Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
m ________________________
FÓLK í FRÉTTUM
Gjörningaklúbburinn á forsíðu myndlistartímaritsins Siksi
I GJÖRNINGNUM „Blow job“ freistuðu listakonurnar þess að frelsa
risastóran varalit úr viðjum íss vopnaðar hárþurrkum.
í KYNNINGARMYNDBANDINU Gullna hringnum fór Gjörninga-
klúbburinn um landið og heimsótti m.a. Gullfoss og Geysi.
Einu myndlistarmennirnir
sem sjást frá tunglinu
- SIKSI er mjög þekkt myndlistar-
blað?
„Já, það er aðalmyndlistarblaðið í
Skandinavíu sem dreift er út um all-
an heim, á söfn, í skóla, í bókabúðir
og er ein helsta heimild erlendis um
list á Norðurlöndum," segir Eirún.
Greinarhöfundur er listakonan
Aleksandra Mir sem er af pólskum
og sænskum ættum og býr í New
York. Hún gefur Gjörningaklúbbn-
um mjög lofsamlega umfjöllun og tal-
ar um þær sem norræna undrið og
endar greinina á því að aldrei sé að
vita nema Gjörningaklúbburinn eigi
'->» eftir að gera stóra hiuti í framtíðinni.
„Þetta er álíka mikilvægt fyrir
okkur sem myndlistarmenn, að kom-
ast á forsíðu Siksi, eins og fyrir tón-
listannenn að komast á forsíðu RoII-
ing Stone eða Melody Maker,“ segir
Eirún. „En það á eftir að koma í ljós
hvað þessi umfjöllun á eftir að gera
fyrir okkur,“ bætir hún við. „En
þetta er mjög mikill heiður fyrir okk-
ur, ekki síst þar sem við erum ný-
byrjaðar í bransanum," segir Dóra.
Fannst vanta íjörið í myndlistina
Gjömingaklúbburinn varð til í
Myndlistar- og handíðaskólanum
þegar þær stöllur voru þar í námi.
„Gjömingaformið hentar mjög vel
fyrir það sem við höfum áhuga á,“
; segir Dóra, „og líka bara allt sem er
að gerast í kringum okkur."
- Hver var helsta hugmyndin með
klúbbnum fyrst?
,Að gera skemmtilega myndlist,"
segja þær nánast allar í kór. „Hafa
það skemmtilegt,“ segir Jóní. „En
klúbburinn hefur þróast mjög mikið
frá þessum fyrsta einfalda gjörningi
upp í það að vera með mjög fjöl-
breytt efni. Við gerum myndbönd,
Ijósmyndir og notum öll þau efni sem
henta okkur í hvert skipti," segir
Dóra. „Við tökum allt það besta sem
til er í kotinu," segir Jóní.
„Okkur fannst vanta fjörið í mynd-
listina. Það er til svo mikið af leiðin-
legri myndlist. Það er ekkert að því
að myndlistarmenn geri stofumynd-
list, en það er líka það sem flestir eru
að gera hérna, af því það er auðveld-
ara að selja myndir til að hengja upp
á vegg,“ segir Eirún. „Islensk gallerí
hafa líka einbeitt sér að þessari teg-
und myndlistar," segir Dóra. „Það er
í rauninni bara eitt gallerí á Islandi
sem stendur undir nafninu gallerí og
það er Gallerí Ingólfsstræti 8. Þar er
verið að flytja inn myndlist erlendis
frá og þau eru líka að kynna íslenska
listamenn erlendis,“ segir Eirún.
Ætla sér stóra hluti
„Við höfum þróast mjög mikið frá
okkar fyrsta gjömingi í Dagsljósi,
Kossinum, þótt gleðin sé alltaf í fyrir-
rúmi.“ segir Einán. „En við erum
meiri bissnesskonur núna,“ segir
Jóní, „Og meiri hugsjónakonur,“ bæt-
ir Dóra við. „Við komum líka til með
að verða einu myndlistarmennirnir
sem sjást frá tunglingu," segir Eirún.
- Hvað meinarðu með því?
Gjörningaklúbburinn hefur starfað frá ár-
inu 1996 þegar þær Eirún Sigurðardóttir,
Dóra Isleifsdóttir, Jóní Jónsdóttir og
Sigrún Hrólfsdóttir voru með Kossinn,
sinn fyrsta gjörning, í beinni útsendingu
í Dagsljósi. Dóra Osk Halldórsdóttir
hitti Eirúnu, Dóru og Jóní og spjallaði
við þær um gjörninga, framtíðina og ný-
lega umfjöllun í Siksi, einu stærsta
myndlistarblaði Norðurlanda.
„Þetta er tilvísun til
þess að allt það
stærsta á hnettinum
sést frá tunglinu, eins
og t.d. Kínamúrinn
og við erum að setja
okkur það markmið
að verða svona
stórar í myndlist-
arheiminum til að
sjást þaðan líka,“
segir Dóra og
hlær.
- Eins og
Sykurmolam-
ir? Heimsyfír-
ráð eða dauði.
„Já,“ segja
þær hlæj-
andi, „ne
kannski aðeins fallegra," segir
Jóní.
- Nú verð ég voðalega forvitin og
verð að spyija hvort eitthvert ákveðið
verkefni sé í undirbúningi sem gerir
ykkur svona stórar á kortinu?
„Já, það er ákveðin hugmynd sem
mun skýrast á næsta ári,“ segir
Eirún og verður ægilega dularfull á
svipinn og hinar vilja greinilega held-
ur ekkert seðja forvitni blaðamanns.
„En markmiðið er að sjást frá tungl-
inu,“ segir Dóra.
-Á nokkuð að fara að lita landið?
spyr blaðamaðw og sér fyrir sér
skærbleikt ísland blasa við agndofa
geimverum á tunglinu.
„Nei,“ segir þær allar hlæjandi.
„Við látum Olafi Elíassyni það alveg
eftir,“ segir Eirún. „Hann er mjög
góður í því og við gætum ekkert leikið
það eftir,“ segir Dóra. „Nema við
myndum kannski lita meira bleikt eða
rautt,“ segir Jóní.
Uppskurðir á sokkabuxum
-Nú hafíð þið verið með tvenns
konar ímynd ígjörningunum. Annars
vegar hvítu rannsóknarsloppana og
hins vegar dömukjólana. Er það
meðvituð ímynd eða tilviljanakennd?
„Já, þetta er okkar blanda af rann-
sóknarkonunni, ráðherranum og feg-
urðardísinni,“ segir Jóní. „Þetta er
líka einhver ski’ýtin blanda af vondu
og góðu,“ segir Dóra. „Því til þess að
við getum fjallað um það sem við vilj-
um, ástina og það skemmti-
lega í tilverunni,
verðum við að
gera vonda
hluti stundum,"
segir Eirún.
,Ástin er svo
góðvond, eins og
allt sem viðkemur
fólki,“ segir Dóra.
- Læknaslopp-
arnir gætu samt
gefíð til kynna að
stinga eigi á einhverj-
um kýlum.
„Já, við höfum líka
skorið upp,“ segir
Eirún afar alvarleg á
svip.
- Hvað?
,Brauðtertur og sokka-
buxur.“
- Sokkabuxur?!
„Já, það var uppskurður, en samt
eiginlega meira svona þolpróf," segir
Dóra. „Við reyndum síðan að setja
buxurnar saman aftur og laga eftfr
uppskurðinn," segir Jóní. „Til dæmis
með naglalakki," bætir hún við bros-
andi. „Við skrifuðum síðan skýrslu
um niðurstöður rannsóknarinnai' og
hana er hægt að lesa í sýningarskrá
sýningar í Moss í Noregi sem við tók-
um þátt í síðasta sumar,“ segir Dóra.
Frá því Gjörningaklúbburinn hóf
starfsemi sína árið 1996 hafa þær
staðið fyrir gjörningum víðs vegar
um borgina, auk þess að koma fram
erlendis. Einnig hafa þær tekið þátt í
sýningum, bæði einkasýningu í
Gerðubergi og samsýningum. „Við
gerum gjörninga með glæstum brag
og hægt er að panta okkur í sam-
kvæmi eða við hátíðleg tækifæri til
að gera gjörninga," segir Eirún.
Stolt hverrar konu
- Getið þið sagt mér eitthvað um
kökugjörninginn ?
„Við tókum hálfan dag með allt
sem að til þurfti í það að taka upp
myndband af því þegar við urðum að
tertum," segir Jóní. „Við gerðum
okkur sætar og fínar,“ segir Dóra.
„Þetta er líka stolt hveirar konu að
gera góðar kökur og vera fallegar,
að geta tekið sig vel út á hlaðborð-
inu,“ segir Jóní.
-En hvernig var tilfínningin að
vera kaka?
„Hún var skemmtileg, en lika svo-
lítið erfið," segja þær allar í kór. „Ég
held að við höfum allar verið frekar
stoltar kökur og hefðum verið sáttai'
við að vera á fallegu fermingarhlað-
borði,“ segir Eirún. „Ég hélt að þú
hefðir ætlað að segja að við hefðum
verið sáttai' við að vera borðaðar,"
segir Dóra og hinar skellihlæja.
- Er konan svona nátengd kök-
unni?
,Auðvitað er samhengi. Það er
aldagömul hefð fyrir samhengi þar,“
segir Dóra. „Við erum í rauninni
bara að sminka okkui' og notum það
sem hentar best hverju sinni,“ segir
Jóní. „Þá náum við líka þessu fram
að vera girnilegar á tvennan hátt,“
segir Dóra.
Lengi vel bjuggu þær hver í sínu
landinu, Dóra á íslandi, Eirún í
Þýskalandi, Jóni í Danmörku og Sig-
rún í New York, en núna býr Eirún á
íslandi líka og vinnur í þættinum
Kolkrabbanum sem er á dagskrá
Sjónvarpsins. „Okkur fínnst þessi til-
högun hafa skilað okkur meiru, held-
ur en að vera alltaf saman á sama
stað,“ segir Dóra. „Við höfum eigin-
lega verið eins og sendiherrar í fjór-
um löndum,“ segir Jóní.
Lagið um Gjörningaklúbbinn
- Hvað er á döfínni hjá Gjörninga-
klúbbnum?
„Við erum að fara til Amsterdam
núna í vikunni og ætlum að skoða
Rauða hverfíð, en við tökum þátt í
sýningunni „City Sleepers and Night
Walkers" þar í apríl þar sem Rauða
hverfíð verður helsta þemað,“ segir
Jóní. „Það voru tveir aðilar frá Is-
landi valdir á þessa sýningu, við og
Þorvaldur Þorsteinsson," segir
Eirún. „í sömu ferð förum við til
Gautaborgar og tökum þátt í sýn-
ingu og þar verða líka fleiri íslenskir
myndlistarmenn með okkur,“ segir
Jóní.
„Við erum líka að undirbúa hand-
rit að kvikmynd í samvinnu við
aðra,“ segir Eirún, en þær vilja ekki
gefa neitt meira upp um það verk-
efni. „Síðan er eitt mjög skemmtilegt
verkefni sem verður í sumar,“ segir
Dóra. „Við fundum plötu frá sjöunda
áratugnum sem heitir The Hue Cor-
poration og á henni er lag sem heith’
Love Corporation og er eins og
skrifað fyrir okkur, en á erlendum
markaði heitum við The Icelandic
Love Corporation. Við ætlum að
gefa út geisladisk og vinna með þetta
þag auk annars." „Síðan fórum við til
Óðinsvéa í haust...“
Það er greinilega enginn skortur
á verkefnum hjá Gjörningaklúbbn-
um og kannski komast þær á kortið
sem tunglbúar geta numið og
standa undir slagorði sínu: Einu
myndlistarmennirnir sem sjást frá
tunglinu.
Stutt
Mýs í sykur-
paradís
►SAGAN af tveimur músum sem
héldu upp á jólin í kleinuhringja-
verslun í New York, sem komst í
alla fjölmiðla vestanhafs nýlega,
hefur breyst í inartröð fyrir eig-
anda verslunarinnar, þvf risafyrir-
tækið Dunkin’ Donuts hefur kært
þá, farið fram á bætur og lagt
blátt, bann við að verslunin notaði
vörur merktar Dunkin’ Donuts.
Sagan af músunum byijaði 30.
desember þegar blaðamaður JVew
York Post greindi frá lítilli sætri
mús sem var að gæða sér á kleinu-
hring í glugga verslunarinnar á
fnnmta breiðstræti. Onnur mús sást
síðan spranga á milli sætindanna
og festu ljósmyndarar blaðsins
músaparið á mynd sem birtist í
blaðinu.
---------------
Viltu veðja?
►BRETAR fengu tækifæri til að
veðja um óvenjulega hluti í tengslum
við nýja árið, en veðmál eru nánast
þjóðaríþrótt þar í landi. Sem dæmi
um veðmálin sem í boði voru má neftia
líkumar á að Elísabet drottning víki
fyrir Karli Bretaprins, en þær vom
metnar á 1 gegn 25. Líkumar á að
Karl myndi giftast fyrrverandi
bamapíu, Tiggy Legge-Bourke, var
metið 1 á móti 100 og nektarhlaup í
gegnum þinghúsið vai' boðið með lík-
unum 16 á móti 1. Heldur meiri líkur
þóttu á skilnaði í Hvíta húsinu en þar
vom líkurnar metnar á 10-1.
---------------
Skeggið skorið
►ÞJÁLFARI Real Madrid, Guus
Hiddink, mætti til Ieiks á nýju ári
breyttur maður. Hann hafði skor-
ið skegg sitt, yfirskeggið sem hef-
ur verið vörumerki hans í árarað-
ir.
Hiddink hafði Iofað leikmönnum
að hann myndi skerða skeggið ef
þeir ynnu heimsmeistaratitil fé-
lagsliða og leikmennirnir höfðu
staðið við sinn hluta samningsins
með því að vinna Vasco de Gama
ineð tveimur mörkum gegn einu 1.
desember. Hins vegar hafði eng-
inn búist við að Hiddink myndi
láta verða af því að skerða skegg-
ið myndarlega. „Ný ímynd fylgir
nýju ári,“ sagði Hiddink hlæjandi.
„Ég veit ekki liversu lengi ég hef
haft yfirskeggið en það eru að
minnsta kosti komin 25 ár.“
------♦-♦-♦----
Skaut
nágrannana
út af gelti
►MAÐUR í höfuðborg Kambódíu
skaut tvo nágranna sína eftir rifrildi
út af hundgá. Hundaslagurinn hófst
þegar tveir snatar komu að þar sem
hundur sat einn að tík á lóðaríi. Eig-
andi hundanna tveggja reyndi að
skilja hundana að og brjálaðist þegar
nágranninn kastaði að honum gi'jóti.
Efth' stutt rifrildi tók hann upp
byssu og skaut foreldra mannsins og
særði systur hans.
------♦-♦-♦----
Hríðhoraðist
á bókakosti
►FRANSKA lögreglan bjargaði
útiset umanni frá því að verða
hungurmorða þegar þeir fundu
hann í helli í hæðunum fyrir ofan
rívíeruna. Maður sem var á sunnu-
dagsskokki heyrði veiklulegt æmt
í hinum 34 ára útisetumanni og
kallaði á lögregluna sem fór strax
með manninn á sjúkrahús.
Maðurinn hafði búið í hellinuin í
tvo mánuði og það eina sem liann
hafði sér til dægrastyttingar voru
staflar af hugleiðslubökum. Mað-
urinn er 1,90 metrar að hæð en
hann vó aðeins 40 kíló þegar lög-
reglan fann hann.