Morgunblaðið - 27.02.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
í síðustu umferð Flug-
leiðamótsins fengu margir
keppendur það verkefni
að spila sex hjörtu í suður
á þessar hendur:
Norður
* ÁG6
VÁKD105
* D
* G964
Suður
A KD7
v 843
* IÍG973
* AD
Eftir opnun suðurs á
einu grandi yfirfærir norð-
ur í hjarta og því kemur
það i hlut suðurs að stýra
sókninni. Vestur spilar út
smáum spaða og fyrsta
spurningin er: Með hvaða
spili á að taka slaginn?
Það er nákvæmast að
taka á ásinn og eiga þann-
ig tvær innkomur heima á
KD í spaða síðar. Trompið
verður að skila sér, en
sagnhafi vildi gjarnan
losna við að svína í laufi, og
það getur hann ef hægt er
að búa til aukaslag á tígul.
Sem sagt: Upp með spaða-
ás og AK í hjarta teknir.
Þá hendir austur spaða.
Hvað nú?
Jú, það blasir við að
spila tíguldrottningu.
Austur tekur með ás og
skiptir yfir í smátt lauf.
Þetta er óþægileg vörn,
því nú verður að velja á
milli laufsvíningar og þess
að fría tígulinn. En auðvit-
að er rökrétt að stinga upp
laufás og treysta frekar á
tígulinn, því líkur á 4-3
legu eru nokkru meiri en
líkur á svíningu.
Noj-ður
* 4G6
v AKD105
* D
* G964
Vestur Austur
A 10842 A 953
v G962 v 7
♦ 54 ♦
Á10862
* 1087 * K532
Suður
A KD7
v 843
♦ RG973
* AD
En réttlætið sigrar ekki
alltaf við spilaborðið og
margir fóru niður eftir
þessa þróun mála.
„Fórstu niður á slemm-
unni? spurðu sveitarfélag-
arnir undrandi í uppgjör-
inu, en þar hafði vestur
spilað út laufi eða austur
„gleymt" að skipta yfii' í
lauf þegar hann var inni á
tígulás.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbams
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavik
Arnað heilla
n A ÁRA afmæli. I dag,
I U sunnudaginn 27.
febrúar, verður sjötugur
Jón Sigurðsson, fyrrv.
fulltrúi á skrifstofu Ríkis-
spítalanna, til heimilis í
Fannborg 1, Kópavogi.
Eiginkona hans er Dag-
mar Guðmundsdóttir frá
Ólafsvík.
A A ÁRA afmæli. Á
OU morgun, mánudag-
inn 28. febrúar, verður
Kolbrún Jóhanncsdóttir,
Hátúni 12, Reykjavík,
sextug. Kolbrún tekur á
móti vinum og vanda-
mönnum á heimili sínu,
Hátúni 12, 5. hæð, á morg-
un milli kl. 15.00 og 19.00.
Jóhannes hefur aldrei
tekið veikindaleyfi í
þau 48 ár sem hann
hefur unnið hjá okkur.
/?/1 AKA atmæli. 1 dag,
OU sunnudaginn 27.
febrúar, verður sextugur
Kjartan Siguijónsson,
orgelleikari, Lundar-
brekku 14, Kópavogi.
Eiginkona hans er Berg-
ljót S. Sveinsdóttir. Þau
eru að heiman.
SKÁK
llmsjón llelgi Áss
Grctarsson
Svai-tur á leik
Þessi staða kom upp á
milli rússnesku stórmeistar-
ana Sergei Ionov, hvítt, og
A. Loginov á minningarmóti
Petroffs sem lauk fyrir
skömmu í Pétursborg,
Rússlandi. 24. - Rxf4! Tætir
upp hvítu kóngsstöðuna. 25.
gxf4 - Dxf4 26. Da3 Erfitt
er að benda á annan leik sem
gefur færi á haldbærri vörn.
26. - Dg4+ 27. Khl - Df3+
28.Kgl - Bh3 29. Dxf8+ -
Kxf8 og hvítur gafst upp.
Þarftu bæði að taka
vinnuna og einkaritar-
ann með þér heim?
UOÐABROT
ÚTLEGÐIN
Eg á orðið einhvern veginn
ekkert fdðurland,
þó að fastar hafi um hjartað
hnýtzt það ræktarband,
minn sem tengdan huga hefur
hauðri, mig sem ól,
þar sem æskubrautir birti
björtust vonarsól.
Fóstran gekk mér aldrei alveg
í þess móðurstað,
það var eitthvað á sem skorti -
ekki veit ég hvað.
Og því hef eg arfí hennar
aldrei vera sagzt. -
Þó hefur einhver óviðkynning
okkar milli lagzt.
Enn um vornótt velli græna
vermir sólskin Ijóst,
ennþá lækir hverfast kringum
hvelfdra hlíða brjóst,
báran kveður eins og áður
út við fjörusand. -
En ég á orðið einhvern veginn
ekkert föðurland.
Stephan G. Stephansson.
STJ ÖRIVUSPÁ
eftir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú leggurhart að þér til
þess að öðiast skilning á sem
fiestu. En hjartað þarf líka
að fá að ráða.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er við engan að sakast
nema sjálfan þig, ef það mál,
sem þú berð svo mjög fyrir
brjósti, gengur ekki upp.
Líttu í eigin barm; ekki
skamma aðra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Leggðu þig fram um að verða
við óskum, sem á þínu færi er
að uppfylla. Og þegar maður
gefur,miklast maður ekki,
heldur hefur það fyrir sjálfan
sig._____________________
Tvíburar
(21.maí-20.júní) AA
Nú virðist þér skapast stund
milli stríða og það er upplagt
að nota hana til þess að auka
við vitneskjuna. Góð bók er
gulli betri í þeim efnum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft a leira fleiri leiða til
þess að tjá hug þinn. Líttu til
barnanna, þau kunna svo vel
að koma tilfinningum sínum á
framfæri við aðra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekki láta eigingimina ná tök-
um á þér. Gott ráð gegn því er
að gefa einhverjum hlut, sem
þér er ekki sama um. En
gakktu samt ekki of langt!
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) 4SÍfL
Ekkert jafnast á við góða
gönguferð út í náttúrunni.
Þótt vetur ríki enn, er sól í
sinni og það eina sem dugar
er að klæða sig eftir aðstæð-
Vog
(23. sept. - 22. október) 414
Þótt löngunin sé að heltaka
þig, þá sýndu dug og stattu
gegn henni. Þú kemst líka að
því að þessi hlutur er ekki
eins eftirsóknarverður og
sýnist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hreyfing er holl; svo drífðu
þig af stað. Þú þarft eklri að
þenja þig einhver ósköp, enda
er bezt að fara hægt af stað
og herða svo á með tímanum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) Akv
Nú þarftu að finna þér tóm til
þess að koma hugmyndaflug-
inu niður á blað, hvort heldur
þú teiknar eð skrifar.
Hleyptu öðrum ekki að þér.
Steingeit „
(22. des. -19. janúar)
Ekki láta sjálfsefann ná tök-
um á þér. Þú hefur alla burði
til þess að vinna þitt starf og
leysa það vel af hendi. Það er
bara að byrja strax.
Vatnsberi
(20.jan.r-18. febr.) CÉi
Þér finnst þú eitthvað við-
kvæmur gagnvart öðrum
þessa dagana. Reyndu að
herða upp hugann og ýta
þessu frá þér. Gott er að hafa
nóg að gera.
Fiskar ^
(19. febrúar - 20. mars)
Varastu að festast í einhverj-
um lagakrókum. Farðu þér
hægt, kynntu þér málin vand-
lega og skrifaðu ekki undir
neitt sem þú ert ekki hand-
viss um.
Stjömuspána á að iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2000 51
NÝ sending Kjólar, dragtir
sundbolir
Hverfisgöhj 50 O Sími 551 5222
Hef opnað lækningastofu:
Lækning, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Tímapantanir eru í síma 533 3131
mánudaga-föstudaga frá kl. 9.00-17.00
Georg Steinþórsson,
æðaskurðlæknir Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Sérgrein: Æðaskurðlækningar og almennar skurðlækningar
Hef opnað lækningastofu:
Lækning, Lágmúla 5, 108 Reykjavík
Tímapantanir eru í síma 533 3131
mánudaga - föstudaga frá kl. 9.00-17.00
Hjörtur G. Gíslason,
skurðlæknir Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Sérgrein: Almennar skurðlækningar og meltingarfæraskurðlækningar
AUKIN EINBEITING
MEÐ SJALFSDALEIÐSLU
Námskeið/einkatímar sími 694 5494
Ný nániskeið hetjast 8. o« 21. mars
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójaftivægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Mánudagsspjall
Á morgun
í hverfinu
vesturborginni
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða með viðtalstíma í hverfum borgarinnar
næstu mánudaga.
Á morgun verða
Ásta Möller alþingismaður og
Jóna Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi
í vesturborginni, Kaffi Reykjavík,
kl. 17.15-19.15.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga
til að ræða málin og skiptast á skoðunum við
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hafðu áhrif og láttu
þínar skoðanír heyrast.
Næsti mánudagsspjallfundur:
Mánudagur 6. mars
kl. 17.15-19.15 í Grafarvogi, Hverafold 1-3.
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Reykjavlk
www.xd.is
sími 515 1700
sjAlfstæðisflokkurinn