Morgunblaðið - 03.04.1990, Blaðsíða 26
TS
oeex jíífia .8 guoAauiaiíw aiaAjauuoHOM
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1990
NÝR FULLKOMINN SÍMIMEÐ SÍMSVARA
Á AÐEINS KR. 11.952.-
Gold Star fyrirtækið er eitt af stærstu og öflugustu fyrirtækjum heims í framleiðslu síma
og símkerfa. Þau eru hvarvetna viðurkennd fyrir gæði og hugvitssamlega hönnun.
Krystall hf. er nýr umboðsaðili fyrir Gold Star Telecommunication Co„ Ltd. hér á landi.
Það er okkur sérstök ánægja aö geta nú boðið heimilum og smærri fyrirtækjum
þetta stórskemmtilega símtæki á aðeins 11.952,- kr.
Hérerumaðræðasérstakt kynningarverðátakmörkuðu magni. Hafðu því snör handtök,
hringdu strax (úr gamla símanum) og tryggðu þér eintakl!
HELSTU EIGINLEIKAR GOLD STAR 1240 ERU M.A.:
■ Sími og símsvari í einu tæki. ■ Smekkleg hönnun og einfalt í notkun. ■ Fjarstýranlegur án auka-
tækja úr öllum tónvalssímum - hvaðan sem er. ■ 10 númera skammvalsminni. ■ Míkrókasetta með
30 mínútna geymsluminni. ■ Fullkomnar leiðbeiningar á íslensku. ■ 15 mánaða ábyrgð.
r%.ar»8«p irflr«
SÍMI685750 FAX 685159 SKEIFAN 11B 108 REYKJAVÍK
LÁTTU DRAUMINN RÆTAST:
Geðlækningar:
Sovétmenn sakað-
ir um misbeitingu
Genf. Reuter.
Alþjóðasamtök sem berjast gegri misbeitingu geðlæknisfræði í
pólitiskum tilgangi (IAPUP) halda því lram að Sovétríkin hafi ekki
látið af brotum af slíku tagi. Fulltrúi samtakanna sagði að Alþjóða-
samtök geðlækna ættu að enduskoða ákvörðun sína Irá því í októ-
ber síðastliðnum um að veita Sovéska geðlæknafélaginu aðild.
Robert Van Voren, aðalritari
IAPUP, sagði á fréttamannafundi
í Genf í gær að litlar breytingar
hefðu orðið á mannahaldi á geð-
sjúkrahúsum í Sovétríkjunum þrátt
fyrir að yfirvöld hefðu heitið að
láta af misbeitingu geðlæknisfræð-
innar. Van Voren sem er nýkominn
frá Moskvu sýndi fréttamönnum
bréf sem smyglað var út úr geð-
sjúkrahúsi í Sítsjevka vestur af
Moskvu í desember síðastliðnum.
Bréfið undirrita 17 sjúklingar og
þar stendur meðal annars: „Við
erum staddir innan veggja hins svo-
kallaða Sítsjevka SGS (Sérgeð-
sjúkrahúss), sem er alræmt fyrir
harðneskjulega meðferð og misbeit-
ingu læknisfræðinnar." Bréfritarar
taka dæmi af sjúklingi sem fékk
aukasprautur í nóvember síðastliðn-
um vegna þess að hann bað um
brauð. Þegar sjúklingurinn spurði
hvers vegna hann þyrfti á aukasp-
rautum að halda var hann barinn
og bundinn við rúmið áður en „sér-
meðhöndlun" hófst. í bréfinu segir
ennfremur að enn sé sjúklingum
refsað með lyfinu sulfazine, sem
framkallar sótthita þrátt fyrir, að
notkun þess hafi verið bönnuð með
sovéskum lögum í mars í fyrra.
Van Voren taldi útilokað að meta
hversu margir pólitískir fangar
væru enn á sovéskum geðsjúkra-
húsum en þau eru talin vera rúm-
lega eitt þúsund, mörg hver á svæð-
um sem lokuð eru útlendingum.
Hann sagði að þótt skráð tilfelli
misbeitingar geðlæknisfræðinnar í
Sovétríkjunum hefðu ekki verið
nema 30-40 undanfarin ár sem er
mikil fækkun frá því áður þá bæri
að taka slíku með fyrirvara. Þess
væru dæmi að pólitískir fangar á
sjúkrahúsum væru fluttir á af-
skekkta staði eftir að þeirra hefði
verið getið á alþjóðavettvangi.
Bretland:
Leigumæður rétt-
lætanlegar í neyð
St.Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Það er ekki réttlætanlegt að fá aðra konu til að ganga með fóstur
hjóna, sem geta ekki átt barn, nema öll önnur ráð hafi brugðizt, að
því er segir í nýlegri skýrslu Brezka læknafélagsins.
í Bretlandi er löglegt að hjón,
sem geta ekki átt barn, geri samn-
ing við konu um, að hún gangi með
fóstur, sem hefur orðið til úr eggi,
sem hefur verið fijóvgað á tilrauna-
stofu. Sé slíkur samningur gerður
í gegnum miðlun, verður miðlunin
að vera góðgerðarfélag. Samning-
urinn hefur ekkert lagalegt gildi
og vilji leigumóðirin halda barninu,
þegar það fæðist, þá getur enginn
meinað henni það. Það er löglegt
að greiða leigumóðurinni fyrir að
ganga með fóstrið.
Nefnd á vegum Brezka læknafé-
lagsins hefur í tvö ár skoðað þau
vandamál, sem óhjákvæmilega rísa
vegna barna, sem til komin eru
með þessum hætti. Þau eru bæði
lagaleg, siðferðileg og félagsleg.
Niðurstaða skýrslunnar er sú, að
samningur af þessu tagi sé réttlæt-
anlegur sem neyðarúrræði.
Vandinn, sem fýlgir þessum
samningum, getur verið marg-
víslegur. Sá augljósasti er, að leigu-
móðirin vilji halda barninu. Hjónin,
sem óska eftir barninu, gætu neitað
að taka við því, ef það væri van-
skapað til dæmis. Leigumóðirin
gæti orðið þunglynd eftir að hafa
látið barnið af hendi. Eigi hún önn-
ur börn, gæti þetta haft djúp áhrif
á þau. Þau gætu litið svo á, að
verið væri að gefa systkini þeirra
öðrum foreldrum.
Tir konur á öllum aldri
Allir finna flokk við sitt hæfi hjá J. S. B.
Innritun ísíma 83730 Suðurveri og
79988 Hraunbergi
£ X
J Kerfi 2 Framhaldsflokkar 1 09 2 - lokaóir flokkar
Kerfi 3 Rólegir timar Fyrir eldri konur og þær sem þurfa að fara rólega
— | Kerfi 4 Nýi kúrinn 28 + 7 fyrir þær sem vilja fá aðstoð undir sérstakri stjórn Báru
u Kerfi 5 1 FyrÍr ungar og hreisar - teygja, þrek | — eldfjörugir tímar