Morgunblaðið - 13.07.1986, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JUU 1986
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Rösk stúlka óskast
til skrifstofustarfa hjá lítilli en öruggri heild-
verslun. Þarf að sinna símavörslu, snúning-
um í banka og toll o.fl. Verslunarskólamennt-
un æskileg, þó ekki skilyrði. Gæti byrjað
strax.
Tilboð merkt: „Örugg heildverslun - Góð
laun“ sendist augld. Mbl. fyrir 20. júlí.
Afgreiðslustörf
Glaðleg og áhugasöm stúlka óskast í sér-
verslun við Laugaveginn. Ekki yngri en 25
ára.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
augldeild Mbl. fyrir 18. júlí merktar:
„Áhugasöm — 05659“.
Reiknistofa bankanna óskar að ráða:
sérfræðing
- (kerfisforritara)
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskóla-
próf í tölvunarfræði eða verkfræði og/eða
umtalsverða reynslu við forritun.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SÍB
og bankanna.
Umsóknarfrestur er til 7. ágúst n.k.
Allar nánari upplýsingar um starfið veita
framkvæmdastjóri og forstöðumaður tækni-
deiidar reiknistofunnar.
Umsóknir berist á þar til gerðum eyðublöðum
er fást hjá Reiknistofu bankanna, Kalkofns-
vegi 1, 150 Reykjavík, sími 91-622444
Rafmagnsverk-
fræðingur
Artek hf. er ungt fyrirtæki sem stofnað var
með útflutning hugbúnaðar í huga. Innan
fyrirtækisins er unnið að verkefnum sem
tengjast því nýjasta sem er að gerast í tölvu-
heiminum í dag.
Artek hf. leitar að rafmagnsverkfræðingi til-
starfa. Starfið felst m.a. í að örforrita
(microcode) örtölvu (microprocessor) til að
margfalda hraða Ada-þýðanda smíðaðan af
starfsmönnum Artek hf.
í boði eru góð laun og góð vinnuaðstaða.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti unnið
sjálfstætt og hafi þekkingu á helstu örtölvum
sem notaðar eru í dag. Erlend ferðalög munu
fylgja starfinu og verður viðkomandi að vera
lipur í ensku. Farið verður með allar fyrir-
spurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlegast hafið samband við Artek hf. í
síma 671511.
Forritari
Eitt stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins, vel
staðsett í borginnni, vill ráða forritara til
starfa í september.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi þekkingu á
IBM 34/36 ásamt forritunarmálinu RPG II.
Starfsreynsla er ekki nauðsynleg en mjög
æskileg.
Allt það nýjasta í tækni og tölvumálum er
fyrir hendi hjá fyrirtækinu, sem fylgist vel
með á því sviði og gerir það starf forritara
enn áhugaverðara. Gott framtíðarstarf sem
býður upp á mikla möguleika. Laun samn-
ingsatriði.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Umsóknir er tilgreini aldur og menntun
ásamt starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar
fyrir 17. júlí nk.
Gudni Tqnsson
RAÐCjOF &RAÐNINCARNONUSTA
* . TÚNGÖTU5, 101 REYKJAVIK — PÓSTHÓLF 693 SÍM162I322
___________Z_________-_______
Stýrimenn
II. stýrimann vantar á skuttogara frá Vest-
fjörðum. Upplýsingar í síma 94-1353.
Tónlistarkennari
Tónlistarkennara vantar á Raufarhöfn.
Til greina kemurtónmenntakennsla við gunn-
skóla að hluta. Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur Sigurbjörg Jónsdóttir i
símum 96-51200 og 96-51277
Bókari
Óskum eftir að ráða harðduglegan bókara
til framtíðarstarfa hjá einum af viðskipta-
vinum okkar.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og lifandi starf
hjá góðu fyrirtæki þar sem bókarinn sér um
allt bókhald fyrirtækisins sem er tölvuvætt.
Umsóknum skal skilað til augld. Mbl. fyrir
miðvikudagskvöld 16. júlí 1986 merkt:
„Góður bókari — 5658".
ívar Guðmundsson,
löggiltur endurskoðandi.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖÐUR
Iðjuþjálfun
Aðstoðarmenn óskast sem fyrst við iðjuþjálf-
un á vefrænum deildum spítalans.
Um er að ræða:
100% starf á öldrunardeildum B-álmu og
100% starf á endurhæfingardeild.
Upplýsingar veitir yfiriðjuþjálfi í síma
696600-681.
Reykjavík, lO.júlí 1986.
BORGARSPÍTALINN
o 696600
LAUSAR S7ÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Laun samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Fulltrúi við hundaeftirlit Heilbrigðiseftirlits
Reykjarvíkursvæðis. Starfið felst í almennri
skrifstofuvinnu, símavörslu og tölvuskrán-
ingu.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Heil-
brigðiseftirlitsins, Oddur R. Hjartarson, í
síma 623022.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 21. júlí 1986.
Lögfræðingur
Þekkt verkfræðistofa, vel staðsett í borg-
inni, vill ráða lögfræðing til starfa sem fyrst.
Starfssvið: Túlkun verksamninga ásamt
skyldum verkefnum.
Kjörið tækifæri fyrir ungan lögfræðing sem
vill kynnast þessu verksviði. Þarf að hafa
trausta og örugga framkomu, vera reglusam-
ur, snyrtilegur og þægilegur í allri umgengni.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Góð laun í boði sem fara eftir reynslu og
þekkingu viðkomandi.
Umsóknir, sendist skrifstofu okkar fyrir 23.
júlí n.k.
Gudnt Tónsson
RÁÐCjÖF b RÁÐN I N CARNÓN HSTA
TÚNGÓTU 5. 101 REYKJAVIK - POSTHOLF 6^3 SÍMI 621322
Skrifstofustarf
Óskum að ráða stúlku til skrifstofustarfa.
Um fullt starf er að ræða.
í boði er: Fjölbreytt starf í góðu umhverfi.
Góður starfsandi.
Viðkomandi þarf að hafa:
Góða vélritunarkunnáttu. Hafa einhverja
reynslu í tölvubókhaldi. Verslunarskóla eða
hliðstæð menntun æskileg.
Góð laun fyrir réttan starfskraft.
Umsóknir sendist til augld. Mbl. fyrir 18. júlí
merkt: „F-8277“.
fif LAUSAR STOÐUR HJA
'V REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa.
Starfsmaður óskast í unglingaathvarfið í
46% kvöldstarf frá 10.08.1986. Umsækjandi
þarf að hafa menntun í uppeldis-, félagsvís-
indum og/eða sambærilegt nám. Reynsla í
unglingastarfi æskileg. Um er að ræða mjög
lifandi og skemmtilegt uppeldis- og með-
ferðarstarf með unglinga.
Upplýsingar eru veittar í síma 20606 eftir
hádegi (14.00-18.00).
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6.hæð,
fýrir kl. 16.00 föstudaginn 25.07. 1986.
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Saur-
bæinga er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 22. þessa mánaðar.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist formanni
félagsins Sturlaugi Eyjólfssyni, Efri-Brunná,
sími 93-4950 er veitir nánari upplýsingar um
starfið ásamt kaupfélagsstjóra, Margréti
Jóhannsdóttur, sími 93-4901 og starfs-
mannastjóra Baldvini Einarssyni sími
91-28200.
Kaupfélag Saurbæinga
Skriðulandi
Sölumaður
Tæknival hf. er skipt niður í tvö svið, tækni-
svið og sölusvið:
Á sölusviði seljum við rekstrarvörur fyrir tölv-
ur og ýmsa fylgihluti.
Á tæknisviði vinnum viðö að almennri verk-
fræðivinnu, iðnstýringum, fjargæslukerfum
og almennri sjálfvirkni fyrir iðnaðinn.
Við leitum að sölumanni á sölusvið.
Þú þarft að vera:
- Helst með reynslu í sölumennsku.
- Hafa góða framkomu og eiga auðvelt með
að umgangast fólk.
- Geta unnið sjálfstætt og skipulagt eigið
starf.
- Hafa áhuga á sölumennsku.
Við bjóðum:
- Góða vinnuaðstöðu í ört vaxandi fyrirtæki.
- Góð laun.
- Sveigjanlegan vinnutíma.
- Góðan starfsanda.
- Líflegt og krefjandi starf.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skila skriflega til Tækni-
vals hf., Grensásvegi 7, 128 Reykjavík,
pósthólf 8294 fyrir 25. júlí nk.
TÆKNI
VAL
Grensásvegi 7,
108 Reykjavlk
B.O.X.8294
S: 681665,686064