Morgunblaðið - 10.08.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAKUAUUK 10. ÁGÚST 19»
Z7
Stefnismönnum vel tekið á
söngferðalagi vestanhafs
T !
Baldur leggur af stad í ferðina um Breiðafjörð.
Morsunblaðið/Árni ^
Baldur siglir um
Breiðafjörð
Keykjum, 6. ájfÚNÍ.
KARLAKÓRINN Stefnir í Mos-
fellssveit er nú í söngferð í Banda-
ríkjunum og Kanada, en kórinn og
konur kórmanna flugu til Chicago
þann 28. júlí sl. Ferðast var um
miðvesturríkin, Illinois, Wisconsin,
Minnesóta og Dakota til Winnipeg.
Komið var við í ýmsum borgum á
þeirri leið og fslendingabyggðum,
einkum í Dakota. í Minneapolis
tók Hreinn Líndal söngvari á móti
kórnum og var leiðsögumaður á því
svieði, en fararstjóri í ferðinni er
Jónas Þór ritstjóri í Winnipeg.
Kórinn kom til Winnipeg þann
1. ágúst en íslendingabyggðir i
Kanada voru aðaláfangastaður
söngmannanna. Þar var sungið
daginn eftir á ýmsum stöðum, svo
sem í Norræna húsinu í Winnipeg
og víðar. Haldið var til Mikleyjar,
en þar tók á móti kórnum Helgi
Tómasson og ferðaðist með um
nágrennið, t.d. þjóðgarðinn Heklu
og víðar. Þann dag var ennfremur
sungið á elliheimilinu Betel i
Gimli og voru móttökur þar eftir-
Hkagutritad, 28. jáli.
SUNNUDAGINN 28. júlí var
haldinn á Skagaströnd svokallað-
ur „Landgræðsludagur fjölskyld-
unnar“.
Sveitarfélagið stóð þá fyrir
sáningarferð í hlíðar Spákonu-
fells í grennd við nýja skíðaskál-
ann. Þar sáðu 60—80 sjálfboða-
liðar þremur tonnum af áburði
og hálfu tonni af grasfræi. Fræið
gaf Landgræðsla ríkisins sem að
undanförnu hefur starfað að
minnilegar. Sunnudaginn 4. ágúst
var sungið við islenska messu sem
hófst kl. 12 á hádegi og seinna um
daginn var söngskemmtun í Geysi
sem er skammt frá Árborg.
fslendingadagurinn var svo
haldinn hátíðlegur í Gimli mánu-
daginn 5. ágúst, en þar er, svo sem
mörgum er kunnugt, mikið um
dýrðir og mikil skrúðganga allra
þátttakenda í dagskránni. Þar
mátti sjá allskonar ökutæki með
hestum fyrir, ennfremur eldri bíla
en flestir fótgangandi, en sam-
koma þessi er á hverju ári og hald-
in í skemmtigarði Gimlibæjar.
Kórinn kom fram með stutta dag-
skrá kl. 13.00 en síðan aftur kl.
16.00 og flutti þá allt prógramm
sitt. Kanadakantata, sem samin er
af söngstjóranum í tilefni af ferð-
inni, var flutt þarna og tókst
ágætlega og fékk firna góðar und-
irtektir. Ljóðið er eftir Kristján
frá Djúpalæk en tónlistin er sam-
in af söngstjóranum en þetta er
sáningu á heiðar í nágrenni
Blöndu.
Kvenfélagið bauð sáningar-
fólkinu upp á kaffi og pönnukök-
ur i skíðaskálanum og síðar, að
sáningu lokinni, var haldin grill-
veisla. Enn voru það kvenfélags-
konurnar sem sáu um matreiðsl-
una en hráefnið til veislunnar
gáfu Söluskálinn á Skagaströnd
og Kaupfélagð. Var fólk mjög
ánægt með daginn og talaði um
allmikið verk og tekur 25 mínútur
að flytja það.
Heimsóknin til Kanada heppn-
aðist ágætlega og ekki þarf að
spyrja að því að Vestur-íslend-
ingar tóku hópnum fagnandi og
voru allar móttökur hlýlegar og
rausnarlegar. Geta má þess að
Kanadakantatan vakti sérstaka
athygli, enda er söguþráður text-
ans um landnámið vestan hafs og
lýsir því sem landnemarnir mættu
í þessu framandi landi.
Haldið var heim á leið frá
Winnipeg þann 6. ágúst og haldið
verður suður um Minnesota og
Wisconsin um bæjina Duluth,
Green Bay og Milwaukee til Chic-
ago. Ráðgert er að fljúga heim
þann 10. ágúst.
Ferðin hefir heppnast vel, verið
áfallalaus og samkvæmt áætlun.
Móttökur með miklum ágætum
hvar sem komið var, en þó einkum
er ferðafélögum eftirminnileg
þátttaka í íslendingadeginum.
(JVG)
að sá meiru á næsta ári. Kyn-
slóðabil var ekkert i sáningunni
því þar störfuðu hlið við hlið
sjötugir og tveggjá ára.
Sunnudagskvöldið var svo
haldinn stofnfundur Golfklúbbs
Skagastrandar en töluverður
áhugi hefur vaknað á golfi eftir
að nokkrir áhugamenn fengu
hingað golfkennara eina helgi
fyrir stuttu. Stofnfélagar í
golfklúbbnum voru 23. ÓB.
__ Stykkbihólmi, 3. ágúst
ÉG SKRAPP niður á bryggju því ég
vissi að Baldur var að fara eina af
áællunarferðum sínum. Hugmyndin
var að taka þar nokkrar myndir því
ég hafði heyrt að fullbókað og meira
en það væri í þessari ferð, þ.e. að
bflar yrðu 12 í ferðinni og fólk
margt.
Veður var hið ákjósanlegasta,
eitt af því besta sem getur komið
hér. Loj?n, hafði rignt svolítið um
nóttina en nú var þokuslæðingur
allur að hverfa og sjá mátti til
sólar vera að brjóta sér leið í
Hólminn, sem sagt eitt hið ákjós-
anlegasta veður. Það var mikið um
að vera þessa stuttu stund, glaðleg
andlit og eftirvæntingarfull. Og
svo voru þarna nokkrir að fylgja
vinum til skips.
Bílar komu að með pakka og
farþega, en þegar tími var kominn
til að leggja af stað vantaði helm-
ing þeirra bifreiða sem pantað var
far fyrir og heyrði ég vonbrigðin
hjá skipverjum. Sagði Guðmundur
skipstjóri og framkvæmdastjóri
að svona kæmi eiginlega aldrei
fyrir og ekki í slíkum mæli sem
nú. Hefði jafnvel orðið að vísa frá
því á þetta hefði verið treyst. »
Vissulega er það ekki gott þegar
ekki er látið vita um forföll og er
það ekki brýnt nóg fyrir fólki. En
ekki var þetta látið hafa áhrif á
gleðina og festar voru leystar og
Baldur brunaði af stað áleiðis til
Flateyjar og Brjánslækjar í þessu
yndislega veðri. Já, þeir misstu
mikið sem urðu af þessari ferð og
hinu ágæta veðri. Gamla máltæk-
ið okkar að láta ekki happ úr
hendi sleppa kom upp í huga
minn.
Breiðafjörður er virkilega heill-
andi ferðamannaleið og vaxandi
umferð á sumrin. Það sýnir öll
þjónusta hér í ríkum mæli.
Árni
Landgræðsludagur á Skaga-
strönd og golfklúbbur stofnaður
Egilsstaðir:
Brúnás hf. tekur ný
verkstæðishús í notkun
KgilfHUttwn, 3. ágúnt
FORRÁÐAM ENN byggingafélags-
ins Brúnáss hf. fognuðu því í gær
ásamt gestum að fyrirtækið hefur
nú byggt og tekið í notkun ný verk-
stæðishús — annars vegar tré-
smíðaverkstæði þar sem aðallega
verða framleiddar Haga-innrétt-
ingar, og hins vegar verksmiðju er
framleiðir steypueiningahús,
svonefnd Nýhús.
Það kom fram í máli Þórhalls
Eyjólfssonar, stjórnarformanns
Brúnáss hf., er hin nýju hús voru
formlega tekin í notkun að nýja
trésmiðaverkstæðið er um 1.100
ferm. að flatarmáli og hefur
bygging þess gengið mjög hratt
'fyrir sig en byggingafram-
kvæmdir hófust í október-
mánuði síðastliðnum. Fyrra
verkstæðisrými Brúnáss hf.
þrengdi orðið að vaxandi umsvif-
um félagsins svo að ákveðið var
að selja það og byggja ný verk-
stæðishús. Egilsstaðahreppur
keypti fyrrum verkstæðisrými
Brúnáss hf. undir rekstur iðn-
garða.
Verkfræðistofa Austurlands
hannaði hinar nýju verkstæðis-
byggingar en Benedikt Þórðar-
son annaðist raflagnateikningar.
Þá sá Broddi Bjarnason um
pipulögn, Jóhann V. Jóhannsson
um hurðarsmíð og Sveinn Guð-
mundsson um raflögn.
Brúnás hf. keypti nýlega
framleiðslurétt á svonefndum
Haga-innréttingum og verða
þær framleiddar á hinu nýja
verkstæði — sem er búið mjög
fullkomnum tækjum til fram-
leiðslunnar.
Steinsteypuverksmiðja félags-
ins var tekin í notkun fyrir
nokkru en þar eru framleidd
svonefnd Nýhús sem hafa rutt
sér til rúms á byggingamarkaðn-
um víða um land. Hafist var
handa um byggingu steinsteypu-
verksmiðjunnar árið 1980.
Gestir við opnun nýja hússins.
Hið nýja verkstæðishús Brúnáss hf.
Þá er það ætlun Brúnás-
manna að byggja enn við hið
nýja verkstæðishús — þar sem
skrifstofur og glerverkstæði
verða til húsa.
Byggingafélagið Brúnás hf.
var stofnað 1958 og voru stofn-
endur 10 talsins. Þrír þeirra
voru viðstaddir er nýjum verk-
stæðishúsum var fagnað, Guð-
mundur Magnússon, Halldór
Sigurðsson og Sölvi Aðalbjarn-
arson. Þeir Guðmundur og Hall-
dór skipuðu fyrstu stjórn félags-
ins ásamt Þórði heitnum Bene-
diktssyni.
Fyrsta verkefni félagsins var
bygging húss Rafmagnsveitna
ríkisins í Selási 8 þar sem
skrifstofur RARIK hafa verið
nær allt til þessa ásamt íbúð raf-
magnsveitustjóra. Húsið hefur
nú nýlega verið selt og mun
Skattstofa Austurlands flytja
þangað starfsemi sína.
Brúnás hf. tók eigið trésmíða-
verkstæði í notkun 1963 og þar
er glerverkstæði félagsins enn til
húsa.
Brúnás hf. er að sögn eitt elsta
verktakafyrirtæki landsins i
byggingaiðnaði. óiafur
Þrír þeirra voru viðstaddir er nýjum húsakynnum var fagnað, Guðmund-
ur Magnússon, Halldór Sigurðsson og Stílvi Aðalbjarnarson.
4
■e