Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Þrefaldur metdagur á Verðbréfaþinffl Islands í gær
Hlutabréfaviðskipti námu
hálfum milljarði króna
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
FLUGLEIÐABRÉF tóku flugið á hlutabréfamarkaði í gær og hækkaði gengi þeirra um rúm 13%.
Úrvalsvísitalan
hækkaði
um 4,47%
ÞRJÚ met voru slegin í viðskiptum
á Verðbréfaþingi Islands (VÞÍ) í
gær. Um var að ræða mestu hluta-
bréfaviðskipti á einum degi, flest
hlutabréfaviðskipti á einum degi og
flest heildarviðskipti á einum degi.
Heildarviðskipti á VÞÍ í gær námu
alls 835 milljónum króna. Hlutabréf
flestra félaga VÞÍ hækkuðu í verði í
gær og hækkaði úrvalsvísitalan um
4,47%. Hlutabréf í Flugleiðum hf.
hækkuðu mest eða um 13,1%.
Hlutabréfaviðskipti gærdagsins
námu rúmum 502 milljónum ki'óna
en eldra metið, sem sett var 28. nóv-
ember sl., var 368 milljónir. Hluta-
bréfaviðskipti voru samtals 353 í
gær en eldra metið var 300 viðskipti
hinn 30. desember 1994. Þá var
heildarfjöldi viðskipta 367 í gær en
eldra metið var 334, einnig frá 30.
desember 1994.
Mest viðskipti vora með bréf
Eimskipafélagsins eða fyrir 116
milljónir að markaðsvirði og Flug-
leiða eða fyrir 98 milljónir króna. Þá
námu viðskipti með hlutabréf
Tryggingamiðstöðvarinnar 40 millj-
ónum, FBA 37 milljónum, Opinna
kerfa 24 milljónum og Samherja 22
milljónum.
Hækkun hjá flestum félögum
Töluverð hækkun varð á gengi
hlutabréfa í gær. Flugleiðabréf
hækkuðu mest eins og áður sagði,
eða um 13,1%, bréf Pharmaco um
12,3%, Síldarvinnslunnar um 8%,
Tæknivals um 7,9% Eimskipafé-
lagsins um 5,9%, Nýherja um 5,9%,
Skeljungs um 5,7%, Tryggingamið-
stöðvarinnar um 5,6%, Granda um
5,2%, Þróunarfélagsins um 5,2%,
SH um 5%, Vinnslustöðvarinnar um
4,2% og Samherja um 3,9%. Aðeins
varð lækkun á gengi hlutabréfa í
einu félagi, Eignarhaldsfélaginu Al-
þýðubankanum hf. og lækkaði gengi
þeiiTa um 3,2%.
Úrvalsvísitala VÞÍ hækkaði um
4,47% í gær og er það langmesta
hækkun á einum degi á síðari árum
að því er fram kemur í frétt frá
þinginu. Metið, sem er 5% hækkun,
var sett 10. mars 1993, eða á fyrsta
árinu sem hlutabréfavísitalan nær
til. Þá var hlutabréfamarkaðurinn
mun minni, viðskipti færri og verð-
breytingar meiri en nú og því ekki
líku saman að jafna. Metdaginn 10.
mars 1993 námu heildarviðskiptin
t.d. minna en fjórum milljónum
króna og þá voru bréf sautján fé-
laga skráð á þinginu. Nú eru hins
vegar hlutabréf 68 félaga skráð á
VÞÍ.
EIGNARHLUTUR og atkvæða-
réttur ÍS-15, fjárfestingarsjóðs
Búnaðarbankans, í Flugleiðum hf.
hefur hækkað undanfarið og er nú á
milli 5-6% af heildarhlutafé félags-
ins.
Árni Oddur Þórðarson, forstöðu-
maður Markaðsviðskipta Búnaðar-
bankans, segir kaupin að mestu
hafa átt sér stað síðustu 2-3 mán-
uði. Hann segir ljóst að rekstur og
afkoma Flugleiða undanfarin tvö ár
hafí verið óviðunandi og valdið tölu-
verðum vonbrigðum. „Þó virðist
hafa orðið jákvæður umsnúningur á
rekstrinum á vormánuðum nýliðins
árs. Ytri aðstæður eru hagfelldar,
þróun eldsneytisverðs, vaxta og
gjaldmiðla hafa verið með þeim
hætti að horfur félagsins eru nú
nokkuð góðar að okkar mati. Miðað
við núverandi gengi hlutabréfanna
Tilkynnt utanfélagsviðskipti með
hlutabréf námu 180 milljónum
króna í gær, mest með bréf SIF fyr-
ir um 60 milljónir króna á genginu
5,90-5,97.
höfum við hug á að fylgja félaginu
út þetta ár og sjá til hvernig málin
þróast í framhaldinu. Við getum þó
ekki litið á hlutabréfm sem áhættu-
lausa eign enda mikil óvissa fólgin í
flugi'ekstri líkt og fortíðin hefur
kennt okkur.“
Sala hótelanna
skynsamleg
Árni Oddur telur sölu hótelanna í
síðustu viku skynsamlega ákvörðun.
„Samkvæmt áætlunum forsvars-
manna Flugleiða er mikill vöxtur
framundan í flugstarfsemi félagsins
og til að mæta því þarf að fjárfesta í
nýjum flugvélum. Þar sem fjár-
munamyndun síðustu ára var jafn
lítil og raun ber vitni var einungis
um tvennt að velja fyrir forsvars-
menn félagsins, að draga saman
seglin eða losa um eignir til aukinna
Spennandi tími framundan
á hlutabréfamarkaði
Sérfræðingar á verðbréfamark-
aði, sem Morgunblaðið ræddi við í
fjárfestinga í flugvélakosti. I stað
þess að grípa til varnaraðgerða
vegna óviðunandi afkomu síðustu
ára ákveður félagið að blása til
sóknar með nýfjárfestingum."
Ámi Oddur segir að með þessum
aðgerðum og hugsanlegri stækkun
Hótels Esju í samvinnu við Þyrp-
ingu, megi ætla að félagið nái betri
nýtingu á þeim fasta kostnaði sem
fólgin er í mikilli yfírbyggingu mið-
að við smæð félagsins á alþjóðavísu.
„Við söknum þó að fjárfestum hafí
ekki verið gerð nægileg grein fyrir
áhrifum þess á reksturinn að greiða
leigu í stað vaxta af fjármögnun
hótelbygginga“.
Að sögn Arna Odds hefur ÍS-15
sjóðurinn náð því markmiði sínu að
gera betur en Úrvalsvísitala Verð-
bréfaþings á þeim sex mánuðum
sem hann hefur verið starfræktur.
gær, voru sammála um að spenn-
andi yrði að fylgjast með hlutabréfa-
markaðnum á næstu vikum, ekki
síst þar sem nú gengur brátt í garð
tími ársuppgjöra.
Rósant Már Torfason, viðskipta-
stofu íslandsbanka, segir að dagur-
inn hafi óneitanlega minnt á
stemmninguna á hlutabréfamark-
aðnum vorið 1997 þegar gengi hluta-
bréfa hækkaði dag frá degi og mikil
velta var á markaðnum. „Þær hækk-
anir reyndust óraunhæfar. í kjölfar-
ið á afkomubirtingum fylgdi síðan
nokkurra mánaða niðursveifla.
Ástæður hækkunar á hlutabréfum
Flugleiða má rekja til fréttatilkynn-
ingar um eignasölu og væntingar
um betri rekstur á þessu ári en hinu
síðasta. Hækkun á Eimskipsbréfum
má að einhverju leyti rekja til hækk-
unar á gengi Flugleiða, Burðarás er
stór eigandi að Flugleiðum, auk
væntinga um góða afkomu á síðasta
ári.“
Mikil eftirspurn en lítið framboð
Rósant segir að hækkanirnar í
gær vii'ðist annars einkennast af
mikilli eftirspurn en litlu framboði.
,M einhverju leyti skýrist þessi eft-
irspurn af því að hlutabréfasjóðir
eru nú að fjárfesta fyrir það fé sem
streymdi inn í lok desember. Það
kemur síðan í ljós á næstu mánuð-
um, þegar ársuppgjör fyrirtækja
fyrii' síðasta ár fara að birtast, hvort
þau standi undir þessum hækkun-
um. Tíu mánaða uppgjör Haralds
Böðvarssonar hf. gefur ekki tilefni
til mikillai' bjartsýni hvað varðar af-
komu sjávarútvegsfyi'irtækja. Ef
þessar hækkanir halda áfram mæli
ég eindregið með því að fjárfestar
fari að huga að því að selja bréf sín,
minnugur þess hvað það getur verið
erfitt að selja bréf þegar markaður-
inn byrjar að lækka aftur, eins og
við sáum síðari hluta ársins 1997 og
fyrri hluta ársins 1998,“ segir
Rósant.
„Sjóðurinn hefur eingöngu heimild
til að kaupa í félögum sem Úrvals-
vísitalan er sett saman úr, eða hluta-
félögum sem eru líkleg til að vera
þar í náinni framtíð. Meginhluti
hagnaðar ÍS-15 hefur komið frá
fjárfestingum í Tryggingamiðstöð-
inni hf., Sjóvá-Almennum, Flugleið-
um að ógleymdum þegar innleystum
hagnaði af hlutabréfum í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins."
Heildarviðskipti með bréf Flug-
leiða í gær námu tæplega 24 millj-
ónum króna að nafnvirði eða 98
milljónum að markaðsvirði. Loka-
gengið var 4,05 sem er 13,1% hækk-
un frá fyrri viðskiptadegi. Sé tekið
mið af núverandi gengi hlutabréfa
félagsins, liggur markaðsvirði þess
nálægt 9,5 milljörðum króna og hef-
ur hækkað um u.þ.b. 1.500 milljónir
frá áramótum.
/
Fjárfestingarsjóður Búnaðarbankans, IS-15
Eignarhlutur í Flugleiðum yfír 5%
Frá vísindum til verðbréfa
ísland í alþjóðlegu umhverfi nýsköpunar og áhættufjármagns
Ráðstefna á Hótel Loftleiðum 15. janúar 1999
Frummælendur:
Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Alfred R. Berkeley forstjóri NASDAQ
Vilhjálmur Lúðvíksson framkvœmdastjóri Rannsóknarráðs Islands
Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri Verðbréfaþings
Páll Kr. Pálsson framkvœmdastjóri Nýsköpunarsjóðs
Gylfi Ambjömsson framkvœmdastjóri Eignarhaldsfélags Alþýðubankans
Jóhann Viðar Ivarsson deildarstjóri Kaupþings
Ráðstefnustjóri:
Vilhjálmur Egilsson framkvœmdastjóri Verslunarráðs
Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn hf.
Jk
AFLVAKI"
4
m
KAUPÞING HF
Viðskipta- og
iðnaöarráöuneytið
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR
VERSLUNARRAÐ
(SLANDS
VERÐBRÉFAÞING
RANIUIS
Ráðstefnan hefst kl. 13:30. Þátttökugjald er 3.000 kr. Skráning er hjá Rannsóknarráði íslands í síma 562 1320