Morgunblaðið - 27.09.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 41
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
AÐALHÆTTAN í umhverfi vagnanna hefur verið þegar börn
hlaupa út á akbraut fyrir framan eða aftan vagnana á viðkomu-
stöðvum þeirra. Hér leiðbeinir lögreglan börnunum hvernig
rétt skal að staðið.
Tæplega 2000 börn heim-
sækja SVR á Kirkjusand
Málþing
Norræna
félagsins
UM þessar mundir eru 75 ár liðin
frá stofnun Norræna félagsins á ís-
landi. Félagið var stofnað árið 1922
til þess að hvetja til aukins sam-
starfs Norðurlandaþjóðanna á sem
fiestum sviðum. Mörg baráttumál
Norræna félagsins hafa orðið að
veruleika og eru sjálfsögð gildi í dag.
í tilefni af 75 ára afmæli Norræna
félagsins efnir menningarmálanefnd
félagsins til málþings í Norræna
húsinu, sunnudaginn 28. september,
kl. 15.30. Efni málþingsins er staða
Norðurlanda í Evrópu og hvernig
! norrænt samstarf getur þróast í
þeim öru breytingum sem nú verða.
Fyrirlesarar verða íslenskir stjórn-
málamenn, einkum þeir sem sitja í
Norðurlandaráði eða hafa unnið
mikið að norrænum málefnum, en
einnig ungt fólk frá stjórnun nem-
endafélaga framhaldsskóla. Stjórn-
andi umræðna verður Haraldur Ól-
afsson, prófessor. Allir eru velkomn-
ir á málþing Norræna félagsins.
Sambandsþing Norræna félagsins
sem er haldið annað hvert ár fer
fram að Nesjavöllum nú um helgina
með 70 fulltrúum af öllu landinu auk
erlendra gesta. Á þinginu verður
m.a. horft til baka og rilj'aður upp
hluti af sögu félagsins, þegar hafist
var handa við byggingu norrænnar
hallar á Þingvöllum um miðja þessa
öld. Einnig verður horft til framtíðar
og kynnt á sambandsþinginu nýtt
verkefni Norræna félagsins sem snýr
að ungu fólki.
j Alþjóðadagur
heyrnarlausra
ALÞJÓÐADAGUR heymarlausra
verður haldinn sunnudaginn 28. sept-
ember nk. Á þessum degi nota heyrn-
arlausir víða um heim tækifærið til
að vekja athygli á samfélagi heyrnar-
lausra og hagsmunamálum sínum.
Félag heyrnarlausra var stofnað
árið 1960 og er heildarsamtök heyrn-
arlausra á Islandi. Markmið félagsins
er að bæta stöðu heyrnarlausra og
heyrnarskertra í samfélaginu, stuðla
að réttindum þeirra til jafns við aðra
og ijúfa félagslega einangrun þeirra
með öflugu félagslífi, fræðslu og ráð-
gjöf. Einnig miðar félagið að því að
koma upplýsingum til almennings um
heyrnarleysi, menningu og tungumál
heyrnarlausra.
í ár eru 10 ár liðin frá því fyrsti
alþjóðlegi bráttudagur heyrnar-
| lausra var haldinn hátíðlegur. Af því
tilefni hefur Félag heymarlausra
i ákveðið að efna til kynningarátaks
I á menningu og tungumáli heyrnar-
lausra. Haldnir verða menningar-
dagar dagana 2. október til 9. nóv-
ember þar sem lögð er áhersla á að
kynna menningu heyrnarlausra.
Einnig mun félagið standa fyrir
kynningarátaki undir slagorðinu ís-
lenskt táknmál er okkar mál m.a.
með auglýsingum í strætisvagna-
skýlum á meðan menningardagar
heyrnarlausra standa yfir.
Dagskrá á degi heyrnarlausra
verður sem hér segir: Hátíðarhöldin
hefjast kl. 14 á Ingólfstorgi þar sem
sr. Miyako Þórðarson messar. Tákn-
málskórinn ásamt Kór Biskups-
tungna syngur. Að lokinni messu
flytur Margareth Hartvedt ávarp.
Kvikmyndasýn-
ingar í Norræna
húsinu
KVIKMYNDASÝNINGAR eru fyrir
börn í Norræna húsinu alla sunnu-
daga kl. 14. Sunnudaginn 28. sept-
ember verður sýnd norsk teikni-
myndasyrpa.
Sýndar verða tvær norskar teikni-
myndir. „Pappabussen", gerð eftir
sögu Bjorn Ronningen og „Flyndra"
Ísem byggir á gömlu ævintýri um
fátæk hjón sem eru að veiða og fá
t risafisk á öngulinn. Norskt tal, 26
i mín. Allir eru velkomnir og aðgang-
ur ókeypis.
SVR og lögreglan í Reykjavík
hafa um árabil boðið einum ár-
gangi grunnskólanema ásamt
kennara á Kirkjusand til um-
ferðarfræðslu.
16. september hófst þessi
fræðsla í ár. Umferðarfræðslan
er fyrir öll 8 ára börn á starfs-
svæði lögreglunnar í Reykjavík.
Áætlað er að verkefninu ljúki í
lok október en þá verða þátttak-
endur orðnir tæplega 2000 tals-
ins.
Fræðslan er blanda af alvöru
og leik. Farið er yfir helstu
hættur umhverfis strætisvagna
og biðstöðva þannig að draga
megi úr líkum á slysi. Aðalhætt-
Hjónastarf
Neskirkju
BENEDIKT Jóhannsson, sálfræð-
ingur hjá fjölskylduþjónustu kirkj-
unnar, verður gestur í hjónastarfi
Neskirkju á sunnudagskvöld, 28.
september, kl. 20.30.
Hann ræðir um efnið Gott hjóna-
band - hvað þarf til? Þar ræðir hann
um ýmislegt sem einkennir farsælt
hjónaband og hvernig hægt er að
vinna að því. Benedikt hefur áður
verið með erindi um svipað efni í
Neskirkju og var mjög góður rómur
gerður að því, segir í fréttatilkynn-
ingu. Fundurinn verður í safnaðar-
heimilinu í kjallara kirkjunnar og er
öllum opinn.
Aðrir fundir á haustmisseri eru
sem hér segir: 26. október: Stjúpfjöl-
skyldan. Sigtryggur Jónsson, sál-
fræðingur, kemur í heimsókn og
ræðir efnið. 23. nóvember: Að styrkja
fjölskylduböndin - einkum við ungl-
inginn. Sæmundur Hafsteinsson, sál-
fræðingur og formaður Vímulausrar
æsku, fjallar um það mál.
Bylgjuball
á Hótel íslandi
HALDIÐ verður Bylgjuball á Hótel
íslandi í kvöld, laugardagskvöld.
Á ballinu koma fram hljómsveit-
irnar SSSól og Sniglabandið en auk
þeirra treður Páll Oskar Hjálmtýs-
son upp með sína dagskrá.
LEIÐRÉTT
Villur í minningargrein
Z-VILLUR og fleiri villur slæddust
inn í minningargrein Steingríms
St.Th. Sigurðssonar um Hrein
Svavarsson í blaðinu föstudaginn 26.
sept. Auk þess voru sams konar vill-
ur í æviágripi, sem Steingrímur rit-
aði einnig. Villurnar eru ekki frá
höfundi komnar heldur eru þær á
ábyrgð blaðsins. Er Steingrímur beð-
inn afsökunar á mistökunum.
an í umhverfi vagnanna hefur
verið þegar börn hlaupa út á
akbraut fyrir framan eða aftan
vagnana á viðkomustöðvum
þeirra. Oftar en ekki virðast bíl-
stjórar ekki gera sér grein fyrir
þeirri hættu sem skapast getur
við biðstöðvarnar því ekki er
óalgengt að ekið sé á miklum
hraða fram úr vagni sem er á
biðstöð. Börnin fá jafnframt
sýnikennslu um notkun gang-
brauta og gangbrautarljósa og
spreyta sig á notkun þeirra.
Til að gera heimsóknina sem
ánægjulegasta og eftirminnileg-
asta er brugðið á leik, spilað,
sungið og sprellað.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Valdi-
mari Jónssyni f.h. Hugvers ehf.
vegna fréttar Morgunblaðsins um
kæru Microsoft á hendur Hugveri
ehf.:
„í tilefni af frétt í Morgunblaðinu
vil ég taka eftirfarandi fram fyrir
hönd Hugvers ehf.
Þann 15. september sl. ræðst
hartnær tugur rannsóknarlögreglu-
manna inn í verslun Hugvers ehf.
Vitastíg 12 í Reykjavík sem ertölvu-
fyrirtæki í eigu undirritaðs. Aðförin
er um miðjan dag og eru viðskipta-
vinir burtrækir, öll símtöl rofin, hús-
rannsókn framkvæmd og bókhalds-
gögn gerð upptæk. Framlagt kæru-
efni er brot á höfundarlögum, þ.e.
meint ólögleg dreifing á Windows
95.
Um önnur kæruefni er mér eða
lögmanni mínum ekki kunnugt, and-
stætt því sem ráða má af frétt blaðs-
ins. Er óskað eftir því að blaðið
upplýsi það mál nánar. Hvað varðar
þau sakarefni sem mér hafa verið
kynnt, s.s. að dreifa með ólöglegum
hætti Windows 95 neita ég þeim
alfarið f.h. Hugvers ehf.
Hvort sem það tengist ófullnægj-
andi árangri af umræddri húsleit eða
ekki Iiggur nú fyrir skv. frétt Morg-
unblaðsins að hinir opinberu rann-
sóknaraðilar heimsækja nú við-
skiptavini Hugvers og beiðast að-
gangs að tölvum í þeim tilgangi að
fá kæruefni staðfest.
Mál þetta virðist meðhöndlað eins
og fíkniefnamál eða annað stór-
glæpamál af rannsóknaraðila fremur
en brot á höfundarrétti af því tagi
sem kærandi mun hafa sagt í fjöl-
miðlum að væri landlægt. Má spyija
að því hvort framgangan sé undir
áhrifum af því hver kærir. Ef mér
til efs að nokkur fordæmi séu fyrir
því að sambærileg mál hvað t.d.
refsiramma varðar hafi verið rann-
sökuð af slíku offorsi.
Það er augljóst mál að viðskipta-
tjón Hugvers ehf. vegna þessarar
Aðalfundur
Heimdallar
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, stendur
fyrir fjölbreyttri dagskrá laugardag-
inn 27. september. Klukkan 15 verð-
ur kynningarfundur á starfsemi fé-
lagsins með áherslu á menntamál.
Frummælendur eru Elsa B. Vals-
dóttir, formaður Heimdallar, Illugi
Gunnarsson hagfræðingur og Björn
Bjarnason menntamálaráðherra.
Kl. 20 hefst aðalfundur félagsins.
Á dagskrá hans eru hefðbundin aðal-
fundarstörf en auk þess mun heið-
ursgestur fundarins, Pétur Blöndal
alþingismaður, flytja ávarp. Að aðal-
fundinum loknum verður opið hús
þar sem tónlist og dans munu duna
fram eftir nóttu. Opna húsið hefst
kl. 22.30. Allir þessir atburðir eru í
Valhöll og eru allir velkomnir.
Fyrirlestur um
almenningsálit
DAVID Icke heldur fyrirlestur í Ráð-
stefnusölum ríkisins í Borgartúni 6,
laugardaginn 27. september kl. 14.
Icke, sem er fyrrverandi íþrótta-
fréttamaður hjá breska sjónvarpinu
og atkvæðamikill talsmaður Græna
flokksins þar í landi, líkir mannfólk-
inu við fjárhóp sem hvorki taki sjálf-
stæðar ákvarðanir né noti eigin vilja,
segir í frétt frá fundarboðendum.
„Hann heldur því fram að það sé
samtengt net fáeinna mjög auðugra
fjölskyldna, leynireglna og stofnana
sem leggi línurnar fýrir framtíð
mannkynsins á jörðinni. Hann út-
skýrir hvernig þessi öfl, sem hafi
eiginhagsmuni en ekki þroska mann-
eskjunnar að leiðarljósi, hafi orðið
alheimsvald að baki stjórnmálunum
og komi hentugum viðhorfum inn í
almenningsálitið í gegnum fjöl-
miðla,“ segir einnig í tilkynningunni.
aðfarar er gífurlegt og líklega mun
meira en viðurlög meintra sakarefna
hvort sem raunverulegur tilgangur
að baki þessum málatilbúnaði er að
knésetja fyrirtækið eða ekki.
í frétt Morgunblaðsins í gær kem-
ur fram að 46 viðskiptavinir fyrir-
tækisins hafa verið heimsóttir.
Verð ég að harma að viðskiptavin-
ir Hugvers ehf. skuli gjalda þessarar
aðfarar sem hugsanlega byggir á
nýuppteknum eða óvenjulegum
vinnubrögðum rannsóknaraðila. Vil
ég f.h. fyrirtækisins biðja viðkom-
andi afsökunar á þeim óþægindum.
Að framansögðu er ljóst að ég
dreg í efa almennar siðferðilegar
forsendur fyrir harkalegri fram-
göngu við rannsókn málsins. Per-
sónulegt mat á hinum opinbera rann-
sóknaraðila stóð kannski höllum
fæti fyrir vegna annars og ótengds
máls sem ég sjálfur kærði á sínum
tíma og fannst sinnt með eftirgangs-
munum. Opinberir rannsóknaraðilar
leggja hins vegar grunninn að rétt-
arríki og lýðréttindum í þessu landi.
Það er því sjálfsagt og nauðsynlegt
að starfsemi þeirra sé undir smásjá.
Slíkir aðilar verða að hafa traust
borgaranna og verður til dæmis að
ætlast til að þeir gangi uppréttir í
samskiptum við erlend stórfyrirtæki
og innlendar klíkur.
Hvað varðar Microsoft eða lög-
fræðifulltrúa þess finnst mér lítið
leggjast fyrir kappann."
Ath.s. ritstj.
Samkvæmt staðfestum upplýs-
ingum Morgunblaðsins lýtur kæran
á hendur Hugveri að meintri ólög-
mætri hagnýtingu og dreifingu hug-
búnaðar sem bandaríska fyrirtækið
Microsoft á höfundarrétt að. Sam-
kvæmt sömu heimildum er nánar
tilgreint í kærunni að hún lúti að
ólögmætri hagnýtingu á hugbúnað-
arkerfunum MS-DOS og Windows.
Kæruefnið er því ekki takmarkað
við Windows 95.
Athugasemd vegna frétt-
ar um kæru Microsoft