Morgunblaðið - 10.08.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 10. ÁQQST1985,
Fjórir sækja um
stöðu fréttastjóra
hjá sjónvarpinu
Á FUNDI útvarpsráðs í gær var lagður fram listi yfir umsækjendur um
stöður fréttastjóra, deildarstjóra innlendrar dagskrárgerðar, dagskrár-
fulltrúa barnaefnis og dagskrárfulltrúa erlends efnis, sem sjónvarpið aug-
lýsti nýlega lausar til umsoknar.
Umsækjendur um stöðu frétta-
stjóra eru þeir Einar Sigurðsson,
Helgi Helgason, Ólafur Sigurðsson
og Ingvi Hrafn Jónsson. Um stöðu
deildarstjóra innlendrar dagskrár-
gerðar sækja Hrafn Gunnlaugsson
og Tage Ammendrup.
Þá sækja þau Gro Jörgensen,
Guðbrandur Gíslason, Jóhanna
Eyjólfsdóttir, Kristján Valdi-
marsson, Laufey Guðjónsdóttir og
Vala Sigurlaug Valdimarsdóttir
um stöðu dagskrárfulltrúa erlends
efnis og um stöðu dagskrárfulltrúa
barnaefnis sækja Asa Ragnars-
dóttir, Edda Magnúsdóttir, Kristín
Helgadóttir, Sigríður Ragna Sig-
urðardóttir, Sigrún Jóna Krist-
jánsdóttir og Þórunn Sigurðar-
dóttir.
Fljótlega mun útvarpsráð leggja
fram umsögn sína um umsækjend-
ur, en síðan skipar útvarpsstjóri í
stöðurnar.
Verðlaunahafar fyrir fegurstu garða Kópavogs.
Fegurðarverð-
laun í Kópavogi
FEGRUNARNEFND Kópavogs veitti í gær árleg verðlaun fyrir fagra
garða.
Aðalverðlaunin, gierbikarar
hannaðir og gerðir af listamönnun-
um Sigrúnu Ólöfu Einarsdóttur og
Sören S. Larsen, voru þrenn tals-
ins. Ber þar fyrst að nefna heiðurs-
verðlaun bæjarstjórnar Kópavogs,
sem komu í hlut Sigrúnar Ed-
vardsdóttur og Einars Þor-
geirssonar, Hvannhólma 16. Verð-
laun Rotaryklúbbs Kópavogs hlutu
þau Anna Alfonsdóttir og Harry
Sampsted, Starhólma 16, en verð-
laun bæjarstjórnarinnar hrepptu
hjónin Áslaug Jóelsdóttir og Sverr-
ir Arngrímsson, Kópavogsbraut 51.
Gunnólfsvíkurljall.
Ratsjárstöð á Gunnólfs-
víkurfjalli ákveðin
SAMNINGAR hafa tekist milli utanríkisráðuneytisins og eigenda jarðarinn-
ar Gunnólfsvíkur í Skeggjastaðahreppi um uppsetningu ratsjárstöðvar á
Gunnólfsvíkurfjalli, sem er 730 metra hátt fjall I landareign jarðarinnar.
Fjallið varð fremur fyrir valinu en Hrollaugsstaðafjall, þar sem fyrri rat-
sjárstöð var, vegna þess að það er tæpum 500 metrum hærra.
Vonast er til að hægt verði að
hefjast handa um vegalagningu í
haust, en það fer eftir veðri og að
nýja ratsjárstöðin gæti tekið til
starfa í árslok 1987, en þar munu
starfa að staðaldri 11 manns, þar
af 10 íslendingar.
Efsti hluti Gunnólfsvíkurfjalls
er flatur, um 15 hektarar að
stærð. Þar mun ratsjárstöðin rísa.
Hún mun taka yfir 1200 fermetra
eða innan við 1% af fjallstoppin-
um. Auk ratsjárstöðvarinr.ar
verður þyrlupallur og niðurgrafn-
ir olíu- og vatnstankar á fjallinu.
Þess verður gætt að væntanlegar
framkvæmdir stingi eins lítið í
stúf við landslag og náttúru og
mögulegt er, en jörðin og fjallið
eru á náttúruminjaskrá.
Fulltrúar varnamálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins kynntu
náttúruverndarráði í gær fram-
kvæmdir og að sögn Sverris
Hauks Gunnlaugssonar, skrif-
stofustjóra varnarmála-
skrifstofunnar, má vænta þess að
ráðið tilnefni aðila til að athuga
nánar vissa þætti framkvæmd-
anna. Þá verða fundir með hrepps-
nefndum Skeggjastaða- og Þórs-
hafnarhrepps í næstu viku til að
kynna framkvæmdirnar með hlið-
sjón af framlagi heimamanna,
þannig að það valdi ekki röskun á
atvinnulífi í byggðarlaginu.
Sverrir Haukur sagði einkum
þrennt hafa ráðið því að Gunn-
ólfsvíkurfjall varð fyrir valinu
fremur en Hrollaugsstaðafjall. I
fyrsta lagi að ratsjársvið loft-
varna yrði mun stærra. í öðru lagi
yrði sjónsvið ratsjárinnar mun
meira, bæði inn til landsins og á
haf út. Þannig gæti eftirlit Flug-
málastjórnar með lágflugi orðið
meira og hægt væri að fylgjast
með aðflugi að Húsavíkurflugvelli
og að hluta til að Egilsstaðaflug-
velli. í þriðja lagi myndi siglinga-
ratsjá ná til þrefalds stærra haf-
svæðis.
Birkir Baldvinsson:
Það má búast við
öllu í viðskiptum
„ÉG MYNDI ekki kippa mér upp við
það þótt ég fengi ekki hlutabréfin í
Flugleiðum," segir Birkir Baldvins-
son, flugvélasali f Lúxemborg, í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðsins
þar í borg á fimmtudaginn.
Birkir er núna staddur í Englandi
og náðist ekki samband við hann í
gærkvöldi, eftir að fjármálaráð-
herra hafði tekið tilboði Flugleiða
og hafnað hans boði.
Þegar Birkir ræddi við blaða-
mann Morgunblaðsins hafði hann
heyrt um að boð kæmi líklega frá
Flugleiðum og hann myndi hugs-
anlega ekki fá bréfin. „Maður verð-
ur að búast við öllu f viðskiptum.
Stundum er maður ofan á og stund-
um verður maður undir," sagði
Birkir.
Flugleiðir fengu hlutabréf ríkisins á 66 milljónir:
Höfum reiknað út að við fáum
bréfin á 4,5 földu nafnverði
FLUGLEIÐIR keyptu í gærkvöldi hlutabréf ríkisins í fyrirtækinu. Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra og Sigurður Helgason stjórnarformaður
Flugleiða undirrituðu kaupsamninginn klukkan 19.15 í gærkvöldi á
skrifstofu fjármálaráðherra. Jafnframt veitti fjármálaráðherra móttöku
ávísun að upphæð kr. 14.850.000, en það er útborgun skv. samningnum.
Kaupverð bréfanna er 66 millj-
ónir króna. Við undirskrift greið-
ast kr.14.850.000 eða 22,5% kaup-
verðsins. Eftirstöðvarnar,
kr.51.150.000, greiðir kaupandi
með skuldabréfi til 8 ára með
jöfnum árlegum afborgunum.
Skuldabréfið er óverðtryggt og
ber ekki vexti. Til tryggingar
greiðslum skal kaupandi setja
sjálfskuldarábyrgð banka eða
aðra tryggingu sem seljandi met-
ur gilda. Þegar kaupandi hefur
uppfyllt skyldur sínar samkvæmt
samningnum skal seljandi af-
henda honum bréfin með árituðu
afsali og skulu aðilar uppfylla
ákvæði samningsins fyrir 31.
þessa mánaðar.
Stjórn Flugleiða ákvað á fundi
sínum um hádegi í gær að gera
þetta tilboð í bréfin. Áður hafði
eins og kunnugt er borist eitt til-
boð í þau frá Birki Baldvinssyni í
Lúxemborg. Samkvæmt því til-
boði var kaupverðið 63 milljónir
og útborgun 12,6 milljónir. Eftir-
stöðvarnar átti að greiða með
sama hætti og samkvæmt tilboði
Flugleiða, það er með vaxtalausu
skuldabréfi til 8 ára.
Sigurður Helgason, stjórnar-
formaður Flugleiða, sagði að þeir
í stjórninni hefðu á sínum tíma
fengið þær upplýsingar um tilboð
Birkis að í því fælist að borga
ætti nífalt nafnverð fyrir bréfin.
Síðan hafi komið í ljós að í raun
væri ekki um að ræða nema u.þ.b.
4,5 falt nafnverð á núvirði, miðað
við að það er ekki verðtryggt og
ef miðað er við senniiega verð-
bólguþróun næstu átta ár. „Við
erum ekkert á móti því í sjálfu
sér að fá Birki inn í fyrirtækið,"
sagði Sigurður. „En þegar þessar
forsendur urðu okkur ljósar, fyrir
þremur eða fjórum dögum, sáum
við að þarna var tækifæri fyrir
okkur að leysa til okkar bréfin og
dreifa þeim síðan til starfsmanna
og hluthafa, enda höfum við lengi
haft áhuga á því að veita starfs-
fólkinu aukna aðild að fyrirtæk-
inu. Því tókum við þessa ákvörð-
un í dag.
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra kvaðst ánægður
með þessar málalyktir .„Ég tel
þetta hagstæða sölu,“ sagði hann.
„Fjárfestingarfélagið hefur yfir-
farið bæði tilboðin og staðfest að
þetta tilboð er hagstæðara en til-
boð Birkis, þess vegna er þessu
boði tekið." Er Albert var spurð-
ur hvers vegna hann tæki nú
óverðtryggðu tilboði, sem í raun
væri aðeins upp á 4—5 falt nafn-
verð að núvirði, eftir að hann hafi
lýst því yfir að hann vildi fá ní-
falt verð fyrir bréfin, sagði hann:
„Það er ekki hægt að setja dæmið
svona upp. Það verður einnig að
líta á það að bréfin hafa ekki gef-
ið af sér arð og þær sjö milljónir
sem bundnar eru í þeim sam-
kvæmt nafnverði rýrna líka í
verðbólgunni. Nú fáum við hins-
vegar í hendur strax tæpar 15
milljónir sem fara að gefa vexti,
sem munu vega verulega upp á
móti þessu. Þetta verður líka að
hafa í huga“.
Albert var einnig spurður að
því hvort ekki hafi verið óeðlilega
að málum staðið við sölu bréf-
anna, þar sem skýrt hefði verið
opinberlega frá efni tilboðs Birk-
is áður en því var svarað og öðr-
um þannig gefinn kostur á að
miða tilboð sín við það. Hefði
ekki verið nær að hafa lokað út-
boð og opna öll tilboð samtímis
að bjóðendum viðstöddum?
„Þessi leið var reynd á sínum
tíma. Þá barst aðeins eitt tilboð,
frá Starfsmannafélagi Flugleiða,
sem hljóðaði upp á nafnverð og
greiðslu á tíu árum og var því
hafnað sem óaðgengilegu. Nú
voru bréfin hinsvegar auglýst til
sölu á ákveðnu verði og auglýst
eftir kaupendum sem vildu greiða
það verð fyrir þau, rétt eins og á
hverri annarri vöru í verslun. Ég
sé ekkert athugavert við þetta,“
sagði fjármálaráðherra.
Fram kom hjá þeim nöfnum
Sigurði Helgasyni forstjóra og
Sigurði Helgasyni stjórnarfor-
manni Flugleiða að bréfin verða á
næstunni boðin starfsmönnum og
hluthöfum til kaups. Helmingur-
inn verður boðinn starfsmönnum
en hinn helmingurinn hluthöfum,
en þeir starfsmenn sem eiga hlut
fyrir geta þá keypt bæði sem
starfsmenn og hluthafar. Bréfin
verða boðin á sömu kjörum og
þau eru nú keypt á og kváðust
þeir nafnar vissir um að vel gengi
að selja þau. Félagið sjálft ætlar
ekki að eiga þessi bréf til fram-
búðar, enda er því ekki heimilt að
eiga meira en 10% hlutafjár leng-
ur en þrjá mánuði, samkvæmt
ákvæðum hlutafélagalaga.
Um áhrif sölunnar á skipun
stjórnar fyrirtækisins sagði fjár-
málaráðherra að hann myndi á
næstunni tilkynna fulltrúum
ríkisins að ríkið væri ekki lengur
hluthafi og myndu þeir þá vænt-
anlega hverfa úr stjórninni. Sig-
urður Helgason stjórnarformað-
ur sagði að þá myndu kjörnir
varamenn í stjórn taka sæti
þeirra og sitja til næsta aðal-
fundar.