Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 64
84 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ *• Guðmundur Kjart- ansson Norður- landameistari SKAK IV u r í) ii r I a n il a m ó l í skólaskák GAUSDAL, 6.-9. janúar Keppt var í fimin aldursfiokkum. Guðmundur Kjartansson sigraði í yngsta fiokki. GUÐMUNDUR Kjartansson varð Norðurlandameistari í skólaskák 11 ára og yngri. Mótið fór fram í Gausdal í Noregi dag- ana 6.-9. janúar. Sigur Guð- mundar var afar öruggur og var hann búinn að tryggja sér titilinn þegar ein umferð var eftir af mótinu. Þegar upp var staðið var hann með IV2 vinning í forskot á næstu keppendur: 1. Guðmundur Kjartansson 5‘/2 v. 2. Drazen Dragicevich, Svíþj. 4 v. 3. Marta Nestorow, Svíþj. 4 v. 4. Víðir Petersen 3/2 v. o.s.frv. Annar íslenskur keppandi lenti einnig í verðlaunasæti á mótinu, en það var Stefán Kristjánsson, sem náði öðru sæti í flokki fæddra 1982-3: 1. Pontus Carlsson, Svíþjóð 5 v. 2. Stefán Kristjánsson 4 v. 3. Harald Borchgrevink, Noregi 4v. o.s.frv. Davíð Kjartansson sem tefldi í sama flokki og Stefán fékk 3 vinninga og lenti í fimmta sæti. í elsta flokki (fæddir 1979-81) kepptu þeir Bergsteinn Einars- son og Bjöm Þorfinnsson. Þeir fengu báðir 3 vinninga og lentu í 7.-9. sæti. I aldursflokknum 1984-5 tefldu fékk Guðjón H. Valgarðsson 3Vz vinning og lenti í fjórða sæti, en Stefán Bergsson fékk vinningi minna og lenti í ní- unda sæti. í næstyngsta flokki (fæddir 1986-7) fékk Dagur Arn- grímsson 3'/2 vinning og endaði í fimmta sæti, en Helgi Egilsson fékk 2V2 vinning og hafnaði í átt- unda sæti. Þegar vinningar einstakra landa eru lagðir saman fær Sví- þjóð flesta vinninga eða 39, en ís- land er í öðru sæti með 34 vinn- inga. Finnar eru síðan í þriðja sæti með 33 vinninga. Athyglis- vert er að ekkert Norðurland- anna náði að sigra í fleiri en ein- um flokki. Firmakeppni TR Taflfélag Reykjavíkur stendur fyrir firmakeppni í hraðskák dag- ana 12.-15. janúar. Tefldar verða undanrásir þar sem keppendur draga um fyrir hvaða fyrirtæki þeir tefla. Efstu fyrirtækin kom- ast síðan í úrslit sem tefld verða mánudagskvöldið 1. febrúar. Öll- um er heimil þátttaka í firma- keppninni og er þátttaka ókeypis. Veitt verða peningaverðlaun fyr- ir bestan árangur úr samanlagt fjórum mótum sem hér segir: 1. verðlaun kr. 15.000 2. verðlaun kr. 10.000 3. verðlaun kr. 5.000 Veitt verða sérstök unglinga- verðlaun (14 ára og yngri) fyrir bestan árangur úr samanlagt fjórum mótum sem hér segir: 1. verðlaun kr. 5.000 2. verðlaun kr. 3.000 3. verðlaun kr. 2.000 í úrslitakeppninni sem fram fer mánudaginn 1. febrúar verða veitt sérstök verðlaun: 1. verðlaun kr. 8.000 2. verðlaun kr. 5.000 3. verðlaun kr. 3.000 Arangur í úrslitum getur einnig talist til árangurs í heild- arkeppninni. Ávallt verða tefldar 7 umferðir eftir Monrad kerfi, tvær skákir við hvern andstæð- ing. Umhugsunartími er 5 mínút- ur. Taflmennskan hefst stundvís- lega kl. 20 öll kvöld. Fullorðinsmót Hellis Taflfélagið Hellir hefur nú með nýju ári ákveðið að hleypa af stokkunum nýjum þætti í starf- semi félagsins þar sem boðið verð- ur upp á skákmót fyrir 25 ára og eldri. Þessi skákmót verða einu sinni í mánuði til að byrja með. Fyrsta Fullorðinsmót Hellis verður haldið mánudaginn 18. jan- úar. Mótið hefst kl. 20. Teflt verð- ur í Hellisheimilinu, Þönglabakka 1 í Mjódd. Tefldar verða 7 skákir eftir Monrad kerfi með 10 mín- útna umhugsunartíma. Þátttaka er ókeypis á þessu fyrsta móti. Eins og áður segir eru mótin einungis ætluð 25 ára og eldri. Félagið hvetur alla skákmenn á besta aldri að fjölmenna á þetta fyrsta Fullorðinsmót Hellis. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson ISIS IIIS ef er stundvíslega fyrir kl. -------------------------- 19.30. á mánudagskvöldum í I! 111 s j ó 11 Ar 11 ó r (1. Þönglabakka 1. Spilastjóri er ísak Ragnarsson Örn Sigurðsson. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Við höfum ákveðið að fresta Að- alsveitakeppni félaganna til 1. mars nk. Þangað til munum við spila tvímenningskeppni öll mánu- dagskvöld. Mánudaginn 18. jan. nk. verður spilaður 1 kvölds tvímenningur, " Mitchell. Mánudaginn 25. janúar nk. hefst 5 kvölda Aðalbarómeter. Upplýsingar hjá BSI, sími 587 9360, hjá Olínu í síma 553 2968, og hjá Ólafí í síma 557 1374. Þá er hægt að skrá sig - Reykjanesmót í sveitakeppni Reykjanesmót í sveitakeppni, sem jafnframt er undankeppni Is- landsmótsins, verður haldið um næstu helgi, 16. og 17. janúar. Spil- að verður í félagsheimili bridsspil- ara á Suðurnesjum á Mánagrund og hefst spilamennskan kl. 10 á laugardag. Fimm sveitir munu komast í undanúrslit fslandsmótsins í vor og verða spiluð a.m.k. 140 spil. Keppnisgjald á sveit er 10 þúsund krónur. Spilað er um silfurstig. Indversk matreiðsia Sykur-, ger-, hveiti-, gluten- og mjólkurafurðalaus. Mánudaginn 10. janúarkl. 18.30-21.30. Námskeið á góðu verði. Skráning hjá Shabönu í símum 899 3045 og 581 1465. í DAG Með morgunkaffinu ÞRJÁ grautar- diska! Einn of heitan, einn of kaldan og einn mátulegan. HÖGNI HREKKVÍSI COSPER GETURÐU ekki flautað eitthvað annað en „Úr 50 senta glasinu...“? VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ógleymanleg fagmennska og hjartahlýja VIÐ, undirrituð, biðjum Morgunblaðið að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra er aðstoðuðu okkur er faðir okkar og afi, Abel D’alencar, veikt- ist hastarlega í þotu Flugleiða skömmu fyrir lendingu í Keflavík að morgni 6. janúar. Faðir okkar fékk hjartaáfall en við vorum á leið frá Bandaríkjunum til Stokk- hólms með viðkomu í Keflavík. Höfum við aldrei kynnst viðlíka fag- mennsku og einkenndi viðbrögð starfsmanna, bæði flugfélagsins og Fé- lagsþjónustunnar, sjúkra- flutningamanna og starfs- fólks sjúkrahússins. Sá mikli mannkærleiki og sú mikla hlýja sem allt þetta fólk sýndi okkur við þess- ar erfiðu aðstæður mun aldrei hverfa okkur úr minni. Sérstaklega viljum við þakka Sigrúnu Ólafsdótt- ur hjá Félagsþjónustunni fyrir þá miklu hjálp er hún veitti okkur. Hún annaðist alla skipulagn- ingu og var okkur innan handar að öllu leyti. Eins viljum við þakka starfs- fólki Hótels Esju kærlega alúðlegt viðmót. Þar dvöldum við fram á mánudag en þá töldu sér- fræðingar þeir sem ann- ast höfðu föður okkar að honum væri óhætt að halda áfram förinni heim til Svíþjóðar. Kynni okkar af Islend- ingum verða okkur öllum ógleymanleg. Orð fá ekki lýst þakklæti okkar en þau verða að duga. Kærar kveðjur til allra þeirra er aðstoðuðu okk- ur og komu föður okkar og afa til hjálpar. Virðingarfyllst, Abel D’alencar, Blanca Azero, Ana María D’alencar og Martín Azero, Stokkhólmi. Leit að kremi KONAN sem benti á krem í Velvakanda líklega í desember er beðin að hafa samband við Ernu í síma 552-1068. Tapað/fundið Barnagleraugu týndust í NÓVEMBER sl. týnd- ust barnagleraugu, stæm gerð. Spangirnar eru kop- argulllitaðar, einlitar. Finnandi vinsamlega haf- ið samand við Maiíu í síma 557 6621 eða 569 9032. Fundarlaun. Dýrahald Ronja er týnd SVARBRÚN og gulyrjótt læða, blandað skógar- kattakyn, týndist um mánaðamót nóvember- desember frá Grettisgötu. Hún er ómerkt og ekki með ól. Þeir sem hafa orð- ið hennar varir hafí sam- band í síma 869 0905. Margrét. SKAK Umsjón Margeir I’étursson Rh5+ - Kg6 20. Dd4 og Kín- verjinn gafst upp, því hann getur ekki varið mát á bæði g7 og f6. STAÐAN kom upp í opna flokknum á al- þjóðamótinu í Gron- ingen fyrir áramótin. Skákkonan A. Skriptsjenko (2.420) frá Úkraínu hafði hvítt og átti leik gegn kín- verska stórmeistaran- um Ye Rongguang (2.535) 18. Rxg7! - Kxg7 19. HVITUR leikur og vinnur. Víkverji skrifar... MYND Páls Steingrímssonar um lundann, sem sýnd var í ríkissjónvarpinu í fyrrakvöld, er ein- hver bezta mynd, sem sýnd hefur verið í íslenzku sjónvarpsstöðvunum um langt skeið. Myndin sýnir með skemmtilegum og á köflum ótrúleg- um hætti lifnaðarhætti þessa fugls, sem er hafður í svo miklum háveg- um í Vestmannaeyjum og annars staðar, þar sem hann kemur við sögu. Um leið og myndin er skemmtileg fyrir fullorðna er hún ekki síður fróðleg og gagnleg fyrir börn og unglinga. Mynd sem þessi vekur spurningar um, hvort kvikmyndaefni af ýmsu tagi úr íslenzkri náttúru geti ekki verið eftirsótt útflutningsvara. Við þekkjum sjálf hvað náttúrulífs- myndir frá öðrum löndum eru vin- sælt sjónvarpsefni hér. Það sama hlýtur að eiga við um íslenzkar nátt- úrulífsmyndir í öðrum löndum. AD er ánægjulegt að sjá, að ís- landsflug hyggst hefja reglu- legt leiguflug til Kaupmannahafnar á þessu ári, tvisvar í viku hluta úr ári. Samkeppni er nauðsynleg á flugleiðum á milli íslands og ann- ari-a landa en því miður hefur orðið minna úr henni en ástæða væri til. xxx ORKAN auglýsir benzínlítrann á 10 krónum lægra verði en gildir hjá olíufélögunum á hinum almennu benzínstöðvum þeirra. Slíkur verð- munur bendir óneitanlega til þess, að eitthvert svigrúm sé til lægra benzínverðs en við búum við. xxx STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR eru nú bersýnilega að hefja und- irbúning að kosningabaráttu, sem búast má við að verði býsna hörð og verður háð við gjörbreyttar aðstæð- ur miðað við það, sem tíðkazt hefur frá lýðveldisstofnun. Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir um þessar mundir opna fundi hjá mál- efnanefndum flokksins, sem eru að undirbúa ályktanir landsfundar, sem haldinn verður í marz. Framsóknarflokkurinn virðist samkvæmt auglýsingu, sem birtist í Morgunblaðinu um helgina, ætla að helga sér miðjuna og lendir þá væntanlega í hörðum slag um það við Samfylkinguna. Augljóst er að vinstri hreyfing fyrrverandi þingmanna Alþýðu- bandalagsins hefur styrkzt við þá ákvörðun Kristínar Halldórsdóttur að ganga til liðs við hana og Sveirir Hermannsson hefur boðað til fundar sinna stjórnmálasamtaka nú í janú- ar. Framundan eru prófkjör á veg- um Samfylkingarinnar. Allt er þetta vísbending um að harður pólitískur vetur sé framundan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.