Morgunblaðið - 10.08.1985, Page 21
MORGUNBLADID, LAUQAftljlAGUR 10. Á.GÚST,19g5
M.
Norður-írland:
Útlagi skýtur upp
kollinum í líkfylgd
Londonderry, 9. igáaL AP.
BANDARÍKJAMAÐURINN Martin Galvin, stuðningsmaður írska lýðveld-
ishersins (IRA), birtist í dag í líkfylgd á götu í Londonderry og bar líkkistu
skæruliða IRA um hundrað metra. Breska ríkisstjórnin hefur bannað Galvin
landvist á Norður-írlandi.
Galvin birtist skyndilega úr
mannþrönginni og tók undir lík-
kistuna við hlið Martins Mc-
Guinnes, embættismanns úr hin-
um löglega stjórnmálavæng IRA,
Sinn Fein. Verið var að fylgja
Charles English, skæruliða úr
IRA, til grafar, en hann lést í
sprengingu á þriðjudag.
Lögreglu tókst ekki að hafa
hendur í hári Galvins sem hvarf
jafn snögglega og hann birtist.
Galvin er félagi í samtökum írsk-
ættaðra Bandaríkjamanna
(NORAID) sem bresk stjórnvöld
halda fram að veiti IRA fjár-
hagsstuðning til vopnakaupa, en
talsmenn samtakanna segja að
sjóðir þeirra séu aðeins notaðir i
mannúðarskyni.
Til átaka kom í Belfast og Lond-
onderry í dag. Katólsk ungmenni
rændu strætisvögnum og kveiktu
elda til að minnast þess að bresk
stjórnvöld ákváðu 9. ágúst 1971 að
handtaka mætti grunaða skæru-
liða fyrirvaralaust. Ákvæði þetta
var lagt af 1976, en stuðnings-
menn IRA efna enn til óeirða á
þessum degi.
Pólska skipið sem sökk á Norðursjó:
Sökk vegna ofhleðslu
Varsjá, 9Agúst AP. 0
PÓLSKA siglingamálastofnunni, úrskurðaði í dag að pólska flutninga-
skipið sem fórst í Norðursjó í febrúar sl., hafi verið með of mikinn farm
og björgunarútbúnaði hafi verið mjög ábótavanL Skipið hafi þess vegna
sokkið í óveðri, með 24 menn innanborðs.
Einnig sagði í úrskurðinum að
skipverjarnir hefðu ekki gefið
upp stöðu skipsins þegar það var
að sökkva og hefðu ekki notfært
sér neyðarblys til að auðvelda
björgun.
Opinbera fréttastofan í Pól-
landi skýrði frá því í dag að skip-
ið hefði tekið of mikinn farm, en
í lestum skipsins var stál frá
Noregi. Einnig hefði stálinu ekki
verið komið fyrir á réttan hátt
og hefði það tvennt valdið sjó-
slysinu.
Skipinu, sem var á leið til Afr-
íku með farminn, hvolfdi í
stormi sem geisaði á Norðursjó
og sökk á mjög skömmum tíma.
Mannbjörg í Innsbruck
Mikil flóð í Austurríki hafa rifíð með sér hús og brýr. Tíu íbúar þessa húss í Innsbruck
björguðust naumlega þegar flæddi yfír húsið.
Danskir sjómenn reið-
sfldarkvóta
ír vegna
Listi v-þýskra
eiturvína iengist
Vin /riiíuuAlHnrf Q iP N J
Vin/DttæeMorf, 9. ígúsL AP.
EITUREFNIÐ diethylenglykol
fannst í dag og gær í 9 vestur-
þýskum víntegundum og hefur efnið
þá fundist í 25 vestur-þýskum vín-
tegundum alls.
Talið er að vestur-þýskir vín-
framleiðendur hafi ekki blandað
eitrinu í vín sitt sjálfir, heldur
hafi eitrið komist í vínið er þeir
ætluðu að „bragðbæta" það með
austurrísku víni.
Yfirvöld í Bonn, sem hafa sett
350 austurriskar vintegundir á
bannlista, bönnuðu í gær, fimmtu-
dag, innflutning á austurrískum
þrúgusafa eftir að diethylenglykol
GENGI
GJALDMIÐLA:
London, 9. ágú.st. AP.
Bandaríkjadollari var stöðug-
ur í dag og viðskipti venju frem-
ur róleg.
í London kostaði dollarinn
síðdegis í dag 1,3552 sterl-
ingspund (1,3660).
í London var gengi annarra
gjaldmiðla á þá leið að fyrir
dollarann fengust:
2,8375 vestur-þýsk mörk
(2,8360),
2,3480 svissneskir frankar
(2,3450),
8,6725
(8,6600),
3,1905
(3,1900),
1.899,50
(1.899,00),
1,3590 kanadískir dollarar
(1.3520),
238,55 jen.
fannst í þremur tegundum drykkj-
arins.
Dómsmálaráðherra Austurrík-
is, Harald Ofner, sagði í dag að
vínhneykslið væri það versta sem
nokkru sinni hefði komið fyrir
efnahagslif Austurríkis.
Hann sagði einnig að hinir seku
yrðu kærðir fyrir svik og jafnvel
fyrir að stofna heilsu almennings i
hættu og þeir ættu í vændum allt
að 10 ára fangelsisdóm.
Kaupmannahofn, 9. ágúst AP.
DANSKA stjórnin herti í dag vióur-
lög og eftirlit meó fiskveiðum, eftir
að skipverjar á báti einum meinuðu
lögreglu og eftirlitsmönnum að
rannsaka afla bátsins, til að ekki
kæmist upp um ólöglegan feng af
sfld. Skipverjarnir földu sfldina inn-
an um annan úrgangsfisk, sem átti
að fara í gúanó.
Sjávarútvegsmálaráðuneyti
Danmerkur sagði að enn harðari
viðurlög yrðu sett við veiðibrotum
af þessu tagi, ef sjómenn i
Strandby á Jótlandi, létu ekki af
aðgerðum sínum. Sjómennirnir
stóðu í veg fyrir eftirlitsmönnum
á bryggjunni þar, vopnaðir stjök-
um og hótuðu að sökkva bátum
eftirlitsmanna. í öðrum stórum
höfnum við Norðursjó, mótmæltu
sjómenn síldarkvótanum og sums
staðar komu svo margir bátar
saman inn í höfn, að ógerningur
reyndist að skoða afla þeirra allra.
Eru sjómennirnir reiðir vegna
kvótans sem Evrópubandalagið
setti á síldveiðar þegar síldin var
sem óðast að hverfa af miðunum,
en kvótinn er enn í gildi. Segja
sjómennirnir að nú sé nóg af sild á
miðunum og vilja að hlutfall síld-
arinnar af heildarafla úrgangs-
fisks verði hækkað úr 10%, eins og
Páfi hylltur í Tógó
Pya, Tóffó, 9. ágúf*. AP.
JÓHANNES Páll páfi II var hylltur
af fagnandi mannfjölda í Tógó á öðr-
um degi Afríkuferóar sinnar. Hann
skoraði á kristna íbúa landsins að
lifa í sátt og samlyndi við samlanda
sína, en sjötíu prósent landsmanna
eru anda- og sálnatrúar.
Páfi kom til norðurhluta Tógó
til að ræða við forseta landsins,
Gnassingbe Eyadema, og vigja ell-
efu presta.
í viðræðum við Eyadema lagði
páfi áherslu á vilja sinn til að
koma á jafnvægi milli kristinnar
trúar og andatrúar hinna ýmsu
ættbálka.
Í ræðu sem Jóhannes Páll páfi
II hélt síðar i dag svaraði hann
gagnrýni á páfagarð um að kirkj-
an væri vestrænni nýlendustefnu
til fulltingis með þvi að hlutverk
kirkjunnar væri að boða guð-
spjallið og hjálpa til að tryggja
frelsi einstaklingsins.
franskir frankar
hollensk gyllini
ítalskar lírur
ERLENT
Atvinnuleysi blasir við sel-
veiðimönnum á Baffinslandi
— vegna hins víðtæka banns á innflutningi selskinna
FRÁ því að bann var sett á sölu
selskinna víða um heim eftir mót-
mælaherferð gegn kópadrápi á
Nýfundnalandi fyrir nokkrum ár-
um hefur lífsbarátta inúíta, eins og
eskimóar í Kanada kalla sjálfa sig,
harðnað.
Selaveiðar eru hluti menning-
ar inúíta á Baffinslandi og
Cumberland-sund er ákjósanlegt
til veiða á spendý um hafsins.
Á nítjándu öld höfðu hval-
veiðiskip frá Skotlandi og Nan-
tucket vetursetu í skjólgóðum
fjörðum Baffinslands og rekja
sumir íbúa Pagnirtung, þorps
rétt undan norðurheimskauts-
baug, ættir sínar til þeirra.
Inúítar héldu hval- og sela-
veiðum sér til lífsviðurværis
áfram eftir að aðrir hættu þeim
við eyjuna snemma á tuttugustu
öld. Öflugir rifflar leystu skutul-
inn af hólmi, snjósleðar tóku við
af hundasleðum og vélbátar við
af kajökum.
Tveir af hverjum þremur sel-
veiðimönnum á Baffinslandi eru
Inúítabörn fyrir uun heimili sitt í þorpinu Pangnirtung á Baffinslandi.
Fyrir aftan þau hanga selskinn til þerris.
nú atvinnulausir eftir að sel-
skinnamarkaðurinn brást. Flest-
ir þeirra eru á atvinnuleysisbót-
um.
Eskimóar halda fram að verð
á selskinnum sé það lágt að ekki
svari kostnaði að gera út á sel.
Eyjarskeggjar neyta kjötsins, en
tekjur eru engar af veiðunum.
Lítil sala selskinna hefur leitt
til ýmissa vandamála í Pangn-
irtung. Áfengi hefur verið bann-
að í þorpinu, en þorpsbúar virð-
ast ekki eiga í neinum vandræð-
um með að verða sér úti um
þennan forboðna vökva jafn-
framt því sem eiturlyfjaneysla
færist í aukana. Einnig er sífellt
meira um það að eiginmenn
berji konur sínar.
Að sögn líffræðinga er sela-
stofninn við Baffinsland ekki i
hættu. En mikið hefur dregið úr
selveiðum og fer selum því fjölg-
andi við eynna og kvarta eski-
móamir undan því að selirnir
borði upp fiskinn sem þeir veiða
sér til lífsviðurværis.
Reynt hefur verið að finna
nýjar tekjuöflunarleiðir fyrir
eyjarskeggja. í Pangnirtung hef-
ur verið sett á laggirnar stofa
sem vinnur muni og föt úr sel-
skinni og reynt hefur verið að
efla ferðamannaiðnað á eyjunni.
Eyjarskeggjar vona einnig að
Japanir kaupi af þeim selskinn,
sem unnið yrði eins og leður.
Þýtt og stytt úr nNew York Times“.