Morgunblaðið - 16.09.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.09.2005, Blaðsíða 14
þjöppun verði á flugmarkaðinum. „Mér finnst þetta vera mjög spenn- andi og góð þróun að það eigi sér stað samþjöppun í þessum geira. En auðvitað er það alltaf þannig að þegar svona hlutir gerast þá geta gamlir vinir allt í einu orðið keppi- nautar. Við munum auðvitað bregð- ast við samkeppni og tökum ákvarð- anir um það þegar að því kemur,“ segir Lindegaard. Pálmi á forsíðu Børsen Fjallað er nokkuð ýtarlega um hugsanleg kaup FL Group á Sterl- ing í öllum helstu fjölmiðlum Dan- JØRGEN Lindegaard, forstjóri SAS, segir í samtali við Morgun- blaðið að það sé deginum ljósara að öllu samstarfi félagsins og Ice- landair verði hætt ef FL Group kaupir flugfélagið Sterling Avia- tion. Spurður hvort SAS muni þá íhuga að taka aftur upp flug til Ís- lands segist Lindegaard ekki treysta sér til þess að svara því eins og er. Það séu ekki tímabærar vangaveltur. Að öðru leyti telur Lindegaard það jákvætt að sam- merkur, s.s. Politiken, Berlingske Tidende og Jyllands-posten og raunar víðar um Skandinavíu. Pálmi Haraldsson, annar eigandi Sterling, skreytti forsíðu danska viðskiptablaðsins Børsen í gær en í blaðinu er ýtarlegt viðtal við Pálma. „Hlutirnir ganga hratt fyrir sig á Íslandi. Þetta kom greinilega á dag- inn í gær [miðvikudag] þegar ljóst var að íslenskir eigendur Sterling væru ef til vill þegar við það að selja félagið, aðeins einum degi eftir að endanlega var gengið frá Kaupun- um á Maersk Air,“ segir í inngangi að viðtalinu við Pálma. Þar segir hann m.a. að ef af kaupunum verði muni það leiða til hraðari vaxtar hjá Sterling og að félagið muni fljúga fyrr vestur um haf en til stóð. Eftir tvö ár geti Sterling verið farið að fljúga með átta til tíu milljónir far- þega þar sem Icelandair ráði yfir mörgum og stórum flugvélum, áætl- unarkerfi félagsins henti Sterling fullkomlega, og þeir kynnu að hafa áhuga á að auka vægi Kaupmanna- hafnar í flugsamgöngum. Þá segir Pálmi við Børsen að hug- myndir Sterling um að fljúga til Bandaríkjanna hafi opnað augu FL Group. „Ef við færum að fljúga þangað með stórum vélum myndum við setja pressu á Icelandair. Gangi þessi viðskipti eftir mun það koma sér vel fyrir alla að mínu mati.“ Pálmi segir að hann hafi sett það sem algert skilyrði að Sterling verði rekið sem sjálfstætt dótturfélag með höfuðstöðvar í Kaupmanna- höfn og að ekki verði gerðar breyt- ingar á yfirstjórn félagsins. Þá seg- ist Pálmi ekki heldur ætla sér að yfirgefa Sterling þótt af kaupunum verði. Til greina geti komið að hann verði áfram stjórnarformaður og fái umtalsverðan hluta í FL Group sem greiðslu fyrir Sterling og fá þannig áhrif þar. Kaup myndu þýða hraðari vöxt Sterling Jørgen Lindegaard, forstjóri SAS. Gamlir vinir geta orðið keppinautar segir forstjóri SAS Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is 14 FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í dag, fjórða daginn í röð. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,53% og er 4.489 stig. Bréf Bakka- varar hækk- uðu um 1,2%, bréf Icelandic Group um 1,02% og bréf Nýherja hækkuðu um 0,75%. Bréf Flögu lækkuðu um 4,1% og bréf Landsbankans um 2,3%. Við- skipti með hlutabréf námu 2,8 millj- örðum, þar af 923 milljónum með bréf Kaupþings banka. Hlutabréf lækkuðu ● ÞÝSKI bankinn Deutsche Bank hefur bæst í hóp þeirra erlendu aðila sem hafa gefið út skuldabréf í ís- lenskum krónum. Í gær gaf bankinn út skuldabréf fyrir 2,5 milljarða króna og eru þau til eins árs. Vextir eru 8%. Í gær tilkynnti einnig hollenski bankinn Rabobank að bætt hefði ver- ið við útgáfu bankans. Viðbótin hljóð- aði upp á 3 milljarða króna og er heildarútgáfa bankans nú orðin 9 milljarðar. Þar með er heildarútgáfa erlendra aðila á skuldabréfum í ís- lenskun krónum orðin 36 milljarðar króna. Aukin útgáfa skuldabréfa SKIPTING Burðaráss og samein- ing félagsins við Landsbankann annars vegar og Straum Fjárfest- ingarbanka hins vegar var sam- þykkt á hluthafafundum í félögun- um þremur í gær. Er þetta í samræmi við skiptingar- og sam- runaáætlun sem stjórnir félaganna samþykktu þann 1. ágúst síðastlið- inn. Ákvörðunin er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og samkeppnis- yfirvalda. Hinn 1. ágúst síðastliðinn sam- þykktu stjórnir Burðaráss, Lands- bankans og Straums Fjárfestingar- banka skiptingu á Burðarási milli hinna félaganna tveggja svo til jafnt. Skiptingin er þannig að eignir Burðaráss, þar með talið hlutafé í sænska fjárfestingarbankanum Carnegie (20%), Marel (36%), Straumi, Intrum Justitia og Carr- era, ásamt lausafé, samtals að verð- mæti 37 milljarðar króna, ganga til Landsbankans. Starfsemi Burðar- áss ásamt öðrum eignum félagsins sameinast hins vegar Straumi sem heitir nú Straumur-Burðarás Fjár- festingarbanki. Helstu eignarhlutir Burðaráss sem renna inn í Straum eru, að því er fram kemur í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans, 7,2% hlutur í Íslandsbanka, 4,5% hlutur í sænska tryggingafélaginu Skandia og 4,2% hlutur í Actavis. Burðarás hefur þó samþykkt yfir- tökutilboð suður-afríska trygginga- félagsins Old Mutual í eignarhlutinn í Skandia. Straumur-Burðarás Fjárfesting- arbanki verður fjórða stærsta félag- ið í Kauphöll Íslands, um 140 millj- arðar króna að markaðsvirði nú. Kaup í Kerfi og Eglu Á hluthafafundi Burðaráss voru auk sameiningarinnar við Lands- bankann og Straum samþykkt kaup félagsins á 306 milljónum hluta í Keri hf. að nafnvirði 1 króna hver, og kaup félagsins á 447 þúsund hlut- um í Eglu hf. að nafnvirði 1 króna hver, hvort tveggja af Fjárfesting- arfélaginu Gretti hf., fyrir samtals 10,7 milljarða króna. Þá samþykkti hluthafafundur Burðaráss að hækka hlutafé félags- ins um 386 milljónir króna að nafn- virði með útgáfu jafnmargra nýrra hluta. Hlutirnir verða afhentir Fjár- festingarfélaginu Gretti hf. sem greiðsla vegna kaupa félagsins á hlutum í Keri hf. og Eglu hf. Gengi hinna nýju hluta verður 16,4 krónur á hlut. Skipting Burðaráss sam- þykkt á hluthafafundum Morgunblaðið/ÞÖK Hluthafafundur Björgólfur Thor Björgólfsson, Friðrik Jóhannsson og Björgólfur Guðmundsson á hluthafafundi Burðaráss sem haldinn var í gær. Ranglega var farið með nafn Stjórn- endaskólans í umfjöllun sem birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær. Stjórnendaskólinn er starf- ræktur innan viðskiptadeildar Há- skólans í Reykjavík. Áréttað skal að kennsla í fjármála- akademíu Stjórnendaskólans verður í höndum þeirra Stefáns Svavarsson- ar, forstöðumanns M.Sc.-náms við HR, og Jóhanns Viðars Ívarssonar, ráðgjafa og stundakennara. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Stjórnendaskóli Háskólans í Reykjavík LEIÐRÉTT                             !"#   !$   % &'  ( "&' )&  *)&   +, &# &  +#&  $&' )& ( "&'  -."  /(!  /0 !1 .  &#)&  2            ! 0 ( "&'  %0 1&  3 ."&'   $45& 16 &&   -  !  &  78.1  9# 1    :;! "& :.".0 <=## &#0   &  > && "  &  !" #$  %& ! ."' ?=11  $&' 40 ( "&'  /" @"# /"&'  <5 5  % ' ()  3A?B /4    .              C C C      C C C C C C C .= &#  =   . C C  C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C D CEF D EF D CEF D CEF D CEF C D  EF D CEF D C EF C D C EF D  EF D C EF D CEF C D C EF C C D EF C C D  EF D C EF D EF C C C C C C C %. "'    '# & < ") 4 " '# G + /"                       C C  C    C C C C C C C                                                       >    4 ,H   <% I #&"  !1"'            C C  C  C C C C C C C <%C >.#& = #   & &# <%C != # 0&  ● OLIVIER Brémond, stjórnandi og meirihlutaeigandi franska sjón- varpsframleiðslufyrirtækisins Marathon, hefur selt 64% hlut sinn í fyrirtækinu til fjárfestingarfélags- ins Bridgepoint. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, en á síð- asta ári nam velta Marathon 4 milljörðum ís- lenskra króna. Pascal Breton, meðeigandi Brémonds, mun taka við stöðu forstjóra fyrirtækisins, en í sam- kvæmt fréttum franskra fjölmiðla hyggjast nýju eigendurnir sameina Marathon Tele Images Group, sem einnig er í eigu Bridgepoint. Undir stjórn Brémonds hefur Marathon orðið einn stærsti fram- leiðandi sjónvarpsefnis í Frakklandi og framleiðir meðal annars þætti eins og Njósnara (Totally Spies), sem íslenskum börnum eru að góðu kunnir. Þá hefur Marathon séð um dreifingu Latabæjarþátt- anna í Evrópu. Marathon selt til Bridgepoint Olivier Brémond NOVATOR, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hef- ur keypt 16,1% hlut í gríska fjar- skiptafyrirtækinu Forthnet sam- kvæmt frétt Reuters. Seljendur voru kýpverski bankinn Cyprus Development Bank og ítalska fjarskiptafyrirtækið Telecom Italia. Talsmaður Forthnet staðfesti að viðskiptin áttu sér stað en neitaði að gefa upp nafn kaupanda eða seljanda. Það er mat sérfræðinga að viðskiptin geti haft neikvæð áhrif á fyrirætlanir gríska fjarskiptatækjaframleiðand- ans Intracom um að koma sér fyrir á fjarskiptaþjónustumarkaði. Intra- com á 20,5% hlut í Forthnet. Novator fjárfestir í Grikklandi K   ! "#! $! %!   L M &#'!! (! !! %! $!    9M "(! ' (!! %! $!     #" !! (' '! %! %   M  LN   (!!! !&&''! $! %!   „ÉG ER mjög ánægður með að samruni Straums og hluta Burðaráss hefur verið sam- þykktur af hluthafafundum fé- laganna tveggja, enda tel ég samrun- ann hagfelldan fyrir hluthafa félaganna,“ segir Þórður Már Jóhann- esson, forstjóri hins samein- aða félags. „Það er ljóst að fjárhags- legur styrkur sameinaðs félags er mikill og tækifærin fjöl- mörg.“ Þórður Már segir að mark- mið sameiningarinnar hafi ver- ið að mynda öflugt fjármála- fyrirtæki sem gæti tekist á við stærri og metnaðarfyllri verk- efni á alþjóðavetvangi en félög- unum var mögulegt fyrir sam- runa og segist hann hafa fulla trú á því að það hafi tekist. Hagfellt fyrir hluthafa Þórður Már Jóhannesson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.