Morgunblaðið - 03.11.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLADIÐ
ERLENT
Þjóðaratkvæði um ástralskt lýðveldi
Lýðveldissinnar í minnihluta
Darwin, Sydney, London. Reutcrs, AP.
ÁSTRALSKIR lýðveldissinnar
telja að landinu gefist með ákvörð-
un um lýðveldisstofnun færi á að
losa sig undan þeirri ímynd að það
sé útkjálki Bretlands og öðlast auk-
in áhrif í Asíu.
En bæði lýðveldis- og konungs-
sinnar ena á einu máli um að lýð-
veldisstofnun ein og sér myndi ekki
skila íbúunum áþreifanlegum gæð-
um, svo sem bættum viðskiptatæki-
færum við grannlöndin.
Líföndun
anda er að lifa
Arnalds verður með námskeið í líföndun
6. og 7. nóvember
„ i iminn er iit. Og lífið býr í hjartanu. Því meira sem fólkið
sparaði því minna átti það.“ (Úr Mómó eftir M. Ende)
Gefur þú þér tíma til að lifa?
Guðrún Arnalds. símar 551 8439 og 896 2396
Sterk yfirlýsing um
sjálfsmynd þjöðarinnar
• Astralir ganga á laugai’dag að
kjörborðinu í -þjóðaratkvæða-
greiðslu um lýðveldisstöfnún. Lýð-
veldissinnar halda því fram að kjósi
þeir þá að afnema konungdæmið
felist í því sterk yfirlýsing um
sjálfsmynd þjóðarinnar, um það
leyti sem hún er að leggja sig fram
um að endurskilgreina hlutverk sitt
í sínum heimshluta.
En skoðanakannanir benda til að
greinilegur meirihluti sé fyrir því
að halda tryggð við þjóðhöfðingja
Bretaveldis. I niðurstöðum könnun-
ar sem birtar voru í gær kemur
fram að 54% aðspurðra höfnuðu
lýðveldisstofnun en 42% studdu
hana. Og forsætisráðherrann John
Howard, sem er yfirlýstur kon-
ungssinni, segir niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar ekki munu
breyta nokkru um stöðu Astralíu
gagnvart grannnkjum sínum.
A laugardag verða 12,3 milljónir
ástralskra kjósenda beðnar að
svara spurningunni, hvort þeir vilji
binda enda á stjórnskipuleg tengsl
við Bretland, sem staðið hafa í 211
ár, stofna ástralskt lýðveldi og að
heimakjörinn forseti taki við hlut-
verki Elísabetar drottningar.
Afleiðingar lýðveldisstofnunar
yrðu ekki mjög sýnilegar fyrir hinn
almenna borgara, nema á frímerkj-
um og seðlum landsins - ásjóna
drottningarinnar myndi hverfa af
þeim.
Umdeildur femín-
isti einn af ráð-
gjöfum Gores
The Daily Telegraph.
AL Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, hefur viðurkennt að hann hafi
ráðið hina umdeildu Naomi Wolf,
þekktan rithöfund og femínista,
sem ráðgjafa við kosningabaráttu
sína, og fallist á að greiða henni
jafnvirði einnar milljónar króna á
mánuði fyrir störf sín. Segir hann
Wolf vera „dýrmætan ráðgjafa“
sem hafi aðstoðað sig við að ná at-
hygli ungra kjósenda.
Wolf, sem er þekktust fyrir skrif
sín um konur sem kynverur og
„valdafemínisma", hefur verið vara-
forsetanum til ráðgjafar um allt frá
fatatísku til ræðumennsku, að því er
haft hefur verið eftir aðstoðarmönn-
um Gores. Hefur hún unnið náið
með ímyndarsmiðum hans undan-
fama mánuði, og hefur meðal ann-
ars hvatt Gore til að „tala frá hjart-
anu“ til að ná betri tengslum við
kjósendur.
Ymsir hafa gefið í skyn að tengsl-
in við Wolf geti orðið Gore skeinu-
hætt, enda er hún þó ribkkuð um-
deild. Hugmyndir hennar um að
unglingum verði 'véitt fræðsla um
sjálfsfróun og munnmök í skólum til
að draga úr líkum á ótímabærum
þungunum og kypsjúkdómum, hafa
að minnsta kosti ekki vakið mikla
lukku hjá íhaldssönium og trúuðum
Bandaríkjamönnum. Gore reyndi
enda að leyna því að Wolf væri einn
af ráðgjöfum hans. Til dæmis voru
notaðir milliliðir til að greiða henni
laun, svo nafn hennar kæmi ekki
fram í fjármálaskýrslum til alríkis-
kjörnefndarinnar.
Wolfe hefur um langt skeið verið
Reuters
A1 Gore klæddist búningi teikni-
myndapersónunnar „Halloka“
(Underdog) og Tipper eiginkona
hans var búin sem „Hreinrækt-
aða Pollý“ í árlegri hrekkjavöku-
veislu þeirra hjóna á sunnudag.
dálkahöfundur fyrir stjórnmála-
tímarit og bækur hennar hafa hlotið
mikla umfjöllun. Ekki er auðvelt að
skipa hugmyndum hennar um
stjómmál og femínisma á ákveðinn
bás, en hún hefur einkum beint
sjónum sínum að kynlífi og sjálfsí-
mynd. I fyrstu bók sinni gagnrýndi
hún til dæmis snyrtivörufyrirtæki
fyrir að stuðla að lágu sjálfsmati
kvenna, en í síðari skrifum sínum
hefur hún gagnrýnt konur fyrir að
sætta sig við ríkjandi ástand og
reyna ekki að sækjast eftir auknum
völdum og áhrifum.
Glæný línuýsa
■vY^»Ý"-'vb
mm
Á
kr. kg.
Ath.: Eigum aðeins 2 tonn
OP
Vó
8
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1 v/Gullinbrú, sími 587 5070.
- heimili góðu tilboðanna -