Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Svífðu í léttan leik á mbl.is með Pétri Pan og félögum
og þú gætir unnið miða á sýninguna, geisladiskinn
með tónlistinni úr sýningunni eða ferð fyrir tvo til
London með Samvinnuferðum-Landsýn.
Um þessar mundir er ævintýrið um Pétur Pan sýnt í Borgarleikhúsinu.
Það fjallar um strákinn sem býr í Hvergilandi og vill ekki verða fullorðinn.
Taktu flugið inn á mbl.is, taktu þátt í leiknum og hver veit nema þú vinnir!
áKLEÍKFÉLAG//3
g^REYKJAVÍKmjg
Samvinnuferðir
Landsýn
<S>mbl.is
-J\LL.7y\/= e/7TiVVÍ4£7 AIÝI /""
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
Óli í Sandgerði AK
kominn á Skagann
Fyrsta nýja skipið sem HB kaupir frá
árinu 1964 er Höfrungur III kom
NÝTT nóta- og togskip bættist í
flota Haraldar Böðvarssonar hf.
hinn 10. janúar 1999, þegar Óli í
Sandgerði AK 14 kom til heima-
hafnar á Akranesi. Skipið er keypt
nýtt frá Noregi og er fyrsta nýja
skipið sem kemur til HB hf. frá ár-
inu 1964, þegar Höfrungur III var
keyptur. Hann var fyrsta fiskiskip
í heiminum með hliðarskrúfur.
Skipið er 60,9 metra langt og
11,6 metra breitt, með 4.700 hest-
afla vél og ber 1.100 tonn. Skipið
er búið fullkomnustu tækni með
tilliti til meðhöndlunar á afla og er
sérstaklega vel útbúið til nóta-
veiða, en er einnig mjög hæft til
togveiða.
Byrjar á loðnu
Skipið heldm- til veiða fyrir
mánaðamót og fer þá á loðnu. Það
verður á loðnu út vertíðina en fer
svo á síld, loðnu og kolmunna í sum-
ar. HB gerir nú út níu skip, þar af
þrjú loðnuskip. Ætlunin er að selja
eitt þeirra alveg á næstunni og
annað seinna á árinu. Um næstu
áramót bætist svo nýtt skip í flota
HB, en það er nú í smíðum í Chile.
Heitir eftir
Olafi Jónssyni
Óli í Sandgerði heitir eftir Ólafí
Jónssyni, sem fæddur var á
Bræðraparti á Akranesi árið 1907
og lést árið 1975. Ólafur réðst árið
1927 til starfa hjá Haraldi Böðvars-
syni á Akranesi, en síðar í Sand-
gerði. Hann gerðist meðeigandi
Hai-aldar ásamt félaga sínum Sveini
Jónssyni árið 1933. Frá árinu 1941
ráku þeir Ólafur og Sveinn, og síðar
börn Ólafs, staifsemina í Sandgerði
undir nafninu Hf. Miðnes, allt þar
til Miðnes var sameinað Haraldi
Böðvarssyni hf. á árinu 1997.
Dótturdóttir Ólafs, Lára Nanna
Eggertsdóttir, gaf skipinu nafn og
séra Eðvarð Ingólfsson, sóknar-
prestur á Akranesi, flutti blessunar-
orð.
Kvótakerfí í Perú?
STJÓRNVÖLD í Perú hyggjast
beita kvótakerfi við veiðar á
vannýttum tegundum. Japanska
hafrannsóknaskipið Shinkai Maru
hefur fundið tölvert af áður ónýtt-
um fiskitegundum á djúpu vatni
undan ströndum landsins. Þar er til
dæmis um að ræða krabba, búra,
lýsing, ál og fieiri tegundir.
Kvótunum verður úthlutað til
skipa skráðra í Perú. Þau verða að
hafa veiðileyfi og vera með búnað til
gervihnattaeftirlits. Strandveiðiflot-
inn fær ekki slíka kvóta, en hugsan-
lega kemur einnig til gi'eina að út-
hluta kvótum við veiðar á flökku-
fiskum.
Þeir sem fá kvóta munu greiða
fyrir veiðiheimildirnar samkvæmt
frétt í Fishing News International,
en upphæðin hefur enn ekki verið
ákveðin.
■ M —
■ ^JJóteireLátury oátar, urómíði, áukhulax5L.. . S^uÍ4iÍendincj.um er marcjt tiliiita Íacjt Kynntu þér spennandi hótelnám við IHTTI hótel- skólann í Sviss. Fulltrúi frá skólanum heldur upplýsingafund í þingsal 1 á Hótel Loftleiðum mánudaginn 18. janúar kl. 16:30. IHTTI býður upp á: 3ja ára BA ttátn í atþjóðlegum hótelfrœðum j 2 1/2 árs nám í hótelstjórnun ; 1 árs framhaldsnátn i hótelrekstri 1 árs grutttmámskeið «=-'v / < \ School of Hotel Management, Neuchatcl, Sviss Qfríl'lflj'D ° Heimasíða: http://www.ihtti.ch —y
■ ■ __Z