Morgunblaðið - 10.08.1985, Síða 20
20
MORGUNBLA£>!£>, LAUGARÖAGUR ÍO. ÁGÚST 1986
Suður-Afríka:
Ekkert lát á
átökum í Durban
Jóhannesarborg, 9. igúst AP.
ÓEIRÐIR brutust aftur út í Durban f Suöur-Afríku í dag og hafa nú tæplega
50 manns látið lífid í borgarhverfum svartra síðustu þrjá daga. Einnig
blossuðu upp átök við byggingu þar, sem kennd er við frelsishetju Indverja,
Mahatma Gandhi, og er tákn friðsan
Útgöngubann gekk í gildi í 11
hverfum blökkumanna og Aust-
ur-Höfðafylki í dag, og aðrar
hömlur voru settar á ákveðnum
svæðum í Jóhannesarborg og
nágrenni.
Voru það einkum blökkumenn
og kynblendingar af indverskum
uppruna, sem börðust fyrir fram-
an byggingu Gandhis í Durban.
Réðust blökkumennirnir, sem
voru vopnaðir grjóti og hnífum, að
Veður
víða um heim
Ljftgst Hftftftt
Akureyri 10 •kfl*
Amstordam 15 22 haiðafc.
A|>ena 21 32 haiðafcirt
PlfCtlOflB 26 léttskýiað
Berlln 13 25 heiðsk.
Brösftel 10 20 haiðsk.
Chicago 13 29 akýiaó
Pubtin 9 18 lóttskýjaó
Fftneyjk 26 Uu.L iansK.
Frankfurl 10 21 •**!•*
Genf 7 25 haiösfc.
Hetoinfci 14 24 haíðsk.
Hong Kong 27 32 haiðsk.
Jftrúftftiftm 17 30 haiðsk.
Kaupmannah. 11 19 •kýiaó
Ltoaabon 17 29 haióak
London 10 19 rigning
Los AngiUi 19 28 L.ia.L naiosK.
Lúxemborg 24 akýjaó
MplBjp 25 haióak.
Mallorca 27 lóttskýjaó
Miami 26 32 akýjaó
Montraal 14 26 heiósk.
Moafcva 18 27 haiðsk.
Maw Yorfc 21 29 haiðsk.
Osió 11 19 sfcýjað
Parto 14 24 •kýi^
Pafcing 21 32 haiðak.
ft-r r»_ neyKjflviK 14 Mttakýjaó
n»o oe jaoairo 14 34 haióskfrt
nXm -L nomsoorg 12 30 •kýjað
Stokkhóimur 15 19 haiðsk.
Sydnoy 9 17 haiðsk.
Tókýó 21 34 haiðsk.
Vinarborg 12 14 akýjað
Þórshófn 13 Mttakýjaó
grar mótmælabaráttu.
hópi kynblendinga, sem vörðu
bygginguna. Átökin hófust með
þeim hætti að Indverjarnir gerðu
aðsúg að blökkumönnum í borg-
arhverfum svartra til að hefna
fyrir árásir hinna síðarnefndu á
verslanir og íbúðarhús kynblend-
inga í Durban. Þó að Indverjarnir
hafi átt sök á átökunum er talið að
blökkumenn hafi skjótt safnað liði
og ráðist á bygginguna.
Lögreglan reyndi að skakka
leikinn, og var fjöldi manns hand-
tekinn.
Utanríkisráðherra Suður-
Afríku, R.F. Botha, sem nú er í
Vestur-Þýskalandi, sagði í dag að
fréttir þess efnis að óeirðir hefðu
breiðst út til flestra landshluta
væru rangar. „Það hefur aðeins
komið til átaka á fáum svæðum í
suðurhluta landsins, og um leið og
friði hefur verið komið þar á verð-
ur neyðarástandslögunum aflétt,"
sagði hann.
Spánn:
Bjóðast til að
framkvæma fóst-
ureyðinguna
Gi|00, Spáni, 9. ágúsL AP.
FJÓRIR læknar hafa boðist til að
framkvæma fyrstu löglegu fóstureyð-
inguna á Spáni, sem læknar heilsu-
gæslustöðvarinnar í Gijon neituðu að
taka að sér af siðferðisástæðum, að
því er frá er greint f spænskum fjöl-
miðlum í dag, föstudag.
Læknarnir, tveir kvensjúkdóma-
sérfræðingar og tveir svæfingar-
læknar, ætla að framkvæma fóstur-
eyðinguna í næstu viku á heilsu-
gæslustöð f Asturias-héraði, að þvf
er fram kemur í spænsku blaði, en í
hlut á 22 ára gömul kona, sem á tvö
ung börn, er bæði eru haldin ólækn-
andi sjúkdómi.
Símamynd/AP
Hér sjást blökkumenn í Jóhannesarborg Suður-Afríku við útför kynbræðra þeirra sem látið hafa lífið í óeirðum þar
undanfarnar vikur.
Minningardagur f Nagasaki:
Skynsemin réði ferð-
inni í kjarnorkumálum
NftjmftftLi l...n Q Xftrft'ftftftá A D ^
Nagasaki, Japan, 9. áffúst. AP.
UNDIR dimmum rigningarskýjum,
sem e.Lv. hefðu megnað að bjarga
Nakasaki-borg fyrir 40 árum, gerðu
um 24.000 heimamenn og gestir
einnar mínútu þögn kl. 11.02 að
staðartíma (02.02 að fsl. tíma) f dag,
föstudag, til þess að minnast þess
augnabliks, er kjarnorkusprengju
var varpað á þessa gömlu hafnar-
borg.
Þagnarstundin var hápunktur
dagsins. I ræðum, sem fluttar
voru við fjölmargar athafnir,
hvöttu stjórnmála- og trúarleið-
Navasaki 9. ámíst 1945.
togar til þess, að friður yrði hald-
inn og skynsemin látin ráða ferð-
inni í kjarnorkumálum.
B-29-sprengjuflugvélin, sem
flutti plútonfumsprengjuna
„ístrubelg" 9. ágúst 1945, átti
upphaflega að fara til borgarinnar
Kokura f norðausturhluta Japans,
en vegna afleits skyggnis þar var
stefnan tekin á Nagasaki.
Þrátt fyrir að sprengjan færi
nokkuð af leið vegna þess að ský
byrgðu sýn, fórust allt að 70.000
manns f norðurhluta borgarinnar
af völdum sprengingarinnar.
Þremur dögum fyrr höfðu allt
að 140 þúsund manns látið lífið í
borginni Hiroshima í fyrstu
kjarnorkuárás mannkynssögunn-
ar, og tæplega viku seinna kom
uppgjöf Japana. Þar með lauk sið-
ari heimsstyrjöldinni.
í ræðu sem Hitoshi Motoshima,
borgarstjóri Nagasaki, flutti og
send var leiðtogum allra þjóða,
sem aðild eiga að Sameinuðu þjóð-
unum, sagði m.a.: „Ég vona heitt
og innilega, að Bandarikin og Sov-
étríkin sjái til þess, að þetta minn-
ingarár marki gleðileg þáttaskil í
dirnmri sögu kjarnorkuvopna-
kapphlaupsins frá stríðslokum."
Spenna milli forsætisráðherra Noregs og Svíþjóðar:
Deilt um ráðningar
í alþjóðlegar stöður
Osló, 9. ágúat Jan Krik Lauré.
VANDRÆÐI hafa skapast f nor-
rænu samstarfi vegna deilna milli
Norðmanna og Svía um það, hver
eigi að verða forstöðumaður skrif-
stofu menningar- og ráðherranefnd-
ar Norðurlandaráðs í Kaupmanna-
höfn. Sænska rfkisstjórnin hefur
ekki látið af andstöðu sinni við það
að fráfarandi framkvæmdastjóri
norska Hægriflokksins, Fridtjof
Clement, fái starfið.
Um langt skeið hafa menn verið
sammála um það, að Norðmaður
fengi þetta starf, sem sameinar
tvær skrifstofur Norðurlandaráðs
undir einum hatti, það er ráð-
herranefndina, sem haft hefur
skrifstofu i Osló, og
menningarmálaskrifstofuna, sem
hefur verið í Kaupmannahöfn.
Norska rfkisstjórnin stendur ein-
huga að baki Clement og var hann
boðinn fram til starfans i tengsl-
um við þing Norðurlandaráðs i
Reykjavík f mars síðastliðnum.
Síðan þá hafa Norðmenn gengið
að því sem vísu að hann fengi
stöðuna.
Samstarfsráðherrar Norður-
landa voru fyrr í þessari viku á
fundi í Kaupmannahöfn og ræddu
það eitt, hvernig staðið skyldi að
ráðningu forstöðumannsins. Enn
einu sinni var endanlegri ákvörð-
un frestað samkvæmt ósk sænska
ráðherrans, Svante Lundquist.
I Noregi eru menn síður en svo
sáttir við framkomu Svía f þessu
máli. „Þetta er vandræðalegt og
óskiljanlegt," sagði Jo Benkow,
þingflokksformaður Hægriflokks-
ins og bætti við: „Við hljótum
fljótlega að spyrjast fyrir um það,
hvort eitthvað sérstakt búi að
baki þessari afstöðu Svía. Norska
ríkisstjórnin hefur tekið einróma
ákvörðun og Verkamannaflokkur-
inn (stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn) hefur ekki reynt að
leggja stein i götu Clements. Þess
vegna er þetta mér óskiljanlegt,"
segir Benkow, sem hefur verið
virkur f norrænu samstarfi á
vettvangi Norðurlandaráðs um
langt árabil.
I dag lýsti Olof Palme, forsæt-
isráðherra Svía, því yfir, að hann
hefði ekki haft nein afskipti af
umræðum um ráðningu hins nýja
forstöðumanns skrifstofunnar f
Kaupmannahöfn. Mótmælti hann
þar með fréttum í norskum blöð-
um um þetta efni. Svante Lund-
quist, samstarfsráðherra Svía,
neitaði því einnig alfarið að
Palme hefði skipt sér af málinu.
„Það er engin ástæða til að
þæfa þetta mál á þessum forsend-
um,“ sagði Palme. Gaf hann þar
með til kynna, að hann ætlaði
ekki að svara bréfi frá Kaare
Willoch, forsætisráðherra Noregs,
um málið.
Talið er, að ráðning forstöðu-
mannsins verði aftur á dagskrá
þegar samstarfsráðherrarnir
hittast í september. í fyrrihluta
september fara fram þingkosn-
ingar bæði í Noregi og Svíþjóð.
Flóttamannastofnunin
En norsk og sænsk stjórnvöld
deila ekki aðeins um ráðningu
þessa æðsta embættismanns í
samstarfi ríkisstjórnanna innan
Norðurlandaráðs, annað mikil-
Olof Palme
vægt embætti á alþjóðavettvangi
er bitbein þeirra, það er staða
framkvæmdastjóra Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna. Ráða á í stöðuna á allsherj-
arþinginu næsta haust, þegar
Daninn Poul Hartling segir henni
lausri.
Norðmenn hafa boðið Tom
Vraalsen, fyrrum sendiherra sinn
hjá Sameinuðu þjóðunum, fram
til starfans en Svíar gera tillögu
um Anders Thunborg, fyrrum
varnarmálaráðherra. Vegna þessa
máls hefur komið til snarpra
orðaskipta milli forsætisráðherra
Noregs og Svíþjóðar.
Olof Palme, sagði í kosninga-
ræðu fyrir skömmu, að Norðmenn
hefðu gert tillögu um Vraalsen af
því að Kaare Willoch ætti I erfið-
leikum með að halda samsteypu-
stjórn sinni saman. Vraalsen er
nefnilega félagi í Miðflokknum,
Kaare Willoch
sem á ráðherra í rikisstjórn Will-
ochs.
Norski forsætisráðherrann
svaraði að bragði og mótmælti
kröftuglega með þessum orðum:
„Það er ótrúlegt að norrænn
forsætisráðherra geti látið sér
annað eins um munn fara, þegar
hann ræðir um ríkisstjórn annars
norræns lands. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem ráðherrann hagar
sér með óviðeigandi hætti. Nú
þarf Palme að hemja sig,“ sagði
Kaare Willoch.
Fyrra tilvikið, sem Willoch vís-
ar til, gerðist á Norðurlandaráðs-
fundinum í Reykjavík. í samtöl-
um við norska og sænska blaða-
menn gaf Palme til kynna að
Willoch þyrði ekki að mæla gegn
sér í almennu umræðunum.
Vegna þessa atviks skiptust for-
sætisráðherrarnir á stuttara-
legum bréfum.