Morgunblaðið - 12.01.1999, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, lýst sem drykkfelldum og tilfínningalausum flagara
Reuters
ÞEGAR Robin Cook mætti til vinnu í utanríkisráðuneytinu breska í gær beið hans urmull ljósmyndara og
blaðamanna, en uppljóstranir fyrrverandi eiginkonu hans hafa vakið mikla athygli í breskum fjölmiðlum.
Enn aukast
vandræði bresku
stjórnarinnar
RÁÐHERRAR í ríkis-
stjórn Verkamanna-
flokksins í Bretlandi
reyndu í gær að snúa
vöm í sókn en stjórnin hefur á
undanförnum þremur vikum orðið
fyrir verulegum áföllum, nú síðast
vegna uppljóstrana Margaret
Cook um helgina varðandi hjóna-
band sitt með Robin Cook utanrík-
isráðherra, en þau skildu í fyrra.
Sakaði hún Cook um að vera
drykkfelldur og tilfínningalaus
flagari. Itrekaði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, í gær að
ekki kæmi til mála að Cook segði
af sér og ráðgerir Blair nú funda-
herferð þar sem lögð verður
áhersla á að beina sjónum almenn-
ings að málefnum og framkvæmd-
um stjórnarinnar, en einkamál
ráðherra Verkamannaflokksins
hafa mjög verið í brennidepli að
undanförnu, ríkisstjórninni til
ama.
Frá því á Þorláksmessu hafa
tveir ráðherrar neyðst til að segja
af sér, auk helsta aðstoðarmanns
Browns, og eru síðustu þrjár vik-
urnar þær verstu í sögu Blair-
stjórnarinnar, sem komst til valda
eftir þingkosningar í maí 1997.
Viðurkenndi Jack Cunningham,
sem hefur það starf að tryggja aga
innan stjórnarinnar og að stefnu-
málum sé hrint í framkvæmd, að
innbyrðis átök og deilur hefðu
skaðað stjómina.
„Árið 1999 verður árið sem Nýi
Verkamannaflokkurinn uppfyllir
kosningaloforð sín,“ sagði Gordon
Brown fjármálaráðherra í ræðu
sem hann hélt í Edinborg í gær.
Þótt ríkisstjórnin hyggist snúa
vörn í sókn með því að beina sjón-
um almennings að framkvæmdum
í heilbrigðismálum, menntamálum
og baráttunni gegn glæpum neit-
aði talsmaður Blairs því hins vegar
að markmiðið væri að „markaðs-
setja“ stjórnina á nýjan leik.
Bresk stjómmál að verða
„eins og Hollywood-sápuópera"
Blair, sem snéri til baka úr vetr-
arleyfi sínu um helgina, lýsti á
sunnudag yfir fullum stuðningi við
Cook og hvatti kjósendur til að
meta ríkisstjórnina út frá verkum
hennar og framkvæmdum en ekki
„hneykslismálum, slúðursögum og
aukaatriðum." Sagði Blair að
hætta væri á því að bresk stjórn-
mál snérust upp í slúðurfregnaþátt
eða sápuóperu „í anda Hollywood“,
í það minnsta ef fjölmiðlar í Bret-
landi hygðust áfram einblína á
einkalíf ráðherra. Neitaði Blair því
að ásakanir frú Cook drægju úr
ráðherrareisn Robins Cooks og
lýsti honum sem þeim utanríkis-
ráðherra Breta um langt árabil er
nyti mestrar virðingar meðal Evr-
ópuríkja.
Blair sagði aukinheldur í viðtali
við David Frost á BBC að hann
bæri enn fullt traust til Peters
Mandelsons, sem neyddist til að
segja af sér embætti viðskipta- og
iðnaðarráðherra á Þorláksmessu,
og reyndi forsætisráðherrann
breski að slá á fréttir þess efnis að
samskipti hans við fjármálaráð-
herrann Brown einkenndust af
heiftugum metingi og gagnkvæmri
andúð.
Sjálfur lagði Brown sín lóð á
vogarskálarnar í gær þegar hann
varði stefnu „nýja“
Verkamannaflokksins og
skellti skollaeyrunum við
kröfum margra flokks-
manna um að tekinn yrði
upp á nýjan leik „gamal-
dags“ sósíalismi. Vottaði
fjármálaráðherrann Blair virðingu
sína og sagði stefnu hins nýja
Verkamannaflokks ekki saman-
safn ómótaðra málefna heldur alls-
herjar stefnumið sem byggt væri á
bjargfastri trú á mikilvægustu lífs-
gildunum.
Hefnigjörn „óhæfa“?
Þessi nýjasti kafli í orrahríð sem
staðið hefur síðan fyrir jól hófst á
sunnudag þegar The Times birti
útdrátt úr bók Margaret Cook A
Slight and Delicate Creature en
þar lýsir hún fyrrverandi eigin-
manni sínum sem drykkjuræfli
með skapgerðarvanda og sem til-
finningalausum flagara. Getið er
drykkjutúra Cooks, ölvunardauða
á eldhúsgólfi, svefnpillunotkunar,
minnisleysis og þunglyndiskasta
þar sem legið hefði við bæði and-
íegri og líkamlegri uppgjöf af hans
hálfu.
Margir vina Robins Cooks
reyndu í gær og fyrradag að full-
vissa umheiminn um að eini til-
gangur frú Cook með bókarskrif-
unum væri sá að valda fyrrverandi
eiginmanni sínum skaða, og vekja
efasemdir um að Cook sé hæfur til
að gegna ráðherradómi. Hér væri
á ferð hefnigjörn kona sem ósátt
væri við sitt hlutskipti.
Sagði náinn samverkamaður
Cooks að bókin væri „eiturgusa frá
konu sem hafnað hefði verið sem
óhæfu“, en sjálf neitar Margaret
því að bókin hafi verið skrifuð með
hefnd í huga. Bókin „taki mjúkt“ á
málum og hefði hún ætl-
að sér að ná sér niðri á
bónda sínum fyrrverandi
hefði hún haft af nægu
af taka sem sleppt væri
að minnast á. Samt sem
áður munu synir hennar,
Christopher og Peter, lítt hafa
verið ánægðir með uppátæki móð-
ur sinnar og reyndu þeir, að sögn
heimildarmanna, að telja henni
hughvarf.
Gerðu íhaldsmenn á þingi harða
hríð að ríkisstjórn Blairs og sögðu
útilokað að utanríkisráðherrann
gæti sinnt starfi sínu sómasamlega
eftir þetta fjaðrafok. Iain Duncan-
Smith, talsmaður Ihaldsflokksins í
Ríkisstjórn breska
Verkamannaflokksins
hefur haft vindinn í
fangið undanfarnar vik-
ur og ekki batnaði hag-
ur hennar um helgina,
að sögn Davíðs Loga
Sigurðssonar, þegar
fyrrverandi eiginkona
Robins Cooks utanrík-
isráðherra lét móðan
mása um drykkjuskap
hans og framhjáhald.
félagsmálum, sagði uppljóstranirn-
ar gera Cook „að athlægi“ og
Michael Howard, skuggaráðherra
íhaldsmanna í utanríkismálum,
sagði staðhæfingar fyiTverandi
eiginkonu Cooks „enn einn
naglann í pólitíska líkkistu Robins
Cooks.“
Hélt sex sinnuni framhjá
Margaret og Robin Cook skildu
í fyrra eftir tuttugu og átta ára
hjónaband eftir að fjölmiðlar í
Bretlandi komust að því að utan-
ríkisráðherrann hafði þá um nokk-
urra ára skeið haldið við einkarit-
ara sinn, Gaynor Regan. Gengu
Regan og Cook síðan í hjónaband
á síðasta ári.
Þetta var hins vegar ekki í
fyrsta sinn sem Cook hélt framhjá
konu sinni, ef marka má frásögn
Margaretar Cook, og segir hún að
Cook hafi haldið framhjá sér með
a.m.k. sex konum meðan á hjóna-
bandi þeirra stóð, en þau giftust
árið 1969.
Mun Cook fyrst hafa viðurkennt
framhjáhald fyrir konu sinni árið
1974 um það leyti sem hún gekk
með Peter, yngri son þeirra hjóna.
Allt þar til Gaynor Regan kom inn
í spilið mun hjónabandi þeirra
helst hafa staðið ógn af konu sem
Margaret Cook kallar Thelmu í
bók sinni og var kunningjakona
þeirra beggja. Ti-úði Cook konu
sinni fyrir sambandinu í júní 1987,
sama dag og uppáhalds reiðhestur
Margaret Cook var aflífaður.
„Hann kom og settist við hlið
mér. Hann sagði „Margaret -
sjáðu til, mér þykir þetta leitt, afar
leitt. Eg held, þar sem þú ert í
miklu uppnámi núna, að ég geti
eins flutt þér fleírí slæm tíðindi.
Eins og þig hefur grunað þá hef ég
ekki verið þér trúr.“
Margaret Cook segir að Thelma
hafi sjálf verið í hjónabandi og
eignaðist Thelma barn meðan á
sambandi hennar og Cooks stóð.
Lék í upphafi einhver vafi á því
hver var faðir bamsins,
að sögn Margaretar, en
útlit drengsins í dag
bendir að hennar mati til
að barnið hafi verið rétt
feðrað.
Segir Margaret Cook
að bóndi sinn hafí verið miður sín
þegar sambandinu við Thelmu
lauk og breyttist þá hegðun hans
mjög. „Hann drakk augsýnilega
alltof mikið og skap hans tók að
einkennast af miklu þunglyndi. Eg
hafði verulegar áhyggjur af hon-
um.“ Segir Margaret einnig að
Cook hafi um þetta leyti orðið háð-
ur svefnpillum. Dó Cook einu sinni
áfengisdauða á borðstofugólfinu
með koníaksflösku sér við hlið, að
sögn frú Cook.
Stuttu eftir að sambandinu við
Thelmu lauk fóru Cook-hjónin í
helgarleyfi. Brotnaði Cook þá al-
gerlega niður og „án nokkurar eft-
irsjár og án þess að biðja mig af-
sökunar, reyndar hagaði hann sér i
miklu frekar sem lítill og óþekkur
skólastrákur sem staðinn hafði |
verið að verki, rakti hann fyrir f
mér öll ástarsambönd sín.“ Þegar
Cook hélt áfram að haga sér eins
og sakbitið barn brást Margaret
illa við og skipaði manni sínum að
haga sér eins og fullorðinn maður.
„Ég held að það hafi að mörgu
leyti stuðlað að því að hjónaband
okkar fór út um þúfur að ég neit-
aði að gangast upp í þessu |
mömmuhlutverki sem hann vildi
að ég léki.“
Ásakar fyrrverandi
einkaritara Cooks
Margaret Cook sakar Gaynor
Regan, fyrrverandi einkaritara
Cooks og núverandi eiginkonu
hans, um að hjónabandið fór út um
þúfur. Er Cook gekkst við því í
ágúst 1997 hafði ástarsamband
þeirra staðið í tvö ár. ,Ég hef |
brugðist þér einu sinni enn. Ég !
held við Gaynor, ritara minn og |
það hefur varað í tvö ár. Ég hef
hagað mér heimskulega og marg-
sinnis viljað binda enda á sam-
bandið, en hún vill bara ekki
sleppa af mér takinu,“ segir hún
Cook hafa sagt er hann greindi
henni frá sambandinu við Gaynor.
Til þess neyddist hann því götu-
blöðin voru komin á sporið og
birtu frásagnir af því daginn eftir.
Um Gaynor Regan segir frú
Cook í bókinni: „Hún læsir rán-
dýrsklóm sínum í kvæntan mann
með tvö börn. Hún er niðurrifs-
kvendi og verður að eiga það á
samviskunni það sem eftir er.“
Hún segir að líklega hafi maður
sinn fyrrverandi verið hálfsturlað-
ur af ótta að undanfórnu vegna út-
komu bókarinnar og hún segist
finna til með honum. „Hann virðist
hafa elst svo mikið undanfarin
misseri, er allur hlaupinn út í
hrukkum og virðist óhamingju-
samur. En hann hefur kallað það
yfir sig sjálfur," segir hún.
Öfundaðist út í
Gordon Brown
Frásögn Margaret Cooks gefur
þeim sögusögnum byr undir báða
vængi að samskipti ráðherra
Verkamannaflokksins hafi undan- j
farin misseri verið hai-la slæm.
Segir hún að bóndi sinn hafi hatað
Peter Mandelson, sem neyddist til
að segja af sér starfi viðskiptaráð-
herra á dögunum. Að auki segir frú
Cook að Robin Cook hafi lagt fæð á
Gordon Brown fjármálaráðherra
fyrir um 20 árum vegna skjótari
frama þess síðarnefnda innan
verkamannaflokksins í Skotlandi.
Úlfúðin jókst eftir fráfall Johns
Smiths, fyrrverandi flokksleiðtoga,
því Cook renndi sjálfur hýru auga
til embættis leiðtoga Verkamanna- '
flokksins. „Ég vissi að metnaður
Robins átti sér engin takmörk. En
satt best að segja trúði ég því ekki
að hann væri réttur maður í starf-
ið. Hann bjó ekki yfir neinni með-
fæddri kurteisi eða samúð né held-
ur gerði hann sér grein fyrir að
hann byggi ekki yfir
þessum kostum."
Segir frú Cook að
bóndi sinn hafi sokkið
djúpt í þunglyndi er hon-
um varð ljóst að hann
naut ekki nægs stuðn-
ings til að geta sóst eftir leiðtoga-
embættinu. Hann var alls ekkert
hrifinn af Tony Blair en neyddist
til að veita honum stuðning sinn í
kjörinu sökum andúðar sinnar á
Brown. Heldur frú Cook því fram
að Robin Cook sé ekki síður ósátt-
ur við Blair í dag, því að hans mati
hefði Blair „selt skrattanum sálu
sína“ til að koma Verkamanna-
flokknum í ríkisstjóiTi.
Blair og
Brown reyna
að snúa vörn í
sókn
Cook sagður
hafa lagt fæð
á fjármálaráð-
herrann