Morgunblaðið - 10.08.1985, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST1985
Grænfriðungar túlka
dómsniðurstöðuna
GRÆNFRIÐUNGAR segja, að sú
niðurstaða áfrýjunardómstóls í
Bandaríkjunum, að japönskum
fiskiskipum skuli bannað að veiða
innan 200 mílna lögsögu Banda-
ríkjanna, hætti Japanir ekki hval-
veiðum 1. janúar 1986, geti haft
áhrif fyrir Islendinga.
I fréttatilkynningu grænfrið-
unga segir, að dómur þessi geti
neytt Bandaríkjamenn til að beita
þær þjóðir sem flytja hvalkjöt til
Japana einhverjum hömlum varð-
andi fiskveiðar. Japanir hafa verið
helstu kaupendur hvalkjöts frá ís-
landi.
Atómstöðin sýnd á nf
ATÓMSTÖÐIN, kvikmyndin sem
gerð var eftir sögu Halldórs Lax-
ness, verður sýnd daglega í Regn-
boganum frá og með deginum í dag.
Sýningarnar hefjast kl. 19.00.
I fréttatilkynningu frá Óðni hf.
segir að myndin hafi fengið mjög
góða aðsókn hérlendis, 60.000
manns hafi séð hana frá því hún
var frumsýnd í mars á síðasta ári.
Atómstöðin er eina íslenska
kvikmyndin sem valin hefur verið
á kvikmyndahátíðina í Cannes i
Frakklandi. í kjölfar þess var
myndin sýnd á kvikmyndahátíð-
um í nokkrum öðrum Evrópulönd-
um. í Danmörku hefur myndin
verið sýnd síðan í janúar. Síðar á
þessu ári verður hún sýnd í Finn-
landi, Júgóslavíu og á Spáni.
Leikstjóri Atómstöðvarinnar er
Þorsteinn Jónsson og með aðal-
hiutverk fara Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Gunnar Eyjólfsson, Arnar
Jónsson, Árni Tryggvason, Jónína
Ólafsdóttir og Sigrún Edda
Björnsdóttir.
Myndin verður sýnd með ensk-
um skýringartextum svo erlendir
ferðamenn geti kynnst íslenskri
kvikmyndagerð.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum sínum.
Askriftarshnmn er 83033
flljómsveitin BOGART
á dúndur dansleik
um helgina.
Gledjumst með gódum
i öölmöol
Húsiö opnar Kl. 22.
Kennari og nemendur skólagarða Hveragerðis. Nokkrir nemendur voru fjarverandi og vantar á myndina.
Skólagarðar í Hveragerði
Hveragerði, 6. ájfúst.
I SUMAR hafa verið starfræktir
skólagarðar hér í Hveragerði. Eru
garðarnir í landi Garðyrkjuskólans
að Reykjum og fer þar vel um hina
ungu nemendur, sem í sumar eru 21
að tölu.
Mér var boðið að skoða garðana
og taka myndir af þessum garð-
yrkjumönnum framtíðarinnar, því
jþað ungur nemur, gamall temur".
Eg hitti umsjónarmanninn, frú
Kristínu Þórðardóttur, og hún
sagði svo frá tilkomu þessa starfs:
„Hugmynd að starfrækslu skóla-
garða í Hveragerði kom fyrst
fram hjá áhugafólki í foreldrafé-
lagi grunnskólans. Með góðri sam-
vinnu foreldrafélagsins, hrepps-
nefndarinnar og skólastjóra Garð-
yrkjuskólans á Reykjum, var þess-
ari hugmynd hrint í framkvæmd á
síðastliðnu sumri og var umsjón-
armaður ráðinn Björn Pálsson
kennari. Þessi byrjun gaf svo góða
raun að áfram var haldið í sumar.
Nú starfar 21 barn í görðunum
og ríkir þar sönn gleði við starfið.
Hvert þeirra hefur 30 ferm. garð
til umráða og ræktar þar 8 teg-
undir af grænmeti og rótarávöxt-
um, ásamt 5 tegundum af blómum
til yndisauka.
Uppskeruna eiga börnin svo
sjálf og sjá þar árangur vinnu
sinn og þau eru svo sannarlega
broshýr og stolt þegar þau fara
heim með grænmeti í matinn.
Börnin vinna í fjórum hópum og
er vinnutíminn einn og hálfur tími
á dag, tvisvar í viku. Þau eru á
aldrinum 8 til 10 ára.
Vinnan hófst um miðjan maí og
verður til ágústloka. Þetta hefur
verið gott og gjöfult sumar og
starfið ánægjulegt," sagði Kristín
garðyrkjufræðingur að lokum.
Ég hef orðið vör við það að fáir
Hvergerðingar virðast vita af
Kristín Þórðardóttir, umsjónarmað-
ur skólagarðanna.
þessu ágæta starfi. Sannast þar
hið fornkveðna að hljótt fer það
sem hollast grær.
Sigrún
Egilsstaðir:
Samkvæmispáfinn
í Fellabæ
EgiUstöóum, 6. ágúst
SNEMMA í sumar var opnaður nýr
veitingastaður í Fellabæ, Samkvæm-
ispáfinn, þar sem Verslunarfélag
Austurlands rak áður veitingasölu.
Verslunarfélagi Austurlands
snemma í vor og innréttuðu að
nýju. Þar er nú hinn huggulegasti
veitingastaður með ýmsum nýj-
ungum í mat og drykk. A mat-
málstímum er sérstakur salatbar
opinn gestum. Þá hefur Sam-
kvæmispáfinn fengið vínveitinga-
leyfi. Innréttingar eru allar hinar
smekklegustu.
Að sögn hefur staðurinn notið
vinsælda til þessa.
- Ólafur.
MorpinbU*l*/ólafur
Samkvæmispáfinn f Fellabæ.
Það eru hjónin Birna Guð-
mundsdóttir og Stefán Guð-
mundsson og Margrét Brynjólfs-
dóttir og Gunnar Björgvinsson
sem eiga og reka Samkvæmispáf-
ann. Þau keyptu húsnæðið af