Morgunblaðið - 13.07.1986, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.07.1986, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1986 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Silkiprentun Maður vanur silkiprentun óskast. Nánari upplýsingar i síma 685215 eða 685651 virka daga. Vélamenn Viljum ráða strax vanan vélamann. Mikil vinna. Upplýsingar á morgun í síma 50877. Loftorka hf. Kennarar Tvær kennarastöður eru lausar við Grunn- skóla Stöðvarfjarðar á komandi skólaári. Upplýsingar gefa Árni Guðbjartsson formað- ur skólanefndar vs. 97-5940, hs. 5856 og Sólmundur Jónsson skólastjóri hs. 5859. Skólanefnd. Staða fulltrúa hjá opinberri stofnun er laus til umsóknar. Reynsla við ritvinnslu svo og góð málakunn- átta æskileg. Fjölbreytt starf. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar augld. Mbl. merktar: „H — 5980“ fyrir 18. júlí nk. Hjúkrunarforstjóri Heilsuhælið NLFí, Hveragerði óskar að ráða hjúkrunarfontjóra sem fyrst. Starfinu fylgir vaktskylda að hluta. Húsnæði á staðnum. Nánari upplýsingar veita yfir- læknir og framkvæmdastjóri í síma 99-4201 og 4204. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist yfirlækni fyrir 15. ágúst. BORGARSPÍTALINN LAUSAR STÚÐUR Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi óskast að geðdeildum Bsp. Starfsreynsla áskilin. Yfirfélagsráðgjafi geðdeildanna veitir allar nánari upplýsingar í síma 13744. Umsóknir skulu sendast til yfirlæknis geðdeilda Bsp. fyrir 1. ágúst nk. BORGARSPÍTALINN o696600 5AMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA 3 SiMi 681411. Starf í skýrsluvéladeild Óskum eftir að ráða vélstjórnanda (operat- or) í skýrsluvéladeild. Æskilegt er að umsækjandur hafi góða undirstöðumenntun. Unnið er á vöktum. Hér er um að ræða lif- andi starf fyrir réttan og áhugasaman aðila. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 681411. Samvinnutryggingar g. t. Kennarar Við Grunnskólann á Flateyri eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar: Tvær almennar kennarastöður í 1.-3. bekk og 7.-9. bekk, hálf staða íþróttakennara. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 94-7645 á kvöldin. Blaðamaður Útgáfufyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða vanan blaðamann í tímabundið verkefni (við- töl, o.fl.) í ágústmánuði. Áhugasamir blaðamenn sendi nafn og síma- númer ásamt stuttum upplýsingum til augldeildar Morgunblaðsins fyrir 18. júlí merktar: „Stuttur tími - góðar tekjur — 3143“ Félagsmálastjóri Staða félagsmálastjóra ísafjarðarkaupstaðar er laus til umsóknar. Um er að ræða 1 árs afleysingu frá 1. sept. nk. Starfsmenntun í félagsráðgjöf eða háskólamenntun í félags- vísindum ásamt starfsreynslu nauðsynleg. Umsóknarfrestur til 15. ágúst. Upplýsingar um starfið veitir félagsmálastjóri Lárus Már Björnsson í síma 94-3722. Félagsmálastjórinn ísafirði. Innflutningsfyrirtæki nálægt miðbænum óskar eftir að ráða starfs- kraft til starfa allan daginn fram til næstu áramóta. Þarf að geta byrjað strax. Starfið felst aðallega í skráningu á tölvu, útskrift reikninga og öðrum almennum skrif- stofustörfum. Æskilegt er að umsækjandi hafi próf úr versl- unarskóla eða sambærilega menntun, svo og reynslu af vinnu við tölvu. Umsóknum skal skilað á afgreiðslu Mbl. ekki seinna en miðvikudaginn 16. júlí, n.k. mektar: „Strax 1234“. Sjúkraliðar athugið! Við Sjúkrahúsið á Egilsstöðum eru lausar 3-4 stöður sjúkraliða, nú þegar eða frá 1. sept. nk. Fljótsdalshérað er fagurt bæði sumar og vetur, flugvöllur er við bæjardyrnar og skíða- land í Fjarðarheiði skammt undan. Við höfum grunnskóla, menntaskóla og tónlistarskóla á staðnum, svo eitthvað sé nefnt. Er ekki tilvalið að breyta til og prófa að búa úti á landsbyggðinni? Hugsið málið og leitið nánari upplýsinga, það kostar ekkert. Hjúkrunarforstjóri sími 97 1631, skrifstofa sími 97 1386 Heimilisaðstoð — Vesturbær Höfum verið beðnir að útvega konu til aðstoðar á heimili í vesturbæ. Vinnutími 8.00 til 16.00 daglega. Sér um hádegismat, heldur öllu þrifalegu og gætir barna en þau eru þrjú. Við leitum að heiðar- legri konu, má hafa með sér barn. Góð laun í boði. Frítt fæði. Upplýsingar á skrifstofu. Guðnt íónsson RÁDCJÖF & RÁÐN I NCARÞJÓN U5TA TÚNGOTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Útkeyrslustarf Okkur vantar ungan og hressan pilt nú þegar. Upplýsingar í síma 40925 Kjötbankinn Kennarar Hafið samband við Stefán A. Jónsson í síma 95-4420 eða Fræðsluskrifstofu Norðurlands vestra því að grunnskólinn að Húnavöllum óskar að ráða kennara til að annast sér- kennslu, stærðfræði ásamt raungreinum, myndment, smíði og almenna kennslu. Húsnæði á staðnum. Skólastjóri. Forstöðumaður Breiðdalsvík Kaupfélag Stöðfirðinga óskar eftir að ráða forstöðumann fyrir verslun sinni á Breið- dalsvík. Ráðningartími er frá 1. september nk. Reynsla í verslunarstörfum er nauðsynleg. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf ásamt fjölskyldustærð, sendist Friðriki Guðmundssyni kaupfélagsstjóra eða starfs- mannastjóra Sambandsins er gefur nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 25. þessa mánaðar. Kaupfélag Stöðfirðinga Stöövarfirði Markaðsstjóri Við leitum að markaðsstjóra fyrir eitt af stærstu fyrirtækjum iandsins. Starfið er laust í haust. Viðkomandi skal vera með háskólapróf í við- skiptum eða verkfræði, hafa góða starfs- reynslu í markaðsmálum, vanur að stjórna, hafa góða tungumálakunnáttu, og búinn að koma sér vel fyrir í lífinu, og vera tilbúinn að takast á við spennandi og krefjandi framtíðarstarf. Þar eð gerðar eru miklar kröfur, verða laun í samræmi við það. Nánari upplýsingar á skrifstofu, þar getum við rætt málin í trúnaði. GijðntTónsson RÁDCJÖF &RÁÐNINCARÞJÓNUSTA TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322 Grunnskólinn á ísafirði Ahugasamir kennarar — Ef þið eruð að leita ykkur að skemmtileg- um vinnufélögum og áhugaverðum skóla þá ættuð þið að leita upplýsinga hjá okkur um Grunnskólann á Isafirði. — Við þurfum kennara í almenna bekkjar- kennslu, myndmennt, smíðar, tón- mennt, heimilisfræði, tungumál, raungreinar og í sérkennslu. Enn fremur viljum við ráða skólasafnvörð. — Flutningur til ísafjarðar verður ykkur að kostnaðarlausu og að sjálfsögðu fáið þið íbúð fyrir sanngjarna leigu. Allar nánari upplýsingar gefur Jón Baldvin Hannesson skólastjóri í símum 94-3044 (v. s.) og 94-4294 (h.s.). Skólastjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.