Morgunblaðið - 12.01.1999, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
—„Við veiðum f iskinn!“
Vegna elju og ósérhlíf ni sjómanna
eru f járfestingar og veiðitæki
útgerðarinnar mikils virði
VIÐ erum mættir til að leiðrétta auglýsingakompásinn hjá þér, góði. Hvar eru gellurnar?
Morgunblaðið/KVM
Kerling í kröggum
Grundarfirði - Eigi alls fyrir
löngu var ljósmyndari á ferð um
Kerlingarskarð. Skein þá sól á
Kerlinguna sem einu sinni var að
sögn lifandi tröllkona á leið í helli
sinn með silungakippu á bakinu.
En ekki komst hún heim til sin
fyrir dagrenningu og geislar sól-
ar féllu á hana - hana dagaði
uppi, hún breyttist í stein. Enn
skín sól á gijótkerlingu þessa. En
mesta hættan sem henni er búin í
dag er slæm fótfesta, því sagt er
að úr henni molni með hveiju ár-
inu sem h'ður.
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins undirbúinn
Málefna-
nefndir
funda
UNDIRBÚNINGUR fyrir lands-
fund Sjálfstæðisflokksins stendur
nú sem hæst, en fundurinn hefst
11. mars og stendur í fjóra daga.
Þessa dagana halda málefnanefnd-
ir flokksins opna fundi og gefst
sjálfstæðismönnum þar tækifæri
til að hafa áhrif á drög að lands-
fundarsamþykktum. 23 málefna-
nefndir starfa á vegum Sjálfstæð-
isflokksins og skila þær endanleg-
um drögum eftir mánaðamótin.
I dag verður rætt um hvort
hægt sé að koma á samkeppni í
orkumálum og á morgun verður
fjallað um innflutningsgjöld og
þeirri spumingu velt upp hvort
þau séu úrelt fyrirbæri. A fundun-
um hafa framsögu þeir sem tekið
hafa þátt í að undirbúa mál fyiir
landsfundinn.
Norðurlandamót í skólaskák 1999,
einstaklingskeppni
Islendingar
höfnuðu í 2. sæti
N ORÐURLAND AMÓTINU í
skólaskák 1999, einstak-
lingskeppni er nú lokið. Guð-
mundur Kjartansson sigraði ör-
ugglega í sínum flokki og Stef-
án Kristjánsson stóð sig næst-
best íslenskra keppenda, hafn-
aði í 2. sæti.
Islendingar höfnuðu í 2. sæti
í samanlagðri keppni með 34 v.
Efstir voru Svíar með 39 v.
Þess má geta að fjórir íslensku
keppendanna halda áfram tafl-
mennsku í Gausdal og mun
Heimasíða Hellis fylgjast með
því móti. Arangur Islendinga
var sem hér segir:
A-flokkur: Bergsteinn Ein-
arsson og Björn Þorfinnsson
fengu 3 v. og höfnuðu í 7.-9.
sæti.
B-flokkur: Stefán Kristjáns-
son fengu 4 v. hafnaði í 2. sæti.
Davíð Kjartansson fékk 3 v. og
hafnaði í 5. sæti.
C-flokkur: Guðjón Heiðar
Valgarðsson fékk 3Á og hafnaði
í 4. sæti. Stefán Bergsson fékk
2Á v. og hafnaði í 9. sæti.
D-flokkur: Dagur Arngríms-
son fékk 3Á v. og hafnaði í 5.
sæti. Helgi Egilsson fékk 2Á v.
og hafnaði í 8. sæti.
E-flokkur: Guðmundur
Kjai-tansson sigraði örugglega
og varð Norðurlandameistari,
fékk 5Á v. Víðir Petersen fékk
3Á v. og hafnaði í 4. sæti.
Af trönum meistarans
Lokaskeið í list-
sköpun Kjarvals
Kristín G. Guðnadóttir
SÍÐASTLIÐINN
laugardag var opn-
uð sýning á Kjar-
valsstöðum sem ber yfir-
skriftina Af trönum
meistarans. Þar eru sýnd
verk frá síðustu rúmlega
tveimur áratugum langr-
ar starfsævi Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals.
Kristín Guðnadóttir list-
fræðingur er sýningar-
stjóri.
„Með þessari sýningu
lýkur röð sýninga sem
unnar hafa verið á vegum
Kjarvalsstaða og fjalla
um þrjú tímabil listferils
Kjarvals. Markmiðið með
að halda þessar sýningar
var að gera grein fyrir
ferli Kjarvals frá upphafi
til loka. Við ákváðum að
skipta ferli hans í þrjú tímabil og
leituðumst við að gera gein fyrir
hvernig list Kjarvals mótaðist og
þróaðist innan þessara afmörk-
uðu tímabila.“
Kristín segir að fyrsta sýning-
in hafi borið heitið Mótunarár
1885-1930. „Þar var fjallað um
námsár Kjarvals og mótun hans
auk þess sem komið var inn á
áhrif sem hann varð fyrir á
námsferlinum. Kjarval einskorð-
aði sig ekki við eina stefnu held-
ur sýna verk hans frá þessu
tímabili að flest það sem hann
komst í snertingu við vakti
áhuga hans og kallaði á nánari
skoðun og útfærslu. Frumleiki
hans fólst í óvanalegri úrvinnslu
mismunandi áhrifa og á sýning-
unni kom glöggt í ljós hvemig
hann tvinnaði saman gjörólíkar
hugmyndir og stflgerðir.
A annarri sýningunni sem bar
heitið Lifandi land 1931-1945
urðu skil hjá Kjarval sem fór þá
að einbeita sér að íslenskri nátt-
úru. Tímabilið einkenndist
einnig af fjölbreytileika og
frjórri sköpun. Árið 1929 tók
Kjarval að leggja áherslu á úti-
málverk og landslagstúlkun.
Hann málaði myndraðir af sama
myndefni og vann þannig mark-
visst að því að túlka síbreytileika
íslenskrar náttúru. Hann sam-
tvinnaði einnig landslag og verur
og lauk þannig upp torræðum
heimi á mörkum hins huglæga
og hlutlæga.“
- Hvaða tímabil í lífi Kjarvals
tekur þessi þríðja sýning fyrir?
„Sýningin spannar árin
1946-1972. Þar er leitast við að
gefa innsýn í verk Kjarvals á
þessu lokaskeiði í listsköpun
hans og endurspegla hversu
frjór og skapandi hann var í list-
inni allt þar til yfir lauk. Þetta
tímaskeið einkenndist
af úrvinnslu eldri hug-
mynda fremur en af-
gerandi breytingum á
listsköpun hans.“
- Er eitthvað sér-
stakt sem einkennir
listsköpun Kjarvals
síðustu árin?
„Það er athyglisvert að í síð-
ustu landslagsmyndum sínum
sem hann málaði um áttrætt
virðist hann fjarlægjast hið
„mónumentala" en skoða hið ná-
læga og smágerða. Hann sund-
urgreinir landslagið og brýtur
upp í kúbískar einingar. í þess-
um síðustu verkum hans samein-
ast ást hans á landinu þeim
kúbíska undirtón sem sjá má í
verkum hans frá um 1920. Þessi
verk gefa þeim ekkert eftir sem
hann málaði sem ungur maður.
Meðal verka á sýningunni má
nefna „Sjón er sögu ríkari" sem
Kjarval málaði í Borgarfirði
►Kristín G. Guðnadóttir er
fædd í Reykjavík árið 1956.
Hún varð stúdent frá Mennta-
skólanum við Tjörnina árið
1976 og árið 1988 Iauk hún
prófi í listasögu frá háskólan-
um í Arósum.
Kristín starfaði sem safn-
vörður á Kjarvalsstöðum frá
1989-1997 en er nú forstöðu-
maður listasafns ASI.
Eiginmaður hennar er Sig-
urður Jóhann Jóhannsson arki-
tekt og eiga þau eina dóttur.
eystra árið 1948. Hann hafði þá
um langt skeið verið fjarri
heimahögum sínum og var ferð
hans þá fyrsti eiginlegi málara-
leiðangur hans þangað eftir að
hann tók að mála landslag fyrir
alvöru. Myndin var sýnd í Lista-
mannaskálanum árið eftir og
fékk afar lofsamleg ummæli
gagnrýnenda og var talið meðal
bestu landslagsverka hans. Al-
þingi keypti verkið og gaf
danska þinginu árið 1949 svo nú
er verkið til sýnis á íslandi í
fyrsta skipti í 50 ár.“
Kristín segir að mikið sé af
stórglæsilegum landslagsmynd-
um og fantasíuverkum á sýning-
unni. Mörg þein-a fjörutíu verka
sem eru á þessari sýningu eru í
einkaeigu og hafa sjaldan eða
aldrei verið sýnd áður.
„Við uppsetningu þessara sýn-
inga leitaðist ég við að sýna
megineinkenni og hápunkta á
ferli listamannsins en það var úr
mjög mörgum verkum að velja
og á sýningunni er einungis lítið
brot af ævistaifinu."
- Hvað er talið að Kjarval hafí
skilið mörg verk eftir sig?
„Álitið er að þau séu um
10.000-12.000 talsins og þá eru
með taldar skissur
og teikningar. Um
3.000 verk eru skráð
í einkaeigu og á
Kjarvalsstöðum eru
til um 5.000 verk,
teikningar, skissur
og olíumyndir.
- Það hlýtur að
liggja mikil vinna að baki þess-
um sýningum?
„Vinna við undirbúning þess-
ara sýninga hefur óbeint staðið
yfír frá árinu 1993 en þá var haf-
ist handa við umfangsmikla
gagna- og heimildasöfnun varð-
andi ævi Kjarvals og var Ás-
mundur Helgason sagnfræðing-
ur ráðinn til þessa verks. Þessi
gagnasöfnun liggur til grund-
vallar undirbúnings sýninganna
og er grunnur að framtíðai’rann-
sóknum um ævi og störf Kjar-
vals. Ásmundur hefur síðan ritað
æviferil Kjarvals sem er birtur í
sýningarskránum.
Þessi verk
gefa þeim
ekkert eftir
sem hann
málaði ungur