Morgunblaðið - 10.08.1985, Page 4
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
Laxá í Dölum: Þokkaleg
veidi en lítið vatn
Hjörleifur Jónsson í veiðihúsinu
að Þrándargili við Laxá i Dölum
sagði í samtli við Morgunblaðið í
gærdag, að komnir væru tæpir 800
laxar á land og hefði veiði verið all
þokkaleg að undanförnu, sérstak-
lega þegar mið væri tekið af
vatnsleysinu og bjartviðri því sem
lengst af hefur ráðið ríkjum. Mik-
ið af laxi er í Laxá en mikil vinna
að fá hann til við agnið. Mest eru
þetta 4—6 punda laxar að sögn
Hjörleifs.
Erlendir veiðimenn hættu veið-
um fyrir um viku og fslendingarn-
ir sem við ánni tóku fengu milli 60
og 70 laxa strax fyrsta daginn, en
síðan hefði dofnað verulega yfir
veiðinni, alltaf er þó reytingur og
ekki líður sá dagur að það veiðist
ekki nokkur stykki. Veitt er á 7
stangir t Láxá.
Nóg af laxi sem
tekur illa
Morgunblaðið fékk þau tíðindi
hjá einni af starfsstúlkum veiði-
hússins við Norðurá í Borgarfirði,
að komnir væru rúmlega 1000 lax-
ar á land. »Það gengur heldur
treglega, enda er ekkert vatn I
ánni og veðrið allt of gott fyrir
laxveiðar," sagði viðmælandi
blaðsins. Nóg er samt sem áður af
laxi í ánni, það liggur meira og
minna af laxi í hverjum hyl. Það
veiðist eitthvað af fiski dag hvern,
en það þarf róttæka veðurbreyt-
ingu til að hleypa lífi í veiðina.
Kannski að næsta lægð...
Dauft í Stóru-Laxá
Fregnir herma að afar slök veiði
hafi verið um nokkurt skeið í
Stóru Laxá í Hreppum og varla
veiðst nema einn og einn lax á öll-
um svæðunum í nokuð langan
tima. Áin er afar vatnslítil og
veiðimenn sjá lítið af laxi og enn
minna af nýjum fiski. Veiðin byrj-
aði ákaflega vel og veiddust á ann-
að hundrað laxar strax á fyrstu
dögunum. Síðan hefur veiðin dofn-
að mikið sem fyrr segir.
Eins og skepnan deyr, ...:
Unnið að fortökum kvikmynd-
arinnar í Loðmundarfirði
FORTÖKUR íslensku kvikmynd-
arinnar, sem ber vinnuheitið „Eins
og skepnan deyr,..." hófust í
Loðmundarfirði þann 29. júlí og
stóðu yfir í viku. Einnig var unnið
að frágangi þar hvað varðar töku-
staði, en kvikmyndatökurnar befj-
ast þann 15. ágúst og standa fram
yfir miðjan september.
Um 15 manna hópur vinnur að
myndinni, sem gerð er eftir
handriti Hilmars Oddssonar, en
hann leikstýrir henni ennfrem-
ur. Aðstoðarleikstjóri er Þorgeir
Gunnarsson, en kvikmyndatöku
annast Sigurður Sverrir Pálsson,
annar kvikmyndatökumaður er
Þórarinn Guðnason og þriðji
kvikmyndatökumaður Olafur
Rögnvaldsson. Hulda Kristín
Magnúsdóttir sér um búninga og
Elín Sveinsdóttir annast förðun.
Hljóðmaður er Gunnar Smári og
aðstoðarmaður hans Kristín
Erna Arnardóttir. Fram-
kvæmdastjóri myndarinnar er
Marin Magnúsdóttir og fram-
kvæmdastjóri á tökustað Stefán
Smári Magnússon. Aðalhlut-
verkin tvö eru I höndum þeirra
Eddu Heiðrúnar Backman og
Þrastar Leo Gunnarssonar, en
þriðja stærsta hlutverk myndar-
innar fer Jóhann Sigurðsson
með.
Ráðgert er að myndin „Eins og
skepnan deyr,..." verði frum-
sýnd á fyrri hluta næsta árs og
er áætlaður kostnaður við gerð
hennar á 8. milljón króna. Það er
kvikmyndafyrirtækið BÍÓ hf.
sem framleiðir kvikmyndina.
Síríus á vtri höfninni
Skip Greenpeace-samtakanna Síríus, kom til hafnar í Reykjavík seinnipartinn i gær. Erindið er að reyna að hafa
þau áhrif á íslensk stjórnvöld og almenning, að látið verði af fyrirætlunum um veiðar á 200 hvölum árlega næstu
fjögur árin í vísindalegu skyni. Fulltrúar Greenpeace hafa lýst því yfir að þau muni fyrst ræða við stjórnvöld, en
hafa ekki viljað úttala sig um það til hvaða ráða gripið verði, ef það ber ekki tilætlaðan árangur. Greenpeace
reyndi að trufla hvalveiðar hér við land sumarið 1978, en eins og er liggja hvalveiðar niðri hér við land, þar til
síðar í þessum mánuði.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAÓUR 10. ÁGÚST 1985
Þöningavinnslan:
Stærsti viðskipta-
vinurinn hefur
minnkað kaup sín
Reykhólasveit, 9. ágúst
SAMKVÆMT viðtali við Kristján Þór Kristjánsson, framkværadastjóra Þör-
ungavinnslunnar, hefur öflun gengið sæmilega og eru komin á land um sex
þúsund tonn af blautu þangi. Ætlunin er að afla tólf þúsund tonna á árinu. 1
fyrra var aflað 16 þúsund tonna, en aðalviðskiptavinur Þörungavinnslunnar,
skoskt fyrirtæki, minnkaði kaup sín úr þrjú þúsund tonnum niður í þúsund
tonn af þangmjöli. Það fara um fjögur kíló af blautu þangi í eitt kíló af þurru.
„Það hefur ekki verið hægt að
ljúka við stofnun hins nýja félags
vegna anna, en þó er búið að gera
samningsdrög við ríkið, en eftir er
að fjalla um þau frekar. Hins vegar
verður lögð á það áhersla að ljúka
undirbúningsstarfi og stofnun nýs
félags innan mánaðar," segir
Kristján í samtali við fréttaritara.
Fréttaritari hefur það fyrir satt.
að margir hluthafar séu óánægðir
með þá ráðstöfun iðnaðarráðuneyt-
isins að tala ekki við þá þrátt fyrir
þá staðreynd að fyrirtækið sé
gjaldþrota. Iðnaðarráðuneytið hef-
ur alfarið ráðið stefnu fyrirtækis-
ins og er það því neikvætt að hafa
ekki samband við aöra hluthafa, að
margra dómi.
Sveinn
Eskifjörður:
Morgunblaðiö/Þorgeir Gunnarsson
Hópurinn sem vann að fortökum myndarinnar f Loðmundarfirði. F.v. Sigurður Sverrir Pálsson, kvikmyndatöku-
maður, Jóhann Sigurðsson, leikari, Stefán Smári Magnússon, heimamaður, sem verður framkvæmdastjóri á
tökustað og Hilmar Oddsson, leikstjóri og höfundur handritsins.
Mikil loðna á land
Eskirirfti, 9. igúst
Loðnuskipið Júpíter kom hingað til Eskifjarðar í gærkvöldi með 1.200 tonn
af loðnu, veiddri á Jan Mayen-svæðinu. Þetta er þriðji farmurinn sem berst til
verksmiðjunnar hér. Áður höfðu Guðrún Þorkelsdóttir, sem fékk fyrsta loðnu-
farminn á vertíðinni, og Svanur RE landað fullfermi. Bæði skipin Guðrún og
Svanur koma inn í dag full af loðnu.
Isak Valdimarsson, skipstjóri á
Guðrúnu, segir að veiðin sé nú um
50 mílum norðar en fyrri farmur-
inn fékkst á. Siglingin af miðunum
í land tekur um 34 tima. Lokið var
við að bræða fyrstu farmana er
Júpíter kom í gær.
Togarinn Hólmanes kom inn í
gær með 120 tonn af fiski, eða
„skammtinn" eins og sjómennirnir
segja, en þeir mega helst ekki koma
inn með meira í einu svo vel hafist
undan að vinna aflann. Báðir tog-
ararnir hér hafa aflað afbragðsvel
i sumar og tekið mestan aflann hér
á Austfjarðarmiðum. Þrjú skip eru
á rækjuveiðum, eitt þeirra vinnur
aflann um borð, en tvö landa aflan-
um annars staðar vegna þess að
rækjuvinnslan hér tekur ekki á
móti rækjum til vinnslu.
Ævar
Flugleiöir:
Flug til Salzburg og
Bergen gengur vel
FLUGLEIÐIR bættu við tveimur
nýjum áfangastöðum f sumar, en
það eru Salzburg og Bergen, og að
sögn Sæmundar Guðvinssonar
blaðafulltrúa Flugleiða, hefur flug
til þessara staða gengið mjög vel,
sérstaklega til Bergen.
„Mjög mikið hefur verið bókað
til Bergen í allt sumar og einnig
hefur verið mikill straumur frá
Bergen til íslands," sagði Sæ-
mundur. „Bæði er um að ræða
fólk sem kemur gagngert til að
dvelja á íslandi og einnig þá sem
fljúga til íslands og siðan áfram
til Bandaríkjanna. Flugið hófst 1.
júní sl. og síðasta ferðin verður
farin þann 7. september. Berg-
enflugið hefst siðan aftur næsta
sumar.
Ekki hefur verið eins mikil eft-
irspurn eftir ferðum til Salzburg,
þó viðtökur hafi verið enn betri
en við reiknuðum með. Þetta er
nýr áfangastaður og má alltaf
búast við að það taki tíma að
vinna upp markaðinn."
Sæmundur sagði að ferðamát-
inn „flug og bíir væri mjög vin-
sæll á þessum slóðum. Fólk flygi
þá til Salzburg og færi þaðan á
bíl til ýmissa nágrannalanda.
Síðasta ferðin til Salzburg er 4.
september, en ákveðið hefur verið
að hefja aftur ferðir þangað í vet-
ur fyrir skíðafólk. Vetrarferðirn-
ar hefjast 21. desember og verður
fyrst flogið hálfsmánaðarlega en
síðan vikulega fram í mars. Sæ-
mundur sagði að vetrarferðirnar
væru ekki síður hugsaðar fyrir
Bandaríkjamenn, en á undan-
förnum árum hafa 3500—4000
Bandarikjamenn flogið með
Flugleiðum til Lúxemborgar og
ferðast þaðan til Austurríkis.