Morgunblaðið - 10.08.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1985
43
Skylt er að hafa það
sem sannara reynist
Krístján Viggósson skrifar:
Sunnudaginn 28. ágúst var sýnd
hér í sjónvarpinu kvikmynd sem
ber nafnið „Heyrðu". Þriðjudag-
inn 30.7. birtist svo í Morgunblað-
inu umfjöllun eða gagnrýni eftir
Ólaf M. Jóhannesson, og gætir þar
nokkurs misskilnings, sem mig
langar til að leiðrétta.
„Heyrðu" er heimildakvikmynd
með sögulegu ívafi og er skóla-
verkefni Sigurðar Grímssonar og
þýskumælandi félaga hans við
Múnchcner Hochschule fur Film
und Fernsehen.
Ekki var stuðst við handrit eða
neina fastmótaða áætlun við gerð
myndarinnar, heldur ýmsir at-
hyglisverðir staðir, atburðir og
menn kvikmyndaðir af handahófi,
og ferðalangi síðan ætlað það
hlutverk að tengja hin ýmsu at-
riði, en um hann var spunnin smá
saga í þessu augnamiði.
Ymislegt má að myndinni finna.
og ætla ég ekki að fjölyrða um
það, en afar undarlegur finnst
mér sá misskilningur sem kemur
fram í greininni, um atriði sem
ölium landslýð ættu að vera full-
ljós.
í grein sinni segir Ólafur orð-
rétt: „En undarlegt þótti mér þá
hann (ferðaiangurinn) tók að
spyrja sveitungana tíðinda. Það
var nefnilega eins og blessaður
maðurinn hefði misst minnið, þá
hann dvaldi í hinum erlendu
námsstofnunum, því hann spurði
eins og álfur út úr hól um hluti
sem öllum Vestfirðingum ættu að
vera fullljósir."
Ekki skil ég hvernig Ólafi M.
Jóhannessyni hefur tekist að mis-
skilja svona hrapallega tilgang
myndarinnar, eða skilur hann
ekki að hér er um heimildakvik-
mynd að ræða sem ekki var gerð
til að sýna innfæddum Vestfirð-
ingum sjálfa sig, heldur til að gefa
öðrum landsmönnum, og helst af
öllu Þjóðverjum, innsýn í líf fólks
og landshætti á vesturhorni lands-
ins. Auk þess kemur fram í mynd-
inni að maðurinn er ekki á heima-
slóðum er hann tekur viðmælend-
ur sína tali, heldur lagði hann land
undir fót gagngert til þess að skoða
nágrannabyggðir, og kynnast fólki
sem hann hafði ekki séð áður, og
því ekkert óeðlilegt við spurningar
hans miðað við aðstæður.
Síðar í greininni gefur Ólafur í
skyn að hér sé um eftiröpun á
Stiklum Ómars Ragnarssonar að
ræða, en ég vil benda honum á að
myndin var tekin árið 1978, tölu-
vert löngu áður en Ómar hóf gerð
þátta sinna.
Ekki ætla ég mér að kenna Ólaf
við álfa eða hóla fyrir glám-
skyggni sína, heldur vil ég aðeins
leiðrétta rangfærslur.
Frá Hornströndum.
Þ»essir hringdu . . .
Á einhver
textann?
Hafnfirðingur hringdi:
Geta einhverjir af lesendum
blaðsins útvegað textann við lag-
ið Á vegamótum? Ég veit ekki
eftir hvern það er, en þetta er
lag sem stundum er spilað í út-
varpinu og við jarðarfarir. Þeir
eru áreiðanlega margir sem
vildu fegnir fá textann því hann
er mikið sunginn.
Hvers vegna
greiða trygg-
ingarnar ekki
hártoppa?
Kona úr Hafnarfirði hringdi:
Maðurinn minn missti allt
hárið þegar hann var unglingur.
Hann hefur nú gengið með hár-
topp í nokkur ár og Ieysir með
því mikinn vanda og sálarflækj-
ur. Af þessu hlýst ansi mikill
kostnaður því að ganga þarf með
toppinn mestalla ævina og
endurnýja á tveggja ára fresti.
Fyrir skömmu hugðist hann
endurnýja hártoppinn og var
tjáð að tryggingarnar tækju þátt
í kostnaðinum sem af þvi hlytist.
Hann sótti því um, en fékk það
svar að því væri synjað. Síðan
talaði ég við tryggingalækni og
spurðist fyrir um ástæðuna. Þá
fékk ég eitt það furðulegasta
svar sem ég hef fengið um
ævina; beiðninni væri synjað
vegna þess að maðurinn væri
kominn um þrítugt. Ég spurði þá
hvernig í ósköpunum það gæti
valdið synjuninni. Mér var þá
tjáð að hlaupið væri undir bagga
með þeim sem ættu við þennan
vanda að etja og væru undir tví-
tugu, en ekki ef menn væru eldri.
Hárleysi er talið vera skaðlegt
andlegri velferð sköllóttra ungl-
inga, en þegar þeir hafa náð tví-
tugu þá er raunin allt í einu önn-
ur. Hvernig í ósköpunum stend-
ur á þessu? Ekki eru menn orðn-
ir gamlir þegar þeir hafa náð
tvítugu og þeir hætta ekki að
hafa sálarflækjur af hárleysinu í
einu vetfangi. Hvers vegna er
verið að veita þessum mönnum
von fyrir tvítugt en hún svo tek-
in frá þeim?
Á meðan sumir þurfa að nota hártoppa sakir hárleysis eyðileggja aðrir
það sjálfir með lakki og öðrum óþverra.
Innilega þakka ég öllum þeim er glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og góðum óskum á
90 ára afmælisdegi mínum.
Guð blessi ykkur öll.
Ágústa Gunnlaugsdóttir,
Dvalarheimilinu Illíð, Akureyri.
Þakka öllum sem glöddu mig á 90 ára afmæli
mínu 31. júlí sl. með heimsóknum, skeytum
og gjöfum. Guð blessi ykkur öli
Helga Jónsdóttir,
Dalbraut 27.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig með
gjöfum og skeytum á áttrœðisafmœli mínu
22. júní sl. Guð blessi ykkur öll.
Jóhannes Sveinbjörnsson,
Heiðarbæ, ÞingvallasveiL
Ævar R. Kvaran
byrjar
framsagnarnámskeið
þann 2. september n.k. Betri framsögn, raddbeit-
ing og lestur eins og talaö sé af munni fram. Aldur
skiptir engu máli. Þetta geta allir lært.
Upplýsingar í síma 32175 daglega kl. 17—19.
Lofta-
plötur
spónlagðar
120x20 sm
Sendum
sýnishorn
um land allt
HUSTRE
ÁRMÚLA 38
SÍMI81818
Parket
5
8
Bladburöaifólk
óskast!
Úthverfi Vesturbær
Hraunbær 44—68
Ystibær og fl.
Þykkvabær og fl.
Þingás
Laugarásvegur 1—37
Tómasarhagi 32—57
Austurbær
Laugavegur 34—80
Njálsgata 24—112
Bergstaöastræti 1—57
Miöbær II