Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2007, Page 100
fornu Íslendinga benda til þess að þeir
hafi lifað við mjög erfiðar aðstæður.
Sumt af því sem fundist hefur í
gröfum á Kirkjuhóli má bera saman við
athafnir sem lýst er í Íslendingasögum
og öðrum forníslenskum ritheimildum.
Sem dæmi má nefna endurgrafna beina-
grind sem lögð hafði verið alveg upp
við suðurvegg kirkjunnar á Kirkjuhóli
(mynd 6; sjá einnig mynd 5, snið 4, og
endurgreftrun á mynd 3). Með þessari
endurgröfnu beinagrind af ungum
manni á þrítugsaldri, fannst einnig
fallega útskorið men úr hvalbeini, sem
lýst er í sögunum sem verndargrip gegn
sjúkdómum. Þessi ungi maður þjáðist
reyndar af banvænum sjúkdómi. Í
höfuðkúpu hans má greina meinafræði-
legan kvilla, meðal annars í hægra
gagnaugabeini, sem breiðst hefur út til
nærliggjandi beina. Þetta bendir til
berklaveiki og þess vegna er þessi
höfuðkúpa einn elsti vitnisburður um
berklaveiki á Íslandi. Beinaleifarnar
segja ýmislegt fleira um þennan unga
mann, sem hefur að öllum líkindum
verið óvenjulegur útlits. Hann var með
auka framtönn í efra tanngarði, fjóra
jaxla vinstra megin í neðra tanngarði og
æxli í nefinu. Skemmdir voru í
hryggjarliðum og á mjaðmakúlu sem
bendir til þess að hann hafi hlotið
meiðsl á mjöðmum og hryggjasúlu við
fall eða annað óhapp. Breytingar á
handleggjum og öxlum benda til þess
að hann hafi unnið mikla erfiðisvinnu,
og þurft að draga þunga hluti (Bjarki
Bjarnason og Magnús Guðmundsson
2005, bls. 32-33).
Ofbeldi kom einnig við sögu að
Hrísbrú. Ein beinagrindin virðist hafa
verið fórnarlamb morðs (mynd 7, sjá
einnig snið 2 á mynd 5). Hún er af
manni á fimmtudagsaldri sem var
jarðsettur austan við grunn kirkju-
kórsins. Hann hefur hlotið mikið höfuð-
högg og er gapandi sár vinstra megin á
hvirflinum sýnilegt. Í hnakkann vantar
hluta af höfuðkúpunni. Þessi sár hafa
valdið skjótum dauðdaga. Sárin sýna að
__________
100
Valdamiðstöð í Mosfellsdal
Mynd 8. Brunnin höfuðkúpubrot sem fundust í Hulduhóli, skurði EH 2001-2002. Fjögur höfuð-
kúpubein sennilega úr sama einstaklingi, konu eða karlmanni á fertugsaldri, fundust við upp-
gröftinn árin 2001-2003.