Morgunblaðið - 12.01.1999, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 67
FÓLK í FRÉTTUM
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson /Arnaldur Indriðason / Hildm- Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Óvinur ríkisins irirk
Hörkugóður, hátæknilegur sam-
særistryllir sem skilar sínu og gott
betrn'. Smith, Hackman og Voight í
essinu sínu.
Holy Man kk
Háðsádeila á bandarískt neyslu-
þjóðfélag sem nær ekki að nýta
gamanhæfileika Eddie Murphys og
uppsker eftir þvi.
Soldier kk
Kurt Russell ærið fámáll í dæmi-
gerðri rambómynd. Góð sviðsmynd
en lítilfjörlegt inntak.
Mulan irirkVi
Disney-myndm gerast vart betri.
Fín tónlist, saga og teikningar. Af-
bragðs fjölskylduskemmtun.
SAMBÍÓIN,
ÁLFABAKKA
Óvinur rikisins kkk
Hörkugóður, hátæknilegur sam-
særistryllir sem skilar sínu og gott
betur. Smith, Hackman og Voight í
essinu sínu.
Sögusagnir kk
Enn einn B-blóðhrollurinn, hvorki
vem né betri en fjöldi slíkra eftir-
líkinga. Stelpurnar góðar, bara að
myndin væri jafn hressileg og upp-
hafið.
Practicai Magic kk
Náttúrulitlar en ekki óaðlaðandi
nornir í ráðvilltri gamanmynd.
Egypski prinsinn kkV.2
Laglega gerð en litlaus teiknimynd
um flóttann frá Egyptalandi. Líður
fyrir alltof mörg, löng og tilþrifalítil
lög og söngatriði.
Mulan kkk'/z
Disney-myndh- gerast vart betri.
Fín tónlist, saga og teikningar. Af-
bragðs fjölskylduskemmtun.
Ég kem heim um jólin k k
Alveg ágæt grínmynd fyrir ungling-
ana. Jonathan Taylor-Thomas er
bæði fyndinn og sætur í aðalhlut-
verkinu.
HÁSKÓLABÍÓ
Egypski prinsinn kkV'z
Laglega gerð en htlaus teiknimynd
um flóttann frá Egyptalandi. Líður
fyrir alltof mörg, löng og tilþrifalítil
lög og söngatriði.
Tímaþjófurinn ★★
Alda og Olga eru jafn ólíkar systur
og lífið og dauðinn.
Taxi kkVz
Létt grín og spenna í franskri
strákamynd um Daníel sem fær
loksins að verða leigubílstjóri.
Hvaða draumar okkar vitja kkk
Meðan við ferðumst milli helvítis og
himnaríkis fáum við tilsögn um til-
gang lífsins í fallegri ævintýramynd
fyrir fullorðna.
Út úr sýn kkk
Astin grípur í handjárnin milli
löggu og bófa að hætti Elmores Le-
onard, sem fær ágæta meðhöndlun
að þessu sinni. Fyndin, fjörug,
krydduð furðupersónum skáldsins
sem eru undur vel leiknar yfh- lín-
una.
Maurar kkk
Frábærlega vel gerð tölvuteikni-
mynd. Leikaravalið hið kostuleg-
asta með Woody Allen í farar-
broddi. Fínasta skemmtun fyrir
fjölskylduna.
KRINGLUBÍÓ
Óvinur ríkisins kkk
Hörkugóður, hátæknilegur sam-
særistryllir sem skilar sínu og gott
betur. Smith, Hackman og Voight í
essinu sínu.
Practical Magic kk
Náttórulitlar en ekki óaðlaðandi
nornir í ráðvilltri gamanmynd.
The Negotiator kk'/z
Góðir saman, Jackson og Spacey, en
lengd myndar-innar ekki raunhæf.
Mulan kkkVz
Disney-myndir gerast vart betri.
Fín tónlist, saga og teikningar. Af-
bragðs fjölskylduskemmtun.
Foreldragildran kk
Rómantísk gamanmynd um tvíbura
sem reyna að koma foreldrum sínum
saman á ný. Stelpumynd út í gegn.
Star Kid kVz
Leiðinleg barna- og unglingamynd
um Spencer sem finnur geimveru-
búning.
LAUGARÁSBÍÓ
Rush Hour kkVz
Afbragðsgóð gamanmynd með
Chris Tucker og Jackie Chan en
hasarhliðin öllu síðri.
The Odd Couple II k
Osmekklegheit og subbuskapui- eru
aðalkryddin í þessari klisjusúpu.
The Truman Show kkkk
Jim Carrey fer á kostum í frábærri
ádeilu á bandaríska sjónvarpsver-
öld. Ein af fi-umlegustu og bestu
myndum ársins.
Blade kVz
Blóðugur subbuskapur.
REGNBOGINN
Rounders kkk
Býsna skemmtileg og spennandi
pókermynd um vináttu og heiðar-
leika. Ed Norton er æðislegur.
Primary Colors kkkVz
Afburða góð, pólitísk satíra þar sem
spaugast er með kvensaman hús-
bónda í Hvíta húsinu. Sterkur leik-
ur og styrk leikstjórn Mike Nichols.
Dr. Doolittle kkk
Afbragðs gamanmynd með Eddie
Murphie í toppformi sem læknirinn
sem rabbar við dýr merkurinnar.
There’s Something About Mary
kkkVz
STJÖRNUBÍÓ
Rush Hour kkVz
Afbragðsgóð gamanmynd með
Chris Tucker og Jackie Chan en
hasarhliðin öllu síðri.
Álfhóll kkVz
Furðuheimur brúðunnar er heill-
andi í þessari skemmtilegu mynd
um vini sem taka höndum saman.
Málshöfðun fyrir
frumsýningu
KVIKMYNDIN „A Civil Action“ verður frumsýnd um
næstu helgi í Bandaríkjunum. Ein af sögupersónunum
hefur höfðað mál gegn höfundinum, samkvæmt frétt
Boston Phoenix á fimmtudag.
John Riley, sem seldi sútunarstöð öðru af fyrirtækj-
unum tveimur sem síðar voru sökuð um að menga
jarðvatn, hefur höfðað mál í New Hampshire. Þar
heldur hann því fram að í myndinni liafí hann rang-
lega verið sagður hafa framið meinsæri.
Málshöfðunin beinist einnig gegn Vintage Books
sem gaf söguna út í bókarformi.
JOHN Travoita á forsýningu myndarinnar
„A Civil Action“.
Allir kuldaskór
Póstsendum samdægurs
aðeins í nokkra daga f
30%
*fsláttur
Kven-, herra-
og barnakuldaskór
SKÚVERSLUN
KÓPAUOGS
HAMRAEORG 3 • SÍMI 5 54 1 7 54
BJÖRK eins og hún kom lesendum Vogue fyrir sjónir árið 1995.
Björk leikur á móti Deneuve
►BJÖRK Guðmundsdóttir mun
leika á móti Catherine Deneuve í
myndinni Dancer in the Dark sem
danski sérvitringurinn Lars von
Trier leikstýrir. Þetta kemur
fram í yfirliti yfir komandi ár í
New Musical Express. Þá vonast
liún einnig til að hefja vinnu við
ijórðu sólóbreiðskífu sína og svo
kemur út breiðskífa nú á fyrsta
ársfjórðungi sem hún hefur þegar
tekið upp með Alec Empire úr
Digptal Ilardcore og Brodsky-
kvartettinum. í árlegri lesenda-
könnun Melody Maker varð Björk
í níunda sæti yfir bestu sólólista-
menn ársins. Hún varð einnig
þess vafasama heiðurs aðnjótandi
að vera í níunda sæti yfir helstu
vonbrigði ársins vegna bágrar
sölu plötunnar Homogenic. Helstu
vonbrigði ársins voru Oasis.
Bellatrix
skærasta vonin
I NME er skyggnst yfir sviðið og
spáð um nýjar hljómsveitir sem
eigi eftir að verða áberandi árið
1999. Þar fer íslenska sveitin
Bellatrix fremst í flokki. Eins og
svo oft er byrjað á nýstárlegri
samh'kingu við Björk og svo seg-
ir: „íslendingarnir í Bellatrix,
fjórar ískaldar glamúrstúlkur og
einn staðlaður karlkyns trymbill,
eru einfaldlega skærasta og
fjörugasta poppsveitin sem mað-
ur getur séð á árinu. Nýfeg
breiðskífa þeirra Global Warm-
ing er bara upphafíð. Kenickie
eru ef til vill horfnir af sjónar-
sviðinu en andi þeirra svífur yfir
vötnum á íslandi."
Global Warming fær þrjár og
hálfa sfjörnu í gagnrýni í Melody
Maker og einkar lofsamleg um-
mæli, m.a. að á þeim rúma hálf-
tíma sem platan taki í spilun nái
Bellatrix að komast til sólarinnar
og aftur til baka án þess að
bráðna nokkuð. „Virkilega
svalt". Dómnum lýkur á orðun-
um: „Hver þremillinn, ég er ekki
enn búinn að minnast á Bjö- (snii-
j'ipÞEd).11
Sértilboð
8. febrúar til
Kanarí
frá kr. 49.932
með Heimsferðum
Sem fyrr tryggja Heimsferðir þér besta verðið til Kanaríeyja í vetur og
nú höfum við tryggt okkur viðbótargistingu á þessum vinsælasta áfan-
gastað fslendinga í sólinni á hreint frábærum kjörum hvort sem þú vilt
skreppa í viku í sólina eða dvelja í tvær eða þrjár vikur við bestu
aðstæður. Viðbótargisting á ensku ströndinni, þar sem þér býðst nú
vikuferð á hreint ótrúlegum kjörum. Að auki bjóðum við viðbótargist-
ingu á Vista Faro í Sonnenland.
Bókaðu til Kanarí í vetur meðan enn er laust.
Verð kr.
39.932
Ferðir til Kanarí í vetur:
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára.
vikuferð 1. febrúar.
Verð kr. 49.960
M.v. 2 fullorðna í smáhýsi, vikuferð,
Tara, I vika, 1. febrúar.
Verð kr. 59.960
1. feb.
8. feb.
22. feb.
1. mars.
15. mars.
22. mars.
29. mars.
5. apríl.
19. apríl.
M.v. 2 fullorðna í Vista Faro- smáhýs-
unum, 2 vikur, 8. febrúar.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is