Morgunblaðið - 10.08.1985, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1985
37
*
ii« » «" k"*.W •»
t. «»*í *.«
:«£5asrs5-S
SíS^S2^í?-5
SSf*S5S^
Lilja Ólafsdóttir og Atli Arason við
skjáinn.
Af skinni
á skjáinn
Líklega hefur þá sem á skinn
skráðu lagabálka til forna
ekki dreymt um þá ægitækni sem
tuttugasta öldin ætti eftir að
brúka á seinunnin verk þeirra.
Nú er svo komið að texti Jóns-
bókar er framkallanlegur á tölvu-
skjá Skýrsluvéla ríkisins ásamt
öðru sem íslenska lagasafnið
inniheldur. Að sögn þeirra Lilju
Ólafsdóttur og Atla Arasonar hjá
Skýrr eru það tæplega 100 skrif-
stofur með á bilinu 6 til 700 tölvu-
skjái sem nú eru tengdir Skýrr.
- r .x hu WaOa úr t#**110
Hér gef“r aft
þj&fnað.
Íslenska lagasafnið hefur nú
verið fært inn á ETC-ritvinnslu-
kerfi og í náinni framtíð verður
slíkt hið sama líklega gert við
M^Æ»>JÚUu“
rovnalag.bálkiogOalUr^-
dóma og reglugerðir. Upplýsingar
í þessu formi eiga að líkindum
eftir að spara mikla vinnu í fram-
tfðinni.
COSPER
Kerru-
félagar
Eiga þú pela apa,“ gæti litli
snáðinn verið að spyrja
líérrufélaga sinn. í það minnsta
virðast þeir hinir bestu mátar.
13 ára
harmoniku-
snillingur
Morten Rossen Jörgensen
hefur náð langt með
dragspilið sitt. t fyrra vann hann
titilinn sem besti harmonikuspil-
ari Danmerkur og varð nýlega
númer fjögur í alþjóðlegri keppni.
Morten er nemandi í harmoniku-
skóla í Alleröd og er ekki nema 13
ára gamall.
ÁBENDINGAR
O G . .
Nú er mikið í tízku að
ganga með stórar og
fyrirferðarmiklar háls-
festar. Þær fást víða, en
ekkert er því til fyrirstöðu
að búa til sína eigin háls-
festi, til dæmis eins og
þessa á myndinni, sem er
mjög auðveld. Hún er bú-
in til úr látúns-gardínu-
hringjum og stórum tré-
perlum með kúlum með
gati í gegn. Fjórir hringir
og síðan perla þrædd til
skiptis upp á leðurreim,
og ræður hver fyrir sig
hve festin á að vera löng.
Efnið í festina fæst í
flestum tómstundabúðum.
Flestar konur sem nota eyrna-
lokka vita hve pirrandi það
er þegar annar þeirra týnist. En
ég rakst á skemmtilega lausn á
því hvernig nýta má þann sem
eftir er. Þá er að fá sér mjótt
flauelsband, sem passar um háls-
inn, setja smellu 1 að aftan og
hengja eyrnalokkin að framan.
En það þarf auðvitað ekki endile-
ga að vera eyrnalokkur úr setti,
þvi í mörgum buðum má fá staka
eyrnalokka.
. .HEILRÆÐI
Þeir sem ekki vilja heilar
bakaðar kartöflur með grill-
matnum ættu að prófa að skera
hráar kartöflur niður í sneiðar
og þræða þær upp á grillpinna.
Gott er að strá karríi eða öðru
kryddi yfir.
plastpoka. Svo eru þau sett í
frystinn, og seinna notuð í stað
ísmola til að kæla drykki.
Skemmtileg tilbreyting frá venju-
legum ísmolum!
Til að hafa góðan ilm úr ferða-
töskunni er heillaráð að setja
eitt stykki af handsápu í hana áð-
ur en henni er lokað og hún sett í
geymsluna að loknu ferðalagi.
Svo eru það loks rauðvínsblettirnir, sem geta verið erfiðir viður-
eignar. Venjulega er reynt að strá salti á blettina á meðan þeir
eru rakir. En nýlega frétti ég af konu sem vissi ekki að rauðvín hafði
hellzt niður í ljóst stofuteppið fyrr en daginn eftir. Hún greip til þess
ráðs að rennvæta blettina með heitu vatni. Svo stráði hún kartöflu-
mjöli yfir, og lét þetta þorna. Næsta dag ryksugaði hún teppið, og
blettirnir hurfu.