Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
►
íslenskur tískuhönnuður í París
Unnið úr ull
og steinbítsroði
París. Morgnnblaðið.
TÍSKUHÖNNUÐURINN Ingi-
björg Hanna Pétursdóttir sýndi í
desember lokaverkefni sitt í
Purple Institute - The Trees í
París.
Þetta er afrakstur náms hennar í
Hogeschool voor de Kunsten í
Utrecht og skiptinámskafla er hún
hefur verið að ganga í gegnum.
Hún sýndi tvo kjóla unna úr
kembdri íslenskri ull og einn jakka
sem unninn er úr steinbítsroði, auk
tískuteikninga og ljósmynda af
hönnunarstarfi sínu.
Sýningin var haldin í stórum sal
í Purple Institute. Nemendur
höfðu skipt svæðinu í bása með
járnneti sem klætt var móðu-
kenndu plasti. Á þennan hátt
mynduðu nemendur á einfaldan og
frumlegan hátt sýningarhólf fyrir
hvern og einn. I þessu iokanámi
hefur einnig verið lögð áhersla á
að kenna markaðssetningu hönn-
unarinnar auk þess að undirbúa
nemendur í að koma sér á fram-
færi og leiðbeina þeim um hvernig
á að hafa samband við stofnanir og
fyrirtæki til samstarfs og þróunar
í framtíðinni.
Nemendurnir sem sýndu hér
koma frá helstu tískuhönnuðaskól-
um Evrópu. Um er að ræða sam-
evrópskt samstarf, sem er styrkt að
iiálf'u af Erasmus-stofnuninni, og
nefur staðið yfír frá 1991. Megin-
Morgunblaðið/Ólafur Benedikt Guðbjartsson
INGIBJORG Hanna Pétursdóttir í sýningarbás sínum á tískusýning-
unni í Purple Institute í París.
symrkjól, sem Ingibjörg Hann.
markmið þessa framtaks er að
styrkja menningartengsl á milli
landa og auðvelda nemendum að
sækja menntun frá mismunandi
skólum og stofnunum.
Þetta lokaverkefni er hluti af
skiptinámi sem Ingibjörg Hanna
hefur tekið þátt í. Hún var í Uni-
versity of Art & Design í Helsinki
áður en hún kom hingað til Purple
Institute sem er hluti af Institute
de la Mode og er einn virtasti tísku-
hönnuðaskólinn í París.
Hyggst setjast að
í háborg tískunnar
Það kemur sér sennilega vel fyrir
Ingibjörg Hönnu vegna þess að hún
kvaðst hafa áhuga á því að setjast að
hér í París, háborg tískuhönnunar.
Löngunin til að gerast hönnuður
hefur blundað lengi í Ingibjörgu
Hönnu og sótti hún nám í listaskól-
ann Rými í Reykjavík áður en hún
fór utan og gekk í Hogeschool voor
de Kunsten í Utrecht.
Hún kveðst halda mest upp á
tískuhönnuðina Yamamoto og
Martin Magiela, en í byrjun náms
hafi hún þó einkum kynnt sér verk
Christians Diors.
Ingibjörg Hanna segir að mikil
gróska sé í tískuhönnuðarstarfi á
a hannaði.
íslandi. Þótt hún hafi ákveðið að
setjast að í París segist hún hafa
mikinn áhuga á því að stofna til ná-
ins samstarfs við íslenska hönnuði
og sérstaklega að þróa og nota ís-
lensk hráefni í hönnun sinni. Hún
hefur mestan áhuga á að nota ís-
lensku ullina og vinna hana meðal
annars í bland með öðrum efnum
eins og steinbítsroði og öðrum ís-
lenskum hráefnum.
FOLK I FRETTUM
Stöndum vörð um heilsuna
í vetrarkuldanum
C-500, GERICOMPLEX & SÓLHATTUR
Þrír öflugir máttarslólpar sem saman byggja upp varnir líkamans, auka þol og stuðla aö hreysti.
Gericomplex inniheldur helstu vítamín og steinefni, lesitín og Ginsengþykknið öfluga G-115.
Rannsóknir sýna að G-115 þykknið hjálpar blóðinu að flytja aukið súrefni út í frumur líkamans. Saman auka þessi efni
likamlegt og andlegt starfsþrek. C-vítamín er tekið aukalega í kuldatíð. Nóbelsverðlaunahafinn Linus Pauling
ráðlagði öllum að tryggja sér ávallt nægilegt C-vítamín. Sólhattur er einhver vinsælasta og mest notaða lækningajurt
víða um heim, ekki síst á norðlægum slóðum, þar sem vetrarhörkur herja á heilsu manna.
NÚ ER ÞESSI SAMSTÆÐA Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐI
Fullt verð: "krr-MOSLi. Tilboðsverð: kr. 1.490,-*
*Tilboð þetta gildir til 16. janúar
Éh
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu, Akureyri
tm þÓSABERKM.
RÚltNOG
BtnHAVÓMDlM
Vonar að konan
snúi aftur heim
►ROD Stewart segir að hann voni
að eiginkona hans, Rachel Hunter,
snúi aftur heim og gefi sambandi
þeirra annað tækifæri. Hjónin,
sem eiga tvö börn saman, Renee
4ra ára og Liam 6 ára, tílkynntu
fjölmiðluni í síðustu viku að þau
væru skilin að borði og sæng.
„Ég elska Rachel ennþá mjög
heitt og bið þess og vona að hún
snúi aftur heim,“ sagði Rod í
samtali við Sunday People. „Við
skildum ekki í neinu æðiskastí og
það er enginn þriðji aðili í spilinu.
Þetta snýst ekki um eitthvað sem
ég gerði eða hún,“ sagði
söngvarinn rámi í samtalinu, en
það orðspor hefur farið af honum
að hann sé mikill kvennamaður og
getí ekki séð ljóskur í friði.
Stewart,, sem er orðhm 54 ára,
náði frægð í Bretlandi þegar hann
söng með hljómsveitinni Faces.
ímynd hans sem kvemiaflagara
fékk byr undir báða vængi þegar
hann fluttíst til Los Angeles og fór
að sjást með konum eins og Britt
Ekland og fyrirsætunni Kelly
Emberg. Hunter var fyrirsæta
þegar Stewart hitti hana árið
1990. Hún er frá Nýja-Sjálandi og
er 23 árum yngri en söngvarinn.
Með tárin í augunum tjáði
Stewart Sunday People að Rachel
hefði breytt. lífi sínu. „Ég var alveg
viss um að hún yrði konan sem ég
myndi eyða lífinu með. En við
erum að tala um vandamál okkar
og vonumst til að geta leyst þau.
Við viðurkennduin hvoru fyrir
öðru að ekki væri allt í lagi og
enim of heiðarleg hvort við annað
til að láta sem ekkert sé.“
Eigrnr söngvarans eru metnar á
100 milljónir dollara og hann á
fjölbreytt safn listaverka. Ekki er
þó víst að þeim auði verði skipt því
Rachel hefur ekki flutt langt.
„Hún er í nágrenninu og við
hittumst á hveijum degi tíl að
ræða málin,“ sagði söngvarinn.
„Rachel þarf smátíma til að
komast að því hvað hún vill gera
við líf sitt og ég verð bara að sætta
mig við það, þótt það sé erfitt,“
sagði söngvarinn að lokum.