Morgunblaðið - 10.08.1985, Síða 36
36
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1985
fclk í
fréttum
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ...
Góð biðröð hafði myndast
klukkan 8.30
„Hinn óviðjafnanlegi plastmaÖur“
Á orðið um 1200
greiðslukort í fórum
sínum
Walter Cavanagh, stundum kallað-
ur „hinn óviðjafnanlegi plast-
maður“ á staersta safn í heimi, skv.
heimildum Guinnes-bókarinnar góð-
kunnu, af greiðslukortum. Cavanagh er
fasteignasali og býr í Santa Clara í
Kaliforníu. Hann hefur safnað kortum
af þessu tagi í 15 ár og þegar hann
síðast taldi voru þau um 1200. Cavan-
agh hefur fengið kortin smám saman
og sótt um þau á hinum ólíklegustu
stöðum. Alls staðar sem hann fer sækir
hann um kortaviðskipti og einnig fer
hann eftir simaskránni. Hann hefur í
dag viðskipti um öll Bandaríkin og
einnig í Evrópu og Mexíkó. í hvert
skipti sem nýtt kort berst honum í
hendur þá tekur hann sig til og setur
númerið á lista ef það kynni að koma
fyrir að einhver stæli frá honum korti
og notfærði sér það. Það yrði þó erfitt
fyrir þjóf að nálgast kortin þvú þau eru
lokuð í geymsluhólfum í banka.
Lesendur velta eflaust fyrir sér hvað
hann ætli að gera við kortin seinna
meir og því svaraði hann til á þessa
leið: „Eg ætla að gefa safnið mitt
Smithsonian-stofnuninni í Washington
DC þar sem þeim verður gleymt og þau
pökkuð í kassa og geymd í einhverju
geymsluhúsi. Eftir svo sem 200 ár verð-
ur farið að taka upp úr kössunum og þá
veltir fólk því fyrir sér hvað í ósköpun-
um þessi plastkort eigi að tákna.“
im,' jc j
rr
að vakti athygli blaðamanns
að fyrir utan verslunina
Bangsa í Bankastrætinu hafði
myndast biðröð klukkan 8.30
árdegis einn daginn i vikunni.
Við slógum á þráðinn til eiganda
verslunarinnar, Erlu, til að
spyrjast fyrir um hvað ylli þess-
um fjölda fólks fyrir utan.
„Það var þessi árlega þriggja
daga útsala hjá okkur sem var að
byrja. Alveg síðan ég hóf þessar
útsölur hefur biðröð myndast og
ég þurft að hleypa inn í hollum.
Að þessu sinni hleyptum við inn í
smáskömmtum, frá níu til fjögur
um daginn, en biðröðin fór að
myndast klukkan 8 árdegis og
var orðin nokkuð löng klukkan
8.30. Fyrstu tvær klukkustund-
irnar komu í verslunina um 800
manns en þá hættum við að
telja.“
— Er allt uppselt?
„Búðin er eiginlega orðin tóm.
Ég veiti á þessum útsölum meira
en helmings afslátt en þegar þrír
dagar eru liðnir fara vörurnar á
sama verði og áður. Ég er hins
vegar hrædd um að lítið verði
eftir þegar upp verður staðið
núna.“