Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN N. JÓHANNESSON,
Blönduhlíð 12,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju-
daginn 5. janúar, verður jarðsunginn frá Há-
teigskirkju fimmtudaginn 14. janúar kl. 15.00.
Sigríður B. Jóhannsdóttir,
Þórður Jóhannsson,
Stefán Jóhannsson,
Astrid Sörensen,
Hrefna Þórðardóttir,
Ólafur Þór Þórðarson,
Jóhanna Þórný, Brynjar Þór, Þorsteinn Atli, Siggeir Karl.
Siggeir Siggeirsson,
Sigríður Ólafsdóttir,
Kristján S. Þorsteinsson,
Guðjón Sig. Guðjónsson,
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
HERMANNS VILHJÁLMSSONAR,
Víðilundi 24,
Akureyri.
Aðalbjörg Sigurðardóttir,
Hjörtur Hermannsson, Rannveig Gísladóttir,
Svala Hermannsdóttir, Bárður Guðmundsson,
Sigurður Hermannsson, Antonía Lýðsdóttir,
Stefán Ó. Hermannsson, Guðrún Pétursdóttir,
Brynjar Hermannsson, Sigríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hugheilar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
Starmóa 3,
Ytri Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins-
deildar Landspítalans.
Tryggvi Valdimarsson,
Þóra Björg Ólafsdóttir, Sigurjón Þorkelsson,
Rósa Ólafsdóttir,
Reynir Ólafsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Valdimar Tryggvason, Mirela Prótopapa,
Ólöf Jóna Tryggvadóttir, Björn Axelsson,
Björgvin Tryggvason, Kristín Ösp Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
PETREU ÓSKARSDÓTTUR,
Hóli.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, barna-
börn og barnabarnabörn.
ÁLFHILDUR ERLA
GES TSDÓTTIR
+ Álfhildur Erla
Gestsdóttir
(Erla) fæddist á ísa-
firði 19. apríl 1930.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 5.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Kristín Jóns-
dóttir, f. á Látrum í
Aðalvík 24. júlí
1906, d. 1. des.
1960, og Gestur Sig-
urðsson, f. á Bakka
í Bjarnarfirði 18.
sept. 1904, d. 8.
sept. 1982. Börn
þeirra voru tíu. Erla var tvíburi
og var tvíburasystir hennar
Hulda Elsa, d. 20. feb. 1994.
Onnur systkini Erlu voru:
Magnús Enok, f. 11. okt. 1927,
látinn; Sigurður Arthur, f. 19.
maí 1932, býr í Hafnarfirði;
Alda Fanney, f. 5. maí 1933, bú-
sett í Bandaríkjunum; Steinunn
Stefanía Guðrún, f. 21. maí
1934, látin; Þórir Högni, f. 7.
feb. 1936, látinn; Steinn Guð-
bjartur, f. 18. maí 1937, látinn;
Bára Bryndís, f. 19. júlí 1939,
býr í Bandaríkjunum; Elísabet
Erla frænka ólst upp í stórum
systkinahópi á Isafirði en átti ættir
að rekja í Aðalvík og Bjarnarfjörð á
Ströndum. Hún var dóttir listaskytt-
unnar Hrefnu-Gests eins og hann
var stundum kallaður og móðir
hennar var Kristín Jónsdóttir. Erla
var tvíburi og setti það svip á henn-
ar líf og þær systur Hulda og Erla
höfðu ávallt mikið samband og
bjuggu báðar mestan hluta ævinnar
í Keflavík. Á yngri árum Erlu var
lífsbaráttan oft hörð og ung fór Erla
Sóley, f. 7. sept.
1940, búsett í
Reykjavík.
Erla ólst upp á
ísafirði en fluttist
ung suður til
Reykjavíkur. Þar
giftist hún Yngva
Guðmundssyni 22.
nóvember 1952.
Yngvi var f. 13. júní
1929, d. 10. júlí
1982. Börn þeirra
eru: Lára Yngva-
dóttir, gift Geir
Garðarssyni og eiga
þau tvo syni;
Brynjólfur Yngvason, kvæntur
Gróu Ingvadóttur og eiga þau
tvö börn en Brynjólfur átti tvö
börn frá fyrra hjónabandi; Ing-
unn dóttir Láru ólst upp hjá
Erlu og Yngva, hún er gift
Ragnari Margeirssyni og eiga
þau þrjú börn. Áður átti Erla
Kolbrúnu Sveinbjörnsdóttur
sem er gift Lúvík Jóelssyni, þau
eiga fimm börn. Erla bjó lengst
af í Keflavík.
Útför Erlu fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
að sjá um sig sjálf og takast á við
hluti sem velferðarþjóðfélag nútím-
ans býður ekki unglingsstúlkum upp
á. Á þessum árum sýndu þær systur
stundum dans með bróður sínum
Magnúsi. Systkinin voru dökk yfir-
litum og var eins og suðrænt blóð
rynni í æðum þeirra. Hún sagði okk-
ur frá þessum árum sem oft voru
erfið en einnig skemmtileg og full af
fjöri. Erla var stolt kona, oft snögg
upp á lagíð og stundum hrjúf á yfir-
borðinu og hafði munninn fyrir neð-
Erla Þorbergsdóttir,
Eyvindur Albertsson, Margrét Friðriksdóttir,
Anna Guðlaug Albertsdóttir, Sigurður Einarsson,
Jóhann Albertsson, Sigríður Lárusdóttir,
Þorbergur Albertsson, Anna Guðrún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Við þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ALBERTS JÓHANNSSONAR,
Skógum.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför
KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
Sjúkrahúss ísafjarðar og starfsfólks Hlífar.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BJARGAR AÐALHEIÐAR JÓNSDÓTTUR,
Hlíðarenda,
ísafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Garðar Sævar Einarsson,
Þorgerður Sigrún Einarsdóttír, Guðmundur Marinósson,
Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir,
Guðmundur Sigurbjörn Einarsson, Ingibjörg Daníelsdóttir,
Tryggvi Sæberg Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Grímur Samúelsson,
Óðinn Grímsson
Magndís Grímsdóttir, Jóhannes Guðnason,
Steinunn Grímsdóttir, Þór Gunnlaugsson,
Snorri Grímsson, Árný Herbertsdóttir,
Samúel Grímsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
mannsins míns,
ÞORSTEINS V. SNÆDAL
frá Skjöldólfsstöðum.
Margrét Þorkelsdóttir
og aðstandendur.
an nefið eins og sagt er og gat verið
hvöss í orðaskiptum en undir þess-
ari skel sló hlýtt hjarta konu sem líf-
ið hafði mótað. Hún var hreinskiptin
og ráðagóð og hjálpsöm þeim er til
hennar leituðu.
Þegar við hugsum um Álfhildi
Erlu og tvíburasystur hennar Huldu
sem féll frá árið 1994 minnumst við
ævinlega dramatískrar sögu um það
hvernig nöfn þeirra komu til.
Hvernig móðir þeirra barðist fyrir
því að fá að skíra litlu tvíburasyst-
urnar sem fæddust svo löngu fyrir
tímann aðeins þrjár og fjórar merk-
ur og var þeim vart hugað líf. Krist-
ín amma trúði á draum sinn um álf-
konuna sem hét henni að litlu tví-
buradæturnar næðu bata og myndu
dafna vel ef þær yrðu skírðar eftir
henni. Kristín lét því stelpurnar
bera nafn hennar og þannig komu
nöfnin Hulda og Álfhildur. Þessi
saga verður lengi í minnum höfð og
er einkennandi fyrir hugsunarhátt
og líf stúlku sem elst upp við ki-öpp
kjör í lítilli vík norður í Isafjarðar-
djúpi þar sem hugurinn leitar á vit
ævintýra og dulrænna fyrirbæra
eins og álfa og huldufólks. Að Erla
skyldi koma þessari frásögn á fram-
færi og halda sögunni lifandi sýnir
kærleika hennar og virðingu fyrir
þeirri arfleifð sem einkenndi þann
sterka vestfírska stofn sem hún var
komin af.
I æskuminningunni lifa ferðir til
Keflavíkur þegar farið var að heim-
sækja Erlu og Ingva sem bjuggu í
Törner sem kallað var og fannst
manni maður kominn í annað land,
næstum hálfa leið til Ameríku og
ekki spillti hlýtt viðmót Erlu og
Ingva og barngæska þeirra, útlenda
nammið og sérstakt umhverfi, her-
braggar og fleira í þeim dúr. Sam-
bandið hjá þeim stóra systkinahópi
sem Erla var hluti af var oft ekki
mikið né náið enda höguðu aðstæður
því þannig að þau fóru ung að heim-
an og bjuggu í nokkrum heimsálfum
þannig að lönd og höf skildu að.
Fljótlega eftir að við settumst að í
Keflavík bauð Erla frænka okkur
heim á sitt smekklega heimili og
hlýja hennar í garð okkar og dætra
okkar var sérstök. Hún hafði lag á
að gefa sig að börnum á sérstakan
hátt sem situr í hugum og hjörtum
dætra okkar. Erla hafði auga fyrir
fallegum hlutum og hafði ferðast
víða og heimili þeirra Ingva bar vitni
um það.
Hún átti hamingjusöm ár með
eiginmanni sínum Ingva Guðmunds-
syni og var það mikill harmur í
hennar lífi er hann varð bráðkvadd-
ur langt íyrir aldur fram. Árin þar á
eftir einkenndust af söknuði og sorg,
þó lifði Erla í nánu sambandi við
böm sín og barnabörn og var það líf
hennar og yndi að fylgjast með fal-
lega barnahópnum sínum.
í lífi Erlu skiptust á skin og skúr-
ir. Undanfarin ár átti Erla við
heilsuleysi að stríða og lést 5. janúar
sl.
Langt inn í skóginn leitar hindin særð
og leynist þar sera enginn hjörtur býr
en yfir hana færist fró og værð.
Svo fjarar lífið út.
Ó, kviku dýr,
reikið þið hægt er rökkva tekur að
og rjúfið ekki heilög skógarvé
því lítil hind, sem fann sér felustað
vill fá að deyja ein á bak við tré.
Um blóð sem fyrr var bæði ungt og heitt
mun bleikur mosinn engum segja neitt.
(Davíð Stef.)
Við kveðjum nú Álfhildi Erlu
Gestsdóttur en eftir lifir minningin
um góðhjartaða og tilfinningaríka
frænku sem setti svip sinn á um-
hverfi sitt. Fjölskyldu hennar vott-
um við samúð okkar.
Theodór og Helga Margrét.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.