Morgunblaðið - 12.01.1999, Blaðsíða 54
**54 ÞRIÐJIJDAGUR 12. JANTJAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Astkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR
frá Sandprýði,
Stokkseyri,
lést á Landakotsspítala laugardaginn 9. janúar
síðastliðinn.
Margrét Böðvardóttir,
Gunnar Böðvarsson, Axelína M. Garðarsdóttir,
Sigríður B. Gunnarsdóttir, Hermann Þráinsson,
Kristín H. Þorsteinsdóttir,
Friðrik Þorsteinsson,
Sólrún María Þorsteinsson,
Sonja Ósk Gunnarsdóttir,
Heiðrún María Gunnarsdóttir,
Hildigunnur Hermannsdóttir.
-I
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT EINARSDÓTTIR,
Teigagerði 4,
Reykjavík,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund að
kvöldi gamlársdags, 31. desember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og hjúkrunarfólks
Grundar fyrir góða umönnun.
á hjúkrunardeild
Sigríður G. B. Einarsdóttir, Hörður Jóhannsson,
Magnús Einarsson, Gyða Siggeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
f
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
LAUFEY K. BJÖRNSDÓTTIR
frá Viðey,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 13. janúar kl. 13.30.
Magnús Óttar Magnússon, Carol Magnússon,
Björn Haukur Magnússon,
Laufey Björnsdóttir, Rúnar Þór Guðjónsson,
Sigurður Guðni Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
JÓN ÁRNI JÓNSSON
menntaskólakennari,
Furulundi 11D,
Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 7. janúar sl., verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 13. janúar
og hefst athöfnín kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vildu minnast Jóns Árna, er vinsamlegast bent á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
María Pálsdóttir,
Páll Jónsson, Kolbrún Björk Ragnarsdóttir,
Lovísa Jónsdóttir, Óskar Þór Halldórsson,
Steingrímur Jónsson, Ásrún Kristín Sigurðardóttir,
Jón Árni Jónsson, Sigríður Stefánsdóttir,
Stefán Jónsson, Yean Fee Quay,
Þóra Jónsdóttir, Björn Halldórsson
og barnabörn.
+
Inniiegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Droplaugarstöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugar-
staða.
Fyrir hönd aðstandenda,
Aggý Skjold Rasmussen,
Lára Sveinsdóttir.
GUÐMUNDUR ÍSAR
ÁGÚSTSSON
+ Guðmundur fsar
Ágústsson fædd-
ist í San Francisco í
Kaliforníu hinn 16.
október 1985. Hann
lést af slysförum á
Snæfellsnesi 27. des-
ember siðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dómkirkj-
unni 4. janúar.
Elsku Gúndi, sonar-
sonur minn, er dáinn.
Hvílíkt reiðarslag
dundi yfir, þegar þessi
ótrúlega staðreynd varð ljós. Ljúf-
ur og góður drengur, sem allt
benti til að yrði nýtur og góður
maður, fær ekki að verða eldri en
13 ára. Það er erfitt að skilja þess
ráðstöfun og sorgin nístir hjarta.
Eg hef verið að tína fram mynd-
ir, sem hafa verið teknar hér
heima, myndir af Gúnda við ýmis
tækifæri og minningarnar streyma
fram.
TÖUUÍllflD OMUifli) (Jfl um
UílDMJUA
llflTÍL flOJK
MSNIUNINI • (Afí
Upplýsingar í s: 551 1247
Hér er mynd af
Gúnda með pabba sín-
um í eldhúsinu að fá
sér snarl, önnur þar
sem hann leikur á
fyrsta hljóðfærið sitt,
blokkflautu, sú þriðja
er tekin hér fyrir utan
húsið, þar sem verið
er að búa til snjókarl.
Hér er líka ein þar
sem Gúndi er í KR-
búningi með fótbolta
undir hendi og áfram
gæti ég tínt til. Allt
eru þetta myndir úr
hversdagslífinu, sem var, en sýna
líka áhugamál hans, tónlist, íþrótt-
ir og leik.
Það voru ánægjustundir þegar
hann kom til mín með föður sín-
um og fjölskyldu; í síðasta skiptið
á jóladag, þar sem hann lék sér
við hin börnin í jólaboðinu, glaður
og yndislegur, eins og alltaf. Þá
óraði okkur ekki fyrir þeim
ósköpum, sem yfír dundu aðeins 2
dögum síðar. Það ríkir sár tregi
og söknuður hjá okkur öllum, en
minningarnar um liðnar gleði-
stundir með elsku fallega drengn-
um okkar munu lifa með okkur
um ókomin ár.
Eg bið Guð að blessa elsku
Agúst minn, Kristínu, konu hans,
böm þeirra og fjölskyldu, móður
hans Guðbjörgu og hennar fjöl-
skyldu og gefa þeim styrk á þess-
um sorgardögum.
Blessuð sé minning Guðmundar
Isars Agústssonar.
Amma Magnea.
+
Látin er í Hoople N-Dakota
LAUFEY ÓLAFSDÓTTIR AALAND.
Útförin hefur farið fram. ’W
••y
Jf
Vandamenn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ HELGA ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Vatnsnesi,
Keflavík,
andaðist á sjúkrahúsinu í Keflavík að kvöldi
sunnudagsins 10. janúar.
Hörður Falsson, Ragnhildur Árnadóttir,
Jóhanna Birna Falsdóttir, Daði Þröstur Þorgrímsson,
barnabörn og langömmubörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og
útfarar eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa okkar,
MAGNÚSAR GUÐLAUGSSONAR
húsasmiðs,
Frostafold 30,
Reykjavík.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
Örn Magnússon, Guðlaug Guðsteinsdóttir,
Svanhvít Magnúsdóttir, Skúli Jónsson,
Hrafnhildur Magnúsdóttir, Svavar Baldursson,
Magnús Magnússon, Ingibjörg Sigurðardóttir,
Kristín Magnúsdóttir, Jón K. Arnarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Mig skortir orð til að lýsa til-
finningum mínum og ég vildi svo
geta sagt eitthvað sem gæti sefað
þá kvöl sem fjölskylda og vinir
Gúnda ganga í gegnum núna. Að
missa barn er einn sá mesti harm-
ur sem nokkur verður fyrir og ég
veit að engin orð lina sorgirnar.
En það góða er að tíminn vinnur
með okkur og deyfir sársaukann.
Við svona atburði er maður minnt-
ur á það að ekkert varir og hvert
augnablik sem við lifum skiptir
máli, er svo dýrmætt. Ég vildi
óska þess að hafa fengið að njóta
meiri samvista við Gúnda, en þó
samverustundirnar hafi ekki verið
nógu margar, þá eru þær svo ljós-
lifandi í kollinum á mér. Hann var
svo fallegur og prúður og mér
fannst hann gæti verið eldri en
jafnaldrar sínir. Hann hafði ein-
hvern þroska til að bera sem mér
fannst koma fram í yfirvegaðri
framkomu hans.
Fyrstu minningar mínar af
Gúnda, frænda mínum, eru af hon-
um litlum með pabba sínum heima
hjá mömmu og pabba á Tómasar-
haganum. Mér fannst svo gaman
að sjá þá feðga saman og sjá nýjar
hliðar á pabba hans sem ég hafði
ekki séð áður. Þegar ég hugsa til
baka þá standa samt upp úr tvær
ferðir sem við fórum með Gúnda
og föðurfjölskyldunni, sú fyrri á
ættarmótið í Vestmannaeyjum fyr-
ir rúmu ári og sú seinni í sumar í
Svarfaðardalinn í brúðkaup Lindu
frænku okkar og Skúla. Það var
svo gaman að fylgjast með þeim
fóstbræðrum Gúnda og Atla, þeir
voru svo miklir félagar og sam-
band þeirra við litlu systur sína,
Iðunni Snædísi, var svo fallegt að
við höfðum sérstaklega orð á því.
Einnig stendur eftir minning frá
Vestmannaeyjum þegar krakkarn-
ir og eitthvað af fullorðna fólkinu
fóru út að kvöldlagi að leita að
lundapysjum. Strákarnir voru
ÚTFARARSTÓFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
Opið öll kt'öld
til kl. 22 - dnnig um T
fyrir öll tilefni.