Morgunblaðið - 10.08.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1985
15
Mjór er mikils vísir
Rocky: Harðger eins og nafnið bendir til, en hastur.
________Bflar__________
Guöbrandur Gíslason
DAIHATSU Rocky er nýgræðingur
á jeppamarkaðnum. Daihatsu-
verksmiðjurnar japönsku hafa eigi
að síður framleitt bfla í hartnær
átta áratugi, þannig að mikil
reynsla býr að baki jeppanum þótt
nýr sé. Daihatsu hefur getið sér
gott orð sem framleiðandi smárra
og sparneytinna bifreiða, og hafa
bflar þeirra notið talsverðra vin-
sælda hér á landi nú síðustu árin
eftir að bensínverðið varð enn
fáránlegra en nokkru sinni fyrr.
Stefnu sinni trúir framleiða
Daihatsu jeppa sem eru litlir og
sparneytnir. Hér sannast mál-
tækið að margur sé knár þótt
hann sé smár. Tvær stærðir af
Daihatsu Rocky eru á boðstólum.
Er sá styttri nefndur Shortbody,
sem þýða mætti Stubbur, en sá
lengri Longbody, sem þýðir eig-
inlega Sláni, en er þó rangnefni,
því þótt Sláni sé 31 cm lengri en
Stubbur er hann hvergi nærri
jafnlangur stærri jeppum, held-
ur ívið styttri en t.d. Toyota
Land-Cruiser II, sem er stysti
jeppinn sem framleiddur er af
Toyota. Sá bíll sem ég fékk til
reynsluaksturs var af lengri
gerðinni og var hann búinn öll-
um þeim aukahlutum em þann
bíl mega prýða, meðal annars
bestu hljómflutningstækjum
sem ég hef kynnst í jeppa. Ann-
ars eru Rocky-jepparnir mjög
vel búnir frá verksmiðjunnar
hendi, m.a. með vökvastýri, hit-
uðum afturrúðum, miðstöð aftur
Daihatsu
Rocky EX
Longbody
Turbodísill
FJÖGURRA farþega jeppi með
þrennum dyrum, óskiptri aftur-
hurð, sem er á hliðarhjörum.
Lengd: 4,04 metrar (3,72 Short-
body) breidd 1,58 m, hæð 1,91 m
(1,84 Shortbody). Þyngd 1455 kg.
Snúningsradíus 5,8 m. Vél:
Turbodísill. Rúmtak: 2.765 m3
Hestöfl 72 við 3.600 snúninga á
mínútu. Beinskiptur, flmm gíra,
vökvastýri. Verð með ryðvörn og
skráningu ca. kr. 940.000. Styttri
gerðin af Daihatsu Rocky kostar
frá 715 þús. krónum með tveggja
lítra, 85 DlN-hestafla bensínvél
og upp í 825 þúsund með Turbó-
dísil. Ódýrasta gerðin af lengri
bílnum kostar 823 þúsund. Um-
boðið er Brimborg hf. Ármúla 23,
108 Reykjavík, sími (91)-81733.
í, hitablæstri á hliðarrúður
frammí o.s.frv. I lengri bílnum
er að auki eftirfarandi búnaður:
veltistýri, afturrúðuþurrka,
sprautur á aðalljós, driflæsing
(70% læsing að aftan) og raf-
stýrð fjöðrun, stillanleg inn-
anfrá: mjúk, í meðallagi og stíf.
Daihatsu Rocky er snotur bíll
að sjá, að minnsta kosti lengri
gerðin, og virðist vandaður að
allri gerð eins og kaupendur eru
farnir að venjast með japanska
jeppa. Hann er teppalagður í
hólf og gólf og sætin eru með
tauáklæði. Sæti ökumanns er
með fjöðrun. Heldur fannst mér
þröngt undir stýri þótt sætið
væri fært eins langt aftur og
hægt er, en það er ótviræður
kostur að geta stillt stýrið eftir
þörfum. Fóta- og höfuðrými
fyrir farþega aftur í er þokka-
legt, en þröngt er um þrjá þar,
enda billinn mjór, aðeins rúm-
lega einn og hálfur metri á
breidd. Farangursrými er all-
gott, og þar sem afturendi bíls-
ins opnast allur með einu hand-
taki er vandalaust að hlaða hann
og hægt er að leggja niður aftur-
sætið ef þðrf krefur. Yfirbygg-
ingin virðist stíf og hvorki brak
né bresti að heyra í henni né í
mælaborðinu. Útsýni úr bílnum
er gott. Mælaborðið er án íburð-
ar, en þó er þar að finna alla
nauðsynlegustu mæla, auk halla-
mælis og vatnshitamælis. Þar er
einnig að finna ein sex varúð-
arljós sem segja ökumanni ef
eitthvað fer úrskeiðis í vél bíls-
ins, bremsum eða hjólabúnaði.
Bremsurnar eru góðar, en þó
fannst mér þær ekki læsa öllum
hjólum alltaf samtimis.
Miðstöðin er vel virk, og blást-
urinn á hliðarrúðurnar fljótvirk-
ur, en hávær er hún. Sömu sögu
er að segja um dísilvélina. Hún
er mjög hávær, og má segja að
þegar maðurinn er kominn á
nokkurn hraða úti á þjóðvegum,
heyrist varla mannsins mál fyrir
hávaða inni í bílnum. Þó er þar
ekki vélinni einni um að kenna,
heldur nauðar og blístrar með-
fram framrúðunum. Þetta er
galli á annars vönduðum bíl. Þá
en torfærutröll. Það fer ekki á
milli mála að bíllinn er mjög
góður í torfærum. Hjólhafið er
stutt, gripið gott og seiglan mik-
il. Þá getur það verið kostur í
torfærum hvað jeppinn er mjór.
Hinsvegar finnst mér hann full-
stífur í venjulegum bæjarakstri,
og hastur er hann. Það má vera
að ég hafi ekki kunnað á þessar
þrjár stillingar á fjöðrun, sem
boðið er upp á, en mér var lífsins
ómögulegt að finna nokkurn
mun á þeim. Þá er erfitt að aka á
þessum holóttu malarvegum,
... farangursrýmið er betra en gengur og gerist
er hann óþéttur meðfram læs-
ingunum báðum megin.
Gírskiptingin er góð og ná-
kvæm, og er bíllinn mjög lágt
gíraður sem kemur sér vel í tor-
færum, en þar er þessi nýgræð-
ingur í essinu sínu. Vélin er ekki
bara hávær, hún er seig og af-
kastamikil. Og þar sem þetta er
dísill, er eldsneytiskostnaður i
lágmarki.
Það er augljóst af öllum bún-
aði Daihatsu Rocky að framleið-
endur hans hafa ætlað sér að
hanna bifreið með aldrifi sem
myndi sóma sér vel ekki siður
sem hversdagsbíll á malbikinu
sem allsstaðar verða fyrir manni
úti á landi. Fjöðrunin er stutt og
bíllinn á það til að hoppa og
skoppa á holum ef honum er ekið
hratt og getur þá verið erfitt að
halda honum á vegi.
í hnotskurn
Daihatsu Rocky er nýr á
jeppamarkaðnum og því um
marga hluti forvitnilegur. Hann
er vel búinn og vistlegur, en vél-
in er hávær. Rocky er fullhastur
og ber að aka honum með fyllstu
aðgát á slæmum vegum. Hann er
sterkur og stífur og vel fallinn til
torfæruaksturs.
FIAT 45 fær nýja vél
FIAT hefur hannað nýja bens-
ínvél sem senn verður sett í UNO
45-bílana, sem mikið hafa selst
hér á landi undanfarin ár. Vélin
nýja er 1000 rúmsentimetrar og
hefur sömu hestaflatölu og fyrri
vélin, sem áður var í FIAT 127,
en hún hefur meiri seiglu og er
að auki 15% sparneytnari en
gamla vélin. Aðrar breytingar
verða væntanlega gerðar á UNO
45, en hann var á síðasta ári
næst mest seldi smábillinn í
Evrópu, næstur á eftir Volks-
wagen Golf.
Nýjungar frá BMW
EFTIR að Mercedes Benz hóf að
framleiða 190-gerðina hefur
heldur dregið úr sölu á BMW
300-línunni, að minnsta kosti í
Þýskalandi. BMW hyggur nú á
nýja sókn á markaðnum fyrir
smáa bíla og hraðskreiða með
325i, en sú bifreið er knúin 171
hestafli og tveggja og hálfs lítra
vél. Þá mun BMW kynna fyrstu
bifreið sína sem búin er aldrifi á
næsta ári og verður það líka
300-týpa. Audi og Ford Sierra
hafa til þessa verið allsráðandi á
heimamarkaði fyrir bíla með al-
drifi, og nú vill BMW fá sneið af
kökunni líka. Þessir bílar verða
báðir sýndir á bílasýningunni í
Frankfurt í september í haust
ásamt 300-bíl með dísilhreyfli.