Morgunblaðið - 12.01.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999 45
UMRÆÐAN
Miði að
„sigri lífsins“
LANDSMENN bragðust vel
við á haustmánuðum er SÍBS -
Samband íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga - gekkst fyrir
landssöfnuninni „Sigur lífsins".
Hátt í fimmtíu milljónir króna hafa
nú safnast til byggingar á glæsi-
legu húsi á Reykjalundi, stærstu
endurhæfingarmiðstöð landsins.
Endurhæfing
Allir sem þekkja vita
að Reykjalundur, segir
Bergur Heimir Bergs-
son, er ákaflega vel
staðsettur sem endur-
hæfingarmiðstöð.
Þessi eining mun hýsa fullkomna
meðferðarlaug, 25 metra sundlaug,
stóran hópmeðferðarsal sem hægt
verður að tvískipta, tækjasal auk
búningsaðstöðu og hjálparklefa.
Allir sem þekkja vita að Reykja-
lundur er ákaflega vel staðsettur
sem endurhæfingarmiðstöð. Úr
Mosfellsbænum er stutt í alla þjón-
ustu er höfuðborgarsvæðið veitii’,
en inn með Vanná er friður frá ys
og þys borgarmenningar. Ekki
spillir fyrir mikill og fallegur trjá-
gróður sem og úrval góðra göngu-
leiða og útivistarsvæða. A Reykja-
lundi hefur verið byggð upp um-
fangsmikil og framsækin endurhæf-
ingarþjónsuta og kjörorð SIBS
„styðjum sjúka til sjálfsbjargar"
þai- haft að leiðarljósi.
Á Reykjalundi er eitt hlutverk
sjúkraþjálfara og heilsuþjálfara að
efla þol og styrk sjúklinga sem
margir eru að koma úr stórum að-
gerðum eða eiga við langvinna og
ei-fiða sjúkdóma að stríða. Þetta er
gert með einstaklingsbundinni
þjálfun, m.a. í tækjasal, og margs-
konai- hópþjálfun eins og æfingum í
vatni og leikfimi í sal. Lítil meðferð-
Gmp
plöstunarvélar
Skírteinis- og skjalaplast
HAGSTÆTT VERÐ
Óbrigðul skjalavernd.
Otto B. Arnar ehf.
Armúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, ía\ 588 4696
arlaug og samkomusalur hafa nýst
vel en virk og afkastamikil endur-
hæfing hefur fyi-ir löngu sprengt
slíka aðstöðu utan af sér.
Annað hlutverk heilsuþjálfara á
Reykjalundi er að kynna og virkja
fólk til þátttöku í almenningsí-
þróttum á borð við göngu, sund,
hjólreiðar, golf og skíðagöngu.
Markmiðið er að reyna að fá fólk
upp úr sjónvarpssóffanum til að
taka upp einhverja góða og holla
hreyfingu þegar heim
er komið. Gangan er
gott dæmi um al-
mennigsíþrótt sem
hentar flestum og á
Reykjalundi hefur
henni lengi verið gert
hátt undir höfði. Önnur
íþrótt, sem vegna að-
stöðuleysis hefur átt
undir högg að sækja,
er sundið. Hér er frá-
bært hreyfíngarform,
sem er aðgengilegt í
nánast hverjum bæ hér
á landi. Sundið hentar
reyndar sérstaklega vel
mörgum okkar skjól-
stæðinga. Ný 25 metra
innilaug ásamt stærri og fullkomn-
ari meðferðarlaug er sem himna-
sending fyrir okkur þjálfara, sem
Bergur Heimir
Bergsson
sjaum marga mogu-
leika opnast í kennslu
og þjálfun sunds auk
sérhæfðrar endurhæf-
ingar í vatni.
Ungt fólk með ým-
iss konar fatlanir
dvelst margt á
Reykjalundi í lengri
eða skemmri tíma. Oft
er verið að fara yfir
hj álpartækj aþörf,
þjálfa kreppta liði,
kanna félagsleg úr-
ræði eða veita stuðn-
ing á annan hátt. Auk
lækna og hjúkrunar-
færðinga koma til að-
stoðar félagsráðgjafar,
iðjuþjálfarar og sjúkraþjálfarar á
staðnum. Hlutverk heilsuþjálfara
hér er að ýta undir áhuga og bjóða
upp á íþróttagreinar sem eru hent-
ugar og vinsælar hjá þessum hópi
og stundaðar bæði hjá íþróttafélög-
um fatlaðra og annars staðar.
Borðtennis, bogfimi og boccia eru
dæmi um íþróttagreinar sem munu
fá inni í björtum og glæsilegum
hópmeðferðarsal. Framkvæmdir
við þessa nýju einingu eru nú að
hefjast og stefnt er því að taka hús-
næðið í notkun innan tveggja ára.
SÍBS á og rekur Reykjalund og
það er Happdrætti SIBS sem er
hornsteinninn í öllum framkvæmd-
um á staðnum. Er nú litið til þess í
sambandi við áframhaldandi fjár-
mögnun á nýbyggingum. Nú er því
lag að veita góðu málefni lið og
kaupa miða í Happdrætti SÍBS.
Höfundur er íþrótt-nfræðingur MA
og heilsuþjátfuri á Reykjalundi.
:'t ....... X"
-SPDRT P F,
X
/'ff. vy.
NU ER HVER AÐ
VERÐA SÍÐASTtJR A3E>
TRYGOJA SÉR HIíUT
í KR-Sporti
Utboðinu lýkur
föstudaginn 15. janúar
N
næstkomandi.
v /
>
Kaup á bréfunum ueita rétt til
skattaafsláttar á þessu ári.
n l
S t
>;
Hægt ér að greiða með VISA
eða EUROCARD/MasterCard
raðgreiðslum.
Starfsemi
Tilgangur KR-Sports hf. skv. 3. grein samþykkta félagsins er að taka þátt
í rekstri á sviði íþrótta, menningar, lista og afþreyingar, Tilgangur félagsins
er jafnframt smásala, heildsala, umboðsverslun, ráðgjöf, rekstur fasteigna,
lánastarfsemi og skyldur rekstur.
Fjárhæð útboðs
Fjárhæð útboðsins er 50.000.000 kr. aö nafnverði að hámarki og er
um að ræða nýtt hlutafé að nafnverði 46.000.000 kr. og áður útgefið
hlutafé í eigu Knattspyrndueildar KR að nafnverði 4.000.000 kr. Hlutafé
félagsins mun nema 50.000.000 kr. að nafnverði eftir aukninguna, ef
allt hlutafé selst.
ÚTBOÐSFYRIRKOMnLAG
Almenningi er boðið að kaupa hlutabréf með áskriftarfyrirkomulagi og
getur hver aðili skráð sig fyrir að lágmarki 10.000 kr. að nafnverði og
að hámarki 1.000.000 kr. að nafnverði.
ÚTBOÐSGENGI
Fast útboðsgengi er 1,00 á útboðstímabilinu.
SÖLUTÍMABIL
Sölutímabil er frá 21. desember 1998 til 15. janúar 1999.
SÖLUAÐILAR
Búnaðarbankinn Verðbréf, kt. 490169-1219, Hafnarstræti 5, 3. hæð,
155 Reykjavík, simi 525 6060, myndsími 525 6099, útibú Búnaðabankans
og Verðbréfastofan hf., kt. 621096-3039, Suðurlandsbraut 20, 10B
Reykjavík, sími 533 2060, myndsími 533 2069.
UPPLÝSINGAR og gögn
Gögn þau sem vitnaö er til í útboðslýsingu þessari er hægt að nálgast
hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum, útibúum Búnaðarbanka íslands hf.,
Verðbréfastofunni hf., vef Búnaðarbankans www.bi.is, vef Verðbréfa-
stofunnar www.vbs.is og útgefanda.
s/.
BÚNABARBANKlNN
VERÐBRÉF
Sími: 525 6060
VERÐBREFASTOFAN
Sími: 533 2060