Morgunblaðið - 27.02.2000, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.02.2000, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigrurjón Einarsson athafnamaður í Noregi. Ævintýramenn staldra sj aldnast lengi við Hann er athafnamaður sem býr í Noregi og hóf feríl sinn hjá TV Norge en nú er athafnasvið hans helst allur heimurinn. Hildur Einarsdóttir tók hús á Sigurjóni Einarssyni og forvitnaðist um feril hans og þá ekki síst kynni hans af sjálfstæðis- baráttu íbúa Austur-Tímor. / LÍFI Sigurjóns Einarssonar hafa tilviljanirnar oft ráðið ferðinni eins og árið 1986 þegar hann var staddur á kaffihúsi í Nice í Frakklandi. Þar hitti hann nokkra Norðmenn sem voru eins og hann á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes. Það barst í tal að Norðmennirnir, sem hétu Helvar Flatland, Ola Steinsrud og Ola Grönvold, væru að fara af stað með fyrstu frjálsu sjónvarpsstöðina í Noregi sem þeir kölluðu TV Norge. Sigurjón sem byrjaði að fikta við kvikmyndagerð á menntaskólaár- unum í MH og hafði unnið svolítið við auglýsingagerð hér fyrir sjón- varp, sagði þeim frá frumkvöðlun- um á Stöð 2, þeim Jóni Óttari Ragnarssyni og Hans Kristjáni Árnasyni. Eitt leiddi af öðru; Sigur- jón var fenginn til að kynna þá fyrir sjónvarpsstjórunum á Tunguháls- inum þar sem þeir kynntu sér starf- semi fyrstu einkareknu sjónvarps- stöðvarinnar hér á landi. Kynnin við Norðmennina urðu til þess að Sigurjóni var boðin vinna við TV Norge og fluttist hann utan með fjölskyldu sína og hefur búið þar síðan. Að sögn Sigurjóns er TV Norge afþreyingarsjónvarpsstöð sem byrjaði sem kapalstöð sem var öll- um opin. Á þessum árum var 60% heimila í Noregi tengd kapli. Aðal- tekjulind stöðvarinnar var af auglýsingum. Hóf feril sinn hjá TV Norge „Þetta var mjög lítil sjónvarps- stöð í upphafi,“ segir Sigurjón. „Þegar forsvarsmenn hennar komu til að skoða Stöð 2 þá hálf skömm- uðust þeir sín fyrir tækjakost sinn sem var minna en 5% af þeim tækj- um sem Stöð 2 hafði þá yfir að ráða. Þeir höfðu í upphafi mjög litla fjár- muni og byrjuðu smátt. En TV Norge fékk mjög góðar viðtökur strax í upphafi og stækkaði fljótt. TV Norge var og er dæmigerð af- þreyingarstöð og á að þjóna öllum. Boðið er upp á innlenda skemmti- þætti, erlendar kvikmyndir og sápuóperur. Nú er hún þriðja stærsta sjónvarpsstöðin í Noregi á eftir norska ríkissjónvarpinu og TV 2 með um 400 þúsund manna áhorf að meðaltali á kvöldi," segir Sigurjón sem vann við sjónvarpsstöðina í 7 ár. Lætur innsæið ráða Sigurjón hefur fengist við mörg ólíka störf eftir að hann pakkaði niður og flutti utan með eiginkonu sinni, Margréti Björnsdóttur og þremur börnum þeirra, Iðunni, sem nú er 19 ára, Einari, 16 ára og Hörpu, 12 ára. Hann segir að í lífi sínu hafi hann verið rekinn áfram af innsæinu. Þar sem hann eygði möguleika, nam hann land tímabundið en færði sig um set þegar önnur áhugavekjandi verkefni birtust út við sjóndeildar- hringinn. En höldum áfram með frásögnina af veru hans hjá TV Norge. „Fljótlega eftir að stöðin fór í loftið var byrjað að framleiða sjón- varpsþátt sem hét Casínó. Þáttur- inn gekk út á að sjónvarpsáhorf- endur hringdu inn til stöðvarinnar og léku rúllettu við þáttarstjórn- andann. í fyrstu voru verðlaunin ýmis heimilistæki eins og ísskápar en eftir 150 þætti voru þau einbýlis- hús, bfil og bátur eða allt sem þurfti til að hefja nýtt líf. Sjónvarpsþátt- urinn varð mjög vinsæll og á honum byggði stöðin velgengni sína í upp- hafi.“ Fór um heiminn og tók upp ferðaþætti Á þessum upphafsárum stöðvar- innar vann Sigurjón bæði við þátta- og auglýsingagerð hjá sjónvarps- stöðinni. „Auglýsingagerð fyrir sjónvarp var lítt þróuð í Noregi á þessum árum því auglýsingar höfðu ekki verið leyfðar í ríkissjónvarp- inu. Það var því eitt af okkar fyrstu verkum að stofna fyrirtæki sem annaðist gerð auglýsinga fyrir sjónvarp." Sigurjón starfaði einnig við gerð ferðaþátta. Hann fór til Suður-Am- eríku, Afríku, Indlands, Shri Lanka og Kúbu til að safna efni. Var um tvær þáttaraðir að ræða, önnur hét Safari en hin Over stok og sten en stjórnandi þeirra þátta hét Sten Johnsen og var þarna verið að leika sér að orðum. Starfaði Sigurjón sem upptökustjóri þáttanna og vann við gerð þeirra á 5 ára tíma- bili. Lenti í fjöld ævintýra „Já, eðlilega lenti ég í mörgum ævintýrum á ferðum mínum um þessi framandi lönd,“ segir hann aðspurður. „Mér er til dæmis minn- isstætt þegar við vorum á ferðalagi á Inkaslóðum í Perú. Við gengum í 5 daga leiðina frá Cusco að Machophico sem er heilög borg í ríki Inkanna og kvikmynduðum. Við gengum yfir fjögur fjöll og alveg upp í 4.200 metra hæð. Með í för var 15 ára gömul dóttir mín. Þetta ferðalag var óheyrilega erf- itt. Við vorum með mikinn og við- kvæman tækjabúnað og loftið var afar þunnt svo við áttum erfitt með andardrátt. Ég var oft alveg við það að gefast upp. Þegar við komum loksins til hinnar heilögu borgar var svarta þoka yfir henni, en hún stendur í 1.800 metra hæð. Þetta voru mikil vonbrigði því við höfðum þrjá klukkutíma til að mynda borg- ina. Þá gerðist það að þokan lyftist allt í einu af henni og hún blasti við í allri sinni dýrð, ég gleymi aldrei þeirri mikilfenglegu sjón,“ segir Sigurjón. Þegar krókódíllinn ætlaði að gleypa afa „Ég á líka sögu til að segja vænt- anlegum barnabörnum, þegar krókódíllinn ætlaði að gleypa afa,“ segir Sigurjón sposkur. „Það atvik- aðist þannig að við vorum að mynda sofandi krókódíl á sandrifi í miðri á. Við vorum á báti sem við höfðum lagt upp að rifinu og beygðum okk- ur fram til að ná góðri mynd af hon- um. Þá vaknar hann allt í einu og kastar sér í áttina til mín sem var næstur honum. Okkur sem vorum í bátnum brá svo mikið að við hent- umst til og var þá báturinn við það að hvolfa. Ef við hefðum lent út í væri ég ekki til frásagnar nú! Við fórum einnig til nokkurra borga og kynntum þær sérstaklega eins og Reykjavík og Pétursborg. I þeirri síðarnefndu hittum við Rússa að nafni Valery Berkov. Hann var prófessor í norrænu við háskólann í Pétursborg. Hann hafði samið norsk-rússneska orðabók og talaði góða norsku þó hann hefði aldrei komið til Noregs. Hann heyrði að ég talaði norsku með erlendum hreim og spurði hvaðan ég væri, ég sagði honum það. Þá breytti hann yfir í íslensku sem hann talaði líka með ágætum." Bankað á hurðina Á þessum árum fékkst Sigurjón við gerð tónlistarmyndbanda. Hann gerði meðal annars tónlistarmynd- band fyrir Morten Harkert, meðlim hinnar þekktu, norsku hljómsveitar AHA. Með þeim tókst góð vinátta sem hefur haldist síðan. Sigurjón segir blaðamanni frá atviki sem þeir Morten lentu í þegar þeir voru staddir í Monte Carlo árið 1993 í til- efni þess að Morten var að taka á móti tónlistarverðlaunum sem nefnast World Music Award. Þessi atburður átti eftir að hafa áhrif á líf þeirra og annarra sem komu við sögu. „Við vorum staddir upp á her- bergi Mortens að kvöldlagi þegar barið var á hurðina,“ byrjar Sigur- jón frásögn sína. „Fyrir utan stóð lágvaxin kona, dökk yfirlitum. Hún kynnti sig og kvaðst heita Maurine Davis og væri ættuð frá Austur- Tímor en byggi í Kanada þar sem hún væri kennari við háskólann í Montreal. Hún sagðist hafa fundið út eftir krókaleiðum að Morten væri þarna staddur og ætti hún við hann erindi. Það var eitthvað fal- legt yfir konunni svo við ákváðum að bjóða henni inn.“ Vakti athygli á sjálfstæðis- baráttu Austur-Tímor „Þessa kvöldstund og langt fram á nótt sagði hún okkur sögu Aust- ur-Tímor sem er fyrrum portúgölsk nýlenda. Fyrir 25 árum voru Aust- ur-Tímorar að leggja drög að sjálf- stæði sínu þegar Indónesía réðst á landið og innlimaði það. Sú aðgerð var gersamlega í trássi við alþjóða- lög. Það kom fram í máli konunnar að hún vonaðist til þess að Morten mundi beita áhrifum sínum sem fræg poppstjarna til að vekja at- hygli á frelsisbaráttu Austur-Tímor í heimalandi sínu, en Morten var þekktur fyrir að taka að sér góðan málstað og berjast fyi-ir honum. Við heilluðumst báðir af örlaga- sögu þjóðarinnar og spurðum okk- ur sjálfa hvað við gætum gert. Það kom fljótt upp í umræðu okk- ar að það sem gæti vakið mesta at- hygli á málstað Austur-Tímor væri ef helstu baráttumenn frelsissam- taka Austur-Tímor fengju friðar- verðlaun Nóbels. Þegar við komum til Noregs byrjuðum við á því að kynna málið fyrir stjórnmálamönnum en því miður töluðum við fyrir daufum eyrum. Aðeins einn þingmaður, Káre Christiansen, tók eitthvað mark á því sem við vorum að segja.“ Fékk íslenska þingmenn til að tilnefna Horta til friðarverðlauna „Fljótlega eftir þetta kynntumst við José Ramos Horta sem hafði verið utanríkisráðherra Austur- Tímor í nokkrar vikur eftir nell- ikkubyltinguna árið 1974 þegar eyj- an öðlaðist tímabundið sjálfstæði. Hann var helsti baráttumaður Austur-Tímora og ferðaðist um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.