Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2007, Page 101
vopn sem notuð voru á þetta fórnarlamb
voru í hæsta gæðaflokki. Sjaldgæft er
að íslenskar beinagrindur frá þessum
tíma sýni ummerki um mikla ofbeldis-
áverka og árum saman hefur verið deilt
um hversu góð vopnin voru sem menn
notuðu á landnámsöld. Af þessari
höfuðkúpu að dæma má að minnsta
kosti sjá að einn eða tveir landsmanna
áttu mjög góð vopn. Sárið á hvirflinum
var líklega axarsár, miðað við stærð og
afmarkað ummál höggfarsins, á meðan
sárið að aftanverðu hefur annað hvort
verið af völdum axar eða sverðs. Hug-
sanlegt er að árásarmennirnir hafi verið
tveir og miðað við að höggin virðast
hafa komið beint ofan frá á höfuð-
kúpuna má telja líklegt að fórnarlambið
hafi verið tekið af lífi.
Þessi vitnisburður um ofbeldisfull
átök á Mosfelli/Hrísbrú ber saman við
frásagnir Íslendingasagna um ættarerjur
(Helgi Þorláksson 1994, bls. 389-414;
Byock, J. 2001, bls. 207-51). Einkum
samsvarar frásögn í Gunnlaugs sögu
Ormstungu niðurstöðum fornleifarann-
sóknarinnar um ofbeldi á Mosfelli/
Hrísbrú, að minnsta kosti almennt séð.
Sagan segir að um 1020 reið Illugi
svarti með 30 menn til keppinautar síns
Önundar, sem var höfðingi á Mosfelli,
og að Illugi hafi tekið Björn, einn af
ættingjum Önundar, til fanga og drepið
til að hefna fyrir víg (sbr. tilvitnun í
upphafi þessarar greinar).
__________
101
Jesse Byock et.al.
Mynd 9. Litið til norðausturs í átt að Hulduhóli.