen-
heim sigraði Göppingen 25:18.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Newell til Leicester
Leicester, sem leikur í 2. deild, keypti í gær Mike Newell frá Luton
fyrir 350 þúsund pund. Þetta er hæsta verð sem þeir hafa greitt
fyrir leikmann. Newell er 23 ára vamarmaður og skoraði 13 mörk
fyrir Luton á sfðasta keppnistfmabili en hefur ekki náð að festa sig í
Luton liðinu það sem af er. Leicester er nú f næst neðsta sæti 2.
deildar og hafa forráðamenn liðsins í hyggju að breyta því með þess-
um kaupum.
GETRAUNIR
Einn með
11 vétta
Enginn hafði 12 leiki rétta í
síðustu leikviku fslenskra get-
rauna. Fyrsti vinningur að upphæð
kr. 321.068 flyst því yfír á næstu
leikviku. Aðeins einn seðill kom
fram með 11 leikjum réttum. Það
var getspakur Akumesingur sem
notaði einfaldan 8 raða seðil og
fékk annan vinning óskiptan að
upphæð kr. 137.596.
Á laugardaginn kemur hefst sjón-
varpsþáttur íslenskra getrauna á
Stöð 2 og veður framvegis á dag-
skrá á laugardagskvöldum kl.
19.19. Umsjónarmaður verður
Heimir Karlsson. Hann mun fá til
sín gestatippara í heimsókn í hvem
þátt og hafa létt spjall um úrslit
dagsins og spá í seðil næstu viku.
.fji jjJöteim inu
Getrauna- spá MBL. c 1 s s Tfminn c c Dagur RIMaútv. CM 8 s> n Sunday Expraaa Sunday Telagraph Sunday Mirror SAMTALS
1 X 2
Arsanal — Wimbledon 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 0 0 9 0 0
Chartton — Luton X 2 2 X X X 1 1 X 0 0 0 2 5 2
Chelsea — Norwich 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 0 0 9 0 0
Coventry — Nott. Forest 1 1 1 X 1 1 X 2 X 0 0 0 S 3 1
Derfoy — Sheff. Wed. 1 1 1 1 X 1 2 1 2 0 0 0 8 1 2
Everton — Man. Unhad X X 1 2 1 X X 2 X 0 0 0 2 6 2
Oxford — Q.P.R. 2 2 X 2 2 X 1 1 2 0 0 0 2 2 6
Watford — Portsmouth 1 1 1 1 1 1 1 1 X 0 0 0 8 1 0
Wast Ham — Tottenham 2 2 X 2 2 2 2 2 2 0 0 0 0 1 8
Huddarsf. — Aston Viila 1 2 1 X 1 X 2 X 2 0 0 0 3 3 3
Lelcestar — Plymouth 1 1 2 1 1 1 X 1 X 0 0 0 6 2 1
Man. Clty —Stoke 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 0 0 9 0 0
: iðsioki ii.m
spmvðwmiJN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á H0RNIKLAPPARSTÍGS
0G GRETVSGÖIU
S:i1783
•Sendumí •
PÓSTKRÖFU
Hii
ÆFINGA-
V.M. 86
Frábærir skór.
Litur: Hvítt/blátt.
Verð kr. 4.363,-
Stærðir 3‘/z—12.
Stenzer Unlversal
Þrælsterkir leðurskór.
Litur hvítt/svart.
Verð kr. 2.412,-
Stærðir 3l/a—6.
Tokyo
Léttir og liprir skór.
Efni nylon/rúskinn.
Stærðir2-ll. Verðkr. 1647,-
Aeróbikkskór
Úr sérstaklega mjúki
leðri. Stærðir 36—42.
Litir svart/ hvítt.
Verð háir kr. 3.496,-
Verð lágir kr. 3.114,-
Handball
Sterkir leðurskór.
Litur blátt/hvítt.
Verð kr. 2.595,-
Stærðir 3l/a—12
Volley-Pro
Góðir blakskór.
Litur hvítt/blátt.
Verð kr. 3.300,-
Stærðir 5—11