Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 57
ATVINNUAUGLYSINGA
Fé/agsþ/ónustan
Forstöðumaður
lögfræðisviðs
Auglýst ertil umsóknar nýtt starf forstöðu-
manns lögfræðisviðs Félagsþjónustunnar í
Reykjavík. Markmið lögfræðisviðs er að við-
halda og efla góð vinnubrögð í stjórnsýslu
Félagsþjónustunnar og tryggja réttarstöðu
neytenda þjónustunnar. Lögfræðisviðið hefur
með höndum lögfræðilega ráðgjöf við félags-
málastjóra og aðra stjórnendur, auk þess að
veita starfsfólki ráðgjöf í þeirra daglegu störf-
um.
Forstöðumaður samhæfir og forgangsraðar
verkefnum lögfræðisviðsins og ber ábyrgð
á faglegu starfi starfsmanna sviðsins. Hann
tekur þátt í yfirstjórn Félagsþjónustunnar í
nánu samstarfi við félagsmálastjóra og aðra
yfirmenn.
Um er að ræða 50% starf frá og með 15. febrú-
ar 1999. Launakjör í samræmi við kjarasamn-
ing Stéttarfélags lögfræðinga og Reykjavíkur-
borgar. Umsóknir berist félagsmálastjóra fyrir
1. febrúar nk., sem einnig veitirfrekari upplýs-
ingar í síma 535 3031.
Athygli er vakin á því, að það er stefna borgar-
yfirvalda að auka hiut kvenna í stjórnunar- og
ábyrgðarstörfum á vegum stofnana og fyrir-
tækja borgarinnar.
Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaöur sem veilir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur
mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að
upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavíkurborgar f
málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu
sem veitt er. Ailir nýjir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og
kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf
reglulega um starfsemi stofnunarinnar. Félagsþjónustan í
Reykjavík hét áöur Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Ríkistollstjóri auglýsir laust starf við
tollendurskoðun
Embætti ríkistolIstjóra starfar samkvæmt lög-
um nr. 55/1987 og fer í umboði fjármálaráð-
herra með yfirstjórn tollheimtu og tolleftirlits.
Starfið felur meðal annars í sér:
• Eftirlit með framkvæmd tollstjóraembætt-
anna á tollafgreiðslum vegna inn- og útflutn-
ings.
• Miðlun upplýsinga til starfsmanna tollsins,
viðskiptalífsins og almennings um tollskýrslu-
gerð og tollafgreiðsluhætti.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
tollamálum og hafi menntun á verslunar- og/
eða viðskiptasviði. Einnig er starfsreynsla á
þessu sviði mikils metin.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi
og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, skulu berast
ríkistollstjóraembættinu, Tryggvagötu 19, 101
Reykjavík, eigi síðar en 31. janúar 1999.
Áætlað er að ráða í starfið frá og með 1. mars
nk. eða samkvæmt samkomulagi.
Frekari upplýsingar veita Jóhann Ólafsson,
starfsmannastjóri og Matthías Berg Stefáns-
son, deildarstjóri endurskoðunardeildar í síma
560 0500.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu hefur verið tekin.
Reykjavík, 7. janúar 1999,
ríkistollstjóri.
Laus störf
við hagfræðisvið
Seðlabanka íslands
Staða deildarstjóra hagrannsókna. Starfið felst
m.a. í að hafa forystu fyrir rannsóknum á sviði
miðlunar peningastefnu og í smíði þjóðhags-
líkans og annarra haglíkana, sem tengjast við-
fangsefnum Seðlabankans. Krafist er doktors-
prófs í hagfræði eða meistaraprófs ásamt
starfsreynslu og birtingum fræðigreina, sem
má meta sem jafngildi doktorsgráðu. Einnig
er krafist mjög góðrar undirstöðu í hagrann-
sóknum, almennri þjóðhagfræði og peninga-
hagfræði.
Starf sérfræðings í fjármálahagfræði. Starfið
felst m.a í rannsóknum á íslenskum fjármála-
mörkuðum og stofnunum og samspili þeirra
við þjóðarbúskapinn í heild. Áskilið er háskóla-
próf í hagfræði, helst á meistarastigi eða
hærra, með sérhæfingu á sviði fjármálahag-
fræði.
Starf sérfræðings. Starfið felst m.a. í vinnu við
verðbólguspár bankans, raungengismælingar
og í ýmiskonar rannsóknum á sviði efnahags-
og peningamála. Áskilið er háskólapróf í hag-
fræði og staðgóð undirstaða á sviði almennrar
þjóðhagfræði, peningahagfræði og hagrann-
sókna.
Laun skv. kjarasamningi starfsmanna
bankanna.
Vakin er athygli á því að í Seðlabankanum er
í gildi áætlun í jafnréttismálum.
Upplýsingar veita Már Guðmundsson,
aðalhagfræðingur, eða Ingvar A. Sigfússon,
rekstrarstjóri, en umsóknir skulu sendar
rekstrarstjóra fyrir 5. febrúar nk.
Tryggingastofnun
ríkisins
Tryggingastofnun er miðstöð velferðarmála á Islandi og hafa allflestir
íslendingar samskipti við hana einhvern tíma á lífsleiðinni. Starfsmenn
eru 160 og er starfsemin á fjórum stöðum. Aðalskrifstofa er á Lauga-
vegi 114, þjónustumiðstöð ÍTryggvagötu 28, sérfræðingalæknishjálp
i Tryggvagötu 26 og Hjálpartækjamiðstöð á Smiðjuvegi 28, Kópavogi.
Félagsráðgjafi
Tryggingastofnun óskar eftir að ráða félags-
ráðgjafa í fullt starf.
Starfssvið:
Upplýsingar og ráðgjöf til viðskiptavina Trygg-
ingastofnunar. Fræðsla til félagssamtaka, fag-
og hagsmunahópa.
Leitað er að félagsráðgjafa, sem hefur áhuga
á að vinna að málefnum öryrkja og aldraðra.
Krafa er gerð um frumkvæði í starfi, skipulögð
vinnubrögð, færni í mannlegum samskiptum,
framsetningu ritaðs og talaðs máls.
Umsækjendur skulu hafa starfsleyfi heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytis.
Laun samkvæmt kjarasamningi Stéttarfélags
íslenskra félagsráðgjafa og Tryggingastofnun-
ar ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
stjórnsýslusviðs, sími 560 4404.
Umsóknir skulu sendar starfsmannastjóra,
Laugavegi 114, fyrir 26. þ.m.
Umsvifamikil og virt fasteignasala
óskar eftir
ritara
til símavörslu og tölvuskráningar nú þegar.
Góð vinnuaðstaða. Áhugasamir sendi nafn
og helstu upplýsingar á afgreiðslu Mbl. fyrir
15. janúar nk. merktar: „F — 7291".
Fiæðslumiðstöð
Reykjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Skólaritari,
Engjaskóli, sími 510 1300,
í 75% starf. Vinnutími frá kl. 9.30 til 15.30.
Laun skv. kjarasamningum St.Rv og Reykjavík-
urborgar.
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar-
skólastjóri skólans.
Þessar auglýsingar sem og annan fróðleik er
að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíku r: www. reykjavi k. is/fm r.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Leikskólakennarar
Leikskólinn Garðasel, Akranesi, óskar eftir að
ráða leikskólakennara til starfa. Leikskólinn
er þriggja deilda og býður upp á blandaðan
vistunartíma á aldursskiptum deildum. Við
leikskólann starfa þrír leikskólakennarar og
tveir fjarnámsnemendur sem Ijúka námi í vor.
Undanfarin ár höfum við átt farsælt samstarf
við Grundaskóla, „brúum bilið" á milli leik-
og grunnskóla. Við leggjum mikla áherslu á
sköpun og umhverfisvernd í okkar starfi.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 1999.
Nánari upplýsingar veita:
Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri í síma 431
2004, og
Sigrún Gísladóttir leikskólafulltrúi í síma 431
1211.
Sölumaður
Óskum eftir dugmiklum og áhugasömum sölu-
manni. Starf þetta erfjölbreytt og krefjandi
og þurfa umsækjendur að geta unnið sjálf-
stætt, vera jákvæðir og með góða þjónustu-
lund. Bókhalds og tölvukunnátta æskileg.
Vinnutími er frá kl 13.00 til 18.00.
Skriflegar upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist til af-
greiðslu Mbl. fyrir þriðjudaginn 19. janúar, merktar: „2709".
Síðasti pöntunardagur í næsta vöruvagn er 15. janúar.
Ath.: Allirfá óvæntan glaðning með næstu pöntunl
Freemans,
sími 565 3900,
Bæjarhrauni 14,
__________________222 Hafnarfirði.
Hárgreiðslunemi
óskast
Hárgreiðslustofan Kompaníið óskar eftir strák
eða stelpu í hárgreiðslunám.
Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst.
Aðeins skriflegum umsóknum er veitt viðtaka.
Umsóknir sendist á faxi 588 9905 eða í pósti.
Kompaníið,
Ármúla 1, 2. hæð,
108 Reykjavík.
Atvinnurekendur ath.
Leitar þú að duglegum starfskrafti?
Ef svo er þá vantar mig vinnu. Ég er 26 ára,
hef B.A. próf í mannfræði frá H.Í., góða tungu-
málakunnáttu og fjölbreytta starfsreynslu.
Meðmæli ef óskað er.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar á afgreiðslu
Mbl., merktar: „Framtíð", eða í tölvupóst
ingibjo@hi.is fyrir 20. janúar.