Morgunblaðið - 27.02.2000, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Breytt kvenímynd
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Keppendur í Ungfrú ísland.is fara á ýmis námskeið.
ERLENDAR
Daníel Þorsteinsson, trommu-
leikari hljómsveitarinnar
Maus, fjallar um nýjasta disk
Oasis, „Standing on the
shoulder ofgiant s“sem kemur
út á morgun.
Takk fyrir
kókoshnetuna
FYRST þegar ég heyrði í Oasis fil-
Sumir segja fegurðar-
samkeppnir tíma-
skekkju sem eigi lítið
erindi við nútímakon-
ur. Birna Anna
Björnsdóttir ræddi
------7-----------------
við Astu Kristjáns-
* dóttur um fegurðar-
samkeppnina Ungfrú
--------7---------------
Island.is
UMRÆÐA um fegurðarsamkeppnir
skýtur alltaf upp kollinum með
reglulegu millibili og er ljóst að sitt
sýnist hverjum. Mörgum finnst ekk-
ert nema jákvætt og gott að stúlkur
keppi sín á milli um hver sé fegurst
og segja þátttöku í slíkum keppnum
aðeins til að bæta sjálfstraust og
sjálfsímynd stúlkna. Aðrir segja það
hljóta að vera niðurlægjandi fyrir
stúlkur að vera stillt upp á svið í
sundbolum. En á móti kemur að
engin stúlka er þvinguð til að taka
þátt í fegurðarsamkeppni, þær taka
þátt af fúsum og fijálsum vilja og
hafa margar af því afar mikla
ánægju. Það er því spuming, fyrst
slíkur fjölcli stúlkna hefur áhuga á
þátttöku sem raun ber vitni, hvort
hægt sé að halda því fram að feg-
urðarsamkeppnir eigi ekki rétt á
sér.
Komin til að vera
Nokkur tímamót em nú í fegurð-
arsamkeppnisgeiranum því auk
' Fegurðarsamkeppni íslands sem á
sér töluvert langa sögu hérlendis
hefur verið efnt til annarrar keppni
undir heitinu Ungfrú ísland.is.
Aðstandendur keppninnar em Ásta
Kristjánsdóttir, Hendrikka Waage,
Linda Pétursdóttir og Þórey Vil-
hjálmsdóttir og hafa þær fengið
umboð fyrir keppnina Ungfrú heim-
ur. Ásta Kristjánsdóttir segir
keppnina Ungfrú ísland.is komna
til að vera og að eitt af markmiðum
með henni sé að breyta hefðbundn-
um viðhorfum til fegurðar. „Fyrst
og fremst erum við að reyna að
breyta kvenímyndinni og færa
þessa keppni til nútímans. Sú breyt-
ing sem okkur finnst vera mikil-
vægust er sú að við hvetjum stelp-
umar áfram í námi,“ segir Ásta.
„Þá er ég ekki að segja að hinar
fegurðardrottningarnar okkar hafi
verið eitthvað vitlausar, en mér
finnst ekki hafa verið lögð nógu
mikil áhersla á að þær hafi svo
margt annað til að bera en bara feg-
urð.“
Ólíkur hópur
sem stefnir hátt
Ásta segir að bæði undirbúningur
og umgjörð keppninnar séu nýstár-
leg. Úrslitakvöldið verður 25. mars
í Perlunni og þar sýna stúlkurnar
fatnaðeftir ýmsa fatahönnuði og
segir Ásta stefnt að því að það verði
glæsilegar tískusýningar. Hún tek-
ur fram að stúlkurnar þurfi ekki að
koma fram í sundfatnaöi. Sigur-
vegarinn hlýtur meðal annars há-
skólastyrk og fartölvu að launum
og segir Ásta verðlaunin sýna í
verki þá hvatningu sem ætlað er að
veita stúlkunum.
Sextán stúlkur, alls staðar að af
landinu, vom valdar til að taka þátt
í keppninni. Ásta segir að bæði hafi
stúlkur sóst eftir því að taka þátt og
einnig hafi þeim borist fjölmargar
ábendingar. „Þetta er mjög ólíkur
hópur og hafa þær allar metnað og
stefna hátt á sínu sviði.“
Hún segir muninn á keppni af
þessu tagp og fyrirsætukeppni felast
í því að í fyrirsætukeppni sé ein-
göngu verið að leita eftir ákveðnu
útliti en í þessari keppni sé mun
fleira tekið til greina við val á sigur-
vegara. „Við emm ekki bara að fara
eftir útliti. Við emm líka að fara eft-
ir því hvernig þær koma fram og
hvaða markmið þær hafa. Auðvitað
viljum við að þær séu sem glæsi-
legastar, en við viljum líka að þær
hafi upp á margt annað að bjóða.“
Safnað fyrir
Ævintýraklúbbinn
Undirbúningur keppninnar felst
meðal annars í námskeiðum af
ýmsu tagi, þar á meðal námskeiði
hjá Vegsauka í því hvemig skuli ná
árangri. „En það sem mér finnst
skipta mestu máli er Ævintýra-
klúbburinn, sem við emm að
styrkja í ár. Ævintýraklúbburinn er
klúbbur þroskaheftra, einhverfra
og fjölfatlaðra einstaklinga eldri en
17 ára og eru þeir að safna fyrir fé-
lagsheimili. Við ætlum að leggja
þeim lið þetta árið og hjálpa þeim
við söfnunina."
Ásta segir söfnunina hafa gengið
rnjög vel og að hún sé meðal annars
unnin í samvinnu við fyrirtæki gegn
því að stúlkurnar kynni fyrirtækið.
Einnig mun hluti ágóðans af keppn-
inni sjálfri renna til Ævintýra-
klúbbsins.
„Svo vomm við með málverka-
uppboð í gær þar sem boðin voru
upp fimmtán málverk sem lista-
menn hafa gefið og rennur það allt
til Ævintýraklúbbsins,“ segir Ásta.
aði eg þá vel en þorði ekki að viður-
kenna það. Ég var svona laumu Oas-
is-aðdáandi þó ég hafi varla
viðurkennt það fyrir sjálfum mér.
Svo árið 1995 kom „(What’s the
story) morning glory?“ út og þá gat
ég ekki haldið í mér lengur og sagði
við sjálfan mig :„djö... þetta er kúl-
asta hljómsveit í heimi.“ Tilefni
þessarar greinar er nýútkominn
fjórða breiðskífa Oasis.
Hljómsveitin Oasis er ástæðan
fyrir því að ég fór að spila á gítar.
Ég „eyddi“ nær heilli önn í skólan-
um á Netinu í að prenta út hljómana
af lögum þeirra til að æfa mig
heima. Á tíma-
bili kunni ég öll
lögin á þrem
fyrstu plötun-
um og líka b-
hliðalögin.
Stundum tekur
maður í gítar-
inn í partíum og
það er lygilegt
hvað maður
getur náð nettri
stemmningu
með því að
kunna nokkra
Oasis-hljóma.
Það virðist sem
engin takmörk
séu sett fyrir
því hvað Noel
Gallagher getur
samið mörg
grípandi lög út
frá sömu vinnu-
konugripunum.
Lögin á nýju
plötunni,
Standing on the
shoulder of gi-
ants, eru ekkert flóknari en þau
gömlu lagasmíðalega séð. Noel kem-
ur enn og aftur á óvart með ótrúlega
grípandi og einföldum lögum.
Titill plötunnar er fenginn að láni
hjá sir Isaac Newton og segir meira
um Oasis en marga grunar. Newton
meinti að ef hann gat eitthvað betur
en aðrir var það út af því að hann
„stóð á öxlum“ fyrirrennara sinna.
Hann gat notað vitneskju þeirra sér
til framdráttar og þurfti því ekki að
finna upp hjólið. I Noels tilviki væru
það t.d. Lennon og McCartney. Oas-
is hafa ekki verið þekktir fyrir að
gera miklar uppgötvanir í tónlist
enda eru þeir ekkert að reyna það.
Noel hefur marg oft viðurkennt að
hann taki hljómaganga úr frægum
slögurum og spili þá á mismunandi
vegu þangað til að hann hefur samið
sinn eigin. Málið snýst um að gera
skemmtilega tónlist sem vekur upp
tilfinningar hjá fólki og þess vegna
skiptir það engu máli hvernig lögin
verða tii.
Noel og félagar hafa alltaf verið
hreinskilnir. Sem dæmi um það má
nefna viðtal við Noel sem birtist í
ensku blaði, eftir að upptökum á
plötunni lauk. Þar sagði hann að á
plötunni væru þrjú slöpp lög, eitt
ágætt og sex geðveik. í aðalatriðum
er ég sammála honum fyrir utan
eitt, mér finnst þetta eina ágæta lag
að hans mati vera næst besta lag
plötunnar. Þetta umrædda lag er
fyrsta Oasis-lagið sem annar með-
limur semur. Þann heiður á yngri
bróðir Noels og aðalsöngvari sveit-
arinnar, Liam Gallagher. Lagið
heitir „Little James“ og er vægast
sagt mjög góð frumraun. Haltu
áfram, strákur! Á plötunni ganga
þeir skrefi lengra í „sample“ og
tölvunotkun, en þeir gerðu tilraunir
með slíkt á síðustu plötu sinni „Be
here now“. Margir myndu halda að
tölvur og Oasis fari illa saman en
svo er ekki. Þeir nota tæknina til að
framkalla hljómburð sjöunda ára-
tugarins, með auknum krafti þó.
Nýr aðili var fenginn til liðs við Noel
til að stjórna upptökum og var það
enginn annar en Mark „Spike“
Stent sem m.a. hefur unnið með;
U2, Madonnu, Björk og Massive
Attack. Fyrsta lag plötunnar er til-
raunakenndasta lagið.
Það er furðuleg blanda af Chem-
ical Brothers, „Immigrant song“
með Led Zeppelin og að sjálfsögðu
Oasis. Fyrir um tveimur árum fékk
Noel oft kvíðaköst á næturna. Eina
slíka nótt samdi hann lag um þessa
lífsreynslu og var útkoman „Gas
panic!“ sem er að mínu mati besta
lag plötunnar. Lög Noels hafa oftast
fjallað um alþýðufólk. Textarnir eru
flestir um það að hverfa frá sínu
hversdagslega lífi, vera sannur sjálf-
um sér og gera það sem mann lang-
ar til. Það sama á við um nýju plöt-
una. Oasis hafa aldrei „grúvað“ eins
vel, aldrei verið eins „sækadelik"
sem er mjög skrítið því þeir hafa
aldrei verið eins edrú og nú. Platan
inniheldur bæði seiðandi og rokkuð
lög en það má einnig heyra smá
„gospel“-áhrif samanber lagið „Roll
it over“.
„Standing on the shoulder of gi-
ants“ er engin tímamótaplata í tón-
listarsögunni en er það þó fyrir Oas-
is. Aðallega fyrir það að þeir eru að
gera tilraunir með nýtt „sánd“ og
það að Liam semji eitt laganna.
Þetta er svona millistigsplata, þeir
eru að fara í gegnum ákveðnar
breytingar.
Tveir upprunalegir meðlimh- voru
að hætta og nú eru komnir vægast
sagt miklu svalari gæjar í þeirra
stað.
Nýtt „logo“, nýr lagahöfundur
hefur bæst við, nýtt „sánd“, nýir
meðlimir, og ný framkoma. Að mínu
mati eru þeir rétt að byrja.
P.s. Gallagher-bræður ef þið eruð
að lesa þetta, þá vil ég bara þakka
ykkur fyrir frábæra plötu og Noel,
takk fyrir að skilja þetta með kókos-
hnetuna.