Morgunblaðið - 10.08.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1985
3
Nýi bfllinn bankastjórans
„ÉG FÉKK gamla bflinn minn árið
1955 eftir að hafa sótt um til fjár-
hagsráðs, sem þá var og hét í ein
11 ár. Mér var alltaf neitað um
innflutningsleyfí. Það gekk ekki
betur fyrir bankastjóranum en
þetta í þá daga,“ sagði Sigurður
Pétur Björnsson bankastjóri
Landsbankans á Húsavík og
fréttaritari Morgunblaðsins þar
nyrðra, í samtali við blaðamann en
hann var að fjárfesta í nýjum
glæsivagni eftir að hafa notast við
þann gamla í 30 ár.
Mercedez Benz ’85 varð fyrir
valinu, en sá gamli er af gerðinni
Ford Zodiac ’55. „Ég hef oft bent
því fólki, sem komið hefur til
bankastjórans í leit að láni
vegna bilakaupa, á að það geti
alveg farið betur með bifreiðir
sínar og átt þær í fleiri ár. Ford-
inn minn er i mjög góðu lagi
ennþá, ég fór á honum til Akur-
eyrar um verslunarmannahelg-
ina. Hann hefur aldrei verið
sprautaður og hef ég reynt að
fara mjög vel með hann. Eg nota
hann heldur aldrei innanbæjar.
Ég hef lofað þvi að konan min
fái gamla bilinn, en vandamálið
er að ég á enga konu svo að ég
veit ekki hvað gerist í þeim mál-
unum,“ sagði Sigurður Pétur
bankastjóri að lokum.
Gamli og nýi tíminn. Þ-414 er glæsivagninn, sem bankastjórinn var að fjárfesU í og Þ-3414 er gamli Fordinn,
sem nú er orðinn þrítugur og er enn vel gangfær. Sigurður Pétur, öðru nafni Silli bankastjóri, situr undir stýri í
þeim gamla.
Norðurlandameistara-
titillinn í skák:
Urslitakeppni
um mánaða-
mótin sept-
ember-október
SKÁKSAMBAND íslands hefur gert
um það tillögu til norska skáksam-
bandsins að úrslitakeppni um titil-
inn skákmeistari Norðurlanda fari
fram um mánaðamótin september/-
október. Eins og kunnugt urðu efstir
og jafnir á Norðurlandameistara-
mótinu, sem haldið var í Gjövik í
Noregi, þeir Helgi Ólafsson, Jóhann
Hjartarson og Norðmaðurinn Simon
Agdestein og þeir verða að tefla tvö-
falda umferð sín á milli, hverjum
beri titillinn.
Skáksamband íslands býðst til
að halda mótið, ef Norðmenn
treysta sér ekki til þess og mun þá
greiða ferðir og uppihald fyrir
Agdestein. Hins vegar mun vera
áhugi fyrir því í Noregi að mótið
verði haldið i Gjövik.
Reykjavíkurskák-
mótið 1986:
Työföldun
á 1. verð-
launum
Reykjavíkurskákmótið, hið 12. i
röðinni, verður haldið í Reykjavfk
dagana 11.—23. febrúar 1986. Skák-
samband íslands hefur skipað nefnd
til að undirbúa mótið og gert er ráð
fyrir að mjög há verðlaun verði í
boði að þessu sinni. Er talað um að
1. verðlaun verði 12 þúsund dollarar,
sem er tvöfalt hærri upphæð en upp-
hæð 1. verðlauna var á síðasta
Reykjavíkurskákmóti.
Þorsteinn Þorsteinsson, forseti
Skáksambandsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að nú þegar
hefði orðið vart mikils áhuga á
mótinu, enda mætti gera ráð fyrir
þvi, að þessi háu verðlaun toguðu
marga sterka stórmeistara á mót-
ið. Það er opið, sem þýðir að þátt-
takendafjöldi er ekki takmarkað-
ur við að allir keppi við alla. Hann
sagði að áhugi væri á því meðal
Skáksambandsmanna að bjóða
1—2 sterkustu skákmönnum Kína
á mótið. Að auki má vænta þess að
Bandaríkjamönnum og Sovét-
mönnum verði einnig boðið að
senda skákmeistara sína.
JNNLENT
______Mazda 626__
BILAR MINNST
RYÐGAR MINNST!
Samkvæmt könnun, sem hið virta þýska tímarit STERN gekkst fyrir nýlega kom í Ijós að
MAZDA 626 ryðgar minnst allra bíla, sem seldir eru í Þýskalandi. Ennfremur sýndi könnun,
sem gerð var af vegaþjónustu Félags bifreiðaeigenda í Vestur-Þýskalandi að MAZDA 626
bilar minnst allra bíla í millistærðarflokki þar í landi.
Eins og allir vita gera Þjóðverjar afar strangar kröfur til bíla um gæði og góða aksturseigin-
leika. Það er því engin furða að MAZDA 626 ER LANG MEST SELDI JAPANSKI BÍLLINN
í ÞÝSKALANDI!.
Við eigum nú nokkra af þessum úrvalsbílum til afgreiðslu strax úr síðustu sendingu, á sér-
lega hagstæðu verði.
Sterkari en
gerist og gengur
Ný 8000 fm. MAZDA sölu- og þjónustumiðstöö
Wabörg hf
Smiðshöfða 23 sími 812 99